Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2000, Qupperneq 44

Skessuhorn - 21.12.2000, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 Jk£asuhu«j:j >Penninn Hualeiðim á ahentu Það er ljóst að umfjöllun fjölmiðla af á- kveðnum svæðum eins og Borgarfjarðarhér- aði skipta miklu máli fyrir þá sýn sem lands- menn almennt hafa afviðkomandi svæði. Ég varð nokkuð var við það þegar ég var að flytjast í Borgarnes að kunningjum og fyrri starfsfélögum þótti þetta undarleg ákvörð- un. Astæðan var m.a. sú að fólk hafði þær hugmyndir um Borgarfjörðinn að þar væri samdráttur og lítið að gerast, fólk væri helst að þrasa um vegstæði og ýmis “smámál”. Að sumu leyti var þetta eðlilegt. Atvinnulíf á þessu svæði hefur gengið í gegnum mikið samdráttartímabil og þá ekki síst sú atvinnu- grein sem allt hefúr í raun byggst á, land- búnaðurinn. Islenskur landbúnaður er þessi árin að ganga í gegnum ótrúlegar breyting- ar sem ekki sér fyrir endann á. Fólki fækkar í hefðbundnum búskap en ferðaþjónusta ýmiskonar vex. Sífellt verður algengara að fólk í dreifbýli sæki vinnu fjarri heimili. Anægjulega breytingu hefur mátt merkja undanfarið varðandi ímynd Borgarfjarðar- svæðisins. Þannig er m.a. greinilegt að frétt- ir sem bárust af opnun verslunarmiðstöðvar Hyrnutorgs hafa verið til að styrkja jákvæða mynd af þróun mála. Af samtölum við fólk, t.d. á höfuðborgarsvæðinu er ljóst að frétta- flutningur hafði í þessu tilfelli töluverð á- hrif. Almennt held ég að fréttaflutningur úr Borgarfjarðarhéraði hafi styrkst, ekki síst eftir að fréttaritarar af Vesturlandi eiga orð- ið innangengt á ríkisfjölmiðlunum. Eg hefði þó gjarnan viljað sjá fjölmiðla sýna þessu svæði meiri athygli. Þar skipir auðvitað bæði máli hversu virkir fréttaritarar eru og ekki síður hversu virkir við heimamenn erum að koma fréttnæmu efni til skila. Færa má líkur að því að Borgarbyggð standi á vissan hátt á tímamótum. I Borgar- nesi eru uppi framsæknar hugmyndir bæði um að efla atvinnustarfsemi sem fýrir er og hefja nýja. Ekkert er þar þó fast í hendi en gangi væntingar eftir munum við sjá umtals- verða uppbyggingu verða hér á næstu árum. Sveitarfélagið hefur þar mikilvægu hlutverki að gegna varðandi samfélagslega þjónustu, skipulagsmál og að skapa almennt þau skil- yrði sem þurfa að vera til staðar. Markvisst hefur verið unnið í skipulagsmálum í Borg- arnesi á árinu og ekki komið að leiðarenda í því. Senn hefjast framkvæmdir við byggingu nálægt 40 íbúða á lóðum sem úthlutað hef- ur verið. Deiliskipulag fyrir tvær nýjar göt- ur fyrir um 60 íbúða byggð er auk þess í kynningu. Unnið hefur verið rammaskipu- lag fyrir 40 hektara athafnasvæði ofan við Borgarnes sem þarf að vera til reiðu fyrir uppbyggingu atvinnulífs í Borgarnesi á næstu árum. Brátt verður hafist handa við að reisa viðbyggingu við Grunnskólann í Borg- arnesi. Þar með næst fram markmið um ein- setningu grunnskólans en um leið getur hann tekið við töluverðri aukningu nem- enda. Viðskiptaháskólinn á Bifröst mun senn kynna áform um umtalsverða aukningu á sinni starfsemi á allra næstu árum í fram- haldi af samningi við Menntamálaráðuneyt- ið. Það er viðurkennt að starfsemi háskól- anna í Borgarfirði hefur orðið til þess að efla samfélagið á svæðinu mikið. Viðskiptahá- skólinn