Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2000, Page 19

Skessuhorn - 21.12.2000, Page 19
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 19 ^aiasunuiJ' Skreytilist á Skaganum Flestir hafa það fyrir sið að skreyta híbýli sín í ltringum jólin. Margir láta sér nægja seríu í eldhús- glugganum og jólatré í stofunni en öðrum finnst ekki komin jól fyrr en búið er að skreyta allt hátt og lágt, bæði að innan sem utan. Mágarnir Magnús Ingólfsson og Daníel Rún- ar Elíasson eru í síðarnefnda hópn- urn og eru þeir löngu orðnir heirns- frægir á Akranesi fyrir jólaskreyt- ingamar á húsum sínum. Skessu- horn hitti kappana að máli nýverið og spurði þá hvenær þessi gífurlegi skreytingaáhugi hefði hafist. Þeir segja báðir að um sex ár séu síðan þeir byrjuðu að skreyta af kappi. “Ahuginn hefur auðvitað alltaf ver- ið til staðar” segir Daníel. “Svo fór maður í nýtt hús sem bauð upp á þessa möguleika.” “Maður hefur náttúmlega verið að skreyta ffá því maður byrjaði að búa” bætir Magn- ús við. “Það hefur alltaf verið mikið skreytt inni hjá okkur en þegar var orðið fullt inni urðum við að fara að skreyta húsin að utan!” Kveikt þegar klukkan slær tólf Flestir halda eflaust að mikill raf- magnskostnaður fylgi því að láta loga á tæplega 3.000 perum í heilan mánuð en þeir félagarnir eru sam- mála um að það sé rnesta furða hversu lítill sá kostnaður sé. “Mað- ur hefur fylgst með kostnaðinum í gegnum árin og þetta er ekkert sem lætur mann hrökkva við. Það er eig- inlega frekar að það komi manni á óvart hvað þetta kostar lítið.” Það er engin tilviljun sem ræður því hvenær kveikt er á jólaljósunum enda er allt tilstandið í kringum þau skipulagt í þaula. Sú hefð hefur skapast að þegar klukkan slær tólf á miðnætti á laugardeginum fyrir fyrsta sunnudag í aðventu er allt sett í samband. “Við eram búnir að halda okkur við þessa tímasetningu í þrjú ár” segir Magnús. “Eg held að hápunkturinn í þessu hjá okkur sé allur undirbúningurinn að því að verði kveikt. Vtð erum eins og litlu börnin og ætli megi ekki segja að þetta sé okkar stóri pakki.” Daníel bætir því við að það sé alltaf jafn spennandi að sjá hvort kvikni á öllu í einu. Þrjár vikur að skreyta Það tekur þó minnstan tíma að stinga öllu í samband. Magnús flutti ásamt fjölskyldu sinni úr húsinu sínu á Heiðarbrautinni í nýtt hús- næði fyrir nokkrum mánuðum síð- an. Það tók hann þrjár vikur að skreyta í ár en að hans sögn tekur það að öllu jöfnu um fimm daga. “Eg þurfti mun minni tíma því þetta var allt tilbúið hjá mér síðan í fyrra” segir Daníel. “Eg notaði góða veðrið í þetta sem verið hefur undanfarið og byrjaði viku áður. Veðrið er búið að leika við mann og þetta var rosalega gaman.” Konumar taka þátt í þessu Það er ekki víst að allar konur yrðu hrifnar ef eiginmaðurinn sæist varla fyrstu vikuna í desember en þeir Daníel og Magnús segja að eiginkonurnar séu ekki síður á- hugasamar en þeir. “Hugmyndirnar koma frá okkur og við höfum mjög frjálsar hendur. Konurnar taka full- an þátt í þessu en leyfa okkur að sjá um verkið!” segja þeir og hlæja. “Þeim finnst þetta skemmtilegt og reyndar fjölskyldunum í heild sinni. En það fær enginn að koma nálægt þessu nema við. Reyndar fékk hann Aron [sonur Daníels] að vera sér- legur aðstoðarmaður okkar beggja í ár. Hann er mjög efnilegur og á ör- ugglega eftir að toppa okkur báða einn daginn ef marka má herbergið hans.” Skreyta fyrir sig og