Skessuhorn - 26.10.2005, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
^kUsunuKt
Kvennafrídagurinn 2005
- fjölmenn baráttudagskrá um allt land
Síðastliðinn mánudagur var stór
dagur í jafnréttisbaráttu kvenna þeg-
ar konur um allt land héldu upp á
Kvennafrídaginn. Þrjátíu ár voru þá
liðin frá Kvennafrídeginum mikla
þann 24. október 1975, þegar konur
í mgþúsundavís lögðu niður störf.
Tilgangurinn þá var að sýna ffarn á
mikilvægt ffamlag kvenna í atvinnu-
h'finu og samfélaginu í heild. Konur
vildu á þeim tíma undirstrika að þær
væru ekki varavinnuafl. Nú var kast-
ljósinu einkum beint að launamis-
rétti í samfélaginu og lögðu konur
að þessu sinni niður vinnu nákvæm-
lega klukkan 14:08, eða á sömu
stundu og þær voru búnar að vinna
fyrir dagslaununum, væru þær karl-
ar.
Langstærsti baráttufundurinn fór
ffam í Reykjavík og telur lögregla
þar að um 45 til 50 þúsund manns
hafi verið í miðborginni þegar mest
var í tengslum við hátíðarhöldin.
Þrátt fyrir mannfjöldann gekk allt á-
fallalaust fyrir sig og og þótt umferð
hafi gengið hægt komust allir leiðar
sinnar að lokum.
Konur af sunnanverðu Vestur-
landi; Akranesi og Borgarnesi fjöl-
menntu og tóku þátt í hátíðarhöld-
unum í Reykjavík meðan konur ann-
arsstaðar úr landshlutanum gerðu
slíkt á heimavelli. Þannig voru stað-
bundnar dagskrár haldnar í tilefhi
dagsins a.m.k. á Hvanneyri, í Ólafs-
vík, Grundarfirði, Stykkishólmi og
e.t.v. víðar.
Dagskrá
í Grundarfirði
I Grundarfirði komu konur saman
og fóru gangandi til kaffisamsætis og
dagskrár í tilefni dagsins í samkomu-
húsinu kl. 14:30 þar sem formleg
dagskrá hófst stundarfjórðungi síðar.
Góð þátttaka var í dagskránni og
mátti þar sjá mæður, tengdamæður,
sysmr, dæmr og frænkur saman
komnar ásamt nokkrum körlum.
Með Sæmundi
í bæinn
I Borgamesi fjölmennm konur í
rútur ffá Sæmundi sem óku þeim til
Reykjavíkur þar sem þær tóku þátt í
dagskránni með kynsystrum þeirra.
Með Sæmundi fór ffíður flokkur
kvenna í a.m.k. tveimur rútum áleið
suður á útifundinn góða. Mjög
margir vinnuveitendur í Borgarnesi
gáfu frí í tilefni dagsins og átti það
raunar við á öllum stöðum.
Undir jökli
I Ólafsvík fjölmennm konur á
Hótel Ólafsvík um kl. 14:10 og tóku
þar þátt í hátíðarhöldunum. A dag-
skránni var upplestur pistla og bar-
átmávörp flutt, lesin ljóð, farið með
gamanmál og söngur. MM
Pottaglamur á
Hvanneyri
Á Hvanneyri eins og annars stað-
ar á landinu var Kvennafrídagurinn
haldirm hátíðlegur og mættu rúm-
lega 100 konur og börn í gönguna á-
samt nokkrum körlum. Þar sem í-
búafjöldi á Hvanneyri, að nemend-
um Landbúnaðarháskóla Islands
meðtöldum, er einungis um 280 þá
vom þama mættir hátt í 40% þorps-
búa. Gengið var um þorpið með
kröfuspjöld, potta og sleifar. Mikill
stemning var í göngunni sem lauk
með ávörpum valinna kvenna og
baráttusöng fyrir utan heimavist
Landbúnaðarháskólans. Ræðumenn
vora Jóhanna María Elena Mattías-
dóttir, nemandi LBHI, Margrét
Guðrún Ásbjarnardóttir,
mastersnemi við LBHI, og Björg
Gunnarsdóttir, Hvanneyringur. Að
ræðum loknum stjórnaði Dagný
Sigurðardóttir, gjaldkeri LBH3 bar-
átmsöng og svo fengu konurnar sér
kaffi í mötuneyti Landbúnaðarhá-
skólans að lokum. GB
S
I jakkafötum á
Grundartanga
Konur sem starfa á skrifstofu Is-
lenska jámblendifélagsins, Fangs og
Iðntækni á Grundartanga fögnuðu
kvennafrídeginum í gær með því að
mæta í jakkafötum og með bindi.
Með því vildu þær leggja áherslu á
launamun kynjanna með vísan í aug-
lýsingu VR. Konur vom í miklum
baráttuhug. PO
Sprengdu utan af
sér húsnæðið
Konur í Stykkishólmi lém ekki sitt
eftir liggja á Kvennafrídeginum.
Uppúr klukkan 14 fóm þær að tínast
í Hólmgarð og gengu þaðan niður í
bæ með trommuleikara og lúðra-
blásara í broddi fylkingar að veit-
ingahúsinu Fimm fiskum. Var þar á-
formað að halda fund. En í ljós kom
að sökum mannfjöldans var húsið
sprungið utan af fundinum og fór í
staðinn ffam útifundur þar sem um
150 konur vom saman komnar. Á
fundinum sem stjórnað var af Sól-
borgu Olgu Bjarnadótmr, hjúkrun-
arfræðingi tóku til máls fjöldi
kvenna og rifjuðu upp daginn fyrir
30 ámm og horfðu til ffamtíðar. Ein
15 ára stúlka flutti ræðu og lýsti sinni
sýn á jafhréttisbaráttunni. Að fundi
loknum var drukkið kaffi á Fimm
Fiskum. Allir fundarmenn skrifuðu
nöfn sín í stílabók sem er 30 ára
gömul og er með nöfhum þeirra sem
tóku þátt í dagskrá Kvennaffídagsins
1975. DH
Skagakonur
skunduðu til
fundar
Konur á Akranesi lögðu niður
vinnu kl. 14:08 á mánudaginn eins
og sysmr þeirra víðsvegar um landið.
Þær tóku sig saman og héldu til
Reykjavíkur til að taka þátt í kröfu-
göngu og barátmfundi þar í tilefhi
barátmdags kvenna. Flestar fóru
saman í rútum sem fóra frá
nokkram stöðum í bænum. Baráttu-
hugur var í konunum en lundin
engu að síður létt og eftirvæntingin
mikil að geta slegist í för með mg-
þúsundum annarra kvenna í Reykja-
vík. ‘ HJ
Hér eru nokkrar konur úr Borgamesi á Laugaveginum. Athygli vekur að á myndinni eru 3 Evur.
Borgnesingar aðferðbúast með Scemundi.
Konur á Grundartanga klæddust jakkafótum í tilefni dagsins. Ljósm: PO
Undirbúningsnefndin á Hvanneyri: Sunna Askelsd., Anna G. Þórhallsdóttir og Björk Harðardóttir. Mynd GB
Það var vetrarlegt um að litast í Hólminum á Kvennafrídeginum. Konur
létu það samt ekkert á sigfá. Ljósm: DH
A Akranesi var fjölmennt í rútur frá Reyni Jóhannssyni og ekið til
Reykjavtkur. Hér er hópur að legg/a af staðfrá Grundaskóla. Ljósm: HJ
I Olafsvík komu konur saman á Hótelinu og var þröngt setinn bekkur-
inn. Ljósm: af vef 'snb.is