Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 19

Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 19
SSESS'ÍiHÖBH MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 19 Akranes. Ljósm. Mats Wibe Lund Tekist á um samstarfssamninga Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins í bæjarstjóm Akraness lögðu til að gerð samstarfssamninga milli Akraneskaupstaðar og sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar yrði frestað ffam yfir kosningar í vor þannig að nýjar sveitarstjórnir kæmu að gerð þeirra. Eins og fram kom í frétt Skessu- homs fyrir skömmu hafa Akranes- kaupstaður og sveitarfélögin sunn- an Skarðsheiðar náð samkomulagi um samstarfssamninga um ýmsa þætti í rekstri sveitarfélaganna. Sem kunnugt er munu fjögur sveitarfé- lög sunnan Skarðsheiðar sameinast í eitt í vor. Samstarfssamningar þessir komu til umræðu og af- greiðslu á fundi bæjarstjórnar Akra- ness á þriðjudaginn. Gunnar Sigurðsson oddviti Sjálf- stæðisflokks lagði ffam á fundinum svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjóm Akraness samþykkir að ffamlengja óbreytta samninga þá sem Akranes- kaupstaður er með við nágranna- sveitarfélögin sunnan Skarðsheiðar til 1. ágúst n.k. og felur bæjarstjóra ffamkvæmd þess verks“. I greinargerð með tillögunni seg- ir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins telji eðlilegt að ný bæjar- stjórn á Akranesi og ný sveitar- stjórn sameinaðra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar fjalli um þessa samninga og samþykki eða hafhi þeim. Meðal þeirra samninga sem um ræðir er samstarfssamningur um brunavarnir. Til þess að þau mál verði ekki í uppnámi lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að núverandi samningur yrði framlengdur til 1. ágúst. Tillagan var felld með fjómm at- kvæðum gegn fimm og að því loknu vom samstarfssamningarnir sam- þykktir með fimm atkvæðum gegn fjómm. HJ 7^enninn—í: Um eldana á Mýrum vestur og lærdám sem af þeim má draga Endurskoða þarf allan viðbúnað stjórnvalda gagnvart mögulegum sinubmna, kjarr og skógareldum. Hinir miklu sinueldar vestur á Mýmm í Hraunhreppi í síðustu viku era taldir einir þeir mestu sem skráðar heimildir era til um. Við fylgdumst með í fréttum lýsingu af útbreiðslu og ferli eldisins sem svo sannarlega breiddist út eins og „eldur í sinu.“ A ferð minni um svæðið sl. föstudag sá ég á vettvangi dugnað og hetjulega baráttu bænda og annarra heimamanna, slökkvi- liðs úr Borgarfjarðarhéraði, Akra- nesi og víðar af Vesturlandi auk liðssveitar úr Reykjavík. Haugsugur bænda skiptu miklu máli í slagnum við eldinn. Slökkvistjórixm í Borg- arnesi stýrði aðgerðum og allir lögðu sig ffam sem þeir máttu. Þá var komið upp eins konar stjórn- stöð í félagsheimilinu Lyngbrekku. Ljóst var að mikinn mannskap og búnað þurftí tíl að hefta útbreiðslu eldanna og slökkva þá og einnig til að vakta svæðið meðan hættuástand varði sem skipti sólarhringum. Almannavamir og náttúruhamfarir Þessir sinueldar áttu mun meira sammerkt með náttúrahamföram en afmörkuðum sinueldum. Það er einnig ljóst að viðlíka brunar geta komið upp víða um land. Sina er í landinu mun meiri nú en áður og kjarr og skógar hafa vaxið upp í kjölfar breyttra búskaparhátta. Þá hefur á stórum svæðum risið þétt og víðfem sumarhúsabyggð univafin miklum gróðri, kjarr og skógi. I vetrar- og vorþurrkum er þarna mikill eldsmatur. Brýnt er að gerð sé úttekt á viðbúnaði á þessum svæðum, möguleiki á vatni og öðr- um aðstæðum til slökkvistarfs. En ekki er hvað síst miklivægt að skipuleggja forvarnir og samræmda aðgerðaáætlun að grípa til ef eldur brýst út. I lögum um almannvarnir nr. 92, er kveðið á um ábyrgð og skyldur stjórnvalda þegar meiriháttar vá eða hamfarir steðja að. A landsvísu starfar almannvarnaráð en í ein- stökum sveitarfélögum eða héruð- um starfa alamanvarnarnefndir. Hlutverk almannvarnanefnda er að „skipuleggja og annast björgunar og hjálparstörf vegna hættu á tjóni sem skapast hefur vegna hernaðar- átaka, náttúrhamfara eða af annarri vá.