Skessuhorn - 26.04.2006, Qupperneq 13
aSESSgiHMWBra
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006
13
r
Báturinn hefur komið víða við og undir ýmsum nöfnum. Beggi skipstjóri með merki sesn
í hátnum er og minnir ájý?ra nafn skipsins.
disksveiðunum. Fundist hafa nokk-
ur álideg veiðisvæði en um þessar
mundir eru veiðamar stopp á með-
an unnið er að markaðsmálum.
„Það er erfitt fyrir fyrirtæki að byrja
veiðar á þessum konupungum. Fyr-
irtækið er að brasa í vinnslunni,
veiðimum og að baksa við að selja
þetta bka,“ segir Beggi.
Tíu tonn af ýmsu
Skipstjórinn þeymr skipslúðurinn
til marks um að við séum komnir.
Og það drynur í bátnum. „Það verð-
ur að vekja Kolbeinseyjarhvalinn,“
segir Beggi skælbrosandi. Þar á
hann við Grímseyinginn Ama Má
sem kemur fljótiega upp og skilur
auðvitað ekkert hversvegna það
liggur svona vel á skipstjóranum.
Plógurinn fer í sjóinn og rannsókn-
in heldur áffam. Aflinn er 300 kg,
meiri skel en í morgun. Við tökum
nokkur tog á þessu svæði og aflinn
er misjafii, frá þetta 100 - 700 kg en
hvergi mikil skel. Síðan er kippt og
farið austur með Bjarneyjum og
norður fyrir. Þar era tog á víð og
dreif sem efrir er að taka.
Klukkan er langt gengin í níu
þegar síðasta togið klárast. Veður-
bh'ðan hefur verið með einmunum í
allan dag en nú tmdir kvöld byrjaði
aðeins að kula. „Við erum alveg
passlega í þessu,“ segir skipstjórinn.
„Það er byrjað að gjóla, blása sig að-
eins upp. Það verður kominn kaldi
þegar við skríðum í land og ekkert
veður um helgina." Fiskifræðingur-
inn dæsir og lýst ekki á blikuna.
Lætur í það slrina að hann hafi nóg
annað að gera en að bíða eftir veðri
fyrir síðasta dag rannsóknarinnar.
Afli dagsins er ekki mikill, einn tog-
arakassi fylltur efrir hvert tog, 23
kassar. Ef heildaraflinn væri lagður
saman væri hann rúm 10 tonn en
ómögulegt er að segja til um hve
stór hluti þess er skelfiskur.
Lúðuriim þeyttur
Það verðm- spennandi að sjá hvað
kemur út úr þessari rannsókn, hvort
nýliðun sé góð og hvort og þá
hvenær verði hægt að hefja veiðar á
hörpudiski að nýju. Starfsmenn
Hafrannsóknarstofnunar eru
bundnir þagnareiði um niðurstöður
rannsókna sem þessarar þar til árleg
ástandsskýrsla Hafró liggur fyrir.
Engin skýr svör liggja því fyrir í
þeim efnum.
Heimstímið sóttist ágætlega og
skipstjórinn hafði kollgátuna með
veðrið. Það var kominn golukaldi og
slydda þegar báturirm lagðist að
bryggju á ellefta tímanum. Þegar við
komum í höfh var Gullhólminn að
leggja af stað í línuróður. Einhverra
hluta vegna þeytti Valli skipstjóri
lúðurinn. Kannski til að heilsa ís-
lenska sumrinu þrátt fyrir slyddu og
rok.
JTA
Brotíð á eignarrétti
landeigandans á Skipanesi
Nemar á fyrsta ári í viðskiptalög-
ffæði við Viðskiptaháskólann á Bif-
röst hafa nýlokið skýrslu sem hluta
af svokölluðu misserisverkefni sem
nemendur skólans vinna í lok hvers
misseris. Viðfangsefhi skýrslunnar
var að kanna eignarrétt landeigand-
ans á Skipanesi í Leirár- og Mela-
hreppi, þegar Orkuveita Reykjavík-
ur kemur sem þriðji aðili og leggur
ljósleiðara um vegstæði Vegagerð-
arinnar á landi hans. I skýrslunni
segir m.a: „Landeigandinn á Skipa-
nesi telur að Vegagerðinni sé ekki
heimilt að ráðstafa landi sem hún
hefur fengið veghald ytiir til annarra
nota en vegagerðar, nema með
samkomulagi við sig.“ Landaeig-
andi hafði ekki búist við þessum
kvöðum þegar hann samþykkti
vegagerð á landinu á sínum tíma og
telur því að forsendur þess samn-
ings, sem gerður var fyrir um 70
ámm þegar upphaflegi vegurinn
var lagður, séu brostnar og því sé
tilefhi til ógildingar.
