Skessuhorn - 26.10.2005, Side 18
18
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
Erlend bókaveisla
- síðustu dagar
Nýjar bækur
Nýtt Trivial
nýja Spark
spilido.fi.
15% afsláttur af öllu
nema tilboðum.
ceeœf*
Kirkjubraut 54 - Akranesi - sími 431 1855
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIR í BORGARNESI
BERUGATA 10, Borgarnesi.
Einbýlishús, íbúð 149,8 og
bílskúr 62,2 ferm. íbúðin er
á tveimur hæðum. A neðri
hæð er parketlögð stofa.
Dúklagt eldhús,
viðarinnrétting. Auka
inngangur og þvottahús með
máluðu gólfi, þar er loft
viðarklætt. Snyrting með máluðu gólfi. Á efri hæð er hol
með viðarklæddu gólfi og 3 herbergi, tvö parketlögð en eitt
dúklagt. Baðherbergi með flísum á gólfi en veggir
viðarklæddir. Fataherbergi inn af baðherbergi. Ibakhúsi
er innréttað rými í risi með máluðu gólfi en loft viðarklætt.
Góð staðsetning.
Verð: 22.000.000
BORGARBRAUT 2, Borgarnesi.
íbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi
55,2 ferm. Forstofa flísalögð.
Hol og stofa parketlagt. Tvö
herbergi parketlögð, (annað
tekið út úr stofu). Eldhús
parketlagt, viðarinnrétting.
Stofa og eldhús samliggjandi.
Baðherbergi flísalagt, tengi
fyrir þvottavél. íbúðin er nýlega innréttuð.
Verð: 10.200.000
Töluverður ferðamannastraumur
í Bjamarhöfii í vetrarbyrjun
Ferðamenn koma ennþá í stríð-
um straumum í Bjarnarhöfn í
Helgafellssveit þrátt fyrir og vetur
sé nú hafinn samkvæmt almanak-
inu. Á undanfömum ámm hefur
mikil uppbygging átt sér stað í
Bjarnarhöfn og er þar ein blómleg-
asta ferðaþjónusta á landinu. Það er
einkum þrennt sem ferðamenn
sækja þangað.
I fyrsta lagi er það kirkjan á
staðnum. I katólskum sið var
heilögum Nikulási helguð kirkja
þar en núverandi kirkja var vígð
árið 1857. Kirkjan er lítil timbur-
kirkja og er afar vel við haldið. I dag
þjónar hún sem heimiliskirkja og er
stolt íbúa þar.
I öðra lagi koma ferðamenn til
þess að skoða safnið sem Hildi-
brandur bóndi hefur nýverið byggt
yfir. Þar er margan athyglisverðan
muninn að finna ffá gamalli tíð. Að
sögn Hildibrandar bónda er þar að
mestu um að ræða muni sem notað-
ir hafa verið af heimilsfólki í Bjarn-
arhöfn í gegnum tíðina.
I þriðja lagi flykkjast ferðamenn í
Bjarnarhöfn til þess að fylgjast með
hákarlaverkun Hildibrandar bónda.
Sú ffamleiðsla hefur fyrir löngu
vakið áhuga vegna vandvirkni enda
em bragðgæði hákarlsins engu lík.
Einnig er verkaður harðfiskur í
Bjarnarhöfn sem ekki er síðri ffam-
leiðsla en hákarlinn.
Menn þurfa að lengja
ferðatímann
Hildibrandur er ánægður með
ferðamannastrauminn á þessu ári.
Hann segir staðinn vel kynntan og
því sé straumur ferðamanna orðinn
nokkuð stöðugan
þrátt fyrir að á-
vallt megi gera
betur. Hann segir
staðinn hafa feng-
ið afar góða um-
fjöllun í erlendum
fjölmiðlum og
það hafi óneitan-
lega skilað sér í
auknum ferða-
mannastraumi.
Dæmi em um að
erlendir ferða-
menn komi mjög
langt að eingöngu
til þess að skoða
Bjarnarhöfn.
