Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 6

Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 Efast um heimildir til breytinga á Höfða og byggðasafininu -formaður bæjarráðs vísar athugasemdum á bug Bæjarfuiltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarstjóm Akraness efast um að rétt sé að málum staðið við gerð skipulagsskrár fyrir Dvalarheimilið Höfða annars vegar og Byggðasafn Akraness og nærsveita hins vegar. Telja þeir nauðsynlegt að stjómir stofhananna fái tækifæri til að fjalla um máhð áður en bæjarstjórn tekur endanlega afstöðu. Samhhða gerð nýrra samstarfs- samninga milli Akraneskaupstaðar og sveitarfélaganna sunnan Skarðs- heiðar náðu fulltrúar sveitarfélag- anna samkomulagi um slápulagsskrá fyrir áðumefhdar stofnanir og komu þær til fyrri tunræðu í bæjarstjóm Akraness á þriðjudaginn. I bókun sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins lögðu ffam á fundinum benm þeir á að hvorki stjóm Dvalarheim- ilisins Höfða né stjóm Byggðasafns- ins á Görðum hafi fengið tækifæri til að fjalla um þær breytingar sem fyr- irhugaðar em á skipulagsskrá stofn- ananna. „Það er sjálfsögð og eðlileg krafa að kjörnar stjórnir þessara stofnana fái tækifæri til að fara yfir hugmyndir að breytingum á skipu- lagsskrám þeirra,“ segir í bókuninni. Þá telja bæjarfulltrúarnir að með nýrri skipulagsskrá um Höfða sé í raun verið að leggja niður sjálfseign- arstofhtmina Höfða og því nauðsyn- legt að stjórn fái tækifæri til að fara yfir málið og koma sínum sjónar- miðum á ffamfæri. „Einrúg er nauð- synlegt að benda á að ekki hefur komið ff am hver era markmið þess- ara formbreytinga á rekstri Dvalar- heimilisins Höfða,“ segir í bókun- inni og einnig að ekki sé ljóst hverj- ar heimildir núverandi sveitarstjóma era til að leggja niður sjálfseignar- stofrumina. Svipað er uppi hvað Byggðasafh Akraness varðar því í bókun sjálf- stæðismannanna segir meðal annars: „I 26. grein reglugerðar fyrir Byggðasafn Akraness og nærsveita, 2. málsgrein, segir: „Breytingar á reglugerð þessari verða eigi gerðar nema til komi samþykki meirihluta stjómar safnsins og staðfesting eign- araðila þess“. Samkvæmt þessu er nauðsynlegt að stjóm byggðasafiis- ins fái tækifæri til að fjalla um þær breytingar sem meirihluti bæjar- stjómar Akraness leggur til í reglu- gerðinni." Ekki ástæða til að bíða Sveinn Kristinsson formaður bæj- arráðs Akraness segir ekkert athuga- vert við tímasemingu samstarfs- samninga á milli Akraneskaupstaðar og fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar. Sveinn segir það lengi hafa legið fyrir að endumýja þyrfd samstarfssamningana í kjölfar sam- einingar sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar. „Bæjarstjóm Akraness samþykkti með níu samhljóða at- kvæðum skipan okkar fulltrúa í við- ræðuhóp sem vann samstarfssamn- ingana. Viðræðuhópurinn náði síðan þessum samningum og það var áht hópsins að best væri að ganga ffá þeim á þessum tímapunkti. Þeir vora síðan kynntir á fundi þann 18. mars og þar komu engar athuga- semdir ffá Sjálfstæðismönnum um að rétt væri að fresta gerð samning- anna. Þeir upplýstu reyndar að þeir hefðu ekki rætt samningana í sínum hópi fyrr en daginn fyrir bæjar- stjómarfundinn. Það segir meira en mörg orð um vinnulag þess flokks. Við getum ómögulega frestað mikil- vægum málum vegna þess eins að einn flokkur í bæjarstjóm hefur ekki unnið heimavinnuna sína,“segir Sveinn. Sem kunnugt er hefur útsvarsá- lagning í sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar verið með því lægsta sem leyfilegt er lögum samkvæmt á sama tíma og Akraneskaupstaður