Skessuhorn - 15.06.2000, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 15. JUNI 2000
§ggSSUHöEÍ3
Skipulagsyfirvöld hafha sex hæða stórhóteli í gamla miðbænum:
Fótunum kippt undan rekstrinum
- segir Hilmar Bjömsson, annar eigenda Hótels Barbró, sem ekki vill leggja árar í bát
Ekkert verður af fyrirhugaðri 44
herbergja viðbyggingu Hótels
Barbró í miðbæ Akraness. Skipu-
lagsnefnd Akraneskaupstaðar
hefur hafoað erindi eigenda hót-
elsins vegna áformaðrar hæðar
hússins svo og vegna fyrirsjáan-
legs skorts á bflastæðum í gamla
miðbænum í kjölfarið. A meðal
röksemda skipulagsyfirvalda má
nefha, að hefðu hugmyndimar
hlotið samþykki hefði verið
nauðsynlegt að taka allan svo-
kallaðan Akratorgsreit til skipu-
lagningar að nýju.
“Alvöruhótel“ í salt
Áform þeirra Hilmars Björnsson-
ar og Hönnu Rúnu Jóhannsdóttur
um sex hæða viðbyggingu verða því
Styrkþegar ásamt sparisjóðsstjóra og varaformanni SPO. Talibfrá vhistri: Kristján Hreinssón sparisjóðsstjóri, Þórgrímur Ólafsson
frá Fœreyingafélaginu, Bjami Olafsson Brimilsvallakirkju, Veronica Osterhammer söngkona, Svanhildur Egilsdóttir fyrir Fiska-
safnió, Ari Bjamason fulltníi umsœkjenda um skógrækt og Bjöm Arnaldsson varaformaður SPO.
s
Uthlutun úr M$nningarsjóði
Sparisjóðs Olafsvíkur
Á aðalfundi Sparisjóðs Olafsvíkur á Hótel Höfða þann 9. maí. sl. var tilkynnt um úthlutun styrkja úr Menn-
ingarsjóði Sparisjóðs Ólafsvíkur og hlutu efrirtaldir aðilar styrk fyrir árið 2000:
1. Brimisvallakirkja kr. 200.000 til viðhalds og endurbóta kirkjunnar.
2. Veronica Osterhammer söngkona kr. 50.000 til tónleikahalds.
3. Færeyskir dagar í Olafsvík kr. 60.000.
4. Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu kr. 40.000 vegna þátttöku í unglingalandsmóti UMFI á
Tálknafirði í sumar.
5. Áhugahópur um fiskasafn í Olafsvík kr. 100.000.
6. Sameiginleg umsókn Rótarýklúbbs Olafsvíkur, Lionsklúbbs Olafsvíkur, Lionsklúbbsins Ránar, Kvenfélags
Olafsvíkur, Kiwanisklúbbsins Korra og Skógræktarfélags Olafsvíkur, kr. 100.000 til trjáræktar í Olafsvík.
EE
BORGARBYGGÐ
íbúar, fyrirtæki
og stofnanir
í Borgarbyggð athugi
Gámastöðin á Sólbakka í Borgarnesi er tekin til starfa. Eigandi er
Borgarbyggð en rekstraraðili er Gámastöð Vesturlands.
Gámastöðin er móttöku- og flokkunarstöð fyrir sorp þar sem
rp
stofnunum en frí móttaka fyrir heimili innan ákveðinna marka
Helstu endurvinnsluflokkar eru brotajárn, málmar, timbur,
garðaúrgangur, pappír, gler og grjót, hjólbarðar og spilliefni. Loks
er gámur fyrir óflokkanlegt sorp til urðunar.
Gámastöðin er opin frá kl. 12:30 til 19:30 mánudaga til laugardaga.
Lokað er á sunnudögum og á hátíðardögum.
Athugið - gjaldtaka hefst ekki fyrr en í byriun júlí og eru
aðilar hvattir til að nýta sér það tækifæri.
BORGARBYGGÐ
Hótel Barbró
að bíða betri
tíma. Um leið
verða Skaga-
menn að bíða
þess að í bæn-
um rísi “al-
vöru“ heils-
árshótel.