Þrátt fyrir að vet-
ur sé á næsta leiti
segir Hildibrand-
ur ferðamanna-
strauminn ennþá
töluverðan. Hann
segir það hins Hildibrandur með
vegar há sér
hversu snemma að hausti aðrir
ferðamannastaðir á Snæfellsnesi
loka dymm sínum. Því sé ekki um
marga staði að ræða til þess að
skoða þegar komið er fram í októ-
ber. Telur hann nauðsynlegt að aðr-
ir staðarhaldarar skoði sín mál
þarmig að fleira standi ferðamönn-
um til boða á svæðinu á þessum
tíma.
Aðspurður segir hann bættar
samgöngur efla ferðaþjónustuna en
þar verði skipulag að haldast í
hendur. Hann nefnir sem dæmi að
ekki sé nægilegt að leggja góða vegi
um aðalleiðir þegar vegir að helstu
ferðamannastöðum séu ekki bættir
og nefnir í því sambandi veginn að
vcenan hákarlsbita.
Bjarnarhöfn. Hann segir veginn
ekki í nokkra samræmi við þann
fjölda ferðamanna sem velja að
skoða sig um í Bjamarhöfn. Ur því
verði að bæta.
Nú fer í hönd mesti annatíminn í
Bjarnarhöfn hvað ffamleiðslu varð-
ar. Það styttist í Þorláksmessuna
með sinni skötu og þar á eftir kem-
ur þorrinn með hefðbundnu há-
karlsáti. Hildibrandur segir smekk
æsku landsins vera að breytast. Nú
séu mun fleiri tilbúnir að bragða á
þessari þjóðlegu ffamleiðslu og láta
með því bragðlaukana ráða för en
ekki skoðanir annarra. Því sé ekki
ástæða til að örvænta með verkun
hákarls og skötu.
Hjf
Safnið í Bjarnarhöfn erfullt af munumfrá búskapartíð Bjarnarhafiarbænda.
ÞÓRÓLFSGATA 10A, Borgarnesi.
íbúð á 1. hæð í þríbýlishúsi,
154,4 ferm. Hæðin er 118
ferm. og þar er flísalögð
forstofa. Forstofuherbergi
dúklagt. Hol, stofa og
borðstofa teppalagt. Eldhús
með dúkflísum, eldri
innrétting. Tvö dúklögð
herbergi. Baðherbergi með flísum á gólfi, ljós innrétting.
Á neðstu hæð er þvottahús og geymslur. Góð staðsetning
og gott útsýni.
Verð: 12.900.000
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Ingi Tryggvason hdl.
löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61,310 Borgarnes,
s. 4371700, 860 2181 -fax 4371017,
netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is
\_________________________________________________J
Rökkurdagar hafinir
Rökkurdagar, menningarhátíð
Grandfirðinga, var formlega sett í
síðustu viku í Eyrbyggju - Sögu-
miðstöð með opnum myndlistar-
sýningar Svövu K. Egilson. Þar
sýnir hún textílverk. Þetta er í ann-
að sinn sem hátíðin er haldin. Það
er fræðslu- og menningarnefnd
Grandarfjarðarbæjar sem stendur
að hátíðinni en skipulagning var nú
að mestu í höndum Rósu Guð-
mundsdótmr. Hátíðin stendur frá
19. október til 14. nóvember eða í
27 daga samfellt. Dagskráin er afar
fjölbreytt og nægir þar að nefna að
bæði Gísli Súrsson ogjames Bond
koma þar við sögu. Dagskrá hátíð-
arinnar má finna á heimasíðu
Grandarfjarðarbæjar.
HJ/ Ljósm: SK
Björg Agústsdóttir, sveitarstjóri setti hátíðina á þriðjudag {liðinni viku. Hér er hún á-
samt Svövu K Egilsson sem opnaði myndlistarsýningu við sama tilefiii í Sögumiðstöðinni.