Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2005, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 26.10.2005, Blaðsíða 24
* þjónustu á Vesturlandi A Vesturlandi eru nærfellt 300 rými fyrir aldraða þegar talin eru með rýmin á Hólmavík og á Reyk- hólum. Þjónustan á hverjum stað fyrir sig er á mismunandi stigum eftir aðstæðum og staðháttum. „Tengsl milli aðila á Vesturlandi sem veita öldrunarþjónusm eru ó- formleg og í mörgum tilvikum lítil sem engin. Þannig hggja t.d. ekki á lausu heildstæðar upplýsingar um þarfir, ffamboð, þjónustu og aðra þætti á öldrunarstofnunum. Sama er raunar að segja um þörfina á auknum samskiptum ábyrgðaraðila sem veita öldrunarþjónustu. Þessi atriði hafa komið upp í umræðum nokkurra aðila sem fjalla um þessi málefhi á Vesturlandi og hugmynd orðið til í framhaldi þess að efna til fundar þar sem öldrunarþjónusta, áherslur og viðhorf í nútíð og ff am- tíð væru rædd með það fyrir augum að koma á auknum tengslum og samskiptum stofnana og þjónustu- aðila á Vesturlandi,“ segir Guðjón Brjánsson, framkvæmdastjóri SHA í samtali við Skessuhorn. Guðjón á frumkvæði að því að boða til fund- ar aðila sem tengjast þjónustu við aldraða í landshlutanum. Fundur- inn verður á morgun, fimmtudag- inn 27. október á Hótel Hamri í Borgarnesi. Fyrir u.þ.b. ári var Olafur Þór Gunnarsson, sérffæðingur í öldr- unarsjúkdómum ráðinn til starfa á Sjúkrahúsinu og heilsugæslustöð- inni á Akranesi en hann starfar jafn- ffamt á Landspítala, háskólasjúkra- húsi í Reykjavík. „I kjölfar ráðning- ar Olafs Þórs hefur verið unnið að ýmsum áherslubreytingum í starfi E deildar SHA til samræmis við ríkjandi viðhorf til þjónustu við þennan samfélagshóp. Olafur Þór mtm á fundinum kynna þau viðhorf sem uppi eru nú varðandi heil- brigðisþjónustu við aldraða, m.a. stefnu SHA. Þá mun Vilborg Ing- ólfsdóttir, nýráðinn deildarstjóri öldrunarmála í heilbrigðisráðu- neytinu fjalla um stefnu og áherslur stjórnvalda í málefnum aldraðra og taka þátt í umræðum,“ segir Guð- jón Brjánsson. MM Rjúpnaveiðin hefur gengið vel undanfama daga og margir lagt leiS sína á fjöll. Rjúpan hefur víSa veriS berskjölduS á auSrijörS og sjálf er húnfarin aS lýsast mikiS. A myndinni eru Rúnar Vilhjálmsson og Gre'tar N. SkatphéSinsson efiir veiSiferS um liSna helgi. Ljósm: Amar. Samráðsfundur um öldrunar- Vilja kaupa Katanesland Hreppsnefhd Hvalfjarðarstrand- arhrepps hefur engin svör fengið ffá fjármálaráðuneytinu vegna á- huga nefndarinnar á kaupum á Kataneslandi í Hvalfirði. Landið, sem er um 230 hektarar að stærð, eignaðist ríkið á sínum tíma þegar hugmyndir komu upp um hugsan- lega byggingu rafskautaverksmiðju á landinu. Hallffeður Vilhjámsson oddviti segir áhuga hreppsins koma til vegna þess að eðlilegt sé að skipulagsmál á svæðinu komist á eina hendi. Hann vill engu spá um hugsanlegt verðmæti landsins. Fjármálaráðuneytinu var ritað bréf í ágúst þar sem vilja hreppsins var lýst. Þar sem engin viðbrögð hafa borist fól hreppsnefndin oddvita fyrir skömmu að ítreka bréfið. HJ Vinna við stækkun leik- skóla í fuilum gangi Starfsmenn Trésmiðju Guð- mundar Friðrikssonar vinna um þessar mundir hörðum höndum við stækkun leikskólans Sólvalla í Grundarfirði. Viðbyggingin er 170 fermetrar að stærð og mun gjör- bylta aðstöðu í leikskólanum. Einnig verða gerðar breytingar á eldri byggingu skólans. Fyrsta skóflustunga var tekin í byrjun á- gúst og stefht er að því að ffam- kvæmdum ljúki í júní á næsta ári. Meðfylgjandi mynd var tekin á föstudaginn en þá var stóð steypu- vinna yfir. HJ mngiir ag, gleði að Jtfátel Jtfamrv 9 rétta jólamatseðill 18., 25., 26. nóv, 2., 3., 9., 10., 16. og 17. des. Forréttir: Kryddlegnar rjúpur með marineruðum gráfíkjum og peru. Bláberjagrafinn lax með hunangskexi og ristuðum furuhnetum. Jarðarberja- og mintusorbet. 'Verð hr. 5.500 á crmami Aðalréttir, val um einn aðalrétt: Andabringa með hindberjagljáa, kanillegnum kartöflum og púrtvínslagðri hindberjasoðsósu. Smjörsteikt smálúða með pistasíum og rósapipar, borinfram með maker kartöflum og kampavínslagaðri saffransósu. Lambahryggjarvöðvi með rósmarin engifer, borin fram með rauðlaukssultu og kartöflu-sveppa “sauté”. Eftirréttahlaðborð: Riz a l’amande, alvöru súkkulaðiterta með hindberjasósu, berjaterta, kransakökutoppar, ávaxtafoss með vanillukremi. Efþú vilt leggja þig eftir matinnfœrðu gistingu, kvöldverð og morgunverð á kr. 9.900 á mann. Borðapantanir í síma 433 6600 eða í tölvupósti hamar@icehotels. is H ó tel Hamar - Borgarnesi - sími 433 66 - h a m a r @ icehotels.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.