Skessuhorn - 26.10.2005, Qupperneq 8
;nnc «-J!f MlEfy^KfJSAÖGK'M'ÖÍ?PÓBER 2005
„.fc'wiiwr...
Hvenær verður gata gata? - Af gatnagerð í nokkrum sveitarfélögum:
Ótrúlega breytileg stefiia um firágang gatna í íbúðahverftun
Vaxandi þrýstíngur er víða um
að fá byggingarlóðir fyrir íbúðar-
húsnæði. Hér á Vesturlandi hefur
eftirspurn verið mest á Akranesi í
allmörg ár en undanfarin misseri
hefur eftirspurn verið að aukast
eftir byggingarlóðum á nánast öll-
um þéttbýlisstöðum í landshlutan-
um. Kunn er sprengingin í eftir-
spurn eftir húsnæði á háskólastöð-
unum Bifröst og Hvanneyri en
marga fleiri staði mætti nefna svo
sem þéttbýlisstaðina á Snæfells-
nesi, Borgarnes og Reykholt. Það
vakti athygli blaðamanns á liðnum
vetri, hversu margar götur á Akra-
nesi voru ófrágengnar í nýju
hverfi, svonefndu Flatahverfi.
Þrátt fyrir að göturnar væru
nokkrar fullbyggðar, vantaði bæði
slitlag og gangstéttar en slíkt veld-
ur íbúum húsa við þessar nýju göt-
ur ómældum pirringi svo sem
vegna jarðvegs og óhreininda sem
veðst inn í hús. Þetta varð til þess
að ákveðið var að skoða nánar
hvernig sveitarfélög standa að
gatnagerð í nýjum íbúðahverfum.
Borin voru saman nokkur svæði og
verður að segjast að niðurstaðan er
þéttbýlisstöðunum á sunnanverðu
Vesturlandi ekki í hag.
Sveitarstjómir ráða
stefnunni
Stefna sveitarstjórna varðandi
gatnagerð og frágang gatna er ó-
trúlega ólík frá einum landshluta
til annars. Margar sveitarstjórnir
leggja kapp á að ávallt séu til laus-
ar lóðir við ffágengnar götur. Ann-
arsstaðar er áherslan á gatnagerð
víkjandi.
I sveitarfélaginu Arborg voru í-
búar 1. desember 2003, 6.326 sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hag-
stofu Islands, á Akranesi voru þeir
5.582, í Mosfellsbæ 6.573 og í
sveitarfélaginu Skagafirði 4.178.
Þó svo bæði Skagafjörður og Ar-
borg séu víðfeðm sveitarfélög, þ.e.
ekki aðeins þéttbýliskjarnar eins og
heita má um Mosfellsbæ og Akra-
nes, er stefna sveitarstjórnanna
keimlík. Það er þó ljóst að á Akra-
nesi virðist meiri tilhneiging til að
draga frágang gatna en í hinum
nefndu sveitarfélögunum. Það
vildi þó svo skemmtilega til að
þegar verið var að vinna þessa sam-
antekt hófust malbikunarfram-
kvæmdir í Flatahverfi á Akranesi af
miklum móð og eru ljósmyndir
þaðan teknar 24. október sl.
Smærri sveitarfélög
I Austurhérði voru íbúar 2141, í
Borgarbyggð 2.589, í Fjarðabyggð
3.110 og í Grindavík 2.421. í sam-
anburði þessara álíka stóru sveitar-
félaga er áberandi meiri munur á
metnaði við frágang gama við í-
búðagömr og er ljóst að sveitar-
stjórn Borgarbyggðar er sú sem
lengst gengur í að láta gatnagerð-
ina mæta afgangi. Meðfylgjandi
þessari grein eru ljósmyndir frá
nýjum gömm í Fellabæ og á Egils-
stöðum til samanburðar og voru
þessar myndir teknar um liðna
helgi. A þeim sést að byggingar-
ffamkvæmdir standa yfir við göt-
urnar á þessum stöðum, hús eru á
mismunandi byggingarstigum en
búið er að malbika gömrnar, en
gangstéttar vantar. Meðfylgjandi
eru einnig ljósmyndir frá tveimur
gömm í Borgarnesi. Við aðra göt-
una, Kvíaholt, voru byggingafram-
kvæmdir hafnar á árinu 2001 og
em við gömna 3 fullbyggð hús og
verið er að undirbúa byggingu
nokkurra til viðbótar. Hin gatan,
Stöðulsholt, átti að vera bygging-
arhæf 16. ágúst sl. en þar er enn
fátt sem minnir á götu í þéttbýli.