sína Það er varla til sá Skagamaður sem ekki hafa veitt skreytingum þeirra félaga athygli í gegnum árin og þeir viðurkenna að þær vekji ó- neitanlega athygli fólks. “Þó svo að maður skreyti náttúrulega fyrst og fremst fyrir sjálfan sig og sína fjöl- skyldu er ekki laust við að þettá, dragi fólk að. Það er ekki spurning, Maður tók meira eftir því í gamkí- húsinu á Heiðarbrautinni að fólk var að keyra framhjá og skoða og þar var oft öngþveiti. Stundum þorði maður ekki einu sinni út í glugga! I ár finn ég ekki eins mikið fyrir því því húsið er í alfaraleið. Daníel verður örugglega meira var við umferðina sem er eingöngu til að skoða því hann býr á þannig stað” segir Magnús en Daníel býr í botnlanga í Jörandarholti. “Það er töluverð umferð í kirkjugarðinum sem er rétt hjá mér og ég hef heyrt að fólk sé ánægt með að það sé svona lýsing út í garðinn. Því finnst það notalegt. Það segir sig alveg sjálft að fólk langar að skoða og það er auðvitað bara af hinu góða. Það sem mér finnst best við þetta allt saman er hvað bæjarfélagið í heild sinni hefur gert mikið. Mér finnst Akranes orðinn jólabær. Flér er skreytt frá Breiðinni og niður að göngum. Hérna áður fyrr fór fólk til Revkjavíkur bara til þess að sjá “jólin” og komast í rétta skapið en þegar það fer í bæintr núna verður það ekki fyrir þessum hughrifum sem það varð áður. Þetta átak versl- unarmanna er líka alveg frábært, það hefur skilað rniklu og þeir eiga heiður skilinn fyrir framtakið.” Fólk vaknaði allt í einu A síðasta ári var ákveðið að veita verðlaun fyrir fallegustu jólaskreyt- ingarnar í bænum og það var Magnús sem hreppti þau í það skiptið. Daníel vermdi annað sætið ásamt Þorsteini Ingasyni, íbúa á Alelteig á Akranesi. Þeir segjast þó vissir um að þessi verðlaun hafi ekk- ert með þá staðreynd að gera að það hefur færst mikið í aukana að fólk skreyti hús sín vel og vandlega að utan fyrir jólin. “Það virðist sem fólk hafi bara vaknað allt í einu. Það er ekki bara einn og einn sem skrevtir heldur eru svo margir komnir með fullt af fallegum og miklum skret'tingum. Ég held að þessi verðlaun séu ekki það sem virkar hvetjandi á fólk” segir Daní- el. “Fólk er bara að sjá þetta hjá öðrum og langar að gera svipað hjá sér.” “Já, ég er sammála því. Ég held að þessar viðurkenningar séu utan við þetta allt saman. Þetta kom óvænt inn í fyrra og ég held að það sé enginn í rauninni að keppa að því að sigra. Hitt er annað mál að auð- vitað er alltaf gaman að fá viður- kenningar og ég er alls ekki að gera lítið úr þeim. Þær þjóna alveg sín- um tilgangi.” Þeir þurfa ekki að hugsa sig lengi um þegar blaðamað- ur spyr þá hver ætti að fá verðlaun- in í ár. “Bæjarfélagið, ekki spurning. Atak Akranes fyrir þeirra framtak í að gera bæinn jólalegan. Verðlaun- in eiga að fara þangað.” Imynduð samkeppni Sú yfirlýsing þeirra félaga að það séu ekki endilega verðlaunin sem hvetji fólk tií að skreyta hjá sér kemur blaðamápni nokkuð á óvart í ljósi þess að flestir Akurnesingar virðast standa í þeirri trú að á milli Magnúsar og Daníels ríki mikil samkeppni. Þeir hrista hins vegar hausinn og segja að það væri mun nærri lagi að tala um samvinnu. “Það halda þetta margir en það kemur oft fyrir að ef ég sé eitthvað flott sem mér finnst henta betur hjá Danna segi ég: Heyrðu Danni, þú verður að fá þér svona!” Daníel tek- ur í sama streng. “Við vorum að skemmta okkur um síðustu helgi og Magga