Skessuhorn - 26.04.2006, Side 19
j>U3iinu>j
MIÐVTKUDAGUR 26. APRIL 2006
19
Vélfákamir viðraðir fyrsta sumardag
Líkt og farfuglarnir birtast á vor-
in fer að kræla á vélhjólamönnum á
fákum sínum þegar sól tekur að
hækka á loffi og hætta á hálku verð-
ur hverfandi. A sumardaginn fyrsta
hittust um 110 manns á mótorhjól-
um á Akranesi og var „áð“ á gatna-
mótunum við Akraneskirkju en
veitingar voru í boði á Café Mörk.
Þarna voru komnir saman vélhjóla-
menn úr Keflavík, af höfuðborgar-
svæðinu, úr Borgarnesi auk heima-
manna. Glatt var á hjalla meðal
fólksins og fengu margir viðeigandi
og tvíræðir brandarar að fjúka, líkt
og oft áður þegar þessi hressi hóp-
ur hittist.
MM
Hluti af konunum á ömámskeiái á Snœfellsnesi. Frá vinstri: Þóra Krístín í Hrauns-
múla, Aslaug t Mýrdal, Hjalta í Dalsmynni, Katharina á Hofsstöðum, Hrefha á Vega-
mótum og Aslaug á Lágafelli.
Konur á ömámskeiði
_ , , r , , , ., , „ . ,,, Kirkjan speglast í stífbónuðu króminu á
Brandarmn sem pamafauk varþvt miður ekki ttí adfœra a prent. Borgnesingar a lettu , ^
nótunum á kirkjuhekknum við Akraneskirkju.
Núna fyrir páska lauk fyrsta ör-
námskeiði í landbúnaði en alls tóku
25 konur af Vesturlandi þátt í því.
Þetta var 6 vikna námskeið og var
meðal annars farið í jarðrækt, naut-
griparækt, sauðfjárrækt, hlunnindi,
ferðaþjónustu og fl. Þátttakendum
var skipt í hópa og lykilkonur
fengnar til að skipuleggja fund einu
sinni í viku þar sem var farið í
gegnum spurningar úr námsefni
vikunnar. Einnig var hægt að fá
ráðunauta eða bændur til að segja
frá því sem þeir væru að jgera. Það
var Landbúnaðarháskóli Islands og
Lifandi landbúnaður sem stóð fyrir
námskeiðinu og fór það fram í
gegnum fjamámskerfi Landbúnað-
arháskóla Islands.
ÞSK
Mikið lethir og glansandi króm.
Bjami flytur hér eitt laga sinna.
Ljósm: AHB
Bjami með útgáfuteiti
Bjarni Guðmundsson, prófessor
á Hvanneyri kynnti nýútkominn
geisladisk sinn í fjölmennu sam-
kvæmi á veitingastaðnum Tíman-
um og vatninu í Fossatúni að kvöldi
sumardagsins fyrsta. Diskurinn
nefinist „Að sumarlagi“ og geymir
lög í léttari kantinum við ljóð sem
eiga það sammerkt að fjalla um
sumar og sól, sveit og bústörf.
Flest em ljóðin á disknum eftir ön-
firska skáldbóndann Guðmund
Inga Kristjánsson frá Kirkjubóli í
Bjarnardal, ein tíu talsins, en einnig
er að finna ljóð effir Guðmund
Böðvarsson á Kirkjubóli í Hvítár-
síðu, Jóhannes úr Kötlum, Trausta
Eyjólfsson á Hvanneyri auk eins
ffumsamins ljóðs. Bjarni flytur flest
lögin sjálfur en Þórunn Pétursdótt-
ir syngur tvö laganna. Vilhjálmur
Guðjónsson útsetti öll lögin á disk-
inum ásamt höfundi og annaðist
hljóðritun og mest af hljóðfæra-
leiknum auk Bjarna og fleiri.
Diskurinn er fyrst og fremst til
sölu hjá höfundinum, að Túngötu 5
á Hvanneyri þar sem síminn er 437
0068 og netfangið
laekjartun@vesturland.is MM
Jóhannes Haukur slökkviliðsstjóri, Ragnar Ólafsson ábyrgur tbúi og Sigurður Jökulsson Lionsmaður.
Yfirfara slökkvitækin
Rekstur Bíóhallarinnar
lagður niður
sem stofiiunar
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt tillögu bæjarritara um að
leggja niður rekstur Bíóhallarinnar
sem bæjarstofnunar og færa hús-
eignina undir Eignasjóð bæjarins. I
bréfi sem Jón Pálmi Pálsson bæjar-
ritari sendi bæjarráði kemur fram
að undanfarin ár hafi Bíóhöllin ver-
ið rekin með talsverðum halla og í
raun verið fjámögnuð með ffarn-
lögum úr bæjarsjóði. Nú hafi rekst-
urinn hins vegar verið leigður út og
því ekki um neinn rekstur að ræða
annað en umsýsla eignarinnar.
„Við þessar aðstæður telur und-
irritaður rétt að leggja þessa stofn-
un niður í þeirri mynd sem hún
hefur verið rekin undanfarin ár og
færa eignirnar undir Eignasjóð og
þær skuldbindingar sem á henni
hvíla verði yfirteknar af aðalsjóði,“
segir orðrétt í bréfi bæjarritara.
Þessi breyting mun gilda frá síð-
ustu áramótum. HJ
Veltu bíl í Hvammssveitinni
Lionsklúbbur Búðardals, í sam-
vinnu við slökkviliðið á staðnum
bauð nýlega upp á þá þjónustu að
hlaða og yfirfara slökkvitæki fyrir
íbúa Dalasýslu. Gátu menn einnig
pantað sér eldvarnarbúnað við
þetta tækifæri. Fín þjónusta og
bráðnauðsynleg.
HA
Eins ogfarfuglamir, vorboðar okkar, eru ferðamenn mættir til landsins og voru fiereysk
hjón svo óheppin að velta bíl sínum nokkrar veltur við bæinn Hofakur t Hvammsveit ný-
lega. Voru þau flutt á heilsugæslustöðina til rannsóknar. HA