hefur leitað til Borgarbyggðar um samstarf varðandi uppbyggingu á Bifröst en fyrir rekur Borgarbyggð þar leikskóla. Frekara samstarf mundi fela í sér að sveitar- félagið taki að sér að hluta eða öllu leyti verkefni sem snúa að gatnagerð, veitumál- um og fleiru á staðnum. Bæjarstjórn Borgar- byggðar hefur tekið jákvætt í erindi Við- skiptaháskólans og væntir þess að með því geti bæjarfélagið stuðlað að enn öflugra og umfangsmeira skólastarfi í héraðinu sem skili sér víða í samfélaginu þegar fram líða stundir. Ég læt þessar hugleiðingar nægja að sinni. Verkefni sveitarfélaga eru mörg og flest afar þörf. Því miður er ekki hægt að uppfýlla óskir allra. Fjárhagur sveitarfélaga er al- mennt þröngur á Islandi og aðhald nauð- synlegt. Breytingar á tekjustofnum sveitar- félaga sem samþykktar voru á Alþingi nú í desember nægja því miður engan veginn til þess að rétta af fjárhag sveitafélaganna. Ætl- ast verður til þess að hér sé aðeins um á- fanga að ræða í breytingum á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Einnig eru vonir bundnar við samkomulag um að lagafrum- vörp og stjórnvaldsákvarðanir sem hafa áhrif á fjárhag sveitarfélaga verði kostnaðarmetin í framtíðinni. Þannig á að vera ljóst hverju sinni hvaða tekjur þurfa að fylgja nýjum skyldum sem sett verða á sveitarfélögin. Eg óska íbúum Borgarbyggðar og vest- lendingum öllum gleðilegra jóla með þökk- um fýrir samstarfið á árinu og ósk um far- sæld á því nýja. Borgarnesi 18. desember 2000 Stefán Kalmansson I Í I I 0 I # | 1 1 I 1 I I 1 I jóðfegt fjorn Verið varkdr, varist jólasveina Heilir og sælir, lesendur góðir til sjávar og sveita Hinir rammíslensku, þjóðlegu jólasveinar eru ekki góðir menn. Alls ekki. Síður en svo. Þvert á móti. Fjarri því. Oðru nær. Þeir eru einhver þau and- styggulegustu illþýðis-úrhrök sem sögur fara af. Um aldir hefur þjóðin borið ugg í bfjósti fýrir þessum þokkapiltum, og ekki að ástæðulausu. Svo rammt kvað að jólasveinaógninni að á 16. öld gengu í gildi lög þar sem foreldrum var fortakslaust forboðið og með öllu bannað að hræða börn sín með tröllum, forynjum og jólasveinum. Féllu þessi lög illa í kramið meðal landsmanna enda höfðu kvikendi þessi dugað vel til að hræða börn frá hves kyns óspektum. En því miður fór sem fór og allt síðan hefur hver ein- asta kynslóð Islendinga reynst jafnvel enn agalausari, glæpahneigðari, forhertari og dónalegri en næsta kyn- slóð á undan. A.m.k. að mati næstu kynslóðar á und- an. Allt er þetta úrkynjun jólasveinastéttarinnar að kenna. Fyrir ekki eins löngu og okkur finnst bjó þjóðin við talsvert þrengri kost en nú er. Sérstaklega var vetur- inn erfiður. Það var dimmt. Ekkert rafmagn. Kerta- ljós takmarkað. Það var dimmt. Vorin voru tími horfellis, því var matur naumt skammtaður á veturna. Fólk var svangt - nema um jólin. Þessa örfáu daga þegar myrkrið er svartast leyfðu menn sér þá tilbreyt- ingu að kveikja ljós og veita góðan mat af rausn. Því voru engin vonbrigði stærri en þau þegar jóla- sveinarnir, þeir örmu þjófar, komu og hreinlega stálu jólunum rétt eins og Trölli nokkur útlendur iðkar nú í sölum kvikmyndahúsanna. Það var ekki mikið um matföng eftir að Bjúgnakrækir, Skyrgámur og Ketkrókur höfðu farið ránshendi um búrið. Ekki einu sinni hægt að sleikja upp