Skessuhorn


Skessuhorn - 01.03.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 01.03.2006, Blaðsíða 19
3SESSirH©Bl MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 19 Svar til Guðmundar Þorbjömssonar I 8. tbl. Skessuhoms viðrar ungur Borgfirðingur, Guðmundur Bjöm Þorbjörnsson, skoðanir sínar á skammdegisþunglyndi. Hann veltdr fyrir sér orðinu, sem hann finnur ekki í orðabókinni sinni. Hann furð- ar sig á þessum sjúkdómi og má skilja af skrifum hans að honum finnist þetta ekki vera sjúkdómur í raun og sann heldur landlægur atun- ingjaskapur Islendinga. Því telur hann fyrirbærið vera séríslenskt, sem það er ekki. Orðið og fyrirbær- ið seasonal depression er til og þekkt í ensku. Hann segir síðan orðrétt „mér þykir það alveg merkilegt að fólk geti fundið upp jafii hlægilega afsökun eins og skammdegisþung- lyndi fyrir að minnka sjálfa sig jafii mildð og raun ber vitni.“ Skamm- degisþunglyndi er sjúkdómur, meira að segja mjög alvarlegur sjúkdómur. Margir heyja hetjulega baráttu vetur effir vetur við þennan vágest. Marg- ir gefast upp og deyja í baráttu sinni. Það era staðreyndir. Hann bendir einnig á að fólk í Malí og Uganda hafi trúlega ekki heyrt um þennan sjúkdóm í svengd sinni og lífsbaráttu sinni. Allt í lagi, og gott og vel, við Islendingar höf- um það bara fjandi gott, við sveltum ekki og við (flest að minnsta kosti) getum leyft okkur það sem við vilj- um. En af því að við höfum það svo gott og af því að við eigum svo mik- ið af dým drash höfum við þá ekki rétt á tilfinningum eins og depurð, vonleysi og reiði yfir því að lífið er eklá eins og við ætluðum okkur? Snýst lífið sem sagt um það að eiga fullt af dýra drasli og þá er hamingj- an í höfn? Það er samt rétt og satt að við eig- um að muna efitir okkar minnsta bróður og vissulega mega Islending- ar vera duglegri að láta af hendi rakna til hjálparstarfa í löndum þar sem fólk lætur lífið vegna hungurs og vosbúðar, sjúkdóma og skort á heilsugæslu. Vissulega megum við þakka Drottni fyrir að fá að vera íslending- ar, eins og Guðmundur bendir réttd- lega á og þurfa ekki að heyja baráttu upp á hvem dag til að halda í okkur lífinu. En fyrir margan þunglyndis- sjúklinginn er hver dagur barátta til að halda sér á floti í ólgu h'fsins. Við skulum ekki gera lítið úr þeirra þján- ingu og sálarstríði. Aðstandendtu- þunglyndissjúklinga (skammdegis- þunglyndissjúklinga líka) þurfa oftar en ekki líka að upplifa mikla erfið- leika í tengslum við sjúkdóm ástvin- ar síns. Verum þakklát fyrir það sem við höfúm en gerum ekki lítrið úr þján- ingum annarra hverjar sem þær svo eru. OlöfMaría Brynjarsdóttir. Hófundur er heimavinnandi húsmóðir T^enninn—*: Það er klárlega ekki á mínu hæfi- leikasviði að tala undir rós. Þau við- brögð sem hinn bitri „Skammdegis- þunglyndispistill“ hefur fengið segja glöggt til um það. Eg hefði mátt vita uppá mig sökina, því efdr að ég las pistilinn nokkrum sinnum yfir, sá ég að ég hafði ekki tekið boðskap pistilsins nógu skýrt firam. Það sem fáir virðast þó hafa skilið, er að þessi pistill snérist aldrei um sjúkdóminn þunglyndi. Barnslegur orðaforði minn og vankunnátta mín á sviði háðslegra útskýringa virðist hafa far- ið fyrir brjóstið á ansi mörgum, móður minni meðtalinni. Eg var aldrei að tala um þennan bölvanlega sjúkdóm, enda geri ég mér fyllilega grein fyrir þeim afleiðingum sem hann getur haft á fómarlömb sín. Eg réðst hins vegar af fullum mætti á lífsþreytta Islendinga, sem negla sjálfa sig á krossinn sökum áunnina höfuðverkja. Höfuðverkur þung- lyndissjúklings er raunverulegur, höfuðverkur aumingjans er það ekld. Við höfum búið okkur til áhyggj- ur, við höfúm skapað okkur átyllur fyrir kvarti og kveini, og bölvum há- stöfúm þrátt fyrir allsnægtimar. Það er staðreynd og ég ætla ekkert að af- Elsku Harpa saka þessa fullyrðingu mína. Af og afitur sjátun við lifandi dæmi tun þessa hegðun. Hver kannast ekki