Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2005, Page 16

Skessuhorn - 26.10.2005, Page 16
16 -^nc T - - MÍDVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 ucuunu^ Jámsíða sýslu- mannsembætta Sýslumannsembættín í landinu í samvinnu við Starfsmennt hafa undanfarin misseri unnið að gerð heildstæðrar þjálíunaráætlunar fyr- ir starfsfólk sitt. Áætlunin ber nafn- ið Járnsíða eins og fyrsta lögbók Is- lendinga, eftir lok þjóðveldistíma- bilsins. Fyrstu námskeiðin hófust mánudaginn 10. október og var eitt þeirra haldið í Félagbæ í Borgar- nesi og hét það „Saga og hlutverk sýslumannsembættanna." Megin- viðfangsefhi námskeiðsins var yfir- lit yfir sögu embætta sýslumanna og verkefni þeirra í dag. Kennari var Olafur K. Olafsson sýslumaður Snæfellinga. Þótti námskeiðið takast framúrskarandi vel. Með- fylgjandi mynd er af þátttakendum á námskeiðinu ásamt kennara. Geta má þess að sama dag voru haldin námskeið um „Lögbókandagerðir“ á Egilstöðum, „Almenna siðffæði og siðfræði starfsins“ í Kópavogi og „Ofluga liðsheild og skapandi samskiptí“ á Isafirði. ES SkaUagrímur vann kærumál gegn KR Dómstóll Körfuknattleikssam- bands Islands hefur dæmt liði Skallagríms í 8. flokki kvenna 20-0 sigur gegn liði KR í leik sem fram fór 1. október þar sem síðarnefhda félagið notaði í leiknum eldri leik- menn en leyfilegt er. I dómnum kemur ffam að samkvæmt leik- skýrslu hafi þrjár 14 ára stúlkur leikið með liði KR en samkvæmt reglum mega ekki eldri stúlkur en 13 ára leika með 8. flokki. Lið KR var ekki sektað þar sem dómurinn taldi forsvarsmenn liðsins ekki hafa reynt að leyna brotínu. HJ Að hafa stjómstöðina í lagi Nýlega fór af stað forvamar- verkefhinu „Eg ætla að bíða“ og landsmenn hafa að undanfömu séð auglýsingar sem em liður í hvatningarherferð sem er á veg- um verkefhisins Vímuvamarvik- an 2005 - vw.is. Einn dagskrár- liður vikunnar var ffæðslufundur á vegum Náiun áttum hópsins sem bar yfirskrifringa „Er áfengi hollt fyrir ungt fólk?“ I erindum fræðimanna á fundinum komu fram skaðlegar afleiðingar áfeng- is og vímuefhaneyslu bæði lík- amlegar - andlegar og félagsleg- Heilinn ekki fullþroskaður Heili unglinga er mun viðkvæm- ari fyrir áfengisskaða en heili full- orðinna. Mestur verður skaðinn yf- irleitt í ffamheila sem stýrir firam- kvæmdum okkar og hegðun. Einnig hefur áfengi mikil áhrif á minnisstöðvarnar og taugaboðefhi heilans og getur því skert náms- hæfni unglinga. Sigurlína Davíðsdóttir, dósent í Félagsvísindadeild H3 lýsti þeim fé- lagslegu þáttum sem áfengis og vímuefnaneysla hefur á fjölskyld- una og sagði að því meira sem um- burðarlyndið væri gagnvart neysl- unni því meiri líkur væru á ung- lingadrykkju. Sigurlína lagði á- herslu á að því lengur sem hægt væri að ffesta byrjunaraldrinum því minni lýkur væru á að unglingar lenm í vandræðum og að vandræð- in yrðu alvarlegri því fyrr sem drykkjan byrjaði. Foreldrar geta haft mikil áhrif á það hvort og hvenær unglingurinn byrjar neyslu og með samtakamætti hafa foreldrar sameinast um ýmis uppeldisleg gildi eins og útívistar- tíma og eftirlitslaus partý. Mikil- vægt er að fjölga samverustundum foreldra með unglingum og til