Skessuhorn - 02.11.2005, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER 2005
^áusunuú’
Hugsum um aldraða en ekki fyrir þá
„Bætt þjónusta við aldraða á
Vesturlandi mun ekki kosta stór-
aukningu í krónum talið, til lengri
tíma litið, en hún mun hins vegar
kosta stóra hugarfarsbreytingu.
Hætt verði byggingu hjúkrunar-
rýma en þess í stað verði byggðar
þjónustuíbúðir þar sem því verður
við komið,“ þetta sagði Ólafur Þór
Gunnarsson, sérfræðingur í öldr-
unarlækningum m.a. í erindi sem
hann hélt á ráðstefnu sem hags-
munaaðilar og stjórnendur í heil-
brigðisþjónustu héldu á Hótel
Hamri við Borgarnes í síðustu
viku. A ráðstefnunni var rætt um
öldrunarþjónustu á Vesturlandi,
þróun hennar og umbætur í þágu
skjólstæðinga. Ólafur var fyrir
nokkru ráðinn til starfa við Sjúkra-
húsið og heilsugæslustöðina á
Akranesi. I kjölfar ráðningar hans
hefur verið unnið að ýmsum á-
herslubreytingum í starfi SHA.
Öldruðum fjölgar hratt
I erindi Ólafs Þórs kom ffam að
öldruðum fjölgar mjög hratt á
landinu og um síðustu áramót voru
10,6% þjóðarinnar 67 ára og eldri
og 3,1% þjóðarinnar 80 ára eða
eldri. A tíu árum hefur lands-
mönnum 67 ára og eldri fjölgað
um 19,5% og 80 ára og eldri hefúr
fjölgað um 28,7%. A sama tíma
hefur landsmönnum öllum fjölgað
um 9,9%. Samkvæmt mannfjölda-
spá er gert ráð fyrir að 15% þjóð-
arinnar verði eldri en 67 ára og
eldri árið 2025 og á sama tíma er
því spáð að heilsufar aldraðra fari
batnandi og því muni að sögn
Olafs Þórs þörf fyrir önnur úrræði
en að stofnanir vaxi.
A Vesturlandi hefur íbúum á
svæðinu frá Hvalfjarðarströnd í
suðri, að Reykhólum í vestri og
Strandasýslu í norðri fjölgað um
tæplega 1% á síðastliðnum 10
árum. A sama tíma hefur íbúum 67
ára og eldri fjölgað um 12% en í-
búum 80 ára og eldri hefur fækkað
um tæp 5%. I dag eru 273 rými
fyrir aldraða á Vesturlandi, af þeim
eru 102 vist- eða dvalarrými en
171 hjúkrunarrými og eru þessi
rými að mestu setin.
5ORGARBY0GE
Nýr leikskóli
í Borgarnesi
Borgarbyggö auglýsir eftir leikskólastjóra
og leikskólakennurum
á nýjan leikskóla í Borgarnesi
Borgarbyggó hyggst opna nýjan tveggja til þriggja
deilda leikskóla í Borgarnesi á næsta ári.
Fyrst um sinn verbur starfrækt ein deild, fyrir 2ja til 3ja
ára börn, í bráðabirgöahúsnæbi á meðan nýtt húsnæði
leikskólans er í hönnun og byggingu. Deildin verður
opnuð í janúar 2006 og áformað er að nýtt húsnæði
verbi tekið í notkun um ári sföar.
Leikskólastjóri
Borgarbyggb auglýsir eftir leikskólastjóra í fullt starf frá og
meb 1. janúar 2006. Mebal verkefna fyrsta árib er ab taka
þátt í undirbúningi og hönnun húsnæbis og innra starfs hins
nýja leikskóla, auk þess ab stjórna leikskóladeild í
brábabirgbahúsnæbi.
Menntunar- og hæfniskröfur leikskólastjóra:
* Leikskólakennaramenntun
* Hæfni og reynsla í stjórnun
* Færni í mannlegum samskiptum
* Sjálfstæb vinnubrögb
* Skipulagshæfni, frumkvæbi, áhugi og metnabur í starfi
Leikskólakennarar
Borgarbyggb auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa frá og
meb 1. janúar 2006.
Fáist ekki leikskólakennarar til starfa kemur til greina ab rába
starfsmenn meb abra uppeldismenntun og/eba reynslu.
