Skessuhorn - 15.06.2000, Side 19
FIMMTUDAGUR 15. JUNT 2000
19
Markaðsstarf Golfldúbbsins Leynis skilar sér:
Sprenging í félagafjölda
“Það hefur vart liðið sá dagur að
undanförnu að við höfum ekki
skráð inn nýja félaga í klúbbinn og
suma dagana eru þeir 6-7 sem skrá
sig. Það athyglisverðasta er að
margir þessara nýju félaga eru af
höfuðborgarsvæðinu en við höfum
sérstaklega verið að biðla til þeirra
undanfarin misseri," segir Hannes
Þorsteinsson, formaður Golf-
klúbbsins Leynis.
Hannes segir ástæðuna fyrir á-
sókn úr Reykjavík vera einfalda.
Golfíþróttin njóti nú ört vaxandi
vinsælda og á höfuðborgarsvæðinu
séu allir golfvellir yfirfullir á sama
tíma og vellir í nágrannabyggðum
borgarinnar geti auðveldlega tekið
við fleiri kylfingum. “Við getum vel
þegið fleiri félaga og höfum því
biðlað til höfuðborgarbúa með
hagstæðu árgjaldi. Þeir eru í vax-
andi mæli að bíta á agnið og verða
ekki sviknir af glæsilegum 18 holu
velli okkar, sem verður formlega
vígður eftir um mánuð,“ segir
Hannes. - SSv
Skrykkjótt byrjun Skagamanna
á Islandsmótinu í knattspymu:
Þrjú mörk
í sex leikjum
samt besta byrjun í þrjú ár!
Markvörður Þróttar sendur í sturtu
Kjaftshögg á vellinum
HSH - Þróttur í Vogum: 5-0
Sá fáheyrði atburður gerðist í
leik HSH og Þróttar í Vogum
sem fram fór laugardaginn 10.
júní sl. á knattspymuvellinum í
Olafsvík að markverði Þróttar
var vikið af velli fyrir kjafshögg.
Markvörðurinn, Finnur Tómas-
son, og Björgvin Finnsson, leik-
maður HSH, lentu í samstuði þeg-
ar Björgvin sótti að markinu.
Markvöðurinn var fyrri til og náði
boltanum með þeim afleiðingum
að Björgvin féll við og rak fótinn í
andlit Finns. Finnur brást hinn
versti við og rétti Björgvini einn á
lúðurinn. Ur þessu varð mikið
stímabrak sem endaði með því að
Finnur fékk að sjá rauða spjaldið
og var vísað af velli í framhaldi af
því. Leikurinn stöðvaðist um tíma
eða þangað til nýr markvörður tók
stöðu Finns í markinu.
HSH hafði undirtökin í leiknum
sem var afar gróft leikinn af hálfú
Þróttara enda skoruðu heimamenn
tvö af fimm mörkum sínum úr víta-
spyrnu. Mörkin hjá HSH skor-
uðu Helgi Reynir, sem var með tvö
mörk, Björgvin Finnsson var með
eitt, og tvö síðustu mörkin voru víti
sem Sigurður Mejic og Jónas
Gestsson skoruðu úr. EE
Frá leik HSH og Þróttar. Markverði vikií af velli.
Naumur sigur Skagamanna á Stjömunni
Eitt mark enn
Ekki er hægt að segja að Skaga-
menn bruðli með mörkin á þessu
keppnistímabili en hinsvegar hafa
þeir uppskorið þrjú stig í hvert sinn
sem þeir hafa skorað. Það leit þó út
fyrir markalaust jafntefli á Stjörnu-
vellinum síðastliðinn laugardag þar
til á 86. mínútu er Hjörtur Hjartar-
son, sem kom inn á sem varamaður,
skoraði með góðum skalla effir fýr-
irgjöf frá Haraldi Hinrikssyni.
Skagamenn léku vel í fyrri hálf-
leik og sköpuðu sér fleiri færi en í
öðrum leikjum það sem af er mót-
inu. Uni Arge sem kom inn á ný
eftir meiðsli var tvisvar nærri því að
skora og Sigurður Jónsson komst í
gott færi. Stjörnumenn áttu hins-
vegar meira í seinni hálfleiknum án
þess að skapa sér nein hættuleg
færi.
Stjarnan - IA: 0-1
Liðið:
Ólafur Þór Gunnarsson, Gunn-
laugur Jónsson, Andri Karvelsson,
Kári Steinn Reynisson, Sturlaugur
Haraldsson (Grétar Rafn Steins-
son), Jóhannes Harðarson (Pálmi
Sigurganga Bruna í þriðju deild
Islandsmótsins í knattspyrnu var
stöðvuð síðastliðinn föstudag þegar
þeir gerðu 1-1 jafntefli við Barða-
strönd. Brunaliðið var betra í leikn-
Haraldsson 72. mín.), Haraldur
Hinriksson, Sigurður Jónsson,
Hálfdán Gíslason, (Hjörtur Hjart-
arson 62. mín.) Uni Arge, Alexand-
er Högnason.
um og í raun óheppni að þeir
skyldu ekki ná þremur stigum.
Mark Bruna skoraði Jón Þór
Hauksson.
SÓK
GE
Landssímadeild kvenna:
Einbeittar
Skagastulkur
Margrét Ákadóttir og félagar
gerðu jafntefli 1-1 við IBV á
Akranesvelli þegar Skagastúlkur
léku sinn fjórða leik í Landssíma-
deild kvenna síðastliðinn
þriðjudag. Stúlkurnar mættu ein-
beittar til leiks eftír slæma útreið í
síðustu umferð. Þjálfarinn Mar-
grét Ákadóttir kom IA yfir um
miðjan fyrri hálfleik með skalla
efrir hornspyrnu, en Eyjastúlkur
náðu að jafna leikinn á 45. mín
með marki Hjördísar Halldórs-
dóttur.