Samkvæmt
hugmyndum
þeirra Bar-
bró-hjóna var
ætlunin að
byggja aftan
við vestari
hluta hótels-
ins, þar sem
nú er m.a. eldhús, koníaksstofa og
svokallað pakkhús. Ellefu tveggja
manna herbergi voru samkvæmt
frumteikningnum fyrirhuguð á
hverri fjögurra fyrstu hæða við-
byggingarinnar, en á þeirri efstu var
skipulagður 300 fermetra sam-
komusalur.
Hilmar Björnsson, annar eigenda
Hótels Barbró, er ekki fyllilega sátt-
ur við höfnun skipulagsyfirvalda. “I
svari þeirra segir m.a. að ekki sé
hægt að fallast á hæð byggingarinn-
ar, þar sem hún myndi verða hærri
en hæstu byggingar í nágrenninu.
Þar skeikar tveimur hæðum. Eg
minnist þess hins vegar ekki að
þetta atriði hafi vafist fyrir skipu-
lagsyfirvöldum þegar stóra fjölbýl-
ishúsið á Jaðarsbökkum var sam-
þykkt. Það er sex hæða, en hæstu
hús í nágrenninu ekki nema þrjár
hæðir,“ segir Hilmar.
Aukið gistirými
Hvað bílastæðin áhrærir segir
Hilmar að 15 stæði vanti upp á að
fjöldi þeirra fullnægi áætlaðri þörf.
“Það þarf ekki að fara langt til þess
að finna möguleika á bílastæðum.
Gamli skrúðgarðurinn við Suður-
götu gæti leyst þetta vandamál og
myndi eflaust vera meira augnayndi
sem malbikað bílastæði með falleg-
um gróðureyjum en hann er í dag.
Hilmar er ekki á þeim buxunum að
leggja árar í bát að svo komnu máli
og hyggst freista þess að fá bæjaryf-
irvöld til þess að veita Iiðsinni sitt
við framkvæmdina.
“Staðreyndin er sú að ef við ekki
fáum að stækka er í raun verið að
kippa fótunum undan rekstrinum
hjá okkur. Við erum með of litla
rekstrareiningu. Vaxtarmöguleikar
okkar byggjast á auknu gistirými.
Samkomusalurinn sem fyrirhugað-
ur er á efstu hæðinni myndi færa
okkur efrirsótta sérstöðu með ein-
stöku útsýni,“ segir Hilmar. Skúli
Lýðsson, bygginga- og skipulags-
fulltrúi Akraneskaupstaðar, segir í
samtali við Skessuhorn að meginá-
stæðurnar fyrir höfnun bæjaryfir-
valda sé sú staðreynd að tillögurnar
um stækkunina séu ekki í samræmi
við gildandi deiliskipulag á svæðinu
- þvert ofan í það sem segja má um
fjölbýlishúsið að Jaðarsbökkum.
“Til þess að tillagan hefði náð ffam
að ganga hefði orðið að endurskoða
allt deiliskipulag svæðisins. Endur-
skoðun svæðisins hefði þá tekið til
hæðar húsa, byggingamagns, stærð
byggingarreita og fjölda bílastæða
ásamt stærð grænna svæða,“ segir
Skúli. -SSv.
Nýfæddir
Vesdendmgar ern
boðnir velkomnir í
heiminn um leið og
nýbökuðum for-
eldrum em feerðar
hamingjuósldr.
l.júní kl 01:48-Sveinbam-Þyngd:i3 30
- Lengd:48 cm. Foreldrar: Arna María
Kjartansdóttir og Siguriur Tómassm,
Akranesi. Ljósmóðir: Soffía G. Þórðar-
dóttir.
l.júní kl 09:15-Sveinbam-
ÞyngdAlSS- Lerigd:S0 cm. Foreldrar:
Asa Hólmarsdóttir og Sigurður Sigur-
jónsson, Kópavogi. Ljósmóðir: Lóa
Kristinsdóttir.
l.júní kl 22:S2-Meybam-Þyngd:328S-
Lengd.Sl cm. Foreldrar: Eygló Bára
Jónsdóttir og Amar Guðlaugsson,
Grundarftrði. Ljósmóðir: Elín Sigur-
bjömsdóttir. (Ifangi Silju Rdnarstóru
systur.)