Menntunarkröfur leikskólakennara:
* Leikskólakennaramenntun
* Reynsla af uppeldis- og/eba kennslustörfum meb börnum
* Færni í mannlegum samskiptum
* Skipulagshæfni, nákvæmni, áreibanleiki og frumkvæbi
í starfi
í samræmi vib jafnréttisstefnu Borgarbyggbar eru jafnt karlar
sem konur hvött til ab sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til 18. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Asthildur Magnúsdóttir,
forstöbumabur fræbslu- og menningarsvibs,
í síma 437-1224 eba í tölvupósti;
asthildur@borgarbyggd.is
Ólafur Þór Gunnarsson.
Þjónustan víðast góð
á Vesturlandi
I erindi Olafs Þórs kom fram að
í dag sé víðast á Vesturlandi boðið
upp á heimahjúkrun á dagvinnu-
tíma en hvergi er í boði regluleg
kvöld- og helgarþjónusta heima-
hjúkrunar. Þá er víða boðin félags-
þjónustu um helgar og sjúkraþjálf-
un er víða í boði en þó án sérstakr-
ar áherslu á þarfir aldraðra. Að-
gangur íbúa Vesturlands að pláss-
um fyrir aldraða er betri en víða
annars staðar. Sem dæmi má nefna
að 68 ára íbúi á Vesturlandi á jafn
góða möguleika á stofnanavist og
80 ára Kópavogsbúi.
Þrátt fyrir að þjónustan við aldr-
aða á Vesturlandi á stofnunum sé
góð að mati Olafs er hún of stofn-
anamiðuð. Það sé trúlega vegna
þess að landshlutinn er stór og
byggð dreifð. Því verði tilhneig-
ingin frekar sú að veita þjónustu á
stofhunum en á heimilum íbúa.
Einnig nefndi hann sem mögulega
skýringu að lífeyrir margra væri
ekki hærri en svo að hann dygði
ekki fyrir framfærslu fólks á heim-
ilum sínum og því sæktu íbúar í
þjónustu stofnana. Einnig ráði ef-
laust nokkru óöryggi fólks við að
búa afskekkt á efri árum. Þá varp-
aði hann einnig frarn þeirri spurn-
ingu hvort tekjustofnar sveitarfé-
laga dygðu ekki til að veita íbúum
lögbundna þjónustu og því horfðu
sveitarfélög frekar til þjónstu
stofnana.
Aukin áhersla
á endurhæfingu
I heilbrigðisáætlun til ársins
2010 er hins vegar lögð aukin á-
hersla á endurhæfíngu og heima-
hjúkrun auk annarrar þjónustu í
heimahúsum. Markmið þeirrar á-
ætlunar er að um 7 5 % landsmanna
80 ára og eldri búi í heimahúsum
en hlutfallið var 64% árið 1996.
Hvert hjúkrunarrými kostar í
byggingu um 12 milljónir króna og
árlegur kostnaður við það er á bil-
inu 4,7 - 12 milljónir króna á ári.
Ólafur telur hins vegar að aldraðir
vilji búa sem lengst að sínu og vilji
því eiga kost á þjónustu í eða sem
næst við heimabyggð. Stofnana-
þjónusta verði þó kostur þegar
þess er þörf en án óhóflegs biðtíma
eins og hann komst að orði.
Stórefla ber
heimahjúkrun
Því telur Ólafur Þór þörf á stór-
eflingu heimahjúkrunar á svæðinu
og auka þurfi samþættingu í starfi
heimahjúkrunar og
heimaþjónustu. Þá þurfi
að fjölga möguleikum
aldraðra til endurhæf-
ingar. Ólafur vill hins
vegar að hætt verði
byggingu hjúkrunarrýma
en þess í stað verði
byggðar þjónustuíbúðir
þar sem þeirra er þörf.
Einnig að boðið verði
einbýli á stofnunum.
Rétt sé því að flytja
stöðugildi frá hjúkrunar-
og dvalarheimilum yfir í
heimahjúkrun og dag-
vistun og að heilsugæsla
og þjónusta göngudeilda
fyrir aldraða verði efld.
Því þurfi meðal annars
að auka samstarf stofn-
ana og sveitarstjórna á
Vesturlandi í málefnum
aldraðra.
