Skessuhorn - 26.10.2005, Qupperneq 13
-.MHH...
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
13
þeim raðað á sviðið og þar sváfu þeir
við dillandi tónlistina þegar
skemmtiatriðum lauk. Foreldramir
höguðu sér mikið betur þegar böm-
in vora með.“ Þannig lýsir hún
þorrablótum Lunddælinga áður fyrr
og ekki laust við að læðist að manni
sá grunur að kynslóðabilið sé ennþá
minna í Lundarreykjadal, en víða
annarsstaðar þekkist í sveitum.
Reyndi að tæla
þær undir vegg
Dísa heldur áfram frásögn sinni af
mannamótum: „Þegar tækiferi gafst
og færðin var góð skutumst við oft á
samkomtu í næstu sveitir yfir vetrar-
mánuðina. Mér dettur í hug t.d.
grímudansleikirnir sem haldnir vom
í Brún í Bæjarsveit. Eg man einu
sinni að ég útbjó mig sem veiði-
mann, með byssu um öxl, refaskott
hangandi við beltið, grímu fyrir
andliti og hanska á höndum. Enginn
þekkti mig. Ég bauð upp í dans öll-
tun fallegu komuium. Þannig dans-
aði ég allt ballið villt og brjálað.
Reyndi jafhvel við þær og bauð út
undir vegg. En borgfirskar konur
era siðavandar, elska sína eiginmenn
og falla ekki svo glatt fyrir veiði-
manni. Engin þeirra reyndist til-
kippileg. Þegar kom að úrskurði
dómnefndar sýndist nefridinni að
veiðimaðurinn væri líklegastur til að
hljóta verðlaun en nefndarmenn
héldu að hér væri á ferð sami aðili og
hafði fengið aðalverðlaun árið áður.
Það þótti ekki við hæfi að sami aðili
fengi aðalverðlaun tvö ár í röð og
missti ég því af þeim í það skiptið.“
Ég fór og Bjöm
fékk sleðann
Dísa segir að þau Björn hafi ekki
aðeins verið hjón og foreldrar, held-
ur einnig góðir vinir. „Eg var sjálf-
stæð og hélt alla tíð því frelsi til at-
hafna sem ég kaus sjálf. Ég hef því
aldrei haff áhyggjur af stöðu minni
sem kona og finnst stundum að ég
hugsi eins og karlmaður," Dísa hlær
við og nefnir sem dæmi: „Það var
einhverju sinni að ég sá auglýsta
bændaferð til útlanda og sýndist mér
hún afar eftirsóknarverður kostur.
Björn hafði ekki áhuga en sagði sig
vanta snjósleða. Niðurstaðan varð sú
að ég fór í ferðina og Björn lét gaml-
an draum rætast og eignaðist góðan
snjósleða. Bæði hæstánægð."
Björn eiginmaður Dísu lést úr
hjartabilun heima á Þverfelh árið
1998. „Þá höfðu þau Inga Helga
dóttir okkar og Rúnar Hálfdánarson
maður hennar, löngu tekið við bú-
skapnum. Nú nota ég talsverðan
tíma til að ferðast bæði hér heima og
erlendis. Annars er mér eftirminni-
legust ferð sem við Björn fórum
saman 1942. Það var fyrsta ferðalag-
ið okkar. Þá fórum við með Ung-
mennafélaginu Dagrenningu hér í
dalnum í ferðalag til Mývatns."
Herdís Guðmundsdóttir á Þver-
felli staldrar hér við og fær sér kaffi-
tár með viðmælanda. Hún segist
bráðhress og ber það með sér, ferð-
ast um allt, enda komin með nýtt í
mjaðmimar og keyrir rauða bílinn
sinn þegar þarf að skjótast af bæ.
Hún sér prýðilega á nóturnar á org-
elinu og höndin titrar ekki ögn þeg-
ar fengist er við hannyrðir. Flesta
daga fer hún út í garð, í litlu sund-
laugina við húsvegginn og vafalaust
hugsar hún um ljóðlínu þegar hún
svamlar í heita vatninu frá Englandi,
næst-næsta bæ, þegar hún horfir
upp í himininn og hríslurnar bærast,
til hhðar við laugina. - En ljóðlínan
er leyndarmálið hennar Dísu á Þver-
Suiidrung samstöðunnar
Miðvikudagskvöldið 19. október
komu nokkrir stuðningsmenn L-
listans í Dalabyggð saman og var
þar lögð fram harðorð ádeila á for-
ystu listans.
Við undirritaðar erum sveita-
stjórnarmenn L-listans og viljum
aðeins tjá okkur um málið. Við get-
um samþykkt þessa gagnrýni að
miklu leyti, en tökum hana mjög
takmarkað til okkar, þar sem hinn
nýi meirihluti hefur haft tögl og
hagldir síðustu 2 1/2 ár.
