Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2005, Síða 23

Skessuhorn - 26.10.2005, Síða 23
SSSISSIM©!® ,oor MHJVÍRUDAGUK76:’QKTÓBER 2005 23 Gunnlaugur Jóns- son farinn til KR Kemur Ferguson á Akranes í vor? Gunnlaugur Jónsson, knatt- spyrnumaður og fyrirliði ÍA til margra ára skrifaði í síðustu viku undir þriggja ára samning við KR- inga. „Þetta er fyrst og fremst mikil áskorun fyrir mig að koma til KR. Ég finn að það er mikill slag- kraftur í félaginu og það ætlar að rífa sig upp eftir dapurt gengi á undanförnum árum. Þá spilaði það stórt inn í að ég valdi að fara til KR að Teitur Þórðarson er þjálfari og hann er frábær í sínu fagi,“ sagði Gunnlaugur eftir aö hafa gengið frá samningi við vesturbæjarliðið. Afram á Jafntefli er frekar sjaldgæf úrslit í körfuboltaleik og í deildarkeppn- inni eru þau óhugsandi þar sem alltaf er leikið til þrautar. í Hóp- bílabikarnum geta leikir hinsvegar endað með jafntefli þar sem liðin leika tvívegis saman í útsláttar- keppninni og samanlögð úrslit ráða. Það gerðist í síðari leik Snæfells og Vals um síðustu helgi en Snæfell vann stórsigur í fyrri leiknum á Hlíðarenda, 101 - 76. Síðari leikurinn endaði hinsvegar með jafntefli sem fyrr segir, 84 - 84. Það dugði Snæfellingum til að fara áfram í 16 liða úrslit þar sem þeir mæta KR ingum. Rodney Rollins var lang at- kvæðamestur Snæfellinga í fyrri leiknum, skoraði 32 stig og tók 12 fráköst. Slobodan Subasic skor- aði 14 stig en Igor Boljanski 15 og Jón Ólafur 10. í síðari leiknum skoraði Magni Hafsteinsson 27 stig, Lýður Vign- isson 13, Rodney Rollins 12 og Igor Beljanski 11. GE Afram eftir stórsigur Skallagrímur byrjaði ekki vel í Hópbílabikarnum í vetur því liðið tapaði fyrri leiknum gegn Þór á Akureyri 91 - 95. í síðari leiknum var hinsvegar annað uppi á teningnum og Skallarnir sýndu hvers þeir eru megnugir og völt- uðu yfir Akureyringa eins og sagt er á vöndu máli en lokatölur í seinni leiknum sem fram fór í Borgarnesi urðu 103 - 85. í fyrri leiknum var Jovan Zdra- vevski stigahæstur með 30 stig, Christopher Manker skoraði 28 stig, Hafþór Gunnarsson 11 og Pétur Sigurðsson 9. ( síðari leikn- um varð Christopher stigahæst- ur með 29 stig, Pétur skoraði 20, Jovan 19, Hafþór 19, Adolf Hann- esson 3 og Áskell Jónsson 2. Skallagrímur mætir Fjölni í næstu umferð bikarsins. GE FYRIRLESTUR OG BÍÓ / nóvember James Bond-kvöldin hefjast kl. 21.00 á fyrirlestri um hvernig rekja má uppruna James Bond til Snæfellskrar bændastéttar. Eftir fyrirlesturinn er síðan sýnd valin Bondmynd Aðgangseyrir * *1 * * ’ * * * * kr. 600 * 'jm | * Sofnum fyrir , , fiimuskanna **»»»»• íþróttamiðstöðin í Borgarnesi Fimmtudaginn 27. október kl. 19.15 lceland Express deildin í körfuknattleik Skallagrímur - KR IVIunið árskortin ■y F.v. Gunnar Sigurðsson, Sir Alex Ferguson og Gísli Gíslason. Á fundi sem bæjar- ráð Akraness átti með Sir Alex Ferguson, framkvæmdastjóra Manchester United um helgina var sú hugmynd viðruð að Ferguson kæmi til Akraness í vor og yrði viðstaddur þegar nýtt fjölnota íþróttahús verður vígt á Akra- nesi. Forsvarsmenn Akraness voru á ferð í Englandi til að kynna sér starfsemi og markaðsstarf HB- Granda hf. í Englandi. Af því tilefni gafst tækifæri til þess að eiga fund með Sir Alex að loknum leik Manchester United og Tottenham Hotspur. Sem kunnugt er kynntust þeir Gunnar Sigurðsson sem situr í bæjarráði og Sir Alex, þegar knattspyrnulið