Skessuhorn - 15.06.2000, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 15. JUNI 2000
^sunu^
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi:
Akranesi:
Borgarbraut 49
Suðurgötu 65, 2. hæð
Sínti: (Borgarnes og Akranes) 430 2200
Fax: (Borgornes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. 430 2200
Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 852 8598
Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 852 4098
Internetþjónusta: Bjarki Mór Karlsson 899 2298
Blaðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Egill Egilsson, Snæfellsnesi 894 5038
íþróttafréttaritori: Jónas Freysson (James Fryer)
Auglýsingar: Hjörtur Hjortorson 864 3228
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222
Prófarkalestur: Asthildur Magnúsdóttir og Mognús Magnússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 200 kr.
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidja@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
egill@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
430 2200
Teiti
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Um síðustu helgi var mér boðið í teiti all-
veglegt í heimahúsi af einhverju tilefhi sem ég
man ekki lengur hvað var. Eg tel það heldur
ekki skipta öllu máli þegar veislur eru annars
vegar hvers vegna til þeirra er stofhað enda
höfuðatriðið hvað er á borðum.
Eg bjó mig að heiman vel og íklæddur mínum almesta sparibún-
ingi skundaði ég á staðinn glaður í bragði.
Ég skynjaði það um leið og ég knúði dyra að eitthvað var öðruvísi
en það átti að vera. Það lá eitthvað í loftinu og þótt ég gæti á þeirri
stundu ekki gert mér grein fyrir hvað það var. Grunur minn gerðist
áleitnari um leið og ég steig fæti inn í fordyrið. A yfirborðinu virtist
að vísu allt með felldu. Konur sátu í eldhúsi, líkt og kvenna er siður,
og sötruðu kaffi...Opinberlega að minnsta kosti. Eðlisávísun mín
sagði mér hinsvegar að líklega væri sherryflaskan opin á bakvið dall-
inn með kartöflusalatinu.
Það varð að vísu ekki greint á fari kvennanna að neitt misjafnt væri
á seyði en mér þótti þær þó venju ffemur mæðulegar á svip og mér
var ekki örgannt um að þær byggju yfir einhverju sem þær vildu ekki
láta uppi.
Þá var það að ég veitti því athygli að hvergi var nokkum karlmann
að sjá, hvorki í sölum né á göngum. Ekki hafði ég heldur séð nokkurn
mann við útiverk er ég renndi í hlað þótt veðurskilyrði væra hagstæð.
Eg kunni ekki við að spyrja hverju þetta sætti og hélt mínum vanga-
veltum innan dyra en vissulega var ég á þessu stigi farinn að hafa á-
hyggjur af hvað væri á seyði enda má til skýringar geta þess að á við-
komandi heimili er allt í föstum skorðum og reglusemi fram úr hófi.
Eg lét því sem ekkert væri og fylgdist um stund með konunum gera
að steikinni. Ekld leið á löngu þar til ég fór að heyra torkennileg hljóð
sem ég taldi koma innan úr húsinu. Þetta voru hvell óp, ámátleg vein,
hálfkæfðar stunur og kumr. Það læddist að mér sá grunur að hljóðin
væru ekki af þessum heimi en ég veitti því hinsvegar athygli að kon-
urnar sýndu engin svipbrigði, jafnvel þótt hávaðinn magnaðist.
Nú varð forvitnin öllu öðru yfirsterkari og ég rann á hljóðið sem
leiddi mig að kamesi einu innarlega í húsinu.
Aðkoman var vægast sagt ógeðfelld. I sófa í miðju herberginu sat
fjöldi karlmanna saman í einum haug og óku sér til og ffá líkt og þeir
væru í basli með einhverja óværu. Einn nagaði sófabakið, annar reytti
hár sitt og skegg, sá þriðji sló reglulega á lærið á þeim fjórða sem svar-
aði að bragði með löðrungi og sá fimmti veittist með offorsi að
ljósakrónunni.