Við gerð skýrslunnar litu höf-
undar á íslenskt réttarfar og var
eignarréttarákvæði Stjórnarskrár
Islands haft til hliðsjónar. I 72 gr.
stjskr. segir að eignarrétturinn sé
friðhelgur með ákveðnum undan-
tekningum sem era; að almanna-
þörf krefji, lagaheimild þurfi til og
að fullar bætur komi fyrir. Al-
mannaþörf er grandvallaratriði til
að hægt sé að skylda eiganda að láta
af hendi eign sína og samkvæmt
gögnum málsins telst það skilyrði
ekki vera fyrir hendi í máli landeig-
andans á Skipanesi, þar sem annar
ljósleiðarastrengur sé þar fyrir.
Stjórnarskrá Islands er æðsta rétt-
arheimild Islands og ákvæði hennar
eru æðri almennum lögum, t.d
vegalögum.
Því benda niðurstöður skýrsl-
unnar til þess að Vegagerðin hafi
ekki verið heimilt að ráðstafa landi
í veghelgunarsvæði sínu til fjar-
skiptafyrirtækja og hefur hér aug-
ljóslega verið brotið á eignarrétti
landeigandans á Skipanesi, eins og
segir í skýrslunni. KOO
Akraneskaupstaður
Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi
Tillaga að deiliskipulagi
Bókasafnsreits
í Stofnanareit á Akranesi
1
Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skipuiags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir
athugasemdum vio tillögu að breytingu a aeiIiskipulagi á Bókasafnsreit sem er nluti af
svonefndum Stofnanareit á Akranesi.
Reiturinn sem deiIiskipulagsbreytingin nær til afmarkast af Heiðarbraut til norðvesturs,
Háholti til norðausturs, Kirkjubraut til suðausturs og til suðvesturs af botnlangagötu út frá
Heiðarbraut sem liggur sunnan við lóð nr. 37 við Kirkjubraut og lóð nr. 38A við Heiðarbraut.
Tillagan byggir m.a. á að gert er ráð fyrir að sameina lóðir nr. 39 við Kirkjubraut og nr. 40
við Heiðarbraut og þar erlagt til að rifa einnar hæðar byggingu sem nú er á lóðinni nr. 39
við Kirkjubraut. A lóðinni er gert ráð fyrir að reisa 2-4 næða íbúðarbyggingu fyrir eldri
borgara. Gert er ráð fyrir allt að 26 íbúðum. Auk þess er lagt til að gera 4-8 íbúðir í
núverandi bókasafnsbyggingu. Gert er ráð fyrir því að tengja nýbyggingu og núverandi
bókasafnsbyggingu þannig að íbúar geti gengið milli bygginga undir þaki. Á sameiginlegri
lóð er því gert ráð fyrir allt að 34 íbúðum.
Undir nýbyggingunni er hálfniðurgrafinn bílageymslukjallari fyrir allt að 34 bíla. Innakstur
í bílageymsíukjallara er frá Heiðarbraut.
Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að
Dalbraut 8, Akranesi, fra 24. apríl 2006 til og með 22. maí 2006.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til5. iúní 2006 og skulu þær berast
á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stilíholti 16-18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Akranesi 12. apríl 2006
Þorvaldur Vestmann
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
Tónlistarheimsokn frá Seltjarnarnesi laugardaginn 29. april
Selkórinn
ásamt hljómsveit
✓
i
Grundarfjarðarkirkju kl
og Reyholti kl. 21
kórinn flytur m.a. lög úr
My Fair Lady
W e s t S i d e S t o r y
ásamt sígildum popplögum
og Vinartónlist
Stjórnandi er Jón Karl Einarsson
Kjartan Valdimarsson píanó
Hjörleifur Valsson fiðla
Gunnar Hrafnsson bassi
Kjartan Guðnason slagverk.
17
kórv>