Skessuhorn - 26.04.2006, Qupperneq 27
SaESSgiHKMBIM
MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 2006
27
Ötrúleg imirœða
Það er alveg ótrúlegt að fylgjast
með umræðunni og steíinumálum
flokkanna þessa dagana. Allir keppast
við að setja málefni aldraðra númer
1, 2 og 3, en stöldrum nú aðeins við
hér. Hvað er að gerast? Það er eins
og að allir hafi, allt í einu, rétt fyrir
kosningar, uppgötvað að öldruðum
sé að fjölga og að meðalaldur sé alltaf
að hækka og að þessvegna þurfi að
drífa sig að byggja upp húsnæði og
þjónustu fyrir þennan hóp fólks.
Þetta er eitthvað sem ætti að hafa
legið ljóst fyrir síðustu áratugina og
ekki að koma neinum á óvart eða
hvað þá að þurfa að verða eitthvað
slagorð í kosningum. Þetta er þjón-
usta sem á að vera í jöfnum og örugg-
um vexti þar sem langtíma spár um
íbúaþrótm og aldursskiptingu íbúa
bæjarins ættu að liggja fyrir og vera
notaðar til grandvallar. En ef að það
hefiir bragðist hjá bæjaryfirvöldum
að stuðla að þessum jafna vexti í mál-
efinum eldri borgara þá er ekki að
undra að allir leggist á eitt á ögur-
stundu rétt fyrir kosningar við að
reyna að bæta fyrir dugleysi síðustu
ára.
En það er furðulegt á hvaða plan
þessi umræða er komin. Flokkarnir
vilja helst byggja aðstöðu fyrir eldri
borgara allsstaðar annarsstaðar en á
Höfða, þar sem öll uppbygging hefur
verið hingað til, t.d. við Kalmansvík
og eins á lóð bókasafhsins.
Þeir koma með alls kyns furðuleg
rök fyrir því að ekki sé ráðlegt að hafa
þetta á Höfða svæðinu, t.d. þau að
íbúar á grandunum muni aldrei sam-
þykkja að missa útsýnið ef byggt yrði
þar (síðan hvenær hlustar bærinn á
mótmæli ffá íbúum)?
Eftir því sem ég best veit þá á enn
eftir að byggja eina hæð ofaná Höfða
sem gert var ráð fyrir í upphafi og era
allar lagnir og annað tfibúnar fyrir þá
viðbót.
Það er mín skoðun að byggja eigi
áffam upp á svæðinu kringum Höfða
fyrir eldri borgara þar sem nóg land-
rými er fyrir hendi og hægt er að nýta
alla þá þjónustu sem búið er að
byggja upp á svæðinu. Upplagt væri
að byggja þar tvo íbúða tuma með
tengibyggingu á milli þar sem hægt
væri að hafa alla þjónustu við íbúana
ásamt félagstarfi eldri borgara.
Það er alveg ljóst að aðal ástæðan
fyrir því að forráðamenn bæjarins
vilja byggja þetta upp annarsstaðar er
sú að það má ekki taka neitt af æf-
ingavöllum IA Það sést best á nýj-
ustu fféttum af kaupum bæjarins á
nýju húsnæði undir bókasafhið, að
þetta er allt ákveðið og búið að plotta
þetta allt út fyrir löngu síðan. Það
væri gaman að vita hvað samið var
um við Smáratorg þegar samningar
vora gerðir um þessar byggingar við
Stillholt. Þykir mér ótrúlegt að þar
hafi ekki þá þegar legið loforð á
borðinu ffá bænum um að kaupa
þetta stóran hluta af þessari bygg-
ingu.
Og þá má líka spyrja sig hvort
kannski liggi líka fyrir loforð ffá bæn-
um um að Smáratorg byggi upp fyrir
eldri borgara við bókasafnið, kannski
að Smáratorg taki bara gamla bóka-
safhið uppí, en þetta á allt eftir að
koma í ljós.
Það er alveg ljóst að ekki er allt
slétt og fellt í þessum málum ef að
marka má fundargerð bæjarráðs ffá
síðasta fundi þess.
Það væri gaman að heyra ffá for-
ráðamönnum flokkanna hversvegna
svæðið í kringum Höfða er ekki álit-
ið besti kosturinn fyrir áffamhald-
andi uppbyggingu fyrir aldraða.
Hlúum að öldraðum alltaf, en ekki
bara rétt fyrir kosningar.
Ketill Már Bjömsson,
Háteigi 16 Akranesi.
Stefna eða
stejhuleysi?
Flutningur verkefha
frá ríki til sveitarfélaga
I síðasta Skessuhomi varar Finn-
bogi Rögnvaldsson við að sveitarfé-
lög taki við verkefhum frá ríkinu,
nema að það sé tryggt að nægjanlegt
fjármagn fylgi með.