afganga. Fyrir því sáu þeir bræður, Þvörusleikir og Askasleikir. A slíkum jólum mátti hemilisfólk láta sér nægja að sitja í myrkri og hlusta hvert á ann- ars gaul í görnum, því auðvitað hafði bannsettur loddarinn hann Kertasníkir með klækj- um sínum vélað síðasta ljósið frá börnunum. Við þessar aðstæður var engum hlátur í huga, nema ef vera skyldi heimasætunni þá er hún hugsaði til þess er Giljagaur reið húsum, eða eins og segir í kvæðinu góða: Giljagaur kom annar giljaði sá. Vera skyldu meyjar varðbergi á. Nærri má geta hve illa kauði þessi var þokkaður meðal bænda. En jafnvel enn verr var þó Stekkjastaur þokkaður, því hann skreið inn í fjárhúsin og lagðist þar á féð. Jólasveinarnir eru fæddir og uppaldir í köldum helli hjá óþjóðahyski því sem Grýla heita og Leppalúði. Það eru hauglöt tröll úr forneskju sem ekkert hafa fýr- ir stafni annað en að tína lýs hvort af öðra og rífa í sig ket af börnum þeim er stolist hafa út eftir að lögboðn- um útivistartíma lýkur. Það þarf ekki mikla spekinga á sviði sálar- og uppeldisfræði til að sjá að við slíkar heim- ilisaðstæður alast ekki upp nein góðmenni. Goðsögnin um hina göfuglyndu, gjafmildu, rauð- klæddu jólasveina er því ekkert annað en útlend firra og menningarsögulegt slys að þessu skuli haldið að börn- um. Að halda því fram að þessir asnalegu kókakóla karlar eigi eitthvað skylt við rammíslenska jólasveina af tröllakyni er hrein móðgun. Þaðan af síður er sennilegt að þeir gefi börnum í skó- inn. Til þess hafa þeir hvorki tíma, vilja né getu. Hvernig getur einn jólasveinn farið heim til allra barna á landinu og gefið þeim í skóinn á einni nóttu? A landinu eru um 70.000 börn 15 ára og yngri. Ef við hugsum okkur að hver jólasveinn hafi 12 klukkustund- ir til að færa þeim öllum gjöf í skóinn á meðan þau sofa þarf hann að setja gjafir í 97 skó á hverri mínútu. Hvernig getur einn jólasveinn borið allt sem krakk- arnir fá í skóinn? Ef meðalþyngd gjafar er 200 g þarf jólasveinninn að burðast með 14 tonn af gjöfum þegar hann leggur af stað. Hann getur auðvitað geymt dótið á ákveðnum stað og borið hluta af því í einu, en það tef- ur hann við verkið þar sem hann þarf að hlaupa meira í staðinn til að sækja dótið. Svo klæðist þeir eldrauðum búningi með snjóhvítum bryddingum og glimmeri af því þeir vilja ekki að nokkur maður sjái til sín. Þykjast síðan halda upp til fjalla í þessum efn- islitlu rauðu silkimussum. Þessi múndering gæti svo sem hentað í einhverja homma- skrúðgöngu en á fjöllum myndu þessir attaníossar krókna strax í fýrsta frosti. Nú á dögum skortir fólk hvorki jólamat né ljósmeti. Það vita íslenskir jólasveinar af tröllaætt vel. Þeir hafa brugðist við kalli tímans, tekið upp nýja klæki og ný nöfn. I dag kallast þeir Krullusprellir, Kennaraskelfir, Kvótakrókur, Hnúkaspillir, Gullkamradrullir, Beljukyssir, Þensluþefur, Sjúkraskýrsluseljir, Bankaklúðrir, Herjólfshrellir, Natósleikir og Graðfolagaur. Þeir sitja í valdastólum háum og hrella landsmenn, rétt eins og þeir hafa alltaf gert um aldir alda. 1 I 1 I I Í 1 I I 1 I 1 1 I 1 I I I I I I I I I 1 Verið kært kvödd á fýrsta Þórsdegi í Mörsugi. Bjarki M. Karlsson §§ Bjarki Már Kttrlsson vJS M sjálfskipaður þjóðháttafi\eðmgitr táKsm

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.