Skessuhorn - 03.05.2006, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 2006
✓
Formaður VLFA gagnrýnir stjómvöld og forystu ASI
í pistli sem Vilhjálmur Birgisson,
formaður Verkalýðsfélags Akraness
skrifar á heimasíðu félagsins, átelur
hann harðlega íslensk stjórnvöld
fyrir ffumvarp til laga um frjálsan
atvinnu- og búseturétt launafólks
innan evrópska efhahagssvæðisins.
Þá setur hann ffam gagnrýni á for-
ystumenn Alþýðusambands Islands
og Samtaka atvinnulífsins, sem
hann segist fullviss um að hafi verið
hafðir með í ráðum í aðdraganda
þessarar lagasetningar. Telur Vil-
hjálmur gríðarmikla gjá hafa skap-
ast milli ASI og grasrótarinnar í
landinu vegna þessa máls.
Afgreiða mál án sam-
ráðs við félögin
Um lagasetninguna í síðustu viku
segir Vilhjálmur m.a: „Það var
svartur dagur fyrir íslenska laun-
þega að Alþingi hafi sett þessi lög.
Eg fór og fýlgdist með annarri og
þriðju umræðu um umrædd lög og
þeirri atkvæðagreiðslu sem fram fór
í kjölfarið. Fram kom í máli þing-
manna sem tóku til máls að um-
rædd lög hefðu verið gerð í fullu
samráði við Alþýðusamband Islands
og Samtök atvinnulífsins. Það er
mat mitt sem formanns Verkalýðs-
félags Akraness að myndast hafi
gríðarleg gjá á milli Alþýðusam-
bands Islands og aðildarfélaga þess,
sé tekið mið af þeim umsögnum
sem fjöldi stéttarfélaga skilaði inn
til félagsmálanefhdar Alþingis. Það
er orðið með öllu óþolandi hvernig
ASI afgreiðir stór mál nánast ein-
hliða og án þess að kanna hver sé
afstaða stéttarfélaganna vítt og
breitt tun landið. Nægir þar áð
nefna mál eins og endurskoðun á
kjarasamningum sem fram fór í
desember 2005, starfsmarmaleigu-
frumvarpið og nú síðast málefni um
ffjálst flæði latmafólks frá aðildar-
ríkum ESS. Eitt er víst að ekki var
haft samband við Verkalýðsfélag
Akraness hvað varðar þessi veiga-
miklu mál, hvorki af ASI eða Starfs-
greinasambandi Islands."
*
Gagnrýnir ASI harðlega
Síðar í pistli sínum segir VI-
hjálmur: „Það er mat formanns
Verkalýðsfélags Akraness að sá
gríðarlegi áhugi einstakra forystu-
manna ASI á inngöngu í Evrópu-
sambandið hafi valdið því að ASI
var fylgjandi þessu frumvarpi, því
ffjálst flæði launafólks er í samræmi
við inngöngu í Evrópusambandið.
Það er ótrúlegt að ASI hafi ekki
beitt sér að fullu afli gegn þessu
ffumvarpi í ljósi þess að stéttarfélög
telja ffumvarpið ganga á hagsmuni
íslenskra launþega. Það er einnig
mat formanns félagsins að ef ASI
hefði beitt sér að fullu afli fýrir því
að fá stjórnvöld til að framlengja
takmörkunum á frjálsri för launa-
fólks frá hinum nýju aðildarríkum
ESS þá er allt eins líklegt að íslensk
stjórnvöld hefðu gert það.“
Vlhjálmur segir að fjöldi þing-
manna hafi við afgreiðslu frum-
varpsins vitnað í umsagnir stéttarfé-
laga vítt og breitt um landið og
voru þær umsagnir í algjöru ósam-
Vilhjálmur Birgisson, formadur VLFA.
ræmi við forystu Alþýðusambands
Islands. Segir hann að í umsögnum
sem félagsmálanefhd Alþingis barst
ffá stéttarfélögum hafi komið ffam
að þau legðust gegn því að tak-
mörkunum yrði aflétt og hér sé um
töluverðan fjölda stéttarfélaga að
ræða eins og t.d. Verkalýðsfélag
Akraness, Verkalýðsfélag Vestfirð-
inga, Verkalýðsfélag Húsavíkur, Afl
- Starfsgreinafélag Ausmrlands og
Samiðn. „Einnig vitnuðu þing-
menn í andstöðu við fyrirliggjandi
ffumvarp ffá Eflingu og einnig hin-
ar ýmsu ályktanir frá stéttarfélög-
um. Þess vegna er það formanni
Verkalýðsfélags Akraness með öllu
óskiljanlegt þegar talað er um að
sátt ríki á meðal aðila vinnumarkað-
arins,“ segir Vlhjálmur.
