Skessuhorn - 21.12.2000, Side 9
gSESSIíiiGSKI
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
9
Mæður í ökukennslu
Margt hefar breyst með tilkomu
Hvalfjarðarganganna og má þar
meðal annars nefna ökukennslu á
Akranesi. Að sögn Sigurðar Amar
Sigurðssonar, ökukennara hjá Al-
menna ökuskólanum, eru mæður
farnar að koma í ökutíma með
krökkunum sínum í þvf skyni að
læra að keyra í höfuðborginni.
“Þessar konur hafa ökuréttindi en
hafa aldrei keyrt í Reykjavík. Við
aðstoðum þær með að koma þeim
af stað en þær eru fljótar að ná
þessu því aðalatriðið er bara að
þora og koma sér af stað.” Sigurð-
ur segir að þetta hafi ekki komið
fyrir áður en göngin voru opnuð
íyrir rúmum tveimur árum síðan.
“Fólk er greinilega meira í Reykja-
vík en áður en þær hafa sig ekki af
stað í að keyra þar. Þegar krakk-
arnir fara svo í ökutíma þangað er
komið tilefhi til að gera eitthvað í
málunum. Við höfum hins vegar
alltaf farið með nemendur okkar til
Reykjavíkur í ökutíma en samt
ekki í svona miklum mæli. Nú
keyra þeir allir töluvert í Reykjavík
og alla leiðina suður. Aður fórum
við þangað en það fór svo mikill
tími í að keyra fyrir Hvalfjörðinn
að menn þurftu að skipta í Akra-
borginni.”
Sigurður segir að fúllorðið fólk
sæki í auknum mæli eftir leiðsögn
eftir öll þau alvarlegu slys sem hafa
átt sér stað að undanförnu. “Einu
sinni var þetta bara meðfætt, það
kunnu allir að keyra, en núna er
fólk farið að sjá að það þarfnast
leiðsagnar. Það bætast alltaf við ný
og ný umferðarmerki auk þess sem
umferðin er alltaf að aukast. Fólki
finnst undantekningalaust gott að
fá þessa leiðsögn og það er eigin-
lega spurning hvort við ættum ekki
að fara að gefa fólki kost á þessu al-
mennt.”
SÓK
Ingunni
seinkar enn
Skip Haraldar Böðvarssonar hf.,.
Ingunn, sem hefúr verið í smíðum í
Chile undanfarin misseri, verður
þar enn um sinn. Afhending skipsins
hefúr seinkað oftar en einu sinni
eins og ffægt er orðið en áhöfú þess
var send til Chile til að sækja það á
dögunum. Hún kom þó heim í síð-
ustu viku skipslaus. “Það er drulla í
spilkerfi skipsins sem verið er að
hreinsa” segir Sveinn Jónsson, út-
gerðarstjóri Haraldar Böðvarssonar
hf. “Þeir verða hugsanlega búnir að
því um áramótin og þá sendum við
mannskapinn út aftur. Þeir komu
heim í jólaffí núna og fara því tví-
efldir eftir áramótin. Það tekur um
það bil 25 daga að sigla heim og við
vonum að hægt verði að leggja af
stað fljótlega í janúar. Þá á skipið að
vera orðið í toppstandi.”
SÓK
Vegna stækkunar álvers Norðuráls hf. á Grundartanga óskar fyrirtækið að ráða starfsfólk til
ýmissa starfa. Um er að ræða störf í framleiðslu- og viðhaldsdeildum, bæði tímabundin og til
lengri tíma. Vinnutími er ýmist vaktavinna eða dagvinna. Gert er ráð fyrir að nýir starfsmenn
hefji störf á tímabilinu frá febrúar til apríl 2001. Fyrstu tveimur til þremur mánuðunum í starfi
er varið til starfsþjálfunar.
Þór Þorsteinsson
Tölvert
sameinast
ÍUT
Þór Þorsteinsson eigandi tölvu-
fyrirtækisins Tölverts í Borgarnesi
hefúr nú gengið til samstarfs við
Islenska upplýsingatækni ehf. í
Borgarnesi. Samhliða því hefur
Þór tekið að sér verkstjórn í Inter-
netdeild IUT. Þór hefur undanfar-
in ár unnið að gagnagrunnstengd-
um veflausnum fyrir fyrirtæki og
stofnanir auk námskeiðahalds á
sviði tölvu- og upplýsingafræða.
Stærsta verkefni Þórs, sem nýlega
var lokið við, er gagna-
grunnstengdur vefur Landssam-
bands veiðifélaga; www. angling.is
MM
Æskilegt er að umsækjendur séu búsettir á Vesturlandi. Skipulegar ferðir eru á milli Norðuráls
annars vegar og Akraness og Borgamess hins vegar fyrir upphaf vinnudags og að honum loknum.
Hjá Norðuráli hf. eru laun að hluta árangurstengd. Fyrirtækið greiðir viðbótarframlag
í séreignarlífeyrissjóð og einnig er hluti árangurstengdra launa greiddur í slíkan sjóð.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil berist til Norðuráls hf, Grundartanga,
301 Akranes fyrir 15. janúar nœstkomandi. Þeir sem hafa á síðustu sex mánuðum sent inn
umsóknir til Norðuráls þurfa ekki að endurnýja umsóknir sínar.
Norðurál hóf starfsemi sína í júní 1998. Fyrirtækið hefur á að skipa öflugu liði um 170 starfsmanna
sem verða orðnir 210 talsins eftir stækkunina. Framleiðslugeta álversins er 60.000 tonn af áli á
ári og verður orðin 90.000 tonn haustið 2001. Eigendur hafa hug á frekari stækkun álversins ef
orka og aðrar forsendur verða fyrir hendi.
Norðurál leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi eiginleika starfsmanna sinna: Jákvætt viðhorf,
lipurð í samskiptum, frumkvæði, fagmennsku, sveigjanleika og vilja til að axla nýja ábyrgð.
Starfsþjálfun og þróun skipa veigamikinn sess innan fyrirtækisins.
Áhersla er lögð á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.
KR
NORÐURÁL