Þar sem ég hef afar litla þekkingu á læknisfræði átti ég í vandræð-
um með að átta mig á því ástandi sem ríkti í þessu litla herbergi. Helst
datt mér í hug að um væri að ræða skæðan flogaveikifaraldur, skatt-
skráin væri komin út eða veðurspáin væri slæm.
Þá loks rann upp fyrir mér ljós....Evrópumótdð í boltabaksi var
nýhafið og einhverjir útlendingar vora að lúta í gras fyrir einhverjum
öðrum útlendingum í sjónvarpinu.
Eg komst aldrei að því hverjir unnu hverja í þessum leik enda sneri
ég mér að sherrýinu í eldhúsinu á meðan ég var að jafna mig. Eg vissi
þó að leikur sjónvarpsáhorfenda var óskaplega harður og mikið um
allskyns hnjösk og meiðsl. Einn brenndist illa á hægra læri er hann
hellti yfir sig sjóðheitu kaffinu, annar marðist á handarbaki þegar
hann sló lúkunni í steinsteyptan millivegg effir misnotaða vítaspyrnu
og sá þriði tognaði á mjöðm er hann fell úr sófanum eftir þriðja mark-
ið. Ekki veit ég hinsvegar til þess að hina raunveralegu leikmenn hafi
á nokkurn hátt sakað.
Daginn eftir léku Frakkar við Dani. Þá sló ég garðinn, vökvaði
blómin og sópaði gangstéttina.
Gísli Einarsson garðyrkjufrœðingur
Hér má sjá hvernig kveikt hefiir verið í bekkjunum og þeir skemmdir.
Skemmdarverk
uirniná
útivistarsvæði
Aðfaranótt laugardagsins 10. júní
voru unnin skemmdarverk á bekkj-
um og grjóthleðslu sem komið
hafði verið fyrir við malarstíginn
fyrir ofan Langasand á Akranesi.
Aðkoman var ömurleg þegar blaða-
maður lagði þangað leið sína því
skemmdarvargarnir höfðu ekki að-
eins rifið grjót úr hleðslunni kring-
um bekkina, heldur hafði einnig
verið lögð mikil vinna í að kveikja í
bekkjunum sjálfum og stórskemma
þá. Bekkirnir eru tiltölulega nýir,
og að baki þeim liggur mikil vinna.
Dapurt er til þess að hugsa að það
sem vel er gert geti ekki fengið að
standa í friði og eru þeir, sem telja
sig vita hver þarna var að verki,
hvattir til að hafa samband við lög-
reglu. SOK
Dræm laxveiði
Kuldi, sól og vatnsleysi eru sam-
verkandi þættir sem valdið hafa því
að laxveiðin í borgfirsku ánum fer
afar dræmt af stað að þessu sinni.
Um hádegi sl. þriðjudag voru ein-
ungis 14 laxar komnir á land úr
Þverá og Kjarrá en 65 laxar úr
Norðurá ffá mánaðamótum. Síð-
asta holl í Norðurá náði 9 löxum á
land. Veiðimaður sem var á ferð í
Kjarrá s.l. laugardag sagði að í allt
hefðu 4 laxar sést í allri ánni þann
daginn og þar af hafði einn af þeim
veiðst. I Kjarrá er í allt veitt á sjö
stangir á bændadögum, en þeir
hafa staðið yfir að undanförnu.
Nú er breyting á veðurspá og spá
menn því að þegar fari að rigna nú
í vikulokin komi göngur í árnar á
svæðinu og um leið fari að veiðast
af kraftí.