var boðinn sleði. Hann end- aði hins vegar inni í garði hjá mér. Þannig að þetta er alls ekki eins og við séum í samkeppni. Þetta er bara svona sameiginlegt áhugamál.” Burtséð frá rafmagnsreikningn- um kostar skrautið sitt. “Oll tóm- stundaáhugamál kosta eitthvað og við erum hvorki í golfi né laxveiði. Við reykjum hvorugir svoleiðis að það er eiginlega hægt að segja að þetta séu sígaretturnar okkar sem hanga þama úti. Þær loga í heilan mánuð og gera engan usla. Þetta er okkar áhugamál og það er öraggt að við eyðum ekki eins miklu í þetta eins og ef við myndum reykja enn pakka á dag.” [E~ __, ' » -■■ Sf-'’ ! j 1 ■-•-•: , . : Olíubfllinn valt Svo óheppilega víldi til í hálkunni á mánudaginn að olíu- bíll frá Grundarfirði sem var á ferð um Kolgrafarfjörð skrikaði til í kálku og valt út af veginum. Mjög gott veður var þegar óhapp- ið átti sér stað en mikil hálka. Okumaður bílsins sem ekki hefur orð á sér fyrir að fara glannalega, tnissti stjórn á bílnutn á lítilli ferð er hann var að koina yfir blind- hæð skammt fyrir innan Eiði. Þarna er tvískipt blindhæð á mal- arvegi og halla akbrautirnar báðar frá miðju vegarinns. Þegar kom- ið er norður af hæðinni í sömu akstursstefnu og olíubíllin var á er mjög þröngt við skiltið og liggur við að þurfi að krækja fyrir það. Einmitt á þeirn stað missti öku- maður olíubílsins vald á bílnum. Að sögn lögreglu hafa ijölmörg umferðaróhöpp verið á þessum slóðum og hefur engu verið sinnt um ábendingar unt úrbætur. Talið er sáralítið mál að ýta þessari hæð út svo hún þurfi ckki að vera blind. Engin aðvörun er um þessa hættu þegar koinið er að hæðinni. Þegar ekið er úr gagn- stæðri átt er hinsvegar örskammt frá slysstaðnum stórt aðvörun- arskilti þar setn sagt er að á næstu 15 kílómetrum hafi orðið fjöl- mörg uinferðaróhöpp. Þama var ekkert sem hindrað gat að óhapp yrði. Hinsvegar er það lán í óláni að þarna var gætinn bílstjóri á ferð og slapp hann alveg án meiðsla. Lítil olía var á tanknum og fór ekkert af henni niður. Nokkuð hefur verið um smærri óhöpp og pústra í hálkunni und- anfarna daga. III SOK Þórður við breytingu á nýja jeppa björgunarsveitarinnar Berserkja. / / Ox Asmegin í Stykkishólmi eru menn nú farnir að endursmíða þessa jeppa sem fluttir eru hálfsmíðaðir til landsins. Eins og alþjóð veit hefur sá siður lengi viðgengist á Islandi að betrumbæta jeppa. Engin jeppaframleiðandi hefur getað framleitt jeppa að smekk íslend- inga. Lengi hefur það tíðkast að jeppamenn breyti sínum bílum sínum á þann hátt sem þeir vilja hafa þá. Jeppaeigendum hefur fjölgað gríðarlega hér á landi á undan förnum árum og hefur það leitt af sér að risið hafa sérhæfð verkstæði á þessu sviði sérstaklega á Reykjavíkursvæðinu. Bifreiða- verkstæðið Asmegin í Stykkis- hólmi var stofnað fyrir röskum 10 árum og hefur veitt alhliða við- gerðarþjónustu fyrir bíla, dekkja- verkstæði og bílaleigu. Þórður Magnússon eigandi fyrirtækisins er bílasmiður að mennt og er nú farinn að stunda jeppabreytingar. Þegar Skessuhornið var í Stykkis- hólmi á dögunum var hann nýbú- inn að afhenda einn bílinn og komnir aðrir þrír í breytingu. Þórður er ekki bara hagur bíla- smiður heldur einnig flinkur í orðaleikjum því framkvæmir hann þessar jeppabreytingar und- ir kjörorðinu “Ox Asmegin” og það er alveg rétt minnsta kosti hvað varðar þann jeppa sem ég sá honum óx Asmegin. IH

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.