ÍA lék í tvígang við Aberdeen í Evrópukeppni bikar- hafa og UEFA keppninni. Má geta þess að Sir Alex segir frá við- skiptum þeirra félaga í landsleik íslands og Skotlands í ævisögu sinni, en hann var þá aðstoðar landsliðsþjálfari Skota og Gunnar í stjórn KSÍ. í umræddu tilviki var Gunnar afar ósáttur við ákveðið atvik i leik Skotanna, sem Sir Alex var minnisstætt. Sir Alex tók á móti Skaga- mönnunum í herbergi sínu þrátt fyrir mikið annríki og aðra mikil- væga gesti. Hann rifjaði upp ýmis atvik frá leikjunum við ÍA á sínum tíma og ferðum hans með skoska landsliðinu og ræddi við hópinn í um 30 mínútur. Meðal annars var fært í tal hvort hann ætti mögu- leika á því að heimsækja Akranes á fyrri hluta næsta árs í tilefni vígslu fjölnota íþróttahúss á Jað- arsbökkum. Varð að samkomu- lagi að skoða hvort mögulegt væri að koma því við, en sem kunnugt er hefur framkvæmda- stjóri Manchester United talsvert á sinni könnu og tími hans af skornum skammti. Þess má geta að nærvera Skagamanna varð ekki efni í mörg mörk í leiknum því honum lauk með jafntefli. Hvort lið skor- aði mark. HJ r Trimm 2005 Ný 8 vikna ÍA Trimm námskeið hefjast 31. október og standa til 23. desember. Skráning fer fram í íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum (ekki í síma). Nánari upplýsingar ísíma 895 1278 eða á www.ia.is Átaksnámskeið fyrir konur (framhald) ATH: Nokkur laus pláss fyrir þær sem vilja byrja í átaki. Innifalið ínámskeiðinu er eftirfarandi: Þjálfun 3 x í viku - Matardagbók - Mikið aðhald, vigtun í hverri viku Fitumæling og ummálsmæling i byrjun og lok námskeiðs - Verðlaun fyrir bestan árangur Leiðbeinendur: Elín Björk Davíðsdóttir, Halldóra Árnadóttir íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum Stundaskrá 31. okt. - 23. des. Mánudagur Þríðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Morguntrimm 06:50 - 07:50 Elsa og Hugi Morguntrimm 06:50 - 07:50 Elsa og Hugi Morguntrimm 06:50 - 07:50 Elsa og Hugi BodyPump 11:55-13:00 Matti BodyPump 11:55-13:00 Matti Líkamsrækt og teygjur 16:25 - 17:25 Ella Likamsrækt og teygjur 16:25 - 17:25 Ella Styrkur og þol 17:30-18:30 Helga Maria BodyPump 17:30-18:45 Matti Styrkur og þol 17:30 -18:30 Helga María BodyPump 17:30-18:45 Matti Styrkurogþol 17:30 -18:30 Helga Maria Spinning 17:30-18:30 Matti Spinning 17:30-18:30 Helga María Spinning 17:30-18:30 HelgaMaría Pallar 18:30-19:30 Helga Dis Átaksnámskeið 18:30-19:30 Pallar 18:45-19:45 Helga Dis 3x20 19:30-20:30 Halldóra Kariapúl /ala Slökkviliðið 20:00-21:00 Ellý 3x20 19:30-20:30 Halldóra Karlapúl /ala Slökkviliðið 20:00-21:00 M Laugardagur 10:00-11:15 BodyPump - Matti íþróttahúsið Vesturgötu Átaksnámskeið 18:30-19:30 BodyCombat 18:30-19:30 Dean íi Ij.L JlH-'.lLLj L j .iA AiaKsnamSKeio 17:30-18:30 BodyCombat 19:30-20:30 Dean Átaksnámskeið fyrir konur: kr. 12.700 Námskeið 4 skipti í viku kr. 12.700 Námskeið 3 skipti í viku kr. 9.900 Námskeið 2 skipti í viku kr. 6.700 Námskeið 1 skipti í viku kr. 3.500 10 Tíma kort ÍA Trimm & Þrek kr. 4.800 Stakur tími kr. 800 • Innifalið í námskeiðsgjaldi er sund og gufa eftir trimmtímana • Fyllist námskeið þá ganga þeir fyrir sem skrá sig oftar í viku • Lágmarksfjöldi skráðra þátttakenda í tíma er 12 að öðrum kosti kann tímanum að vera aflýst • Námskeiðin fást ekki endurgreidd nema um veikindi sé að ræða og þá gegn framvisun vottorðs. fLjEf

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.