Skessuhorn - 26.10.2005, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
Banaslys í
Borgarfirði
Banaslys varð í Stafholtstung-
um á fimmtudagsmorgun þegar
bóndi lenti í drifskafti dráttar-
vélar og lést samstundis. Hann
var einn að störfum þegar slysið
varð og urðu engin vitni að því.
Vegfarendur sem áttu leið frarn-
hjá slysstaðnum um stundar-
fjórðungu eftir að það átti sér
stað tilkynntu það lögreglu.
Maðurinn sem lést hét Örn
Einarsson, bóndi í Miðgarði í
Stafholtstungum, fæddur 31.
desember 1947. Hann læmr eft-
ir sig eiginkonu og fjögur upp-
komin börn. Barnabörnin þeirra
era fjögur. Foreldrar Arnar era
báðir á lífi. Örn var fjárbóndi en
starfaði síðari árin sem girðing-
arverktaki. Hann sat um tíma í
bæjarstjórn Borgarbyggðar og
hefur auk þess tekið virkan þátt í
ýmsum félagsmálum, var meðal
annars mikill drifkrafmr í Brids-
félagi Borgarfjarðar. MM
Til minnis
Vib minnum á a& menningar-
hátíðin Rökkurdagar stendur
nú yfir í Grundarfirbi. Hátíbin
var sett í síbustu viku og
stendur fram í nóvember.
Dagskrá Rökkurdaga er mjög
fjölbreytt, svo sem listsýning-
ar, dansleikir, sagnakvöld og
m.m. fleira. Dagskrá Rökkur-
daga má sjá á vef Grundar-
fjarbarbæjar.
CuLxJ Vedtyrhorfivr
Þab verbur vaxandi norblæg
átt á fimmtudag, hvassvibri á
föstudag, en dregur úr vindi á
laugardag. Slydda eba rigning
verbur á föstudag og laugar-
dag, en annars þurrt ab mestu.
Afram norblæg átt á sunnudag
og mánudag og fremur svalt í
vebri.
Spivrniwj viKnnnar
Vib spurbum á Skessuhorn-
svefnum í síbustu viku: „Ertu
ánægb/ur meb nýja forystu-
menn Sjálfstæbisflokksins?"
Meirihluti þeirra sem afstöbu
tóku voru ánægðir, en svörin
skiptast þannig: Já, mjög svo
sögðu 32,1%, Já, frekar svör-
ubu 9,6%, hlutlausir voru
26,9%, nei, frekar óánægð/ur
voru 10,4% og nei, mjög óá-
nægð/ur sögbust 20,9% vera.
Næst spyrjum vib:
„Er karlrembu
hugsunarháttur
ríkjandi á þínum
vinnustaö?"
Svaraðu án undanbragða
á www.skessuhorn.is
VestlendiníjWr
vih^nnetr
Ab þessu
sinni eru
Vestlending-
ar vikunnar
allar KONUR
og ætti þab
ekki að koma
neinum á
óvart.
Bátahöllin á Hellissandi
stækkar Gáskabáta
Brynja SH 237 kom fyrir
skömmu til heimahafhar í Ólafsvík.
Það er útgerðarfélagið Bjartsýnn
ehf sem hefur fest kaup á bátnum
sem er af gerðinni Gáski 1200 og
hét áður Sænes SU. Hefur bámrinn
þegar hafið veiðar á línu og að sögn
Heiðars Magnússonar útgerðar-
manns og skipstjóra er hann mög á-
nægður með bátinn í alla staði.
Báturinn var endurbyggður hjá
Bátahölinni á Hellissandi. Meðal
breytinga sem gerðar voru má
nefha að báturinn var lengdur um 3
metra og er dekkið nú 8,3 metrar á
lengd, bámrinn var breikkaður um
30 cm og brú var hækkuð um 30
sm. Rafmagn var endurnýjað og
ýmsar breytingar gerðar á ívera-
stöðum. Ný 450 hestafla Cumm-
ings vél var sett í bátinn og er gang-
hraði bátsins 23 mílur. Bámrinn
tekur nú 14 stk 450 h'tra kör í lest.
Að sögn Viðars Hafsteinssonar,
eiganda Bátahallarinar hefur hann
keypt 2 aðra Gáskabáta og hyggst
breyta þeim á sama hátt og Brynju.
Við breytinguna stækka þessir bátar
úr 6 tonnum í 15 tonn að stærð.
