Skessuhorn - 05.04.2006, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006
IM. ..
Veitt í gaddfrosti í upphafi
sjóbirtingsveiðaima
Vorveiðin er hafin í kulda og
trekki víða um land. Veiðin þessa
fyrstu daga var ágæt miðað við að-
stæður. Hér á Vesturlandi byrjaði
veiði í Grímsá, Hítará og Anda-
kflsá.
„Það hefur verið kalt héma við
Grímsá síðan við hóftrni veiðina í
gær,“ sagði Sigurður Om Arnars-
son, er við hittum hann við Laxfoss
á öðru degi sem mátti veiða í
Grímsá núna í vorveiðinni. En slík-
ur veiðiskapur hefur ekki verið
stundaður í Grímsá á þessum tíma
árs um nokkurt skeið. Það var eng-
um ofsögum sagt að það var hrika-
lega kalt við ána en nokkrir hyljir
vora auðir á ánni sem hægt var að
kasta flugunni í.
„Við fundum okkur nokkra hylji
og fengum einn frekar mjóan fisk í
gærdag rétt héma fyrir ofan, en úti-
veran er góð,“ sagði Sigurður, en
félagar hans héldu sig uppí bílun-
um, innan dyra.
„Hérna við Hítará á Mýrum hef-
ur verið skítakuldi en við erum
komnir með 9 fiska og það er allt í
lagi,“ sagði Gunnar Sigurgeirsson
Sigurður Öm Amarsson viðfrosinn Laxfossinn í Grimsá sl. sunnudag.
við ána um helgina. „Það er fiskur
héma en það er kalt svo menn
verða bara að láta sig hafa það. Við
föram ekki út fyrr en um hádegi,
það þýðir ekkert," bætti Gunnar
við.
Við Andakflsá fann fréttaritari
ekki veiðimenn, þrátt fyrir leit um
helgina.
Vestur á Snæfellsnesi mátti byrja
að veiða í Hraunsfirði og Vatna-
svæði Lýsu. GB
Meðal dagskráratriða var keppni um hver giskaði á rétta þyngd kindanna á Hesti. Guðbjartur Gunnarsson hóndi á Hjarðatfrlli sýndi
ótvírœða hœfileika sina í þeim leik og hafði að launum páskaegg.
Fjöbnenni á opnum degi á Hesti
Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri stóð fyrir
opnum degi í kennslu- og
rannsóknafjárhúsunum
að Hesti í Andakíl sl.
laugardag. Fjölmenni
sótti bændur og búalið
heim og kynnti sér rækt-
un og nýjungar í starf-
seminni á Hesti. Þá
kynntu söluaðilar ýmissa
vara og þjónustu sem
tengjast landbúnaði vörur
sínar í króaendum og á
göngum hinna glæsilegu
fiárhúsa á Hestd.
MM
Kindumar á Hesti eru vanar miklum umgangi í húsunum og létu því gesti ekki trufla sig á
nokkum hátt í matartímanum.
Góðan daginn!
Andri Sneer les úr bókinni.
Eldmessa Andra Snæs
Andri Snær Magnason kynnti
nýja bók sína „Draumalandið,
sjálfshjálparbók fyrir hrædda þjóð,“
á Kaffi Bifröst í hádeginu sl.
fimmtudag. Kynningin var eins
konar Eldmessa þar sem hann sagði
ffá rannsóknum sínum á virkjunar-
steftiu hjá Landsvirkjun og álfram-
leiðslu Alcoa sem síðan er notuð til
framleiðslu stríðsgagna. Almenn
ánægja var með þennan fyrirlestur
og efrir hann myndaðist löng röð
eftir að fá höfundinn til að árita
bók sína.
