Skessuhorn - 21.12.2000, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
17
L>nt.d3unuu.
Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur á Akranesi
Margtumað
vera í kirkjunni
Að venju verður ýmislegt um
að vera í Akraneskirkju yfir hátíð-
irnar. Sönghópurinn Sólarmegin
verður með tónleika í kirkjunni
tveimur dögum fyrir jól en að
sögn Eðvarðs Ingólfssonar, sókn-
arprests, verður dagskráin hefð-
bundin að öðru leyti. “Við höfum
verið að hvetja fólk til að kyrra
hugann í jólaannríkinu og komast
í raunverulegt jólaskap með því
að hlýða á sálmana. Sönghópur-
inn Sólarmegin kemur hingað og
syngur og það er nýbreytni að
bjóða upp á það svona seint að
kvöldi. Yfir hátíðirnar eru svo
hefðbundnar messur, en þær eru
tvær á dag að jafnaði. A Þorláks-
messudag höfum við svo haft það
fyrir venju að bjóða alltaf upp á
heitan kaffisopa fyrir þá sem eru
að skila söfnunarbaukum. Það
hafa mjög margir komið í gegn-
um tíðina og við komum baukun-
um áfram til Hjálparstofnunar
kirkjunnar. Þetta mun standa yfir
frá klukkan 13-16 og svo aftur á
milli klukkan 20 og 22 um kvöld-
ið. Þeir sem hafa verið að versla
að kvöldi hafa gjarnan litið við,
skilað bauknum og fengið sér
kaffisopa. Svo fer fólk og heldur
áfram í innkaupum.” Að venju
verður einnig messað á Dvalar-
heimilinu Höfða og á Sjúkrahúsi
Akraness auk þess sem er skírnar-
guðsþjónusta á annan í jólum.
SÓK
Helga María AK16
Aflaverðmæti
rúmar 750
milljónir
Frystitogarinn Helga María AK
16 lagðist að bryggju síðastliðinn
þriðjudagsmorgun á Akranesi, var
skipið að koma úr síðustu veiðiferð
ársins. Ekki er hægt að segja annað
en að uppskera ársins sé góð. Afla-
verðmætið úr þessum síðasta túr
var rúmlega 55 milljónir króna.
Aflaverðmætið á árinu er þá komið
í rúmar 750 milljónir króna. Skipið
var keypt á síðasta ári. Áhöfnin sem
starfaði hjá fyrri útgerð fylgdi skip-
inu yfir til HB. Áhöfnin hefur
reynst með afbrigðum vel enda þar
á ferð reyndir sjómenn sem þekktir
eru fyrir gæðaframleiðslu.
Leikarar sýningarínnar „/? lager>mm“
Sýna UA lagemum”
Skagaleikflokkurinn situr ekki
auðum höndum þessa dagana og
hefur hann nú sett upp leikrit í
Rein á Akranesi sem ber heitið “Á
lagernum”. Um einþáttung er að
ræða og höfundur hans er Bjarni
Guðmarsson en hann hefur starf-
að mikið með áhugaleikfélögum
um land allt í gegnum tíðina.
Leikendur eru þrír; þeir Ágúst
Harðarson, Gunnar Sturla Her-
varsson og Hermann Guðmunds-
son sem leikstýrir jafnframt verk-
inu. Sýningartíminn er aðeins um
20 mínútur og boðið er upp á
vöfflur og heitt súkkulaði í kaffi-
leikhúsinu. Blaðamaður Skessu-
horns skellti sér á leikritið nýverið
og hafði gaman af. Viðfangsefnið
er jólin og persónurnar rifja með-
al annars upp guðspjallið á mjög
skemmtilegan hátt. Þetta er leikrit
fyrir alla aldurhópa og mátti ekki á
milli sjá hvort þeir fullorðnu eða
börnin skemmtu sér betur yfir
fíflalátunum. Síðasta sýningin er
einmitt í kvöld, fimmtudag, í Rein
og tilvalið er að hvíla sig á búðar-
rápinu í hálftíma og fá sér kakó og
vöfflur yfir þessari leiksýningu.
Húsið opnar klukkan 20:00 og
sýningar hefjast klukkan 20:30 og
21:30.
Nú hafa einnig verið tímasettar
fleiri sýningar á því skemmtilega
stykki “Rommí” en það verður
sýnt klukkan hálfníu að kvöldi
fimmtudagsins 28. desember og
föstudagsins 29. desember. Að
sögn Guðbjargar Árnadóttur, for-
manns Skagaleikflokksins, hefur
aðsóknin ekki verið nógu góð
fram að þessu. “Það er þessi tími
en ég held að þetta hafi spurst á-
gætlega út og ég vona að það skili
sér á næstu sýningum.” Eins og
komið hefur fram er leikfélagið nú
í húsnæðisvanda þar sem Keilufé-
lagi Ákraness hefur verið úthlut-
aður kjallarinn í íþróttahúsinu við
Vesturgötu þar sem Skagaleik-
flokkurinn hafði aðsetur. “Við
bíðum bara eftir því núna að kom-
ast í eigið húsnæði og vonum að
þessar sýningar hafi áhrif á það.
Það er hægt að gera ýmislegt ann-
að en að setja upp 30 manna sýn-
ingar og þetta kafflhúsaform hefur
gengið mjög vel í Reykjavík.” I
haust sótti leikflokkurinn um að fá
trésmíðaverkstæði Fjölbrautaskóla
Vesturlands til afnota en Guð-
björg segist ekkert hafa heyrt af
því máli. “Við fengum þau skila-
boð að bæjarstjóra hefði verið
falið að tala við skólameistara
FVA. Síðan höfum við ekkert
heyrt. Eg hef boðist til að mæta á
fundi með bæjarstjórn til þess að
fylgja málinu úr hlaði en ég hef
ekki fengið nein boð um að mæta.
I augnablikinu erum við bara að
tæma kjallarann fyrir keilufélagið.
Mörgum hlutum hefur verið hent
en við höfum reynt að halda utan
um það dýrmætasta; smíðaefni,
húsgögn, leikmyndir og ýmislegt
fleira. Við fáum að geyma þessa
hluti í kjallaranum á íþróttahúsinu
þar sem kartöflugeymslurnar voru
áður þar til annað býðst. Það á nú
að vera þurrt þarna en það verður
bara að koma í ljós hvernig bún-
ingar og þess háttar geymast
þarna.”
SÓK
ÞaS er viikil kúnst að syjigja og davsa í ehiu.
Síðastliðinn laugardag fór
fram skemmtun í Safnaðar-
heimilinu Vinaminni á Akra-
nesi. Allir voru velkomnir og
sáu margir hæjarbúar sér fært að
koina til þess að syngja jólalög
og dansa í kringum jólatréð.
Ekki skemmdi fyrir að sjálfur
jólasveinninn lét sig ekki vanta
og dansaði og söng hástöfum
með krökkunum.
SÓK