Skessuhorn - 15.06.2000, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 15. JUM 2000
^kisssunu..
Endurráðning markaðs- og atvinnufiilltrúa gagnrýnd
Allt saman verulega rotið
segir Hilmar Björnsson veitingamaður á Akranesi
Hilmar Bjömsson og Hanna Rún Jóhannsdóttir eigendur Barbró
Hilmar Bjömsson veitíngamaður
segist afar ósattur við endur-
ráðningu Bjöms S. Lámssonar,
markaðs- og atvinnufulltrúa á
Akranesi, en eins og fram hefur
komið dró Bjöm uppsögn sína tíl
baka á dögunum.
Hilmar og eiginkona hans reka í
sameiningu Hótel Barbró á Akra-
nesi, en þar er boðið upp á veiting-
ar og gistingu. Hilmar segir ekki
eðlilegt að ferðamálafulltrúi reki
bæði hótel og kaffihús í svo litlum
bæ sem Akranes er, en “Björn og
kona hans eiga og reka Café 15 og
hafa á leigu heimavist og samkomu-
sal Fjölbrautaskóla Vesmrlands yfir
sumarmánuðina þar sem þau reka
Hótel Osk,” segir Hilmar. Hann
sendi formlega fyrirspum til bæjar-
ráðs um þetta mál, en er ósáttur við
þau svör sem hann fékk og segir
þau vera loðin. “Eg tel nauðsynlegt
að sú persóna sem gegnir þessu
embætti sé hlutlaus og hvernig get-
ur Bjöm verið það þegar hann ráð-
leggur ferðamönnum hvar þeir geti
best gist og notið veitinga. Annað
hvort ráðleggur hann fólki að gista
hjá sér eða mér og auðvitað er eng-
in spuming hvort hann velur,” seg-
ir Hilmar og nefiúr máli sínu til
stuðnings að fyrsta fyrirspum ffá
Bimi um gistingu á Hótel Barbró
hafi borist þeim á faxi fyrir
nokkmm dögum, en Bjöm hefur
gegnt þessu starfi í þrjú ár. Um hafi
verið að ræða gistingu fyrir 5 aðila í
fimm mánuði eða fram í desember,
en Hótel Ósk lokar í endaðan ágúst.
Hann bætir því einnig við að fólki
gæti þótt athyglisvert að skoða
tengsl Björns við það sem áður hét
Norræna skólasetrið og nú Hótel
Glymur, en bróðir Bjöms var einn
þeirra sem festi kaup á því fyrir
skömmu. Þegar Hilmar spurðist
fyrir hjá Samkeppnisstofhun sögð-
ust menn þar ekkert athugavert sjá
við málið.
Hvergi minnst á Barbró
“I bæklingi sem Bjöm gaf út í
fyrra kom fram að eini skyndibita-
staðurinn á Akranesi væri Hrói
höttur og hvergi var minnst á Bar-
bró í því sambandi.” Þegar haldinn
var fundur á vegum atvinnumála-
nefhdar bæjarins um framtíðarsýn í
atvinnumálum var eiginkona Björns
fulltrúi verslunar og þjónustu, en
Björn er framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar. “Þetta finnst manni alveg
með ólíkindum. Hún hafði þá verið
með rekstur hér í einhverja mánuði
en við hjónin í 18 ár. Við fféttum
bara af þessum fundi úti í bæ. Það
er svo ekki að spyrja að því hver sá
um veitingar á þessum fundi, en
það var Café 15. Það var ekki boðið
út.” Ein af spurningunum sem
Hilmar sendi bæjarráði var hvort
rétt væri að Björn hefði fengið
launalaust leyfi í einn og hálfan
mánuð í sumar og svarið reyndist
jákvætt. “Eg tel það ekki nokkra
spurningu að hann tekur sér þetta
frí til að sinna eigin hótelrekstri.
Bærinn borgar þessum manni mjög
góð laun og gefur honum svo
launalaust ffí í einn og hálfan mán-
uð auk þess sem hann fer í sumarffí
í annan eins tíma. Þetta þýðir að
hann er í ffíi í alls þrjá mánuði yfir
háannatímann. Svo kemur hann
bara aftur til starfa í haust og held-
ur áfram að bóka inn á hótelið sitt
fyrir næsta sumar.”