Þrýstir á lækkun launa
Síðar í pistli sínum segir Vil-
hjálmur m.a: „Það sem aðallega
kom ffam í þessum umsögnum var
að stéttarfélögin telja íslenskan
vinnumarkað og íslensk stjórnvöld
ekki tilbúin til að taka við því aukna
flæði erlends vinnuafls frá hinum
nýju aðildarríkjum EES. Það kom
líka fram í umsögnunum að því
markaðslaunakerfi sem væri búið að
vera við lýði á undanförnum árum
og áratugum væri ógnað með opn-
un íslensks vinnumarkaðar á þenn-
an hátt. Til dæmis kom fram í um-
sögn Verkalýðsfélags Húsavíkur að
félagið hefði heimildir fyrir því að
pólskir verkamenn væru tilbúnir að
koma og vinna í ferðaþjónustu fyrir
einungis 300 kr. á tímann. Skemmst
er að minnast þess þegar Verkalýðs-
félag Akraness leiðrétti launakjör
pólskra verkamanna sem störfuðu
hjá Spútnik bátum. Voru þeir ein-
ungis með 350 kr. á tímann og
unnu allt upp í 270 tíma á mánuði.
Þetta er meðal þeirra atriða sem
stéttarfélögin hafa verið að benda á.
Með frumvarpi sem samþykkt var
frá Alþingi í síðustu viku er einnig
verið að skerða eftirlitshlutverk
stéttarfélaga stórlega. Fram hefur
komið í máli varaformanns Efling-
ar, Guðmundar Þ. Jónsson að tíma-
kaup byggingarverkamanna hefur
lækkað á síðasta ári um allt að 20%
vegna aðkomu erlends vinnuafls
inn á íslenskan vinnumarkað. Með
öðrum orðum þá er það nákvæm-
lega þetta sem Verkalýðsfélag Akra-
ness hræðist stórlega, þ.e. að ís-
lenskir latmþegar muni verða fyrir
skerðingu á sínum launum vegna
undirboða sem munu fýlgja stór-
auknu framboði erlends vinnuafls
ffá láglaunasvæðum eins og Pól-
landi, Litháen, Slóvakíu og hinum
aðildarríkjum EES. Stéttarfélögin
sem veittu umsögn til félagsmála-
nefhdar vildu að íslensk stjórnvöld
nýttu sér þær heimildir sem þau
höfðu til að framlengja takmarkan-
ir á frjálsu flæði, sum til eins árs og
önnur allt til ársins 2011 eins og
heimilt var að gera. Vildu félögin að
stjómvöld og aðilar vinnumarkað-
arins myndu nýta þann tíma til að
búa til það regluverk sem til þarf
vegna aðkomu erlends vinnuafls að
íslenskum vinnumarkaði."
MM
Fyrsta maí hátíðarhöldin
Hátíðarhöld vora um allt land á
mánudag í tilefni af alþjóðlegum
baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Al-
þýðusamband Islands fagnaði 90
ára afmæli sínu. Samtökin leggja
áherslu á hnattvæðingu og ffjálsa
för launafólks og var yfirskriff dags-
ins, „Island allra.“
Á Vesturlandi voru hátíðarhöld
víða.
I Borgarnesi hófst dagskrá á Hót-
el Borgamesi kl. 14. Þar vora sungu
m.a. Barnakór Borgarness undir
stjórn Steinunnar Árnadóttur og
Freyjukórinn tók lagið undir stjórn
Zsuzsanna Budai. Hátíðarræðuna
flutti Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur ASI. Þá sýndu nemendur
Grunnskólans í Borgarnesi atriði úr
„Ávaxtakörfunni." Gísli Einarsson
var kynnir á samkomunni. Það voru
Verkalýðsfélag Borgarness og Kjöl-
ur stéttarfélag sem stóðu að hátíð-
inni og buðu þau samkomugestum
upp á kaffiveitingar meðan á dag-
skránni stóð. Einnig buðu félögin
öllum frítt í sund í Borgarnesi
þennan dag.
Á Akranesi var safnast saman við
Kirkjubraut 40 klukkan 14 og
genginn hringur á Neðri-Skaga.
Að göngu lokinni var hátíðardag-
skrá í sal á 3. hæð Kirkjubrautar 40.
Ræðumaður dagsins var Gunnar
Páll Pálsson formaður VR. Einnig
var boðið uppá hljóðfæraleik, upp-
lestur og söng auk kaffiveitinga.
MM
Kröfugangan á 1. maí áAkranesi með forystumenn VLFA í hroddi fylkingar.
Bamakór Borgamess söng nokkur lög undir sljóm Steinunnar Amadóttur og Freyjukórinn síkáti s'óng við góðar undirtektir. Ljósm: HSS
1 \ •* i 1 W Í •rí|» r.'
1 m I ;4 “ W Lín, i aEPE-. 1
Hátíðarræðuna í Borgamesi flutti Ólafur Datri Andrason, hagfræðingur ASI.
Ljósm. HSS
I. maí var haldinn hátíðlegur t Borgamesi eins og víðar. Aðþessu sinni var haldinn bar-
áttufundur með skemmtiatriðum á Hótel Borgamesi að viðstöddu jjölmenni. Ljósm: HSS