Skessuhorn - 26.04.2006, Side 30
30
MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 2006
ggKSS'ÍlHfÍBM
• • •
Spuming
vikunnar
Hvetju spáirþú um
úrslit komandi sveitar-
stjómarkosninga í
sameinuðu sveitarfé-
lagi í Borgarfirði?
(Nú er bæjarstjóm Borg-
arbyggðar skipiið jjórurn af
B lista, þremur af D lista
og tveimur afL lista).
(Spurt í Borgamesi)
Hrafnhildur Ormsdóttir
Afgreiðslukona
Eg er sáralítið farin að spá í
Jökull Fannar Bjömsson
Vélamaður
Sjálfstæðisflokkur tapar miklu
og Borgarlistinn vinnur sto'rt.
Bjöm Þorbjömsson
Ellilífeyrisþegi
Eg tel þetta verða óbreytt.
Hans Egilsson
Þjónustufulltrúi REMFLÓ
Framsókn nær hreinum meiri-
hluta.
Agúst Haraldsson
Fisksali
Framsókn fier meirihluta.
Mikill metnaður í
sundfólld af Skaganum
Rakel Gunnlaugsdóttir og Örn
Viljar Kjartansson í Sundfélagi IA
fóru með unglingalandsliðinu til
Luxemburg á dögunum en þar
kepptu þau á sterku alþjóðlegu móti
sem haldið var um síðustu helgi.
Rakel synti í úrslitum í sínum
greinum, náði frábærum árangri og
vann til silfurverðlauna í 200 metra
bringusundi og bronsverðlauna í
100 metra bringusundi. Örn stóð
sig einnig vel og synti til úrslita í
100 metra skriðstmdi og varð í 8.
sæti en þess má geta að hann missti
viku af mikilvægum undirbúningi
fyrir mótið vegna veikinda.
Ragnheiður Runólfsdóttir, þjálf-
ari fylgdi þeim út og er að vonum
afar ánægð með þennan ffábæra ár-
angur. „Við erum mjög stolt af
þeim og þau öðluðust mikilvæga
reynslu fyrir það sem koma skal,“
segir Ragnheiður í samtali við
Skessuhom. „Þau stefna bæði á að
ná enn betri árangri í framtíðinni
og það verður spennandi að fylgjast
með þeim,“ segir hún. Þess má geta
að Rakel er einungis 0,3 sekúndum
ffá því að ná tilsettu lágmarki fyrir
Ólympíuleikana en hún stefnir á að
ná því á Evrópumeistaramóti ung-
linga í sumar þar sem Rakel mun
keppa.
KÓÓ
Oskað til-
boða í firatn-
kvæmdir við
nýja „Litlu
biyggju“
Hafnarstjórn Gmndarfjarðar
hefur óskað eftir tilboðum í
byggingu stálþilsbryggju og
grjótvarnar á Grundarfirði.
Kemur bryggjan í stað bryggju
sem í daglegu tali er nefnd
„Litla bryggja". Sú nýja verður
seint talin lítil því við gerð
hennar þarf að sprengja 150
metra langan skurð og koma
þarf fyrir um 15 þúsund
rúmmetrum af fyllingarefni.
Einnig er uppsetning stálþils og
steypa á um 194 metra löngum
kanti ásamt pollum, stigum og
þybbum. Verkinu skal lokið fyr-
ir 1. desember.
HJ
A þessari mynd er hluti frækins sundfólks afAkranesi. Hér eruþau á Langasandi og höfðuþá nýlokið Faxaflóasundi ífyrra, en það er
þreytt til aí safna áheitum ogfjármagna staif Sundfélagsins.
Ný pósthús á Akranesi, í Borgamesi
og í Stykldshólmi
. •»%' ' -*»**?*» ' _ ‘ti
. - . ; ' <•« ■* v" jgj
Í 3131 «31 m J,- aaaa sax jj. 1 V ‘ t4*\**a£tltr** ■ :b • 1 -V ?% 4 - _• V
Tölvugerð mynd afeinu þessara nýju pósthúsa.
