Skessuhorn - 21.12.2000, Blaðsíða 58
58
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
ðk£SSUÍiui2 3
Þeir voru stoltir íbúar Snæfells-
bæjar síðastliðinn laugardag þegar
vígt var nýtt og glæsilegt íþróttahús í
Olafsvík. Þetta var sannarlega hátíð-
arstund þar sem menn stigu á stokk
og lofuðu glæsilegt framtak og þá
bjartsýni og einurð sem þarf til að
koma í framkvæmd þvílíku mann-
virki. Með tilkomu þessarar aðstöðu
hafa íþróttaiðkendur eignast aðstöðu
eins og hún gerist best á landinu.
Reynslan af uppbyggingu sem þess-
ari er allstaðar sú sama, gríðarlegur
áhugi kemur upp og mikil orka leys-
ist úr læðingi og félagsstarf á íþrótta-
sviði eflist til mikilla muna.
Vígsluathöínin hóst á því að As-
björn Óttarsson, forseti bæjarstjóm-
ar, bauð íbúa og gesti velkomna. Síð-
an fór Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
og formaður byggingarnefndar
hússins, yfir undirbúning og fram-
gang byggingarinnar.
Undirbúningur
hófst 1996
Það var árið 1996 sem undirbún-
ingur að þessu mikla verki hófst.
Skipuð var undirbúningsnefnd sem
fór í þarfagreiningu og athugun á
stærð húss og staðsetningu. Nefndin
skilaði tillögum sínum til bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar 6. mars 1997.
I framhaldi af því var skipuð dóm-
nefhd sem efndi til forvals um hönn-
un byggingarinnar í samráði við
Framkvæmdasýslu ríkisins, en 32
hönnunarstofur tóku þátt í forvalinu.
I ffamhaldi af því voru þrjár stofur
valdar til að keppa um hönnun húss-
ins og varð arkitektastofan
Gláma/Kím fyrir valinu. I júní 1998
var jarðvinna við húsið boðin út og
buðu 7 verktakar í þann þátt. Lægst-
bjóðandi var Bjarni Vigfusson og var
tilboði hans tekið. Fyrrsta
skóflustunga hússins var tekin þann
9. ágúst sama ár og framkvæmdu
böm úr öllum Snæfellsbæ það verk.
Margmenni var við þá athöfn og
greinilegt var að mikil tilhlökkun var
hjá þeim sem þar vom. Bygging
hússins var boðin út í mars 1999 og
vom tilboð opnuð 25. mars, fimm
aðilar buðu í verkið og var lægsta tdl-
boð frá Skipavík h.f. í Stykkishólmi
og var samið við þá um verkið.
Skipavík hóf síðan ffamkvæmdir í
maí 1999.
Mikið hús
Iþróttahús Snæfellsbæjar er tæp-
lega 2400 fermetrar að stærð, í-
þróttavöllurinn sjálfur er um 1200
fermetrar, 27 m. á breidd og 45 m. á
lengd og innan hans rúmast löglegir
keppnisvellir í handbolta, körfu-
bolta, blaki og babminton. Sex körf-
ur em í salnum og salnum er hægt að
skipta í þrennt með tveimur skipti-
tjöldum sem sett hafa verið upp.
Fjórir sturtuklefar era í húsinu og
tvö herbergi fyrir íþróttakennara og
dómara. Ahorfendastæðin í salnum
em útdraganleg og taka um 450 á-
horfendur. Starfsmannaaðstaðan er
rúmgóð og björt og inngangurinn
einnig. I húsinu em tveir fjölnota
salir sem nýttir verða sem kennslu-
stofur fyrir gmnnskólana í Snæfells-
bæ. Ahaldageymslur em nokkrar í
húsinu og em þær stærstu undir á-
horfendapöllum og við inngangsdyr
í austurenda hússins. Fyrir utan
keppnisvellina era í salnum tveir æf-
ingavellir fyrir körfubolta, þrír
blakvellir, sjö æfingavellir fyrir bad-
minton og í salnum er hægt að fara í
stangarstökk og fleiri greinar frjálsra
íþrótta. Auk þessa em kaðlar og
hringir sem hengdir em upp í burð-
arbitana. I húsinu hefur verið lögð á-
hersla á gott aðgengi fyrir fatlaða og
m.a. þá er lyfta milli hæða í húsinu.
