Skessuhorn - 26.04.2006, Side 22
22
MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 2006
£k£ðíiítlitilú&æ!
Upplifðu allt á Vesturlandi um Hvítasunnuhelgina
Alls starfa 16 fyrirtæki eða sam-
starfsaðilar í ferðaþjónustu víðsveg-
ar af Vesturlandi saman undir
merkjum >fAU Senses Awoken," eða
Upplifðu allt á Vesturlandi. Frá
þessu samstarfi hefur verið greint
áður í Skessuhorni. Markmið sam-
starfs þessara ferðaþjónustuaðila er
m.a. að kynna Vesturland innan
lands sem utan sem áhugavert svæði
þar sem hægt er að upplifa allt það
besta í íslenskri ferðaþjónustu; gott
að borða, fallega náttúru, skemmti-
legt mannlíf, glæsilega afþreyingu
og ffábæra gistingu. Með öðrum
orðum eitthvað fyrir alla aldurs-
hópa á öllu verði. Þessir aðilar í
ferðaþjónustu á Vesturlandi leggja
metnað sinn í að bjóða gestum og
gangandi að eiga skemmtilega daga
og upplifa eitthvað nýtt í landshlut-
anum.
Um Hvítasunnuna verða „Upp-
lifðu allt“ dagar á Vesturlandi.
Bjóða þessi fyrirtæki upp á ýmsar
uppákomur, svo sem Rómantískir
dúettar og dekurdagar að Hótel
Glymi, sagnamenn í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi, fjölskyldudag-
skrá með víkingasniði á Eiríksstöð-
um, Gönguferðir og Tónmilda Is-
land í Fossatúni, tóvinna í Ullarsel-
inu, sögutengd gönguferð um
Hellnar með viðkomu í orkulínum
og álfabyggðum og saga ensku hús-
anna verður kynnt. I Olafsvík verð-
Eiiur Om Eiðsson, hótelstjóri í Grundarfirði er hér aó gera básinn tilbúinn fyrir sýn-
inguna. Ljósnt: Páll Pétursson.
Um liöna helgi tóku All Senses félagar þátt í stórsýningunni Sumarið 2006. Hér er framkvœmdastjóri þeirra, Þórdi's Arthúrsdóttir mei
einn kubbinn úr risastóru púsluspili sem þakti botn bássins, en púshispil þetta vakti mikla athygli gesta sem og bás Vesturlands í heild
sinni.
ur harmonikkuspil og gönguferð og
Egilssaga í tónum í Reykholti.
Ymsar siglingar með Sæferðum og
sjávarréttir i sérflokki á Hótel
Framnesi. South River Band á Hót-
el Hamri og heimagerður Erps-
staðaostur í boði Að Borgum. Golf-
vellirnir á Akranesi, Borgarnesi og í
Grundarfirði verða með tilboð og
ótal margt fleira verður í boði.
Fyrirtækin sem um ræðir eru;
Hótel Glymur í Hvalfirði, Ferða-
þjónustan Hvanneyri, Fossatún við
Grímsá, Snorrastofa í Reykholti,
Að Borgum í Borgarfirði, Eiríks-
staðir í Haukadal, Sæferðir í Stykk-
ishólmi, Hótel Framnes og Bárar-
völlur í Grundarfirði, Hótel Olafs-
vík og H-Hús í Ólafsvík, Hótel
Hellnar, Ensku húsin við Langá,
Landnámssetrið og Upplýsinga-
miðstöðin (Ferðamálasamtök Vest-
urlands) í Borgarnesi, Hótel Hamar
og Hamarsvöllur við Borgarnes og
Garðavöllur á Akranesi.
MM
Ljósm: Páll Pétursson.
Einkennismerki AU Senses hópsins.
Myndin er ekki frá fundinum, en á henni er Klóifrá Daðastöðum.
Aðalfundur
smalahundadeildar
Aðalfundur smalahundadeildar
Snæfells og Hnappadalssýslu var
haldinn að Breiðabliki 18. apríl sl.
Farið var yfir starfið á síðastliðnu
ári sem var þó nokkuð. Starfið
framundan hjá deildinni er að
halda eitt baukakvöld þar sem
verður hist og horft á hundaspólur
og spjallað yfir ölbauk. Síðan er
áætlað að hittast einu sinni í mán-
uði í sumar til að taka rennsli í
braut. Þá er fyrirhugað að halda
eitt námskeið og smalahunda-
keppnin verður haldin á fyrsta
vetradag. A svæði deilarinnar hafa
verið þrjú hólf með fé í yfir sumar-
ið þar sem félagsmenn geta tamið
og þjálfað hunda sína.
Kosið er í stjórn á hverju ári og
hlaut stjórnin rússneska kosningu
til áffamsetu, en í stjórn eru Þóra
Sif Kópsdóttir Ystu-Görðum, Val-
geir Magnússon Grundarfirði og
Gísli Þórðarson Mýrdal. Sjórnin
hvatti félagsmenn til að nýta betur
vef Smalahundafélags Islands
http://sfi.vefurinn.is því það auð-
veldar mjög að koma upplýsingum
til félagsmanna.