MM
Framkvæmdir á
Skagaverstúni kynntar
Fyrsti morgunverðarfundur
Markaðsráðs Akraness á þessum
vetri var haldinn sl. fimmmdag á
veitingastaðnum Galito og var
fundurinn vel sótmr. Fram-
kvæmdastjóri Smáratorgs ehf.,
Guðmundur H. Jónsson, flutti
framsögu og sat fýrir svörum. Fjall-
aði Guðmundur fyrst almennt um
fasteignafélög, starfsemi þeirra,
kosti og galla. Síðan fór hann yfir
skipulag Norviksamsteypunar
(BYKO) bæði hérlendis og erlend-
is. Kom fram að um gríðarstóra
samsteypu er að ræða með mjög
fjölbreyttan rekstur. Að síðusm
fjallaði hann um ffamtíðaráform
samsteypunnar á Akranesi, en
Smáratorg hefur sem kunnugt er
umsjón með uppbyggingunni á
Skagaverstúninu svokallaða á Akra-
nesi.
Greinilegt var að þetta var það
sem fundarmenn höfðu mestan á-
huga á og svaraði Guðmundur
fjölda spurninga ffá fundarmönn-
um í lok ffamsögu. Fram kom með-
al annars að Kaupás, sem er hluti af
samsteypunni, ædar að opna nýja
matvöraverslun næsta haust í versl-
unarhúsinu á Skagaverstúninu og
er Smáragarður að hefja bygginu á
því. Verslunin verður allt að 2000
fm að grannfleti en heildarstærð
hússins verður um 5600 ffn. Ekki
var upplýst hvaða verslun sam-
steypunnar yrði fýrir valinu en hún
á m.a. Krónubúðirnar og Nóatún.
Viðræður era í gangi við fjölmarga
aðila um að koma inn í húsið með
verslanir og aðra þjónustu þó svo
Guðmundur vildi ekki á þessum
fundi upplýsa nánar við hverja stað-
ið væri í viðræðum við. Hvatti
Guðmundur alla þá sem hefðu á-
huga á að komast inn í húsið með
sinn rekstur að hafa samband við
sig og sagði að við lokahönnun á
húsinu væri hægt að aðlaga það
misjöfnum þörfum hvers og eins
m.t.t. stærðar og staðsetningar í
húsinu.
I fundarlok var tilkynnt að annar
morgunverðarfundur yrði í nóvem-
ber um annað áhugavert eftii og
yrði auglýst um það nánar síðar.
BE/MM
Sameiginleg sorphirða norðan og
sunnan Skarðsheiðar
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt fýrir sitt leyti að heimila út-
boð á sorphirðu með samnings-
tíma til 1. júlí 2009. Útboðið er af-
rakstur samvinnuverkefnis Akra-
neskaupstaðar, Borgarbyggðar,
Borgarfjarðarsveitar og hreppanna
sunnan Skarðsheiðar og er þetta
víðtækara útboð sorphirðu á svæð-
inu en áður hefur þekkst. Útboð-
ið nær til allrar sorphirðu sveitar-
félaganna; gámaleigu, losunar
gáma ásamt flutningi á sorpi í Fífl-
holt. Gert er ráð fýrir að útboðs-
og samningsskilmálar verði aug-
lýstir nú á næstu dögum, en
Hönnun hf. annaðist gerð útboðs-
gagnanna.
A fundi bæjarráðs Borgarbyggð-
ar í liðinni viku vora lögð fram
sömu drög að útboðsgögnum og
var afgreiðslu málsins frestað til
næsta fundar.
MM
Kanna möguleika á nýjum
leikskóla í Búðardal
Sveitarstjórn
Dalabyggðar
samþykkti sam-
hljóða á dögun-
um tillögu Þor-
steins Jónssonar
og Bryndísar
Karlsdóttur að
fela sveitarstjóra
að kanna mögu-
leika á auknu
framlagi úr Jöfh-
unarsjóði sveitar-
félaga til bygg-
ingar nýs leik-
skóla í sveitarfé-
laginu. Einnig
var sveitarstjóra
falið að kanna
möguleika á frek-
ari fjármögnun vegna nýbyggingar-
innar þannig að ekki þurfi að koma
til lántöku vegna byggingarinnar.
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur
rekið leikskóla í Búðardal í húsi
grunnskólans. Nokkrar umræður
hafa farið fram um málið í sveitar-
félaginu undanfarið. Hafa verið
ræddar hugmyndir um breytingar á
núverandi húsnæði, viðbyggingu
við grannskólann eða byggingu nýs
leikskóla. Sveitarstjórn hefur held-
ur hallast að því að breyta núver-
andi húsnæði og er samþykktin á
dögunum því nokkur stefnubreyt-
ing.