að unglingurinn geti staðið gegn hóp- þrýstingi um að hefja neyslu þarf hann þéttan stuðning foreldra sinna. Foreldrar höfum þetta í huga! Helga Margrét Guðmundsdóttir Verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra og talsmað- ur Vímuvamarviku 2005. ar. Hér er yfirlýsing 19 félagasamtaka sem starfa að málefnum bama og unglinga: WV 2005 - Yfirlýsing félagasamtaka Komum í veg fyrir áfengis- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna! Neysla áfengis og annarra vímuefna raskar uppvextí og ógnar velferð margra barna. Sum bíða ævarandi tjón. Það er bitur reynsla foreldra og annarra aðstandenda að sjá barn sitt lenda í fjötrum vímuefnaneyslu og villast á brautir glæpa og ofbeldis. Það er átakanleg fórn sem snertír okkur öll. I æsku er lagður grunnur að framtíð hvers einstaklings. Þá mótast mikilvægar forsendur lífssýnar, þroska og heilbrigðis síðar á ævinni. Börn og ungmenni eru berskjölduð fyrir áróðri og hvamingu tíl neyslu áfengis og annarra vímuefha. Rannsóknir sýna að því seinna sem ungt fólk byrjar neyslu áfengis og tóbaks því minni líkur eru á að það leiðist í neyslu vímuefna, hætti í skóla eða lendi í öðrum erfiðleikum. Höfum það í huga. Tökum höndum saman um að skapa börnum þroskavænleg skilyrði. Styðjum börn og ungmenni í að hafha neyslu áfengis og annarra vímu- efha. Látum velferð þeirra ráða við mörkun stefhu í áfengis- og vímu- efnamálum. Hagsmunir bama og ungmenna eiga að hafa forgang! l/tUMthe’inld Ifjóra tíma þögðu þær - ogþá varfundi slitið Fyrir skömmu var víða um land kosið um sam- einingu sveitar- félaga og sýndist sitt hverjum í þeim málum. Víða virðist þó tilhneyging til að halda í gamla fýrirkomulagið og breyta ekki eingöngu breytinganna vegna. Fyrir nokkrum árum þegar Borgarneshreppur öðlaðist tignarheitið Borgarnesbær orti Friðjón heitinn Sveinbjömsson: Fornri hefb er grýtt á glœ, gamlar venjur týnast, nú er hreppnum breytt í bœ bara til ab sýnast. Vafalaust vottar enn einhversstaðar fyrir ríg á milli nágrannabyggðarlaga og menn með smáhnútukast hver í annan. Teiti Hart- mann þótti ekki ástæða til að lýsa Eskifjarð- arbúum of fagurlega á sinni tíð: Ekki blindar andans Ijós Eskifjarbarbúa. Ef ég segbi um þá hrós yrbi ég ab Ijúga. Egill Jónasson fór eitt sinn um Austurland ásamt fleira fólki og kom meðal annars til Seyðisfjarðar og skoðaði kirkjuna þar. Efrir að hafa virt fyrir sér dyraumbúnað hússins varð honum að orði: Ljót og rybgub lœsing er. Lamir þarf ab styrkja. Sjaldan opnub sýnist mér Seybisfjarbarkirkja. Trúmálin hafa löngum verið mönnum hugleikin og valdið hatrömmum deilum um hvort Guð sé karlkyns eða kvenkyns og heiti þetta eða hitt eða hvort leyfilegt sé að vinna á laugardögum eða borða slátur og svína- kjöt. Mönnum gleymist hinsvegar gjarnan sú einfalda gmnnhugsun að vera bara góðir hver við annan sem er þó lykilatriðið. Eftir ágæta prédikun orti Egill Jónasson: Þab Drottinn gefur og gefa kann Er gert til ab aukist hans dýrb og vegur. Vib eigum ab tigna og tilbibja hann, - töluvert er hann nú hégómlegur. Eitt sinn sem oftar messaði Einar Gísla- son, predikari Hvítasunnumanna í útvarpið og sparaði ekki raust sína fremur