ÞSK
Geislamenn
Laugardaginn 15. apríl sl. fór
ffam hið árlega páskamót Hesteig-
endafélagsins Geisla á Hellissandi.
Mótið var haldið á Ragnarsvelli í
Hraunsskarði. Mótið byrjaði klukk-
á páskamóti
an 13 í ágætu veðri og þeir sem
mættu höfðu gaman af. Að sjálf-
sögðu fóru yngstu keppendurnir
ekki tómhentir heim því þeir voru
leystir út með páskaeggjum. GJ
Skeifudagurmn á Mið-Fossum
Skeifudagurinn 2006 var haldinn
sl. laugardag á Mið-Fossum í Anda-
kíl. Nemendur í hrossarækt við
LBHI á Hvanneyri sýndu þar ár-
angur vetrarins í reiðmennsku- og
frumtamningarnámi. I vikunni
áður þreyttu nemendur tvö próf. Sá
nemandi sem best kom út úr þeim
prófum hlaut Morgunblaðsskeifuna
en fyrir henni er áratugahefð. Það
var Þorsteinn Logi Einarsson ffá
Egilsstaðakoti sem að hlaut hana að
þessu sinni.
A Skeifudaginn sjálfan kepptu
nemendur um Gurmarsbikarinn á
þjálfunarhesti sínum sem þau hafa
notað í reiðmennskunáminu. Það
var Maríus Snær Halldórsson ffá
Bjarnastöðum á hryssu sinni, Tíbrá
ffá Bjarnastöðum sem hlaut Gunn-
arsbikarinn, en hann er veittur í
minningu Gunnars Bjarnasonar
fyrrv. hrossaræktarráðunauts og
kennara á Hvanneyri. Þá hlaut
Maríus Snær ásetuverðlaun Félags
tamningarmanna. Eiðfaxabikarinn
kom í hlut Bryndísar Evu Óskars-
dóttur frá Selfossi en hann er veitt-
ur þeim nemenda sem þykir standa
sig best í hirðingu hestsins. Reynir
Aðalsteinsson, tamningameistari og
Oddrún Ýr Sigurðardóttir, reið-
kennari voru aðalkennarar vetrar-
ins en Gunnar Reynisson kom
einnig að kennslunni.
Urslit úr keppni um Gunnars-
bikar:
1. Maríus Snær Halldórsson
2. Þorsteinn Logi Einarsson
3. Hrafnhildur Baldursdóttir
4. Unnur Þorvaldsdóttir
5. Bryndís Eva Oskarsdóttir
I tengslum við Skeifudaginn var
einnig haldin töltkeppnin Skeifu-
töltið, sameiginleg keppni hesta-
mannafélaganna Faxa í Borgarfirði
og Grana á Hvanneyri.
Urslit urðu þessi:
1. Heiða Dís Fjeldsted á Þrumu
frá Skáney
2. Þorsteinn Logi Einarsson á
Veigari frá Egilsstaðakoti
3. Hrafnhildur Guðmundsdóttir á
Mósartfrá Meðalfelli
4. Björg María Þórsdóttir á Mjölni
frá Hesti
5. Gunnar Halldórsson á Kiljan
frá Þverholtum
SO
Bæjarstjórinn
Ágætu bæjarbúar á
Akmesi!
Fréttir síðustu daga um nýjasta
útspil sjálfstæðismanna í kosninga-
baráttunni um völdin í bænum eru
að mínu mati flokknum ekki til
framdráttar og í raun lýsandi fyrir
það sem er að gerast hjá öllum
þessum flokkum sem hafa verið hér
starfandi síðustu áratugina.
Halda þessir blessuðu menn að
það sé lausn á okkar tímum að
skipta út gítarspilara fyrir harmon-
ikkuleikara? Eg verð reyndar að
viðurkenna að Jólasveinn með
harmonikku er meira sannfærandi
enjólasveinn með gítar.
Bæjarstjóra má líkja við fram-
kvæmdastjóra bæjarins og finnst
mér að í það starf þurfi að ráða
mann sem til þess hefur menntun,
starfsreynslu í stjórnun fýrirtækja
og mikinn metnað. Þetta þarf að
vera ungur maður (30-45ára) og
jafhframt þarf hann að hafa með sér
nýja kynslóð af metnaðarfullu fólki
til að takast á við málefni bæjarins.
Það ætti að vera öllum ljóst að
ekki er hægt að kjósa aftur þetta
fólk sem verið hefur við völd hér
síðustu áratugina og skiptir þá engu
hvort um er að ræða stjórn eða
stjórnarandstöðu, því eins og sagt
var í sjónvarpsþætti fýrir skömmu
þá er þetta bara eins og Kiwanis-
klúbbur þar sem allir eru sammála.
Hvað um það, þetta er ekki það
sem bæjarfélag af þessari stærð-
argráðu vantar, það sem þarf að
leggja til í þessum bæ er að ráðið
verði hæft fólk til að reka þetta
stórfyrirtæki sem bærinn okkar er
og enga jólasveina í bæjarstjórastól-
inn.
Það skal tekið ffam að þetta er
mín skoðun og þarf á engan hátt að
endurspegla skoðun meirihluta
bæjarbúa, en hver veit?
Ketill Bjömsson.
Háteigi 16
Akranesi.