Runólfur Agústsson, rektor skól-
ans var einn af jteim sem keypti
bókina og las. A bloggsíðu sinni
segir Runólfur um Draumalandið:
„Eg er ósammála mjög mörgu sem
ffam kemur í bók Andra Snæs og
mér þykir afstaða hans á ýmsum
sviðum afar grunnhyggin. Samt
sem áður er ég sannfærður um að
hér er á ferðinni besti og beittasti
ádeilutexti sem ffam hefur komið á
íslenskt samfélag síðan Halldór
Laxness skrifaði „Hemaðinn gegn
landinu" árið 1971, svo einfalt er
það. Bókin er einn samfelldur löðr-
ungur á lesandann og í þeim skiln-
ingi ffábær hugvekja í bestu merk-
ingu þess orðs. Draumalandið er
einhver hollasta lesning sem ég hef
lesið til margra ára og ég get ekki
annað en mælt með henni við alla
sem yfir höfuð hafa skoðanir á sínu
samfélagi og þróun þess. Höfund-
urinn hefur hér unnið góða vinnu
og mikla, hann hefur sterkar skoð-
anir sem era og verða umdeildar,
en hann vekur huga manns á þann
hátt sem sjaldgæfur er... Frábær
bók!“ Að endingu gefur svo Run-
ólfur Draumalandinu heilar 5
stjörnur.
ES
Afinælisfagnaður
AA samtakanna á
föstudaginn langa
AA-samtökin á Islandi vora stofn-
uð föstudaginn langa 1954, eða fyr-
ir 52 árum síðan. Síðan hefur þessi
dagur verið hátíðar- og afmæhsdag-
ur samtakanna, alveg sama hvaða
mánaðardag hann ber upp á. AA-
samtökin segja þetta um sig sjálf:
„AA-samtökin, eru félagsskapur
karla og kvenna, sem samhæfa
reynslu sína styrk og vonir, svo að
þau megi leysa sameiginlegt vanda-
mál sitt og séu fær um að hjálpa öðr-
um til að losna frá áfengisbölinu. Til
þess að gerast AA-félagi þarf aðeins
eitt: Löngun til að hætta að drekka."
Inntöku- eða félagsgjöld í sam-
tökin eru engin, en með innbyrðis
samskotum sér félagið sér efnalegan
farborða. AA-samtökin eru sjálfstæð
heild og óháð hvers kyns félagsskap
öðram. Þau halda sig utan við þras
og þrætur og taka ekki afstöðu til
opinberra mála. Höfuðtilgangur
okkar er að vera ódrukkin og að
styðja aðra alkóhólista til hins sama.
I dag eru starfandi um 343 deildir
um allt land og erlendis eru 20 ís-
lenskumælandi deildir. Hver þessara
deilda heldur að minnsta kosti einn
fund í viku og er fundarsókn frá 10-
20 manns og upp í 180 manns á
fundi.
Upplýsingar tun fundi og fundar-
staði er hægt að fá á skrifstofu AA-
samtakanna Tjamargötu 20. 101
Reykjavík. Skrifstofan er opin alla
virka daga milli kl. 11:00 - 12:00 og
13:00- 16:00,eðaí síma 551 2010,
og á aa@aa.is . Einnig hafa AA-
samtökin neyðarsímaþjónustu allan
sólahringinn. Síminn er 895 1050.
Afmælisfundur AA-samtakanna
verður haldinn að venju, föstudag-
inn langa 14. apríl 2006 í Laugar-
dalshöllinni í Reykjavík og hefst
klukkan 20:30. Húsið opnað kl
19:30 og eru allir velkomnir. Þar
tala nokkrir AA-félagar og gestur frá
Al-Anon samtökunum, sem eru
samtök aðstandanda alkóhólista.
Kaffiveitingar verða að fundi lokn-
MM
Fjöldi
safiigesta
þrefaldast
A árinu 2003 komu rúmlega
57 þúsund gestir í minja- og
munasöfn á Vesturlandi. Hefur
gestafjöldi rúmlega þrefaldast
frá árinu 1995. Þetta kemur
fram í svari menntamálaráð-
herra á Alþingi við fyrirspum
Björgvins G. Sigurðssonar um
söfn. I svari ráðherra kemur
fram að nú eru 25 söfn, safhvís-
ar, setur, sýningar og aðrar
stofhanir í safhastarfi á Vestur-
landi. Eins og áður sagði hefur
safngestum farið mjög fjölgandi
á Vesturlandi. Árið 1995 voru
þeir 18.922. Þeim fer síðan
nokkuð hratt fjölgandi og há-
marki náði gestafjöldinn árið
2002 en þá voru þeir 70.490
talsins. Árið 2003 fækkaði þeim
síðan í 57.029. Ráðherra hafði
ekki aðgang að nýrri tölum yfir
aðsókn. HJ