venju. Varð það vestfirðingnum Guðmundi Sigurðssyni tílefhi efrirfarandi hugleiðingar: Ekki minnkar áhuginn, enn þess finn ég vottinn, ab þú heldur Einar minn ab illa heyri drottinn. Nú er friðunartímabili rjúpunnar lokið og hefur það vafalaust vakið óskerta ánægju þeirra sem ekki hafa getíð haldið jól fyrir rjúpnaleysi. Einhvemveginn held ég samt að jólin hafi nú komið fyrir því. Vigfus Péturs- son sendi rjúpnaskyttu nokkurri þessa kveðju fyrir nokkmm ámm: Heyrist mikill hagladynur. Höfbinginn er þannig gerbur. Sídritandi dýravinur drepur allt sem fyrir verbur. Stundum hefur verið rætt um að leyfa veiðar á fleiri fuglategundum svo sem hrossagauk sem sýnist þó ekki sérlega matar- mikil skepna. Einhverntíma þegar Sigmar B. Hauksson var að reka áróður fyrir hrossa- gaukaveiðum ortí Guðmundur Albertsson: Sé ég í anda Sigmar B. standa meb saxib og laukinn. Hann finnur matarlyst mikla í maganum sprikla er hann mibar á hrossagaukinn. Fœr þab mig undrab þó fengi hann hundrab og fœru allir í belginn. Meb feiti og grjónum og fibrinu og klónum þeir fylltu ekki svelginn. Af svipuðu tilefhi kvað Hlymrekur Hand- an: Margt er ab mannanna kyni, margan fugl sárskortir vini. Og skrattinn má skeina þá sem skotfimi reyna á mófugli í matreibsluskyni. Þó bæði rjúpur og hrossagaukar séu vafa- laust herramannsmatur þá er nú fleira sem getur glatt menn og stundum skjótfengnara. Jónas Björnsson skipstjóri ávarpaði eitt sinn kunningja sinn á þessa leið: Þab er flestra manna mál ab margt þér vel sé gefib. C öfug er og gób þín sál, - gefurbu korn í nefib? Lengi vel var mikill siður að syngja í bíl og ekki síst í rútum. Ekki veit ég hvaða ferðalag var á Páli Jónssyni þegar hann kvað: Vélin glœbir átök öll efst í hœbardragi. Bíllinn œbir upp á fjöll undir kvæðalagi. Að afloknum kvennafrídeginum sem er reyndar ekki kominn þegar þetta er skrifað er ekki úr vegi að rifja upp þessar vísur Halls Magnússonar í Seattle: Þab var indæl aftanstund eitt sinn hérna um daginn. Kvenfélagib fór á fund fyrir vestan bæinn. Frúrnar allar, fjær og nær fluttu í töskum vitib. í fjóra tíma þögbu þær og þá var fundi slitib. Ekki hef ég þó mikla trú á að allir fundir kvennafrídagsins hafi farið ffam með algjörri þögn enda væri það ólíkt blessuðum konun- um. Eg ætla líka að vona að þær séu stefnu- fastari en sá sem fékk eftirfarandi umsögn hjá Einari Friðrikssyni ffá Haffanesi: Mjög er skobun sumra seig, síst ber þab ab dylja. Elta má hana eins og deig eftir hvers manns vilja. Margar fallegar ástarvísur hafa verið ortar og ekki gott að segja hver er fegurst en rétt í þessu var ég að reka augun í vísu eftír Eirík Sigurðsson sem allavega mér finnst falleg: Þegar fimur fótur þinn fetar ab verkum sínum, ávallt ég á eftir finn yl í sporum þínum. Effir sama höfund er og þessi vísa sem við skulum láta verða lokaorðin að sinni enda hollt að enda á slíkum nótum: Ég ráfabi í rökkurmóbu reikull um lífsins brú. Mér sendur var sólargeisli, - sólargeislinn varst þú! Meb þökk fyrir lesturinn. Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöbum, 320 Reykholt S435 1367 og 849 2715 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.