hefur fullnýtt heimildir sínar við innheimtu útsvars. Aðspurður hvort sveitarfélögin séu hugsanlega að greiða of lágt verð fyrir þá þjónustu sem þau sækja til Akraness segir Sveinn svo ekki vera. „Það var afar dapurlegt að hlusta á bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins ræða á bæjar- stjórnarfundinum um nágranna okkar sem einhverja ómaga. Litlar á- lögur á íbúa þar era fyrst og fremst vegna þess að þar er mun lægra þjónustustig en í öðrum sveitarfé- lögum. Eg hef hins vegar enga trú á því að sú verði raunin áfram. Ibúar þar munu gera kröfu um aukna þjónustu og henni fylgja hærri álög- ur.“ Eins og áður sagði hafa bæjarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins efasemdir um að rétt sé að málum staðið við gerð skipulagsskráa fyrir Dvalar- heimilið Höfða annars vegar og Byggðasafh Akraness og nærsveita hins vegar. Sveinn vísar þessu á bug. Hann segir engan vafa leika á því að það séu stofinaðilar einir sem geta breytt fyrirkomulagi stofnananna. Aðspurður hvort ekki hafi verið eðli- legt að stjórnir stofnananna fjölluðu um skipulagsskrámar áður en þær vora lagðar fyrir bæjarstjórn segir Sveinn stjómimar hafa tækifæri til þess að fjalla um málið á milli um- ræðna í bæjarstjóm. Fyrri umræða hafi farið fram en ekki sé ákveðið hvenær sú seinni fari ffam. Því gefist nægur tími til umræða um máhð og stjómimar muni auðveldlega getað komið sínum sjónarmiðum á fram- færi. Kosningalykt? Sveinn segir augljóst að kosningar nálgist og nú ætli minnihluti bæjar- stjórnar Akraness að gera öll mál tortryggileg. Það sé þrátt fyrir allt afar ánægjulegt að minnihlutinn skuli þó hafa upplýst að hann hafi rætt þessi mál fyrir bæjarstjómar- fund. „Það hefur verið erfitt lengi að fylgjast með því hversu illa tmdir- búnir bæjarfulltrúar flokksins hafa komið til bæjarstjómarfunda. Þessi hugarfarsbreyting hefði mátt koma fyrr til dæmis þegar allir þessir Landssamband sumarhúsaeig- enda hyggst fara ffarn á það við rík- isstjórnina að sett verði lög um sumarhúsaeign. Sveinn Geir Sigur- jónsson, varaformaður sambands- ins segir mikla þörf vera á slíkum lögum nú þar sem margir leigu- samningar sumarhúsalóða séu að renna út. Þetta kemur ffam í ffétt á rav.is. Þar segir Sveinn að slík lög sé að finna í löndunum í kringum okkur en ekki hafi reynt á þetta hérlendis fyrr en nú þegar fyrstu samningar era að renna úr gildi. Hann segir að sumarhúsaeigendur séu margir hverjir á eldra æviskeiði og muni þeir eiga erfitt með að Fyrir nokkra hófst vinna við upp- byggingu gámastöðvar í Grundar- firði. Verkið var boðið út og samið við Kjartan Elíasson. Verkið felst í að byggja móttökustöð fyrir sorp, með tilheyrandi aðstöðu til mót- töku, „rörnpum", girðingu og ffá- gangi öðrum. Verklok era áætluð seinnipart júmmánaðar. A meðan þessi uppbygging á sér stað verður móttaka sorps staðsett á annarri lóð við hliðina, Hjallatúni 1. Þar hefur meðal annars verið komið upp söfú- unargámum fyrir femur og dag- blöð. Að auki eiga að koma sams konar gámar við matvömverslun samningar vora kynntir á sínum tíma“ segir Sveinn að lokum. Þrátt fyrir þessar athugasemdir minnihluta bæjarstjórnar vora skipulagsskrárnar teknar til fýrri umræðu og að henni lokinni var samþykkt með níu samhljóða at- kvæðum að vísa þeim til seinni um- ræðu. greiða svo háar lóðaleigur. Fasteignagjöld af sumarhúsum hafa einnig hækkað mjög á undan- förnum árum sem og álagning sveitarfélaganna. Landssamband sumarhúsaeigenda og Samband ís- lenskra sveitarfélaga hafa þegar haldið samráðsfund og hyggja á á- ffamhaldandi samstarf sín á milli. Sumarhúsaeigendur