“ Þær skulu gera áætlanir um skipulag almannavarna í samráði við ríkislögreglustjóra og almann- varnaráð. Þeim er þannig falin framkvæmd ráðstafanna innan sinna umdæma. „Lögreglustjórar fara með stjórn almannavarna hver í sínu umdæmi og skulu þeir starfa með almannavarnanefndum sem sveitarstjórnir skipa.“ Umfang sinueldanna voru „náttúruhamfar- ir“ og ógnuðu lífríki og eigum manna á stóru svæði. Viðbrögð áttu að lúta lögum um almannavarnir. Drögum lærdóm af eldunum Nú skiptír máli að draga af þess- um eldum lærdóm ekki aðeins í Borgarbyggð heldur um allt land. I utandagskrár umræðu á Alþingi sl. mánudag lagði ég til að skipaður yrði nú þegar starfshópur á vegum forsætisráðherra sem færi yfir og samhæfði áætlanir um varnir og að- gerðir við stóreldum á opnum svæðum. Að því starfi kæmi dóms- málaráðuneyti sem fer með málefni almannavarna og lögreglu, um- hverfisráðuneyti sem fer með skipulagsmál og brunavarnir, land- búnaðarráðuneyti sem fer með gróður og landnýtingu og Samband sveitarfélaga sem eðlilega er stórað- ili málsins. Þá er mikilvægt að end- urskoða „lögin um sinubruna og meðferð elds á víðavangi nr.61,“ með það fyrir augum að takmarka mjög heimildir tíl sinubruna. Eld- arnir á Mýrum eru þó líklegast af völdum slyss vegfaranda. Rannsóknir og eftirlit lífríkisins Þá þarf nú þegar að vinna áætlim um rannsóknir og eftirlit með áhrifum eldanna á gróður og dýra- líf á brunasvæðinu svo og á beit og heilsufar búfjár. Til þessa þarf nú þegar að verja nægjanlegu fjár- magni og eðlilegt er að fela Land- búnaðarháskólanum á Hvanneyri yfiramsjón með því starfi í samráði við Náttúrfræðistofnun og aðra sem lagt getí þar lið. Jón Bjamason, þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi. 1 Akraneskaupstaður Laust starf hjá Akraneskaupstað Akraneskaupstaður auglýsir eftir garðyrkjustjóra til starfa á tækni- og umhverfissviði. Um er að ræða fullt starf. í starfinu felst m.a. umsjón með viðhaldi og hirðingu opinna svæða innan sveitarfélagsins, umsjón með uppbyggingu og hirðingu skógræktarsvæða og ráðgjöf við stjórnendur vinnuskóla. Laun samkvæmt kjarasamningi milli STAK og Akraneskaupstaðar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 19. arpíl n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs. Sviðsstjórí tækni- og umhverfissviðs Húsnæði - Gisting Einstaklingsherbergi, eitt eða fleiri, jafnvel íbúð óskast til leigu í Borgarnesi eða næsta nágrenni fyrir starfsmenn fyrirtækisins sem vinnan að smíðaverkefnum í Borgarnesi. Hús og Hönnun ehf, Þorsteinn sími 822 4200 Mjólkurbilstjóri MS Reykjavík, óskar eftir að ráða mjólkurbílstjóra tiL söfnunar og flutnings mjóLkur frá mjólkurframLeiðendum á VesturLandi til Reykjavíkur. Um er að ræða framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki. Æskileg búseta er í Borgarnesi eða nágrenni. Nánari uppLýsingar veitir PáLL Svavarsson að BitruháLsi 1 Reykjavík eða í síma 569-2200. Hægt er að senda umsóknir á netfangið starfsmannasvid@ms.is eða fá sent umsóknareyðublað.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.