ÍA-stúlkur voru sterkari aðilinn
í fyrri hálfleik, fengu mörg góð
færi sem þær nýttu ekki. Leik-
menn IBV sóttu í sig veðrið í
seinni hálfleik og voru betri aðil-
inn, þó fengu Skagastúlkur þrjú til
fjögur ágæt færi. Eyjastúlkur
fengu dæmda vítaspyrnu sem
Bryndís Jóhannesdóttir misnot-
aði. Bryndísi var skömmu síðar
vikið af leikvelli fyrir kjaftbrúk.
PO
Jafiit hjá Bruna
Þrátt fyrir að Skagamenn hafi
aðeins unnið helming leikja
sinna í Landssímadeild karla í
ár hljómar það ótrúlega að
byrjun liðsins á Islandsmótinu
í knattspymu er sú besta síð-
ustu 3 ár! Stigin tíu, sem nú
eru í húsi, em fjórum fleiri en
á sama tíma í fyrra. Félagið átti
þá sína verstu byrjun í efstu
deild allt frá árinu 1990 er það
féll í gömlu 2. deildina.
En þrátt fyrir að stigin séu fleiri
eru lítil batamerki í markaskorun
frá því í fyrra. Þá hafði liðið að-
eins skorað tvö mörk eftir fyrstu
sex leikina. Eftir jafn marga leiki í
ár hefur liðið skorað þrjú mörk,
þar af eitt úr vítaspyrnu. Hafa
ber þó í huga að fjarvera Una
Arge, færeyska sóknarmannsins,
hefur komið illa niður á Skaga-
mönnum.
Allt þar til Hjörtur Hjartarson
skoraði á 85. mínútu gegn Stjörn-
unni á laugardag hafði liðið leikið
í hálfan níunda klukkutíma án þess
að skora mark utan afvelli! Frá því
Baldur Aðalsteinsson skoraði á 24.
mínútu í fyrsta leiknum gegn
Leiftri og fram að markinu í
Garðabænum liðu því 511 mínút-
ur á milli marka utan af velli.
Efvið berum saman árangurinn
í fimm fyrstu leikjunum í ár og
þrjú síðustu ár þar á undan kemur
eftirfarandi í ljós:
L U J T Mörk Stig
2000 6 3 1 2 3:3 10
(ÍA - Leiftur 1:0, Breiðab/ik - ÍA 0:1, ÍA - KR 0:2, Giindavík - ÍA 1:0, ÍA - ÍBV 0:0, Stjaman - ÍA 0:1)
1999 6 1 3 2 2:4 6
(KR - ÍA 1:0, ÍA - Víkingur 1:1, Keflavík - ÍA 2:0, Fram - ÍA 0:0, ÍA - Lcifiur 0:0, ÍA - Grindavík 1:0)
1998 6 2 3 1 11:6 9
(ÍA - Keflavík 1:1, ÍBV- ÍA 3:1, ÍA - Valur 1:1, Fram - ÍA 1:1, ÍA - Giindavík 3:0, Leifiur - ÍA 0:4)
1997 6 4 1 1 10:5 13
(7BV- ÍA 3:1, ÍA - Leifhir 0:0, ÍA - Fram 3:2, Sýaman - ÍA 0:3, ÍA - Grindavík 3:1, SkalJagi: - ÍA 0:1))
Eins og glöggt má sjá af þessum
tölum hér að ofan þarf að fara allt
aftur til ársins 1997 til þess að
finna betri árangur úr sex fyrstu
leikjunum en Skagaliðið hafnaði í
2. sæti deildarinnar það ár. Byrj-
unin 1998 gaf líka fyrirheit um
framhaldið því liðið hafhaði þá í 3.
sæti. Sömu sögu er að segja um
upphafið í fyrra. Það gaf vísbend-
ingu um það sem koma skyldi.
Skagamenn höfnuðu þá sem kunn-
ugt er í 4. sæti.
Margir hafa ofurtrú á tölfræði
og þeir eru álíka margir sem segja
hana einskis virði. Ekki skal úr
þeirri deilu skorið hér en ef töl-
fræðin er áfram notuð er eðlilegt
að spá Skagamönnum 3. sæti í
deildinni í ár í Ijósi árangursins í
upphafi móts. Auðvitað vona allir
að sú spá rætist ekki og að þeir
gulklæddu láti nú leggi standa nið-
ur úr skálmum og geri alvöru at-
lögu að Islandsmeistaratitlinum.
-SSv.
Akraneskaupstaður
íþróttafulltrúi
Laus eru til umsóknar starf
við Iþróttamiðstöðina
Jaðarsbökkum
Um er að ræða 80% starfvið íþróttamiðstöðina
Jaðarsbökkum. Starfið felst aðallega í þrifum,
afgreiðslu og eftirliti í kvennaklefum.
Umsækjendur þurfa að fara í hæfnispróf fyrir
starfsfólk sundstaða.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
28. ágúst n.k.
Reyklaus vinnustaður.
Laun samkvæmt kjarasamningi St.Ak. og
Akraneskaupstaðar.
Nánari uppl. veitir íþróttafulltrúi
í síma 431-2643 eða 431-3560.
Umsóknareyðublöð fást á
bæjarskrifstofunni, Stillholti 16 - 18.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 30. júní
og á að skila umsóknum á bæjarskrifstofuna
Stillholti 16 - 18.
A íþr
I Ak ,
róttafulltrúi
raneskaupstaðar
Hjirrtur Hjartarson