Það er dálítið hlálegt að nafn
þessa lista skuli vera kennt við sam-
stöðu, en það lýsir reyndar þeirri
hugsjón sem menn lögðu upp með
vorið 2002. Þá náðist samstaða með
þeim sem höfðu verið ósáttir við
stjórnun sveitarfélagsins undanfar-
andi kjörtímabil. En því miður
reyndust vera skemmd epli í körf-
unni og sigurvegarar kosninganna
báru ekki gæfu til að nýta sér hin já-
kvæðu úrslit.
Rót vandans var að fráfarandi
meirihluti sætti sig alls ekki við tap-
ið - eins og fólk verður samt að
kunna, ef það vill vera í pólitík og
nýi meirhlutinn (eða vissir aðilar
innan hans) réði ekki við sitt
breytta hlutverk. Það var einfaldara
að halla sér að „stóra bróður“ og
leyfa honum að ráða ferðinni á-
fram.
En fleira hangir á spýtunni. Efstu
menn L-listans munu í raun aldrei
hafa sætt sig við að 4. maður var
oddvitaefnið í kosningunum. Það
herbragð var talið nauðsynlegt til
að sigur ynnist og var það áreiðan-
lega rétt ályktað. En þetta er að öll-
um líkindum það sem kraumað hef-
ur undir ffá upphafi og S-listamenn
notfærðu sér þessa óánægju efstu
manna okkar til að ná þeim á sitt
band og hefja skæruhernað gegn
rétt kjörnum sveitarstjórnarmanni.
En vopnin snerust í höndunum á
þeim og þeir höfðu lítinn sóma af,
hvort sem þeir læra af því eða ekki.
Sveitarstjórn sem kyndir undir ó-
ffiðarbáli í svona fámennri byggð
fyrirgerir algjörlega rétti sínum til
setu. Hlutverk sveitarstjórna er í
hnotskurn að byggja betra samfélag
og efla samhug íbúanna til góðra
verka. Þar hefur núverandi sveitar-
stjórn Dalabyggðar algjörlega
bragðist. Því eru skiljanleg þessi
miklu sárindi og vonbrigði margra
stuðningsmanna L-listans.
I upphafi stóð L-listinn fyrir
mjög metnaðarfullri stefnumótun
og tóku í fyrsm báðir listar þátt í
gerð hennar. Einkunnarorðin voru:
Virðing, Traust, Gæði og leiðar-
ljósið var Ræktun. En svo dró S-
listinn sitt fólk út úr samstarfinu og
fékkst engin skýring þar á; a.m.k.
var ekki skömm af verkefninu.
Stefnumótunin var þó samþykkt
en lítið hefur farið fyrir henni. En
nú er hiin til og vonandi verður
framsýnt hugsjónafólk í næstu
sveitarstjórn sem tekur hana upp á
arma sína.
Nú höfum við eftir fund með
stuðningsmönnum og nokkrum að-
standendum L-lista samstöðu í
Dalabyggð, sem hlaut meirihluta í
síðustu sveitarstjórnarkosningum,
ákveðið að segja skilið við listann á-
samt 3 öðrum mönntun af listanum
og 2 umboðsmönnum hans. Oll
eigum við það sameiginlegt að for-
dæma málefnatilbúnað og svik for-
ystu listans.
Við höfum öflugan stuðningshóp
að baki, sem við munum starfa með
ffarn að næstu kosningum og horf-
um til ffamtíðar með bjartsýni.
Snæbjörg R. Bjartmarsdóttir
Guðrún J. Gunnarsdóttir
Sveitarsljómarmenn í Dalabyggð.
FREE
Allar vörur i verslumnm
með Tax Free afslætti
Sértilboð á
völdum vörum
enn meiri
afsláttur!
•VERZLUNIN
SIMI 431 2007 I j jTy
STILLHOLTI 114
AKRANESI
Munið Tax Free afsláttinn af vörum
Kjörið að nýta tækifærið í jólagjafakaup
Kötlu
Stillhoitl 14 sími 431 3320
Þórhanna
Guðmundsdóttir
Skrifstofumaður hjá SÍBS
„Húðin á mér er
tq getþví
einsogsUWi. #
meðPolaro\i)e.
Niðurstöður kliniskra rannsókna sem j
prófessor Amold Berstad við
Haukeland háskólasjúkrahúsið ( j
Noregi framkvæmdi sýna að olfan
hefuráhrifá:
- Ónæmiskerfið
- Gigt - auma og stífa líði
- Sár og exem
- Maga- og þarmastarfsemi
- Hárvöxt og neglur
- Kóléstról og blóðþrýsting
og
Fæst í öllum
apótekum
heilsubúðum