era ekki allir sáttir við þá þjónustu sem sveitarfé- lögin hafa veitt þeim hingað til og segir Sveinn að menn hafi þá helst fundið að slæmu aðgengi að hverf- unum og viðhaldi vega. Þetta sé meðal þess sem þurfi að semja við sveitarfélögin um. MM Samkaupa við Nesveg. Þegar þessir gámar verði komnir upp verður hægðarleikur fyrir Grundfirðinga að losa sig við dag- blöð og femur um leið og farið er í búðina. Björg Agústsdóttir, bæjar- stjóri segir íbúa Grandarijarðar eiga hrós skilið fyrir góð viðbrögð við þessum gámum því þeir hafi verið duglegir að skila af sér blöðum og femum. Skilagjald er nú á femum og hafa sveitarfélögin á Snæfellsnesi í hyggju að semja við íþróttafélög eða sambærilega aðila um að ganga í hús til að safúa femum, gegn gjaldi. HJ Frá Byggðasafhinu að Görðum. HJ Þörf á lögum imi sumarhúsaeign Uppbygging gáma- stöðvar hafin í Grundarfirði PISTILL GISLA Sinueldur Það hefur varla farið fram hjá neinum að í síðustu viku fór sinueldur sem eldur í sinu um Mýrarnar. Það fór að vísu fram hjá mér þar sem ég var staddur á votlendi í öðrum löndum án þess að það komi málinu beint við. Eins og ávallt þegar stórir atburðir gerast þá lifa þeir í umræðunni lögnu eftir að þeir eru um garð gengnir og í raun á það reyndar við um smærri viðburði einnig. Enn- þá svífur líka sviðalyktin yfir mýrarpollum þar vestra og flestir eru sammála að þarna áttu sér stað náttúruhamfarir. Sennilega hefðu fæstir trúað því hversu mikið ógnarafl býr í saklausum sinueldi. Alla- vega hefði mig ekki órað fyr- ir því þegar ég sem barn og unglingur fékk það hlutverk að brenna sinu í mýrum og móum sem þá þótti ágætis búfræði svo vitnað sé til orða ekki ómerkari manns en sjálfs landbúnaðarráðherrans. Mér þótti yfirleitt hið mesta basl að fá eldinn til að standa sína plikt. Það sem einkennir umræð- una eftir að eldarnir eru slökktir er hugleiðingar um hvað hefði hugsanlega mátt fara betur í slökkvistarfmu. Þetta er býsna fýrirferðar- mikil umræða og fjölmiðlar sem drífa hana áfram og sjálf- ur er ég svosem ekki saklaus af því. Vissulega er gott að líta yfir farinn veg og nauð- synlegt til að hægt sé að draga lærdóm af ef slíkar að- stæður koma upp aftur. Gall- inn er hinsvegar sá að allt tal um hvað hefði betur verið gert, hinsvegin eða svona, skyggir stundum á það sem virkilega var gert vel. Það finnst mér eiga við í þessu til- felli. Eg ítreka að ég fýlgdist með úr fjarlægð en ég hef líka í gegnum tíðina fylgst með störfum slökkviliðs- manna í Borgarfirði og á Mýrum, úr mismikilli fjar- lægð, bæði sem Borgfirðing- ur og sem blaðamaður. Eg leyfi mér að fullyrða að heimurinn væri allavega ekki verri ef allir tækju sín störf jafn alvarlega og sinntu þeim af jafn mikilli samviskusemi og slökkviliðsstjórinn í Borg- arnesi. Því svíður mér svolítil þessi umræða yfir sviðinni jörð á Mýrum. Það er erfitt að byggja á reynslunni þegar menn standa frammi fyrir einhverju verkefni í fyrsta skipti. Það segir sig nokkuð sjálft. Af fréttum að dæma og því sem ég hef heyrt frá fólki á vett- vangi þá gerðu menn allt sem hægt var miðað við aðstæður og í raun gott betur en það. Það á jafnt við um slökkvi- liðsmenn, bændur og alla aðra sem að málum komu. Það finnst mér vera það sem upp úr stendur. Það er eðli sjálfskipaðra sérfræðinga að þeir koma aldrei að málum fyrr en eftir á. Þeir vita sumsé miklu frek- ar hvernig hlutirnir hefðu átt að vera frekar en hvernig þeir eiga að vera. Þessvegna er ég ákveðinn í því að ég ætla að verða sérfræðingur þegar ég verð stór. Gísli Einarsson, fjaruerandi.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.