Niðurgreidd gistíng
Hilmar telur sig þó ekki bara vera
í óréttmætri samkeppni við Björn,
heldur einnig Akranesbæ. “Akra-
Bjöm S. Lárusson
nesbær býður upp á gistingu í í-
þróttamiðstöðinni fyrir 1000 krón-
ur. Það væri aldrei hægt nema fyrir
þær sakir að bærinn greiðir þetta
niður. Hann borgar laun og tölu-
vert fleira af þeim kostnaði sem
þessu fylgir. Ég get ekki ætlast til
þess að fólk borgi fimm sinnum
hærra verð fyrir gistingu hér hjá
mér. Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra kom hingað í mat til okk-
ar fyrir skömmu og aðspurður um
álit sitt á málinu sagði hann það
ekki vera á gráu svæði heldur
kolsvörtu.” Hilmar segir að sér
finnist spaugilegt að sjá starfsmenn
stórra fyrirtækja koma til Akraness
og gista í íþróttamiðstöðinni að
stórum hluta á kostnað bæjarins.
“Maður myndi ætla að svona menn
hefðu alveg til hnífs og skeiðar og
vel það,” segir Hilmar og heldur á-
fram “A stangaveiðimótinu sem
haldið var í síðasta mánuði voru
staddir hér um sextíu aðkomumenn
og hótelið hjá mér stóð tómt,” en á
Hótel Barbró eru 15 herbergi sem
rúma 32 gesti. “Eg frétti síðar að
þetta fólk gisti í íþróttamiðstöðinni,
Bermúda og HB, en hvorki
Bermúda né HB hafa gistdleyfi.”
Hilmar segir þá upphæð sem fer í
ýmis konar leyfi skipta hundruðum
þúsunda á ári. “Eg fór bara til sýslu-
mannsins og spurði hvort ég gæti
ekki bara fengið þetta endurgreitt,”
segir hann og glottir. "Þetta mál er
allt saman verulega rotið. Auðvitað
er maður ánægður með ýmislegt
sem gert er hér á Akranesi og á-
stæðulaust að gera lítið úr því. Þetta
er fallegur bær og margt sem vel er
gert, en þeirri hlið sem snýr að
ferðamálum hér finnst mér vera
verulega ábótavant.”
Ekki samkeppni
Akranesbær er ekki að ráðast inn
á svið einkaaðila í hótelrekstri,”
segir Stefán Már Guðmundsson í-
þróttafulltrúi Akranesbæjar. “Það er
Iþróttabandalag Akraness sem á I-
þróttahúsið að Jaðarsbökkum en
ekki Akranesbær. Það er að vísu um
ákveðinn krossrekstur að ræða þar
sem IA leggur íþróttafulltrúa bæjar-
ins til húsnæði og skaffar líkams-
ræktartæki sem bærinn leigir út. A
móti sér bærinn um að þrífa tækja-
sal og um minniháttar viðhald. Það
er hinsvegar ekki um beina styrki að
ræða í rekstur hússins,” segir Stef-
án.
Stefán segir að ekki sé um það að
ræða að Iþróttamiðstöðin á Jaðars-
bökkum sé í samkeppni við Hótel
bæjarins. “Hingað koma helst í-
þróttahópar sem færu ekki á hótel
og þótt verðið sé þetta lágt þykir
mörgum það of hátt og það er í at-
hugun að leggja þessa þjónustu nið-
ur,” segir Stefán.
Alvarlegar dylgjur
“Bæjarstjóri hefur þegar svarað
flestu af því sem snýr að Akranes-
kaupstað og kemur fram hjá Hilm-
ari og vísa ég á svar hans í því sam-
bandi. Hinsvegar koma fram mjög
Stefdn Már Guðmundsson
alvarlegar ásakanir og dylgjur um
mig, eiginkonu mína og fjölskyldu
sem ég verð að svara,” segir Björn
S. Lárusson markaðsfulltrúi Akra-
nesbæjar í samtali við Skessuhom.
“I fyrsta lagi þá á ég ekki eða rek
Hótel Osk eða Café 15 - það gerir
eiginkona mín sem hefur starfað við
hótel- og veitingarekstur í 20 ár,
eða lengur en ég og Hilmar Bjöms-
son. Meðal annars starfaði hún á
Hótel Barbró og stóð sig með sóma
- að því að ég best veit. Konum er
treystandi til að standa fyrir rekstri
hótels og veitingahúss og eigikon-
um bæjarstarfsmanna er einnig
heimilt að fara út á vinnumarkað. I
öðru lagi þá koma fjárfestingar
bróður míns og mágs í hótel- og
veitingarekstri á Suðurlandi og
Vesturlandi Samkeppnisstofnun,
mér eða Hilmari Bjömssyni ekki
við. Það að ég skuli vera atvinnu-
fulltrúi á Akranesi gerir þá ekki
vanhæfa til þess. I þriðja lagi; hafi
Hilmar Bjömsson skýr dæmi um
hlutdrægni þá á hann að koma fram
með þau en dylgja ekki um svo al-
varlega hluti. Fjöldi gesta hefur gist
Hótel Barbró samkvæmt upplýs-
ingum frá mér auk þess sem fundir
og aðrar samkomur hafa verið
haldnar þar að minni tilstuðlan en
gestir bera það ekki utan á sér hvað-
an þeir fá upplýsingar.