Það er rétt hjá Finnboga að ríkis-
tjómin hefur ekki verið tilbúin til að
láta nauðsynlegt fjármagn fylgja með
þeim verkefnum sem rætt hefur ver-
ið um að sveitarfélögin taki að sér.
Það er líka ljóst að ríkisstjórnin hefur
ekki verið tdlbúin að setja nægjanlegt
fjármagn í velferðarþjónustuna.
Sveitarfélögin verða að móta sér
stefnu og markmið í velferðarmálum.
I því felst m.a. að mótuð sé skýr
stefha um flutning þjónustu ffá rík-
inu til sveitarfélaga. Jafnffamt verða
þau að taka fullan þátt í að setja þjón-
ustunni markmið og stefnu að þeim
markmiðum. Markmið sem verða að
innihalda rétt allra til mannsæmandi
fife.
Enn á ný er komin upp umræða
um að flytja verkefni ffá ríki til sveit-
arfélaga. En hvað er það sem á að
flyta og hvert er markmiðið með því?
Miðað við urnræðuna mættd halda að
við slíkt lagist allt. Svo einfalt er það
ekki. Lítið hefur verið rætt um mark-
miðin og enn minna tnn hvemig eigi
að ná þeim.
Loksins era augu fólks að opnast
fyrir því að aðbúnaður fólks, á dvalar-
og hjúkrunarheimilum fyrir aldraða
er langt í ffá mannsæmandi. Það er
löngu orðið tímabært að endurskipu-
leggja þá þjónustu upp á nýtt og
bæta. Það er líka tímabært að sam-
þætta þá þjónustu betur við aðra fé-
lags- og heilbrigðisþjónustu sem á að
vera eða ætti að vera um land allt.
Með slíkri samþættingu þá er auð-
veldara að þróa leiðir til að mæta bet-
ur þörfum fólks en gert er í dag. Það
er t.d. ekki í lagi að heimahjúkrun hér
á Vesturlandi skuh ekki nema í und-
antekningartilvikum veitt utan dag-
vinnutíma..
Þjónusta verður ekki betri ein-
göngu við það að skipta um rekstrar-
aðila hennar. Það á að vera hægt að
gera þá kröfu til þjónustu á vegum
ríkisins að sú þjónusta sé í alla staði til
fyrirmyndar og það á að vera hægt að
gera sömu kröfu til sveitarfélaganna.
Aðalatriðið er því ekki hver rekur
þjónustuna, heldur hvaða kröfur era
gerðar til hennar og hvernig tekst að
uppfylla þær kröfur. Við erum að tala
um hvert er markmið þjónustunar,
hver stefinan er og hvemig búið er að
þjónustunni þannig að hún hafi
möguleika á að ná þessum markmið-
um. I reynd er stóra spurningin
hvemig fjármunum er forgangsrað-
að. Það er ljóst að t.d. fjármagni í
þjónustu við aldraða á dvalar- og
hjúkrunarheimilum hefur ekki verið
forgangsraðað. Það sama gildir um
stóran hluta af velferðarþjónustunni.
Stefha stjómvalda í einu máli hef-
ur off áhrif á hvort markmið í öðrum
málum náist. Það er ákveðin stefina
og forgagnsröðun fjármuna að t.d.
reisa sendiráð víða um heim, ffekar
en að setja fjármunina í velferðar-
þjónustuna t.d. í þjónustu við aldraða
eða fatlaða. Það er líka stefha að for-
gangsraða fjármagni til velferðar-
þjónustunnar annað en t.d. hingað á
Vesturland.
Bæði ríki og sveitarfélög hafa oft
tekið þá stefhu að það sé mikilvægara
að forgangsraða fjármunum í
ákveðnar ffamkvæmdir en t.d. til að
veita fólki ákveðna þjónustu. I reynd
hefur það sýnt sig að sutnir hafa þá
stefnu að það sé mikilvægara að setja
fjármunina í affeksíþróttir og íþrótta-
mannvirki, en t.d. í þjónustu við aldr-
aða. Þannig má upp telja. Og það er
líka ákveðin pólitísk stefha að opin-
ber þjónusta eigi að vera sem tak-
mörkuðust. Sumir hafa þá stefiiu að
opinber þjónusta skuli vera sem allra
minnst og helst að einkavæða hana.
Þaitnig getur stefha á ýmsum’sviðum
haft áhrif eða stýrt því hvemig þjón-
usta t.d. við aldraða er í reynd.
Orðræða stjómmálanna snýst oft
ffekar um hvemig hlutdrnir líta út í
augum fólks, heldur en það sem
skiptir raunveralega mestu máli.
Umræður um velferðarþjónustu fara
þá oft að snúast um útgöld, en ekki
það sem hún skilar samfélaginu, bæði
í auðguðu manngildi og eins i bein-
um hagnaði.