MM
Skotfélagsmenn
áhyggjulausir
Bæjarráð hefur skýrt frá því álití
sínu að banna ætti notkun blýhagla
á landi í eigu Akranesbæjar. Að
sögn Kára Haraldssonar, formanns
Skotfélags Akraness, hafa menn þar
á bæ svo að segja engar áhyggjur af
því að það nái fram að ganga. “Búið
er að tala við alla þá aðila sem hafa
einhverja þýðingu í að taka svona
ákvarðanir og þeir segja allir að það
gangi ekki upp. Þetta er því í raun-
inni bara álit bæjarráðs og það er
bara gott mál að menn segi sína
skoðun. Eina sem við erum ósáttir
við í sambandi við þetta mál er að
við skyldum vera bendlaðir við það
til að byrja með. Bréfið sem kom
þessu af stað var undirritað af
hesta- og fjáreigendum á Akranesi
og ekkert meira. Maður veit auð-
vitað ekkert hver sendir svoleiðis
bréf og við vorum ósáttir við að fá
svarbréf við svona hálf óundirrit-
uðu bréfí” segir Kári. SÓK
Eldur í bústað
Eldur kom upp í sumarbústað í
Munaðamesi síðastliðinn sunnu-
dag og að sögn Bjama Þorsteins-
sonar slökkviliðsstjóra í Borgar-
nesi mátti litlu muna að illa færi
en lítlisháttar skemmdir urðu á
verönd og þakskeggi á bústaðn-
um. “Við vorum komnir á stað-
inn tuttugu mínútum efrir að út-
kall barst en þá haíði tekist að
slökkva eldinn með handsiökkvi-
tæki,” segir Bjarni. “Eldurinn
hefur trúlega orsakast af leka úr
kút á gasgrilli og hefur kviknað í
feiti sem lekið hefur af grillinu.
Það er aldrei of varlega farið og
ástæða til að hvetja sumarhúsa-
eigendur og aðra til að huga vel
að eldvömum. Handslökkvitæki,
eldvamarteppi og gasskynjari eru
ódýr lífcrygging,” segir Bjami.
GE
Banaslys
Banaslys varð á Kirkjubraut á
Akranesi á ellefta tímanum á
þriðjudagskvöld er bifihjól lenti í
árekstri við biffeið. Okumaður
bifhjólsins lést í árekstrinum.
Læti í
Hreðavatni
Mjög fjölmennt var á dansleik í
Hreðavatnsskála síðastliðið laug-
ardagskvöld og talið að upp undir
1000 manns hefðu verið á svæð-
inu þegar mest var.
Töluverður órói var í fólkinu
sem var utandyra og mikið um
minniháttar pústra að sögn
lögreglunnar. Einn piltur hand-
arbrotnaði, einn hlaut stungusár
og nokkrir fengu glóðaraugu, mar
og skrámur Þá þurfti lögreglan
að hirða nokkur ungmenni þók-
staflega upp af götunni í nágrenni
við skálann en þau höfðu verið á
rangli um svæðið en sofnað síðan
ölvunarsvefni. GE
Fullt í
Húsafelli
Ferðafólk fór af alvöru á stjá nú
um Hvítasunnuhelgina. Víða á
Vésturlandi komu fyrstu gestir á
tjaldstæði þrátt fyrír að veður
væri meðkaldasta mótí miðað við
ársttma. I Húsafelli var að sögn
Bergþörs KristJeifssonar fullt á
tjaldstæðunum og góður andi
meðal gestanna. Þangað komu
um 1000 tjaldgestir og fullt var í
fléstum sumarhúsum á svæðinu.
MM
Ný félagsaðs-
taða
Næstkomandi föstudag er
ráðgert að ný félagsaðstaða opni
fyrir unglinga í Borgar- nesi. I
hluta gömlu: kart- öflugeymslan-
na við Ánahlíð er verið að leggja
lokahönd á frágang fyrir opnun
húsnæðísins, Að hluta vinna
unglingamir sjálfir að endurbó-
tunum.
Auk félagsmiðstöðvarinnar
hefur FjÖliðjan í Borgaraesi flutt
starfsemi sína í norðurenda
hússins, eins og greint er ffá á
öðrum stað í blaðinu í dag. Síðast
var: Slökkvilið Borgar- ness til
húsa á þessum stað, en það hefur
nú flutt í Sól- bakkahverfið með
starfsemi sína. KIM
Ekki sam-
keppnisfærar
Að þessu sinni var spurt á
Skessuhomsvefhum í spumingu
vikunnar hvort verslanir á Vestur-
landi væru samkeppnisfærar við
höfuðborgarsvæðið. Já svöruðu
65 eða 35% en Nei svöruðu 120
eða 65% þátttakenda.