Skessuhorn - 02.11.2005, Qupperneq 13
aíŒSSlijflöíM
MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER 2005
13
Asmundur ogjónína með málverkið.
Ljósm: Baldur Magnússon.
X"
Asmundur kvaddur
Stjóm Dvalarheimilisins Höfða á
Akranesi bauð nýverið íbúum og
starfsmönnum til samsætis til heið-
urs Asmundi Olafssyni fyrrverandi
framkvæmdastjóra Höfða og Jón-
ínu Ingólfsdóttur konu hans. Sig-
ríður Gróa Kristjánsdóttir, formað-
ur stjórnar Höfða ávarpaði As-
mund og þakkaði honum vel unnin
og farsæl störf í 24 ár. Þá færði hún
honum að gjöf ffá Höfða málverk
af Innsta-Vogi, en fjölskylda As-
mundar átti Innsta-Vog í áratugi.
Þá færði Asmundur Höfða að
gjöf mynd af móður sinni, Ólínu
Asu Þórðardóttur og Svövu Finsen
á unglingsárum en Olína Asa er
elstí íbúi Höfða, tæplega 98 ára
gömul. Guðjón Guðmundsson
ffamkvæmdastjóri Höfða þakkaði
Ásmundi fyrir lipurð við fram-
kvæmdastjóraskiptín og hve góðu
búi hann skilar.
Nokkrir íbúar Höfða tóku tíl
máls og þökkuðu Asmundi góð
kynni. Þau voru Elín Frímanns-
dóttir, Eggert B.Sigurðsson, Skúli
Þórðarson og Stefán Bjarnason. Þá
var flutt ávarp frá Valgarði L. Jóns-
syni. Flutt var tónlistaratriði undir
stjórn Patrycju B.S.Mochola tón-
listarkennara, sem starfaði á Höfða
í sumar. Boðið var upp á veitingar
sem Bjarni Þór Olafsson bryti og
hans fólk hafði útbúið af alkunnri
snilld. I þessu kveðjuhófi kom
glöggt ffam sá mikli hlýhugur sem
fólkið á Höfða ber tíl Asmundar
Olafssonar.
MM
Sigfusarhátíð
Halldórssonar í
bígerð á Reykhólum
Mennta- og menningarmála-
nefnd Reykhólahrepps hefur tíl
skoðunar að efna á sumardaginn
fyrsta á næsta ári til „Sigfúsarhá-
tíðar“ en þá verða 10 ár liðin frá
andláti Sigfúsar Halldórssonar
tónskálds. Það var Einar Orn
Thorlacius sveitarstjóri sem lagði
þetta til við nefndina. I flestra
huga tengist Sigfús frekar þéttbýl-
inu við Faxaflóa en Reykhólum en
staðreyndin er sú að á Reykhólum
samdi Sigfús sína þekktustu perlu,
Litlu fluguna og það sem meira er;
ljóðið við það lag var einnig samið
á Reykhólum.
Að sögn Einars Arnar sóttí Sig-
fús nokkuð til Reykhóla og dvaldi
þar oft hjá vini sínum Sigurði Elí-
assyni sem var forstöðumaður til-
raunastöðvarinnar á Reykhólum. I
æviminningum Sigurðar segir frá
því er lagið um fluguna litlu varð
til. Sigfús tók bók úr hillu og féll
þá miði úr henni. Sigfús gerði sig
líklegan tíl þess að lesa það sem á
miðanum stóð en Sigurður bann-
aði honum það. I blóra við bann
Sigurðar las Fúsi á miðann og þar
var kvæðið um litlu fluguna, sem
Sigurður hafði ort. Sigfúsi leist
mjög á kvæðið og vildi gera við
það lag. Sigurður sagði honum
það heimilt með því skilyrði að
honum tækist það á innan við tíu
mínútum. Tónskáldið settist við
píanó Sigurðar og átta mínútum
síðar var lagið sem allir landsmenn
kunna tilbúið.
I íbúðarhúsi Sigurðar er nú rek-
ið gistiheimilið Álftaland og þar er
píanóið góða sem lagið var samið
á. I ljósi þessara staðreynda segir
Einar Orn hugmyndina að hátíð-
inni hafa kviknað. Skipulagning er
þegar hafin og fljótlega kemur í
ljós hvort af hátíðinni verður.
HJ
8 liða úrslit Hópbílakeppninnar
SVcaWo9t'r('or
vs.
Fimmtudaginn
3. nóvember
kl. 19:15 í
íþróttamiðstöðinni
Borgarnesi
AUGLÝSING UM STARFSLEYFISTILLÖGUR
FYRIR OLÍUBIRGÐASTÖÐVAR
OLÍUDREIFINGAR EHF.
í samræmi við 6. gr. í I. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvamir,
auglýsir Umhverfisstofnun starfsleyfistillögur fyrir olíubirgðastöðvar Olíudreifingar ehf.
í Hvalfirði og á Flatey. Tillögumar liggja frammi til kynningar á afgreiðslutíma hjá
viðkomandi bæjarskrifstofum; Hvalfjarðarstrandarhreppur, Hlöðum, 301 Akranesi og
Reykhólahreppur, Álfheimum, 380 Reykhólahreppi, á tímabilinu frá 4. nóvember til 30.
desember 2005.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillögumar skulu hafa borist Umhverfisstofnun
fyrir 30. desember 2005. Einnig má nálgast starfsleyfistillögurnar á heimasíðu
Umhverfisstofnunar, http://www.ust.is
Umhverfisstofnun
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Umh verfisstofnun
\___________________________________________________________________________)
UST
AUGLÝSING UM STARFSLEYFISTILLÖGUR
FYRIR OLÍUBIRGÐASTÖÐ
OLÍUDREIFINGAR EHF.
í samræmi við 6. gr. í I. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvamir,
auglýsir Umhverfisstofnun starfsleyfistillögur fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf.
á eftirtöldum stöðum. Tillögumar liggja frammi til kynningar á afgreiðslutíma í skrifstofum
viðkomandi sveitarfélaga, á tímabilinu frá 2. nóvember til 28. desember 2005.
Stykkishólmur, Ráðhúsinu Hafnargötu 3,340 Stykkishólmi
Grundarfjörður, Grundargötu 30,350 Grundarfjörður
Olafsvík, Snœfellsási 2, 360 Hellissandur
Akranes, Stillholti 16-18,300 Akranesi
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillögumar skulu hafa borist Umhverfisstofnun
fyrir 28. desember 2005. Einnig má nálgast starfsleyfistillögurnar á heimasíðu
Umhverfisstofnunar, http://www.ust.is
Umhverfisstofnun
I U S T Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
\_________________________________________________________________________________)
Ljósmyndasýning
Islandsbanka að Höfða
X X
I tilefni af Vökudögum þá býður Islandsbanki upp á Ijósmyndasýningu
að Höfða, dvalarheimili aldraðra.
Um er að ræða hluta af Hinni árlegu Ijósmyndasýningu
Blaðaljósmyndarafélags Islands MyND ARSINS sem var haldin í
Gerðarsafni fyrr d þessu dri.
Blaðaljósmyndarar spegla samfélagið og atburði líðandi stundar í
myndum sínum. Þær eiga það sammerkt að flytja tíðindi og ef vel tekst
til er enginn miðill áhrifameiri en Ijósmyndin.
Opnunartími 15-18 virkadagaog 13-18 um helgina.
fSLANDSBANKI 1QO%