Markmiðin með velferðarþjónustu
hafa verið að breytast og eiga eftir að
breytast. Þjóðfélagið hefur breyst og
þar með hlutverk fjölskyldunnar. I
dag er krafa aldraðra og fatlaðra að
lifa marmsæmandi lífi. Það er líka
eðlilegur réttur allra fjölskyldna í
landinu að allir njóti virðingar á sín-
um forsendum. Þessi markmið era
ekki viðurkennd í þjónusm við aldr-
aða eins og hún birtist okkur í dag.
Það er engin meining í því að
sveitarfélögin taki yfir þjónusm ffá
rílánu, ef engin markmið hggja fyrir
um hvemig þjónustan eigi að vera.
Það er hins vegar full ástæða til þess
að sveitarfélögin móti sér þá stefnu
að taka yfir velferðarþjónustu ffá rík-
inu. Þannig er hægt að samþætta og
bæta þjónustuna. Sveitarfélögin
verða jafnffamt að móta stefnu í þeim
málum sem leggur áherslu á mann-
sæmandi líf og að fólk njóti fullrar
virðingar. Það á að vera markmið
allrar þjónusm við aldraða og fatlaða
og aðra. Þetta á að vera stefna allra
sveitarfélga og þau verða að gera
kröfur til ríkisins i samræmi við það.
Magnús Þorgrímsson,
jramkvamdastjóri SvÆsskrifstofa
málefna fatlaða á Vesturlandi.
ntíkx! ms- iJizcíKHfi tir ójaagö/'.
LATTU OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
St'mi 437 1930
INGI TRYGGVASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
' BORGARNESI
KLETTAVÍK 1, Borgarnesi
Einbýlishús ásamt bílskúr (nú 3
íbúðir), samtals 273,6 ferm.
Aðalíbúðin er 138,4 ferm. á 2
hæðum. A efri hæð er flísalögð
forstofa. Hol, stofa og 2 herbergi
parketlögð. Eldhús með dúkflísum,
viðarinnrétting. Gestasnyrting. A
neðri hæð er hol parketlagt og eitt
f herbergi dúklagt. Baðherbergi allt flísalagt, viðarinnr. Þvottahús.
| Á neðri hæð er 55 ferm. íbúð. Sér inngangur. Gangur parketlagður.
| Stofa teppalögð. Eldhús dúklagt, eldri viðarinnr. Eitt herbergi
parketlagt. Baðherb. með dúk á gólfi en flísar á veggjum.
Ibúð undir bílskúr 40,1 ferm. Sér inngangur. Forstofa með máluðu
gólfi. Eldhús og stofa samliggjandi og parketlagt. Eldri viðarinnr.
í eldhúsi. Snyrting öll máluð.
Tvöfaldurbílskúr40,l ferm.
Verð: 41.000.000
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Ingi Tryggvason hdl. - löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61,310 Borgarnes - s. 437 1700, 860 2181, fax
437 1017,
netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is
v___________________________Z___________________________J
~-------------------
Atvinna
Vegna góðrar verkefnastöðu vantar 6 manns
sem fyrst við ýmis framleiðslustörf
í verksmiðju Eðalfisks.
Áhugasamir hafið samband í síma
437 1680 eða komið að Sólbakka 4
Eðalfiskur ehf.
Sólbakka 4, 310 Borgarnes
Tel: 437-1680 Fax: 437-1080
Eðalfiskur ehf. er leiðandi fyrirtæki í laxavinnslu á íslandi og stærsti
framleiðandi landsins á reyktum og gröfnum laxi.
HEHURSX0LI
Heiðarskóla
í Leirársveit vantar
kennara
Næsta vetur vantar okkur í Heiðarskóla kennara í eftirtaldar
kennslugreinar: Tónmennt, sérkennslu, tölvuumsjón
og vefumsjón, náttúrufræði, handmennt, smíðar og
heimilisfræði.
Heiðarskóli er rúmlega 100 barna sveitaskóli. ( skólanum fer fram öflugt
starf og leggjum við áherslu á einstaklinginn og þarfir hans. Markmiðið
er að skapa heimilislegt og hlýlegt andrúmsloft og að ölium líði vel. Við
stefnum að því að vinna eftir hugmyndum uppbyggingarstefnunnar næsta
vetur og er sú vinna þegar hafin.
Skólinn tekur þátt i Comeníusarverkefni.
Skólinn er staðsettur rúmlega 50 km frá Reykjavík,
20 km frá Akranesi og 20 km frá Borgarnesi.
Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k.
í Nánari upplýsingar veita
skólastjóri í símum 433 8920 - 862 8920 og
| aðstoðarskólastjóri í símum 433 8922 - 4356858
ivfÁUí l MiX.
‘d-i. .iiiLi'ÁÁOíi