Skessuhorn - 29.04.1999, Qupperneq 23
gKESSUHÖBKI
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
23
Netleikur Flugleiða og Skessuhoms
Heppinn lesandi Skessuhoms getur
unnið ferð til Parísar
Einn af höfuðkostum inter-
netsins er að sú þjónusta sem
boðin er á vefnum nýtist öllum
jafint óháð búsetu. Flugleiðir
hafa um nokkurt skeið nýtt sér
þessa leið til að veita öllum við-
skiptavinum sínum jaíha þjón-
ustu. A Flugleiðavefnum má
meðal annars nálgast upplýsing-
ar um alla áfangastaði Flugleiða
og bóka jafnóðum ferðir, hótel
og bflaleigubfla.
Að sögn Garðars Hreinssonar
talsmanns Flugleiða er sértilboða-
síðan ein vinsælasta vefsíðan á
Flugleiðaveínum. ,„4 síðunni eru
sértilboð Flugleiða kynnt og til
að bóka og ganga frá ferðinni net-
inu er hægt að ganga í sértilboða-
klúbb Flugleiða. Aðgangur að
sértilboðaklúbbi Flugleiða er end-
urgjaldslaus og öllum opinn,“ sagði
Netleikurinn er á Flugleiðavefnum.
Guðni.
Sértilboðaklúbbur Flugleiða á
Flugleiðavefhum heldur upp á eins
árs afmæli um þessar mundir. Tæp-
lega 20.000 manns hafa skráð sig í
klúbbinn og tryggt sér aðgang að
nýjum og fjölbreyttum tilboðum í
hverri viku á vef Flugleiða. Félagar
í klúbbnum fá jafnan senda til-
kynningu um sértilboð í tölvupósti
um leið og þau birtast á netinu, auk
upplýsinga um nýjungar hjá Flug-
leiðum. Sértilboð Flugleiða eru
vaxandi þáttur í markaðssemingu
Flugleiða og bætast við flóra ann-
arra tilboða Flugleiða um flug og
ferðalög. Sértilboðin miðast við til-
tekinn sætafjölda og takmarkaðan
bókunarfyrirvara.
Netleikur
Komið hefur í ljós að meirihluti
klúbbfélaga er á stór-Reykjavíkur-
svæðinu. í því skyni að vekja at-
hygli íbúa landsbyggðarinnar á
þjónusm Flugleiða á vefnum munu
Flugleiðir í samvinnu við Skessu-
horn gefa einum heppnum lesenda
Skessuhorns ferð fyrir tvo til
Parísar. Leikreglur era þær að les-
endur Skessuhoms skrá sig í
Netklúbb Flugleiða á eftirfarandi
slóð www.icelandair.is eigi síðar
en fimmmdaginn 20. maí, þeir
fara í pott sem dregið verður úr og
nafn vinningshafa birt í Skessu-
horni.
Það eina sem þarf að gera er að
skrá sig í sértilboðaklúbbinn á
Flugleiðavefnum. Slóðin er
www.icelandair.is
Flugleiðir og Skessuhom
Föndrað á follu
Kraftmiklar konur í bjartsýniskasti
Margir smíðagripimir eru bráðskemmtilegir.
Þær Inga Björg Sigurðardóttir
og Inga Dóra Steinþórsdóttir eru
báðar fæddar og uppaldar á
Skaganum. Þær segjast hafa vitað
af hvor annarri í gegnum tíðina
en kunningskapur tókst með
þeim fýrir nokkrum árum þegar
Inga Dóra flutti aftur á Skagann
en hún bjó um árabil á Akureyri.
Þessar kraftmiklu konur starf-
rækja verkstæði og vinnugallerí
ásamt dálítilli búð við Ægisbraut
á Akranesi.
Opnað var með pomp og prakt
10. október á liðnu hausti og hefur
reksmrinn gengið ágætlega. Þær
vinna ýmsa hluti úr tré sem þær
segja að hafi verið vel tekið, og nú
æda þær að færa út kvíarnar og
koma sér upp brennsluofhi fýrir
leir. Blaðamaður Skessuhoms leit
til þeirra á dögunum og fékk að
heyra alla sólarsöguna um það
hvernig Hugur og hönd ehf kom
tdl. Það er bæði notalegt og upplífg-
andi andrúmsloft á verkstæðinu hjá
þeim stöllum, þær slá ekki slöku við
þótt blaðamaðurinn reyni að tefja
þær með spurningum sínum heldur
halda ótrauðar áfrarn að búa til
skemmtilega gripi.
Duldir hæfileikar
„Við heitum hugur og hönd - ég
er hugurinn og hún er höndin,“
segir Inga Björg og þær hlæja báðar
dátt. Þær segja að hugmyndin að
þessu smáfýrirtæki þeirra hafi
kviknað yfir strauvélinni í Efha-
lauginni Lísu þótt hún hefði reynd-
ar átt sér lengri aðdraganda. „Okk-
ur datt í hug að það væri kannski
ekki svo vitlaust að í stað þess að
vera að föndra þetta smávegis
heima við að drífa bara í að stofha
Iítið fyrirtæki. Og þar sem við erum
báðar frekar bjartsýnar að eðlisfari,
eða tökum alla vega svona bjart-
sýnisköst, þá létum við vaða. Við
héldum að við byggjum yfir duld-
um hæfileikum sem væra illa nýttir
við að vera bara að strauja.“
Inga Dóra segir að það hafi líka
haft sín áhrif að fólk var farið að
biðja þær að búa til hluti fýrir sig.
