Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2000, Blaðsíða 45

Skessuhorn - 21.12.2000, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 45 Penninn Ég er ein þeirra fjölmörgu sem á erindi í kirkjugarðinn á Akranesi í desembermán- uði ár hvert til að fara með skreytingar á leiði ástvina minna og taka þátt í því að lýsa leiðin upp. Ekki hefur spillt fyrir að fá heitt kakó og kökur hjá Kiwaniskonunum á eft- ir. Garðurinn hefur að mínu mati verið einstaklega fallegur um jólin, gulu og rauðu ljósin á krossunum hafa sést langt að og yljað um hjartaræturnar. Nú í ár hefur orðið mikil breyting á. I stað ljósanna áð- urnefndu eru komnir lágir ljósakrossar sem auk þess að lýsa aðeins nánasta umhverfi eru flestir skakkir á leiðunum, væntanlega vegna frosts í jörðu. Ekki þyrfti mikinn snjó til að þeir færu nánast í kaf. En þetta er ekki allt, nú kostar 5900 kr að fá afnot af einum krossi í stað 2500 kr áður. Þetta er umtalsverð hækkun svo ekki sé meira sagt. Ekki má gleyma að margir vilja lýsa upp Ljósin í kirkjumrðimim á Akrmesi fleiri en eitt leiði. Mér verður hugsað til allra þeirra sem aðeins hafa úr ellilífeyri að spila og vilja lýsa leiði ástvina sinna. Hrædd er ég um að þeir finni fyrir þessari miklu hækkun. Nú hef ég ekki hugmynd um hvers vegna þessi breyting hefur orðið en ef þetta er hugsað svona til frambúðar, legg ég til að hver og einn geti greitt fyrir að- gang að rafmagni en hafi frjálsar hendur um lýsingu. Kirkjugarðurinn á Altranesi hefur tilfinningalegt gildi fyrir mig eins og svo marga aðra og mig langar að hafa hann aftur eins og verið hefur fram að þessu um jólin. Ég óska Skagamönnum nær og fjær gleði- legra jóla. Asgerður Ólafsdóttir Kópavogi fS^Penninn Nú er Tónlistarskóli Borgarfjarðar búinn að starfa á fjórða áratug og hefur gert hvorutveggja í senn, að kalla til starfa í héraðinu, lengur eða skem- ur, hóp ágætra tónlistarmanna, innlendra og er- lendra, - og að ala upp með þeirra tilstyrk iðkendur og njótendur tónlistar í margvíslegum myndum. Það var í upphafi ljóst að slíkt starf þarf tíma til að bera ávöxt. Nú er farið að uppskera. Söng- og tón- listarlíf blómgast og er orðinn ríkur þáttur í menn- ingarlífi héraðsins og þátttaka almenn, þar sem margir eru veitendur og enn fleiri tryggir áheyrend- ur. Og tekið er að gefa þessa tónlist út hljóðritaða, svo fleiri megi heyra og víðar og endist lengur en þá ögurstund sem hverjir tónleikar vara. Þar er nú nýjust geislaplata þeirra Theodóru Þor- steinsdóttur sópransöngkonu og skólastjóra tónlist- arskólans og Ingibjargar Þorsteinsdóttur píanóleik- ara og fyrrverandi kennara við skólann, en nú skóla- stjóra tónlistarskóla hjá grönnum okkar í Stykkis- hólmi. Báðar eru þær heimamenn í Borgarfirði en menntaðar bæði innanlands og utan en ekki veit ég betur en Theodóra hafi byrjað sitt tónlistarnám í þeirn sama skóla sem hún stýrir nú af atorku. Þær stöllur eru okkur því kunnar af verkum sínum og samstarfi um árin. Nú hafa þær ráðist í að hljóðrita sýnishorn af sinni tónlistariðkun og gefið út á veg- um Fjölritunar- og útgáfuþjónustunnar í Borgar- nesi. I tilefni af útkomu geislaplötunnar buðu þær hverjum sem heyra vildi á kynningartónleika í Borg- arneskirkju 8. des. sl. Ég tók því boði allshugar glað- ur, en auðvitað dálítið spenntur að heyra hvernig gengi. Fluttur var meirihluti þeirra laga sem á plötunni eru. Þar eru eingöngu íslensk lög, margar kunnar söngperlur, (en einnig lög, sem ekki er vitað til að áður hafi verið hljóðrituð) eftir sex tónskáld, sem starfað hafa á þessari öld; Pál Isólfsson, Sigvalda Kaldalóns, Karl O. Runólfsson, Þórarinn Guð- mundsson, Jón Þórarinsson og Sigurð Þórðarson. Þá fluttu þær gullfallegt lag eftir Birnu tónlistar- kennara, systur Theodóru, sem sómdi sér vel innan um lög snillinganna. En síðast en ekki síst verður að nefna, að Theodóra hóf tónleikana með því að syngja án undirleiks lítið lag og ljóð eftir móður sína, Sigríði Jónsdóttur, litla barnagælu, sem hún hafði raulað yfir barni sínu ungu. Þetta gaf stund- inni blæ hlýju og innileika, sem gerði hana sérstaka og minnisstæða. Ég er ekki fær um að rekja lag fyr- ir lag hvernig flutningurinn kom mér fýrir eyru, get bara sagt að þær skiluðu þessari tónlist með mynd- ugleika og öryggi þess sem veit að hann veldur sínu viðfangsefni og hefur í fullu tré við það. Sópranrödd Theodóru liggur hátt og hún beitir henni ekki síst af miklu öryggi og fimi á hæstu tónunum en vald hennar og styrkur á neðri hluta raddsviðsins fer vax- andi. Undirleikur Ingibjargar er eins og bjarg sem einsöngsröddin getur byggt ofari á eins og henni hentar, agaður og öruggur stuðningur, en tranar sér aldrei fram. Ég verð að játa það að ég hef verið að hlusta á plötuna síðan á tónleikunum og er auðvitað farinn að rugla saman hvað ég heyrði í kirkjunni og hvernig það hljómar á plötunni. En mér leið vel á þessum tónleikum og fór héim glaður og hreykinn af þessu listræna framlagi landsbyggðarinnar. Það er um seinan að segja þeim heimamönnum hér, sem ekki komu til að hlusta, af hverju þeir misstu á föstu- dagskvöldið. En ég get huggað þá með því að plöt- una geta þeir keypt og eignast þar margar perlur í vönduðum flutningi (og óaðfinnanlegri hljóðritun Sigurðar Rúnars). Ekki bara af því að þeim ber sið- ferðileg skylda til að styðja sitt heimafólk, heldur af því að platan stendur fyrir sínu - hvar sem er. Magníis Sigurðsson Gilsbakka Akranes Sólin skín. Máninn fyllir himininn. Myrkriö fljr. Fjallið lyftist frá jörðinni þrýstir toppum sínum upp til himins. Bærinn sefur í jólaljósunum. Dagurinn vaknar; minnist næturinnar angurvært og undurhlítt hlandast dagurinn og nóttin og sameinast á fjallinu. Arndís 13.12.2000 „Hleypið mér út“ gœti þessi migi drengur veri aS hagsa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.