Stórt skref
I lok ræðu sinnar sagði Kristinn
bæjarstjóri. “Agætu gestir, það ervon
mín að þetta glæsilega mannvirki
sem við emm að taka í notkun í dag
muni reynast okkur öllum til hags-
bóta. Það er ekkert launungarmál að
Snæfellsbær er að stíga stórt skref
með þessari framkvæmd og djarft er
teflt, en við sem emm að stýra Snæ-
fellsbæ í dag teljum, að mannvirki
eins og þetta glæsilega hús sé einn
þáttur af mörgum sem verður að
vera til, þannig að blómlegt bæjarfé-
lag haldi áfram að vaxa og dafna.
Hvað varðar húsið sjálft þ.e. innra og
ytra útlit þá tel ég að vel hafi til tek-
ist og sú ákvörðun okkar í bygging-
amefnd að leyfa arkitekt hússins að
vera einráða um lita og efnisval hafi
verið rétt því heildarmynd húsins
kemur ákaflega vel út. Eg vona að
þetta mikla mannvirki verði til þess
að efla og styrkja íþrótta og æsku-
lýðsstarf í bæjarfélaginu. Ollum
þeim er komið hafa að byggingu
hússins vil ég þakka samstarfið og því
starfsfólki sem ráðið hefur verið til
að vinna í húsinu óska ég góðs geng-
Mikill fengur
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra vígði húsið “Það er mikill
fengur fyrir hvert bæjarfélag að eign-
ast íþróttahús og þetta augnablik er
skemmtilegt hjá Snæfellsbæ sem nú
er kallaður hástökkvarinn meðal
sveitarfélaganna. Eg las það í blöð-
um að þessa nafngift hafi sveitarfé-
lagið hlotið fyrir góðan árangur við
stjóm bæjarfélagsins”. Síðan fór ráð-
herra yfir gæði þess starfs sem unnið
er í þróttum og rakti í fáum orðum
afrek íslensks íþróttafólks að undan-
förnu. “Sjálfur veit ég að héðan úr
þessu bæjarfélagi hafa komið afreks-
menn í íþróttum og sjálfur þekki ég
persónulega Þorgrím Þráinsson sem
er glæsilegur affeksmaður og góð
fyrirmynd vmgs fólks.” Síðan klippti
Bjöm á borða sem tvö ungmenni
strengsu á milli sín sem tákn um að
húsið væri formlega tekið í notkun.
Ráðherra óskaði fólki til hamingju
með þetta glæsilega hús.
Ræktun líkama og sálar
Því næst blessaði séra Óskar Ósk-
arsson húsið og sagði meðal annars.
“Það fer einstaklega vel á því að hér
á sömu torfunni skuli þessi tvö glæsi-
legu mannvirki standa, kirkjan og í-
þróttahúsið. Það undirstrikar nefni-
lega það samhengi að rækta líkama
og sál”. Eftír að hafa blessað húsið
tóku gestir til máls og færðu íbúum
Snæfellsbæjar hamingjuóskir og
gjafir sem nýtast eiga við starfsemi
hússins. Loks kom svo óvænmr
glaðningur fyrir börninn þegar full-
trúar frá Latabæ mætm í salinn. Oft
hefur íþróttalíf í Snæfellsbæ verið
öflugt og þar hafa orðið til íþrótta-
menn sem virkilega hafa skipað sér í
fremstu röð og sú aðstaða sem þarna
er boðið upp á mun efla hug og þrótt
Séra Oskar Hafsteinn Óskarsson blessaði
hitsið. Mytidir: IH / GE
ungmenna í Snæfellsbæ til stórra
verka á komandi ámm. Hjartanlega
til hamingju.
IH
Heiðursgestir við opnun íþróttahússins
Bjöm Bjamason opnaði htísið formlega með viðeigandi hætti