Raunasaga
frumbyggjans
I samtali við Guðmund Finns-
son, íbúa við Kvíaholt í Borgarnesi
kom ffam að hann byggði einbýlis-
hús sitt þar árið 2001 en þá var
honum tjáð að gatan yrði malbikuð
innan tveggja ára, væntanlega þá
fyrir árslok 2003, en síðan era lið-
in 2 ár, árið 2005 er að renna sitt
skeið. Guðmundur ætlaði að hefja
framvæmdir um vorið 2001 en
vegna þess hve framkvæmdir sveit-
arfélagsins við gömna drógust, gat
hann ekki hafið uppsetningu húss-
ins fyrr en í nóvember 2001. I dag
er búið að úthluta nær öllum lóð-
um við þessa götu og enn bólar
ekkert á bundnu slitlagi á Kvíaholt.
Helga Halldórsdóttir, forseta
bæjarstjórnar Borgarbyggðar stað-
festi í smtm spjalli við blaðamann
hvernig framgangur mála hafi ver-
ið. Það kom fram hjá Helgu að
önnur verkefni hafi verið látin
framar í framkvæmdaröðina og
nefndi hún annað brýnt verkefni;
framkvæmdir við leikskólann í því
sambandi. Ennfremur kom fram
hjá henni að lengi vel hafi lítil sókn
verið í lóðir við þessa göm og jafn-
vel hafi lóðum verið skilað. Einnig
gat hún þess að dýrt væri að ganga
frá götunni. Helga tók fram að á-
kveðið hafi verið að bæta lóðum
við götuna Arnarklett til að koma
til móts við þörf fyrir íbúðarhús-
næði og hafi það létt undir.
Gatan Stöðulsholt í Borgarnesi
átti að vera byggingarhæf gata 16.
ágúst síðastliðinn. I síðustu viku
hófust framkvæmdir við fyrsta
húsgrunn við þá götu þrátt fyrir að
þá hafi engar lagnir verið komnar í
A EgilsstöSum standa nú yfir framkvæmdir viS byggingu íbúdarhúsnæðis á götu sem búið var að malbika áður en byggingameistarar
byrjuðu að athafna sigþar.
Svo skemmtilega vildi til ai þegar verið var að Ijúka vinnslu þessarar fréttar sl. mánudag var verið að malbika götur í Flatahverfi. I-
búarþar anda nú léttar en þeir voru orðnir langþreyttir á ástandinu enda nokkur ár síðan hverfið bytjaði að byggjast.
götuna og jarðvegsskiptum enn fram að ákvörðun um að hefja dráttur framkvæmda við báðar
ekki lokið, eins og sjá má á með- framkvæmdir við Stöðulsholt hafi þessar götur nú væra vegna van-
fylgjandi mynd. Helga Halldórs- verið tekin í vor, eða eftir að fjár- efnda verktakans.
dóttir, forseta bæjarstjórnar tók hagsáætlun hafi verið lokið, og OG
Frumbyggjum Kvíaholts var lofað bundnu slitlagi ísíðasta lagi 2003, nú er árið 200S senn liðið og enn er
gatan svona.
Að aidingu er svo mynd frá Stöðulsholti í Borgamesi. Þar er búið að úthluta öllum lóðum og eru framkvæmdir
hafnar viðfyrstu húsgrunna við götuna enda átti hún að vera byggingarhæf 16. ágúst sl.