„Maður var að gera allar jólagjafir
og fólk var byrjað að koma og biðja
mann að búa til hitt og þetta fýrir
sig og vildi kaupa. Þegar upp var
staðið kom það þannig út að maður
gaf í rauninni alltaf allt sem maður
gerði.“
Að standa rétt
að málum
Þær segja að það sé ekki þrauta-
laust að stofna fýrirtæki þótt ekki sé
það stórt í sniðum.
„Við voram nógu vitlausar til að
halda að það væri létt verk að
stofna fýrirtæki en það reyndist öllu
snúnara. Við byrjuðum alls staðar á
öfugum enda og okkur hefði aldrei
tekist þetta nema með aðstoð góðra
manna. Við voram hreinlega leidd-
ar áfrarn enda þekkti hvorag okkar
til fýrirtækjarekstrar. En við vildum
standa rétt að málum frá upphafi,
ekki síst gagnvart opinberam aðil-
um. Það er óhætt að segja að við
eram búnar að læra heilmikið á
stuttum tíma.“
Fram til þessa hafa þær Ingur
unnið mest með tré en hyggjast
færa út kvíarnar. Brennsluofni verð-
ur komið fýrir á næstunni og eins
era uppi hugmyndir um að bæta við
saumavinnu, stimplun á efni og
fleira.
„Við vinnum sjálfar allt efni sem
við smíðum úr, sögum út stórt sem
smátt, blöndum liti og svo framveg-
is. Þetta er hellings vinna. Við ætl-
uðum okkur ekki að vera mjög lengi
í trénu en það vindur stöðugt upp á
sig. Við höfum einhvern veginn
ekki komist útúr því og það er ljóst
að við höldum áfram að vinna með
tré. Trévinnan er rosalega
skemmtileg og við sjáum alltaf eitt-
hvað sem við hreinlega verðum að
gera.“
Draumurinn
Inga Dóra bjó á Akureyi í níu ár
og þar kynntist hún Punktinum.
Inga Björg Sigurðardóttir og lnga Do'ra Steinþórsdóttir sem reka vimiugalleríið Hug og
hönd á Akranesi.
„Upphaflega var Punktinum ætlað
að vera opið hús fýrir atvinnulaust
fólk en hann var sóttur af alls konar
fólki sem hafði áhuga á að gera eitt-
hvað í höndunum. Þar vora leið-
beinendur í saumaskap, útskurði,
smíðum, leir, skrautskrift og fólk
sýndi þessu gífurlegan áhuga. Það
var draumurinn að opna kannski
sambærilega aðstöðu fýrir fólk hér á
Skaganum en náttúrlega miklu
smærri í sniðum.“
Inga Björg kinkar kolli til sam-
þykkis. „Hugmyndin er fá fólk til
að koma og hafa sírennsli hér í
gegn,“ segir hún. „Fólk getur þá
komið á þeim tíma sem að því hent-
ar. Það er svo gaman að vinna að
svona hlutum með öðram, og síðast
en ekki síst hefur maður gott af því
sjálfur að kynnast því sem býr í
kollinum á öðru fólki.“
Þær hafa boðið upp á námskeið
sem þær segja að hafi verið vel sótt
og reynst mjög skemmtileg. Opið
hús hefur verið hjá þeim einu sinni
í viku og fýrirhugað að halda því
áfram.
„Við viljum fá bæjarbúa með
okkur og hvetjum þá til að koma. I
flestum býr þörf fýrir að tjá sig með
litum og formum. Það era til marg-
ar flinkar konur út um allan bæ sem
föndra mikið, en þær era kannski
ekki svona góðar með sig eins og
við.“ segja þær og sem fýrr er stutt í
hláturinn. K.K.
Auglýsing um deiliskipulag-
-Tjaldstæði við Kalmansvík, Akranesi.
Með vísan í 25. gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/1997
er hér með auglýst eftir athugasemdum við deiliskipulag
- Tjaldstæði við Kalmansvík, Akranesi.
Svæðið sem deiliskipulagstillagan tekur til er tæplega 2,2 ha
að flatarmáli og afmarkast af þjóðvegi 509 til suðausturs,
strandsvæði í Kalmansvík til norðvesturs, nær norður fyrir
bæjarhól gamla Kalmansvíkurbæjarins og suður fyrir skurð
sem leiddur er til sjávar í Kalmansvík.
Teikningar og greinargerð ásamt frekari upplýsingum liggja
frammi á bæjarskrifstofum Akraneskaupstaðar, Stillholti
16-18,3. hæð, frá og með 27. apríl 1999 til 27. maí 1999.
Athugasemdir ef einhverjar eru skulu vera skriflegar og
berast bygginga- og skipulagsfulltrúa Akraneskaupstaoar
eigi síðar en 10. júní 1999. Þeir sem ekki gera athugasemd
við tillöguna teljast samþykkja hana.
Skúli Lýðsson, bygginga-
og skipulagsfulltrúi.
Akranesi, 27. apríl 1999.
A