í tilkynningu sem íslandspóstur
sendi frá sér nýlega kemur ffam að
fyrirtækið mun á næstu þremur
áram ráðast í byggingu nýrra póst-
húsa á 10 stöðum utan höfuðborg-
arsvæðisins og einnig verður ráðist í
gagngerar endurbætur á pósthúsum
á fjórum stöðum til viðbótar.
Skessuhorn hefur áður greint frá
fyrirhuguðum framkvæmdum hér á
Vesturlandi.
Staðirnir, sem til stendur að reisa
ný pósthús á era Akranes, Borgar-
nes og Stykkishólmur hér á Vestur-
landi. Auk þess era ný hús á teikni-
borðinu á Sauðárkróki, Húsavík,
Reyðarfirði, Höfn, Hvolsvelli, Sel-
fossi og Vestmannaeyjum. Endur-
bætur verða gerðar á pósthúsum á
Patreksfirði, Blönduósi, Egilsstöð-
um og í Reykjanesbæ.
I tilkynningu frá Islandspósti
segir, að bygging pósthúsanna og
þær endurbætur, sem ráðist verði í,
sé hluti af stefnumarkandi ákvörð-
un stjórnar Islandspósts um að
byggja upp starfsemi og þjónustu
Islandspósts á landsbyggðinni, svo
tryggja megi vöxt og þróun fyrir-
tækisins til framtíðar. Samhliða
þeirri ákvörðun hafi verið ráðist í
umfangsmikla endurskilgreiningu á
starfsemi fyrirtækisins, þar sem for-
svarsmenn Póstsins hafi leitast við
að lækka kostnað, án þess þó að það
bimi á gæðum þjónustunnar.
Islandspóstur hefur skilgreint 17
kjarnasvæði á landinu, þar sem
pósthús þjónusta viðskiptavini á
öllu svæðinu. A þessum svæðum
munu pósthúsin sjá um útkeyrslu
sendinga til einstaklinga og fyrir-
tækja, þar mun fara fram flokkun og
vinnsla sendinga og aðstaða verður
þar fyrir bréfbera og landpósta. Þá
verður þar móttaka og afhending
sendinga og önnur þjónusta. A
þessum svæðum verða einnig ein
eða fleiri póstafgreiðslur. Um 95
prósent íslenskra heimila era skil-
greind á þessum kjarnasvæðum, en
þau 5 prósent sem út af standa era á
svokölluðum grunnsvæðum, þar
sem póstafgreiðslur og landpóstar
sinna sömu þjónustu við viðskipta-
vini eftir því sem þarfir hvers svæð-
is krefjast.
MM
Þróunarverkefinið
„Ég og leikskólinn minn“ hlaut styrk öðru sinni
Þróunarverkefni það er starfs-
menn leikskólans Sólvalla í Grund-
arfirði hafa unnið að á undanförn-
um árum hlaut fyrir skömmu 350
þúsund króna styrk úr Þrótmarsjóði
leikskóla. I verkefninu sem ber
nafhið „Eg og leikskólinn minn“
eru útbúnar ferlimöppur fyrir
hvern nemanda. Möppurnar fær
nemandinn þegar hann byrjar í
leikskólanum og hún fylgir honum
í gegnum leikskólanámið. I hana
eru settar ýmsar upplýsingar um
þroska barnsins. Skráðar era athug-
anir á barninu í leik og starfi og
einnig era gerðar kannanir á al-
mennri þekkingu barnsins, mál-
þroska, hreyfiþroska og félags-
þroska. Þá eru einnig skráðar
inyndir í leik og starfi og upplýsing-
ar frá sérfræðingum vegna sér-
kennslu. Þá er þroska barnanna
gerð skil. Möppurnar nýtast til
dæmis fyrir foreldraviðtöl og með
þeim verður auðveldara að halda
utan um þroska og skólagöngu
barnsins.
Styrkurinn nú er ekki sá fyrsti
sem verkefnið hlýtur því skólaárið
2004-2005 hlaut verkefnið styrk að
upphæð 250 þúsund krónur. Ár-
gangur barna fædd 2002 er sá fyrsti
sem nýtur þessara skráninga og
þegar hann lýkur námi árið 2008
verða til staðar nákvæmar upplýs-
ingar um feril þeirra barna í leik-
skólanum. Er vonast til þess að fer-
ilmöppur þessar festi sig í sessi í
leikskólum.
HJ