Skessuhorn - 21.12.2000, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
Kveldúlfikórinti hélt sína árlegn aSventukvöldtónleika sídastlióid mánudagskvöld. Þráttfyrir aS jólaundirbúningurinn hafi þá staðið sem hæst gáfu margir Borgnesingar og mersveitamenn sér tíma frá amstrmu til að njóta söngsins í
Borgameskirkju og meðtaka hinn sanna jólaanda. Mynd: GE
Hann er svosem ekkert þreytulegur þessi jólasveinn enda myndin tekin snemm á jólafóstunni.
MyndlH
• •
Orþreyttir jóla-
sveinar fá hjálp
Síðustu dagana fyrir jólin aukast
mjög annir jólasveinanna því víða
þarf að koma gjöfum til skila. A
Hellissandi voru mestu annir jóla-
sveinanna á þriðjudaginn s.l. þegar
þeir með góðri aðstoð unglinga-
deildar björgunarsveitarinnar
þeyttust hús úr húsi með sínar gjaf-
ir. Þar var nú skrautiegt lið á ferð,
sumir rauðir en aðrir forneskjulegir
að íslenskum sið. Svipaður háttur
verður hafður á í Olafsvík. Þar
hefur björgunarsveitin og ung-
lingadeild hennar ákaveðið að rétta
þessum örþreyttu hetjum hjálpar-
hönd með því að skipuleggja fyrir
þá dreifingarstarfið svo enginn fari
í jólaköttinn. Þeir bjóða þeim sem
vilja hafa samband við jólasveinana
að hitta sig í Mettubúð föstudags-
kvöid 22. desember það sem skipu-
lögð verður dreifinginn á jólapökk-
um jólasveinsins. I Grundarfirði
er svo mikil mergð barna að For-
eldrafélag grunnskólans sá sér ekki
annað fært en að aðstoða jólasvein-
ana við skipulagningu og dreifingu
á pökkunum. Þar hringja fulltrúar
foreldrafélagsins á hvert barna-
heimili til að fá staðfestingu á þölda
og aldri barna. Þeim upplýsingum
er svo komið til jólasveinanna
þannig þeir vita uppá hár hvað gjaf-
ir henta hverju barni. Þannig er
reynt að tryggja að enginn fari í
jólaköttinn þegar ekkert alltof
slcynsamir jólasveinar dreifa gjöf-
unum á Þorláksmessu. I Stykkis-
hólmi eru Lionsmenn helstu hjálp-
arhellur jólasveinanna. A Þorláks-
messu skipuleggja þeir heimsóknir
með glaðning söng og jólasprell á
dvalarheimilið og á sjúkrahúsið og
fvrst þessar hetjur óbyggðanna er
komnar í bæinn heilsa þeir upp á
gesti og gangandi við verslanir með
jólasveinasprelli við verslanir og
íjölfarnari staði. III
Okeypis í sund
Framhaldsskólanemar í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi og öðruni framhaldsskólum
fá ókeypis aðgang að sund- og í-
þróttaaðstöðunni að Jaðarsbökk-
um á meðan að verkfall kennara
stendur yfir. Tillaga Péturs
Ottesen, bæjarfulltrúa, þess efnis
var samþykkt á síðasta fundi bæj-
arstjórnar Akraness. I tillögunni
segir að með þessu sé reynt að
stuðla að heilbrigðri afþreyingu
þeirra ungmenna sem væru ann-
ars við nám. K.K.
Frá Reykhólum.
Lionsdeild
Reykhólahrepps
fær styrk
Lionsdeild Reykhólahrepps
var einn átta aðila sem fengu
styrk úr Menningarsjóði Lands-
banka Islands sem úthlutað var
úr fyrir skömmu. Styrkurinn til
Lionsdeildarinnar, sem var sá
næst hæsti að þessu sinni, var að
upphæð 270.000 krónur og mun
hann renna til kaupa á tækjum
fyrir vistheimilið Barmahlíð á
Reykhólum.
GE