föstudagstraffíkina skelfilegu og Visa-reikninginn ógurlega. Eg las t.a.m. dagbók tmgrar stúlku á netinu sem vildi vera „allt annars staðar en á Islandi." Já, er það virkilega? Eg er viss um að enginn vill hafa fæðst al- næmissmitaður eða vera sveltandi í „allri sólinni" í Suður-Affíku. Eg hefði ekki átt að nota orðið skammdegisþunglyndi yfir þessa sorglegu þegna okkar allsnægtar- lands. En það sem ég sagði meinti ég engu að síður. Eini maðurinn sem virtist hafa skiHð það sem ég áttd við var ritstjóri Skessuhoms. Þegar flett er uppá orðinu þunglyndi í orðabókinni eru manni gefúir 2 kostir. Annars vegar er talað um sjúkdóminn, þ.e.a.s. „að vera hald- inn þunglyndi", en hinn kosturinn talar tun lundarfar hins þunglynda, sem einkennist af ókæti, depurð og svartsýni. Það er þetta lundarfar sem ég tel þjaka svo marga, sem þó eru það heppnir að vera lausir við sjúk- dóminn að öllu leyti. Þeir kjósa hins vegar að tileinka sér einhverskonar vonleysi, en gera sér ekki grein fyrir lukku sinni að vera Islendingar, heil- ir á geði og við gott líkamlegt ástand. Eg vorkenni engum sem þarf að vinna í páskafninu eða fékk ekki Play Station í jólagjöf, ég vor- kenni hins vegar fórnarlömbum þunglyndis, sem eru ekki öfunds- verð á neinn hátt. Eg endaði pistil- inn umdeilda á því að þakka Guði fyrir að vera Islendingur því vanda- mál okkar eru smávægileg þegar horft er til stríðshrjáðs og sveltandi fólks víða um heim. Alla þá þunglyndissjúklinga og velunnara mannréttinda sem ég hef sært bið ég afsökunar, en ég afsaka ekki tilurð og raunverulegan boð- skap skrifa minna. Þið verðið bara að gjöra svo vel að afsaka aldur minn og fyrri störf. Guðmundur Bjóm Þorhjómsson Stórtónleikar í Grundarjtrði Sönghópurinn Vormenn Islands hélt tónleika í Grundarjjarðarkirkju sl. sunnudagfyrir fullu húsi. Hópinn skipa engir aðrir en tenór- arnir Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Oskar Pétursson, Ólafur Kjartan Sigurðarson baritón ásamtjónasi Þóri píanókikara. Var söng- tnönnunum tekið með kostum og kynjum og á meðfylgjandi mynd er Björg Agústsdóttir, sveitarstjóri aðfiera þeim bókargjófað tónleikum loknum. MM/Ljósm: Sverrir Karlsson. — w Akraneskaupstaður Deiliskipulag fyrir Nýlendureit kynningarfundur Skipulags- og umhverfisnefnd heldur opinn . kynmngarfund um tillögu að nvju deiliskipulagi I fyrir Nýlendureit á Alcranesi. I Nýlenaureitur er reitur sem afmarkast af I Suðurgötu, Merkurteig, Sóleyiargötu ogVitateig. * Fundurinn verður í bæjarpingsalnum að Stillholti 16 - 18, mánuaaginn 6. mars n.k. og hefst kl. 20:00. Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar | Akraneskaupstaður Atvinna Starfsmann (karl) vantar í 100 % starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar. Starfið felst m.a. í afgreiðslu, gæslu og þrifum í íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar. Unnið er á tvískiptum vöktum. Umsóknareyðublöð fást afhent á bæjarskrifstofunni og þangað skal umsóknum skilað og er umsóknarfrestur til 10. mars. Laun samkvæmt kjarasamningi St.Ak. Upplýsingar gefur Hörður Kári Jóhannesson, rekstrarstjóri íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar. Jón Þorsteinsson ehf. Kalmansvellir 6 • 300 Akranes • sími 4314501 Starfsfólk óskast Óskum eftir að ráða starfsfólk til starfa sem fyrst. Unnið er á tvískiptum vöktum kl. 07:00- 15:00 og kl. 13:00-21:00 ; Einnig vantar starfsfólk á kvöldvakt frá | kl. 17:00 -22:00 í pökkun og starfsmann | í gæðaeftirlit frá kl. 13:00 - 21:00. Allar nánari upplýsingar veittar ^ í síma 431 4501 og 893 4211 ^ Allar almennar bifreiðaviðgerðir. Þjónustaðili fyrir Heklu, Bifreiðar & Landbúnaðarvélar, Suzuki, Ingvar Helgason, Bílabúð Benna, Honda og Peugeot. Vönduð vinna! Alltaf beitt á könnunni Verið velkomin! Dekk og Smur ehf Nesvegi 5, 340 Stykkishólmur Sími 438-1385 og 895-2324 Fax 438 1685

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.