Þrúður Kristjánsdóttir, formaður
kvenfélagsins Þorgerðar Egilsdótt-
ur kom til fundar við byggðaráð
sveitarfélagsins fyrir skömmu og
tilkynnti hún að kvenfélagið væri
tilbúið að styðja byggingu leikskóla
með peningaframlagi eða öðram
hætti. Þrúður gat þess einnig að
málið hafi verið kynnt öðram fé-
lagasamtökum, sem lýst hafi vilja til
að koma að málinu. Gat hún þess
að hún kæmi til fundarins til að
kanna vilja sveitarstjórnarmanna til
að endurskoða fýrri ákvörðun um
breytingar á núverandi húsnæði
leikskólans. I því sambandi benti
hún á þá hugmynd að húsnæðið
yrði byggt úr timbri og þannig gert
að hægt væri að taka það niður og
selja í burtu ef ekki reyndist þörf
fýrir það í framtíðinni.
HJ
S
Askrift hækkar
lítíllega
Frá og með næsta áskriftartíma-
bih (nóv.-des.) hækkar áskrift að
Skesshomi lítillega vegna al-
mennra kostnaðarhækkana,
einkum vegna hækkunar á dreif-
ingarkostnaði og launa. Jafn-
framt verður seðilgjald, krónur
150,- sem fram til þessa hefur
verið innheimt sérstaklega á
greiðsluseðlum fellt inn í á-
skriftarverðið til hagræðis. Hér
eftir kostar mánaðaráskrift 1000
kr sé greitt með greiðsluseðli,
900 kr sé áskrift færð á greiðslu-
kort en elli- og örorkuh'feyris-
þegar greiða áfram sama gjald
og verið hefur, þ.e. 725 kr á
mánuði. Verð í lausasölu breyt-
ist ekki og verður áffam krónur
300. -MM
Riðiðá
göngustíg
BORGARíJÖRÐUR: Göngu-
stígur sem nýlega var lagður á
Kleppsjárnsreykjum í Borgar-
firði hefur að undanförnu verið
nýttur sem reiðvegur, að því er
ffam kom á fundi hreppsnefndar
Borgarfjarðarsveitar á dögun-
um. Slík notkun vegarins er
bönnuð og þolir stígurinn ekki
slíkt álag og mun skemmast að
því er fram kemur í bókun
nefndarinnar. Hafa því komið
fram hugmyndir um að malbika
stíginn og var stjórnendum
sveitarfélagsins falið að vinna að
lausn málsins. -hj
Aflaverðmætí
minnkar
VESTURLAND: í júlí var
landað 1.687 tonnum af sjávar-
fangi í höffmm á Vesturlandi að
verðmæti rúmar 95 milljónir
króna. Er það ríflega 90% sam-
dráttur í magni talið miðað við
sama mánuð á síðasta ári og um
76% samdráttur í verðmætum
talið. Samdráttur varð mikill í
öllum helstu fisktegundum á
milli ára. Fyrstu sjö mánuði árs-
ins var landað 51.709 tonnum af
sjávarfangi á Vesturlandi að
verðmæti rúmar 1.657 milljónir
króna. A sama tíma í fyrra var
landað 105.053 tonnum að
verðmæti rúmar 3.207 milljónir
króna. Samdrátturinn í magrd er
því ríflega 50% og í verðmætum
ríflega 48% á milli ára. -hj
VLFA kærir
fyrirtækið 2B
AKRANES: Félag iðn- og
tæknigreina og Verkalýðsfélag
Akraness sendu á mánudag kæra
til Sýslumannsins í Borgarnesi
vegna leigu fyrirtækisins 2B á 10
pólskum starfsmönnum sem
starfa hjá Istak við stækkun
Norðuráls á Grundartanga.
Umrætt fýrirtæki hefur mildð
verið í umfjöllun fjölmiðla tmd-
anfarna daga vegna meintra
brota þess á réttindum og kjör-
um starfsmanna á þeirra vegum.
I frétt ffá stéttarfélögimum seg-
ir að þau hafi fengið það staðfest
hjá Vinnumálastofnun að fýrir-
tækið 2B sé ekki með atvinnu-
leyfi fyrir erlent vinnuatl og hef-
ur ekki heimild til að flytja inn
erlent vinnuafl á grandvelli
þjónustusamninga, þar sem um
sé að ræða íslenskt fýrirtæki en
ekki erlent eins og lög nr.
54/2001 kveða á um.
-mm