Að lokum, þá fæ ég ekki séð hvað
það kemur Hilmari Björnssyni við
hvað ég geri í mínum frítíma en
þess má geta að ég hef ákveðið að
fara til sólarlanda í haust - ef ég má
taka eiginkonuna með og Hilmar
Björnsson leyfir,” segir Björn S.
Lárasson að lokum.
SÓK/GE
Stærð safnaðarins er ekki aðalatriðið
segir séra Flóki Kristinsson nýr sóknarprestur í Hvanneyrarprestakalli
Ákveðið hefur verið að veita séra
Flóka Kristinssyni embætti sóknar-
prests Hvanneyrarprestakalls í
Borgarfirði. Þessi ákvörðun var tek-
in á fundi valnefndar prestakallsins,
víglubiskups og prófasts í síðustu
viku. Embættið er veitt frá 1. júlí
næstkomandi.
Séra Flóki Kristinsson hefur
gengt embætti Evrópuprests frá 1.
október 1996 er hann lét af embætti
sóknarprests Langholtskirkju eftir
deilur innan safnaðarins sem mikið
var fjallað um í fjölmiðlum á sínum
tíma. Aðrir umsækjendur um stöð-
una vora Séra Carlos A Ferrer
prestur á Kolfreyjustað, Séra
Hannes Björnsson prestur á Pat-
reksfirði, Séra Bjami Þór Bjamason
prestur í Englandi og guðfræðing-
arnir Elínborg Gísladóttir, Leifur
Ragnar Jónsson og Magnús Magn-
ússon.
Hvanneyrarprestakall nær yfir
Hvanneyrarsókn, Bæjarsókn, Fitja-
sókn og Lundarsókn. Einnig er gert
ráð fyrir að nýskipaður sóknar-
prestur gegni einhverjum skyldum
á Akranesi og í Borgamesi. Þá era
uppi hugmyndir um að Hvanneyr-
arprestakall verði lagt niður í nú-
verandi mynd en Hvanneyrarprest-
ur verði nokkurskonar héraðsprest-
ur og þjóni Hvanneyrarsókn auk
þess að aðstoða sóknarprestana á
Akranesi og í Borgarnesi. Engin á-
kvörðun hefur hinsvegar verið tek-
in um þær hugmyndir.
Byrjaður að pakka niður
“Ég hefði aldrei sótt um þetta
embætti ef ég hefði ekki áhuga á
því,” sagði Sr. Flóki Kristinsson í
samtali við Skessuhorn aðspurður
um hvernig honum litist á nýja
starfið. “Mikilvægi preststarfsins fer
ekki eftir stærð safnaðarins og ég
var sveitaprestur áður en ég tók við
embætti í Langholtskirkju og mér
líkar það hlutskipti betur.”
Séra Flóki kveðst að sjálfsögðu
ætla að að búa á prestssetrinu á
Hvanneyri. “Að sjálfsögðu, enda
ber prestum lögum samkvæmt að
búa á prestssetri sé það til staðar.
Ég er meira að segja byrjaður að
pakka niður. Ég lít líka á það sem
sjálfsagðan hlut að presturinn búi í
nágrenni við sóknarbörnin og á
Hvanneyri bíður okkar gott hús-
næði. Það spillir heldur ekki að þar
er möguleiki á að halda hross en við
hjónin höfum gaman af að ferðast á
hestum og höfum lagt lítílsháttar
stund á tamningar,” segir Flóki.
Mætí hlýhug
Skipun séra Flóka hefur að von-
um vakið athygli þar sem mörgum
era í fersku minni deilur í Lang-
holtssókn fyrir um fimm áram. Sr.
Flóki segir hinsvegar að mun meira
hafi verið gert úr því máli en efni
stóðu tíl. “Það var þama um ákveð-
inn ágreining að ræða milli mín og
organista kirkjunnar en fjölmiðlar
blésu þetta út og gerðu þetta að
hálfgerðu stríði. Þau viðbrögð sem
ég hef fengið við þessari embættis-
veitingu era hinsvegar mjög góð og
það hafa margir hringt í mig til að
óska mér tíl hamingju. Það er mjög
gaman að finna þann hlýhug sem ég
hef mætt og ég hlakka til að flytja í
Borgarfjörðinn og takast á við nýtt
starf,” segir Sr. Flóki að lokum.
GE