Skessuhorn - 01.03.2006, Page 7
SS1SSIÍHÖB5
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006
7
Stofmrn
svæðisútvarps á
Vesturlandi ekki að
vænta í bráð
Ekki er að vænta neinna ákvarð-
ana um stofnun svæðisútvarps Rík-
isútvarpsins á Vesturlandi á meðan
rætt er um framtíðarskipan út-
varpsmála og ffumvarp um Ríkisút-
varp. Þetta kom ffam í máli Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra á Alþingi í
svari við fyrirspurn Onnu Kristínar
Gunnarsdóttur þingmanns Sam-
fylkingarinnar. Hún spurði ráð-
herra hvort hafinn væri undirbún-
ingur að stofhun svæðisútvarps á
Vesturlandi. I svari ráðherra kom
ffam að það væri ekki á valdi ráð-
herra að taka ákvarðanir um slíka
stofntm heldur væri það á færi út-
varpsstjóra og útvarpsráðs. Ráð-
herra upplýsti hins vegar að undir-
búningur að slíkri stofnun væri ekki
hafinn hjá Ríkisútvarpinu en málið
hefði hins vegar verið skoðað.
Eins og komið hefur ffam í ffétt-
um Skessuhorns hefur aðalfúndur
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
off á undanfömum árum ályktað
um nauðsyn slíkrar stofnunar.
Nokkrir þingmenn tóku þátt í um-
ræðunni á Alþingi og hvöttu mjög
til stofnunar svæðisútvarpsins.
Höfðu sumir þeirra nokkrar
áhyggjur af því að ný lög um Ríkis-
útvarp myndi þrengja kost svæðis-
stöðvanna en því var menntamála-
ráðherra ósammála.
Af svörum ráðherrans er hins
vegar ljóst að Vestlendingar verða
enn um sinn að bíða sinnar svæðis-
stöðvar.
I þessu samhengi er rétt að taka
það ffam að sú breyting varð um sl.
áramót á þjónustu RUV á Vestur-
landi að Gísli Einarsson, frétta-
maður og fv. ritstjóri Skessuhorns
sem búsettur er í Borgarnesi, er
kominn í fullt starf hjá Ríkisútvarp-
inu við ffétta- og dagskrárgerð fyr-
ir útvarp og sjónvarp. Þó svo ekki
sé þar með um að ræða svæðisút-
varp eins og aðrir landshlutar hafa
má segja að þjónusta Ríkisútvarps-
ins hafi heldur aukist hér í lands-
hlutanum við ráðningu Gísla í fullt
starf. Aður sinnti hann starfi frétta-
manns RUV á Vesturlandi í hluta-
starfi samhhða starfi sínu á Skessu-
homi.
HJ
Auglýsing um la
í 1. áfanga Skógahverfis
Akraneskaupstaður auglýsir eftir umsóknum um
lóðir í 1. áfartga Skógahverfis.
Um er að ræða 61 einbýlishúsalóð, þar af eru 9 lóðir fyrir
hús á tveimur hæðum, 5 parhúsalóðir fyrir hús á einni og
tveimur hæðum og 6 raðhúsalóðir fyrir hús á einni og
tveimur hæðum með samtals 23 ibúðum.
Samtals er um að ræða lóðir fyrir 94 íbúðir,
Lóðimar eru augiýstar með fyrirvara um endanlega
staðfestingu deílískipulags.
Umsóknarfrestur er t.o.m. 15. mars n.k.
Einbýltshúsa-, parhúsa- og raðhúsíóðirnar eru auglýstar
með eftirfarandi skilmálum:
a) Lóðunum verður úthlutað til einstakiinga sem eru 18 éra
og eidri og hafa ekki fengið úthlutað löð á Akranesi eftir 1.
janúar 2003, Umsókn hjðna%ambý!ísfó!ks skal vera
sameigirtleg sbr. e) lið.
b) Par- og raðhúsalóðum verði eingðngu úthiutað til
lögaðiia. Bæjarráð mun úthluía þeim lóðum.
c) Umsækjandi skai leggja fram með lóðarumsökn sinni
skriflega staðfestingu frá iánastofnun um greiðslugetu og
mögulega lánafyrtrgreiðslu vegna fyrirhugaðrar húsbygg-
ingar. Viðmiðunarfjárhæð skal vera kr. 25,0 miiljónir.
d) Við úthlutun lóðanna verður dregið úr hópi umsækjenda
og þeim í útdráttarröð heimilað að velja þá lóð sem laus er.
Þeir sem öðlast valrétt skulu mæta til fundar, fimmtudaginn
6, aprii n.k, kl. 20:00, i bæjarþingsalnum að Stíllholti 16 -
16 þar sem lóðaval fer fram, Þeir sem ekki mssta eða
senda fulltrúa sinn með skriftegt umboð teljast hafa fallið
frá umsókn sinnt.
e) Að öðru telti gilda vinnuregiur um úthlutun byggingalóða
á Akranesi sem samþykktar voru § fundi bæjarráðs
Akraness þ, 27, feb. 2003,
Aætlað er að svæðið verðt byggingarhæft i tveimur
éföngum, Fyrri hlutinn ju.þ.b, 50% lóðanna) verður
byggingarhæfur 1, sept, 2006 og siðari hlutinn 15. okt.
2006,
Umsóknir skulu berast á skrifstofur Akraneskaupstaðar,
Stiliholti 16 - 18, 300 Akranes, ásamt kvittun fyrir
staðfestingargjaidí.
Staðfestingargjald fyrir einbýlis- og parhúsalóð er kr.
18.400,- (pr. ibúð t parhúsi) og kr. 36.800,- fyrir raðhúsalóð.
Byggingarskiimála ásamt uppdréttum af svæðinu er að
finna á heimasiðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is.
Nánari uppiýsingar eru veiitar á skrifstofu tækni-
og umhverfissviðs að Oalbraut 8 í síma 433 1000.
Akraneskaupstaður