Til þess að þessar
breytingar nái fram að ganga vill
Ólafur að verkefni eins og heilsu-
gæsla og öldrunarþjónusta verði
flutt til sveitarfélaganna ásamt við-
unandi tekjustofnum. Þá verði
aukin samvinna sveitarfélaga og
minnkað það sem hann kallar of-
uráhersla á fagþjónustu. Hugsa
þurfi fyrst um fólkið en ekki fyrir
fólkið. Þessar breytingar telur Ó-
lafur ekki kosta stóraukningu í
krónum talið til lengri tíma litið en
mikillar hugarfarsbreytingar sé
hins vegar þörf. Störfum muni
ekki fækka í kjölfarið í heimabyggð
aldraðra en þau muni breytast.
Heilsufar aldraðra muni batna al-
mennt og því gefist kostur á að
njóta lengur reynslu þeirra, þekk-
ingar og visku. Þannig takist að
bæta samfélagið í heild.
A ráðstefnunni á Hótel Hamri
flutti Vilborg Ingólfsdóttir deild-
arstjóri öldrunarmála í heilbrigðis-
ráðuneytinu erindi og fjallaði hún
um stefnur og áherslur stjórnvalda
í málefnum aldraðra. Að loknum
erindum framsögumanna urðu
nokkrar umræður um málefni
aldraðra á Vesturlandi enda var
fjöldi fólks mættur sem starfar að
þessum málum í landshlutanum.
HJ
Yggdrasill og Eivör á Hamri
Aðrir tónleikar Tónlistarfélags
Borgarfjarðar á yfirstandandi
starfsári verða haldnir á Hótel
Hamri föstudagsdvöldið 4. nóv-
ember nk. og hefjast þeir klukkan
21. Að þessu sinni er það færeyska
hljómsveitin Yggdrasill sem sækir
Borgfirðinga heim. Hljómsveitin,
sem var stofnuð árið 1980, flytur
svokallaða heimstónlist og lagaval-
ið er blanda af tónsmíðum Kristi-
ans Blak, stofnanda hljómsveitar-
innar, og þjóðlegri tónlist frá lönd-
um sem liggja að Norður-Atlants-
hafi. Nefna má færeyskar ballöður,
sálma og rímur, Inuitalög og tón-
list frá Hjaltlandseyjum. Jafnframt
gætir sterkra djassáhrifa í tónlist
Yggdrasils.
Hljómsveitina skipa þeir Kristi-
an Blak, píanó, Villu Veski, saxó-
fónn, Heðin Ziska Davidsen, gítar,
Mikael Blak, bassi, Brandur Jacob-
sen, trommur og söngkonan Eivör
Pálsdóttir sem Islendingum er að
góðu kunn.
Hljómsveitin Yggdrasill hefur
haldið tónleika í mörgum löndum
og leikið inn á fjölmarga geisla-
diska. Kristian Blak hefur meðal
annars samið 9 stærri verk í svítu-
formi fyrir hljóm-
sveitina, m.a. við ljóð
eftir færeyska rithöf-
undinn William
Heinesen og undir á-
hrifum frá klippi-
myndum hans. Jafn-
framt hefur hann
samið verk sem sér-
staklega eru ætluð til
flutnings utandyra og
þar leikur færeysk
náttúra stórt hlut-
verk. A næsta ári
mun hljómsveitin
koma fram á tónleik-
um víða um heim.
Það er stjórn Tón-
listarfélags Borgar-
fjarðar sérstök á-
nægja að kynna nú til
sögunnar nýjan tón-
leikastað en það er stefna félagsins
að halda tónleika sem víðast í hér-
aði. Allir eru velkomnir á tónleik-
ana á Hótel Hamri. Aðgangseyrir
er 1500 krónur fyrir utanfélags-
menn en 1000 krónur fyrir börn
og eldri borgara. Argjald Tónlist-
arfélags Borgarfjarðar er 4500
krónur og veitir það aðgang fyrir
tvo að öllum tónleikum á starfsár-
inu.
A aðventutónleikum félagsins
þann 26. nóvember nk. syngur
Operukór Hafnarfjarðar undir
stjórn Elínar Oskar Oskarsdóttur
og verða þeir haldnir í Reykholts-
kirkju að vanda.
('fréttatilkynning)