Skessuhorn - 15.06.2000, Blaðsíða 5
•' ryr\r
■ «1'
SKSSSUH0M
FIMMTUDAGUR 15. JUNI 2000
Skoðanafrelsi er almennt talið
meðal verðmætustu mannréttinda í
hinum vestræna heimi. Á tyllidögum
er talað fjálglega um frelsi manna til
að tjá öðrum skoðanir sínar og hve
hryllilegt sé að búa í samfélagi þar
sem menn eru hnepptir í varðhald ef
þeir tali gegn skoðun yfirvalda. Ekki
vil ég efast um hryllinginn í slíkum
samfélögum en mér finnst fróðlegt að
skoða hvers konar skoðanafrelsi það
er sem menn dásama á Vesturlönd-
um.
Á íslandi er lífleg umræða í dag-
blöðum, hljóðvarpi og sjónvarpi um
hin ýmsu mál. Fólk lætur sér fátt
vera óviðkomandi og fáir eru þeir út-
varpsþættir þar sem hlustendum er
ekki boðið upp á að láta í ljós skoðan-
ir sínar. í öllum þölmiðlum birta
gagnrýnendur skoðun sína á listvið-
burðum af ýmsu tagi og í kjallara-
greinum takast meðaljónarnir á við
meirijóna og minnijóna um landsins
gagn og nauðsynjar.
íslenska samfélagið er ekki stærra
en svo að næsta auðvelt er að fylgjast
með gangi mála í öllum afkimum
þjóðfélagsins. Fréttir, að ekki sé talað
um æsifréttir, skjóta eldinum í sin-
unni ref fyrir rass hvað varðar að fara
leifturhratt um. Skraf í heitu pottun-
um í sundlaugunum, við kaffiborðið á
bensínstöðinni, í matvörubúðinni
þegar innkaup ættu annars að vera
efst á dagskrá, nágranna í milli yfir
limgerðinu á björtum vor- og sumar-
kvöldum - víða fara fréttir um og
menn skiptast á skoðunum.
Ein tegund frétta sem fer virkilega
hratt um og ber nafn með réttu er
kjaftasagan. Aum er sú árátta manna
að hafa unun af því að flytja fréttir
um náungann sem eru ekki alltaf af
þægilegra taginu, oft krassandi, niðr-
andi, fordæmandi, jafnvel stundum
uppspuni frá rótum.
Aumt er það skoðanafrelsi sem
gefur slíkri áráttu byr undir báða
vængi. Frelsi er einmitt dýrmætt fyr-
irbæri ef lögð er rækt við það af á-
byrgð, ella snýst það upp í andhverfu
sína og menn verða þrælar þess.
Þrælar frelsisins fara lengra en aðrir,
bíta fastar, slá meira um sig og hegð-
un þeirra verður í meira lagi andfé-
lagsleg.
í upplýsingasamfélaginu, þar sem
við höfum enn frekari möguleika en
áður til að láta skoðanir okkar koma
fram og birtast öðrum, eigum við að
hafa vit á því að fara vel með frelsið.
Við eigum að nýta það í uppbyggileg-
um tilgangi. Við eigum að kenna
börnum okkar að fara vel með það.
Við höfum vitsmuni til að bera og
eigum að nýta þá þannig að sómi sé
að. Ekkert er að því að takast hressi-
lega á í skoðanaskiptum og beita
fullri hörku í rökstuðningi og túlkun
viðhorfa. Slíkt er uppbyggilegt þegar
frjálsir menn eiga í hlut. Niðurrifs-
stefna kjaftasagnanna er og verður til
vitnis um ömurlega nýtingu manna á
því að búa við góð kjör í góðu samfé-
lagi;
Öllum er 1 fersku minni þegar Ó-
lafur forseti fór í reiðtúr austur í
sveitum með, þáverandi vinkonu,
núverandi heitkonu, sinni og ljós-
myndara og féll af baki. Margt var
misjafht skrifað og sagt um þá ferð.
Mér fannst ónefndum sundlaugar-
gesti mælast vel þegar hann sagði í
góðlátlegum tóni um forsetann sinn:
„Hann Ólafur hefur líklega verið eitt-
hvað spenntur."
Lars H. Andersen
Betri líðan með aldagamalli aðferð
Býð upp á einkatíma í
Reiki-heilun
Hafið samband eða
leitið nánari
upplýsinga á
heimasíðunni minni
Björk Jóhannesdóttir, reikimeistari
Þórðargötu 12, Borgarnesi
Sími 437 2087, netfang stebbiogbjorkó>isholf.is
Heimasíða www.simnet.is/upp/Bjork.htm
Komdu meb fílmu i
franiköliun og tgktu um leið
þatt i skemmtilegum leik
sr>isus|s!©>|sue|s! 0032 0£F juuis ji|e !u>iaDtD6u!sA|ddn >isue|S| Qoqi!iQJ8A jsoj Uinj09
unjueid DQaetjDLi - DisuujAtuejd - Qje6D6u!sAi6nD - unuuoq - lojqtun -
uujQH i iac| jddj>| qia oinje6 dcJ uinun|DuinjD6|n i hioam d jo hid jg 1 III ✓"N. A 1 1 |/*N III | "1
'M u +||u
Auglýsing um nýtt deiliskipulag
í Snœfellsbœ
Auglýst er eftir athugasemdum við deiliskipulag og skipulagsskilmála fyrir orlofshúsabyggð
a Stóra-Kambi, Snæfellsbæ.
L fppdrættir ásamt skipulagsskilmálum eru til sýnis á almennum skrifstofutíma á skrifstofu
Snæfellsbæjar Snæfellsási 2, frá 14. iúní til 5. júlí 2000. Athugasemdir verist skrifstofu
Snæfellsbæjar fyrir 19. júlí 2000. Athugasemdir berist skrifstofu Snæfellsbæjar fyrir 19. júlí
2000. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan framangreinds frests telst
| samþykkur henni.
Bœjarverkfrœðingur Snœfellsbœjar
Auglýst er eftir athugasemdum við deiliskipulag og skipulagsskilmála fyrir íbiiðabyggð á
Holtum í Olafsvík.
IJm er að ræða svæði fyrir neðan Túnbrekku og suiman Klifbrekku. A svæðinu er gert ráð
fyrir 35 lóðum undir einbýlishús, 16 lóðuin midir raðhúsum og 20 lóðum undir parhús auk
svæðis undir leiksvæði.
_ Uppdrættir ásamt skipulagsskilmálum eru til sýnis á almennum skrifstofutíma á skrifstolii
Snæfellsbæjar Snæfellsási 2, frá 14. júní til 5. júlí 2000. Athugasemdir berist skrifstofu j f
Snæfellsbæjar fvrir 19. júlí 2000. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan
framangreinds frests telst samþykkur henni.
Bœjarverkfrœðingur Snœfellsbœjar
I