Skessuhorn


Skessuhorn - 03.05.2006, Síða 14

Skessuhorn - 03.05.2006, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 2006 Rún slápar fyrsta sæti Vinstri grænna Framboðslisti Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs á Akranesi hefur verið samþykktur. Fyrsta sæti listans skipar Rún Halldórsdóttir, læknir og Sigurður Mikael Jónsson, háskólanemi annað. Síðastliðinn laugardag opnaði framboðið kosn- ingaskrifstofu að Skólabraut 37. Sérstakur gestur á vígsludeginum var Steingrímur J. Sigfússon, for- maður flokksins. Listi Vinstri grænna á Akranesi er þannig skipaður: 1. Rún Halldórsdóttir, læknir 2. Sigurður Mikael Jónsson, há- skólanemi 3. Halla Ingibjörg Guðmundsdótt- ir, kennari 4. Hjördís Garðarsdóttir, háskóla- nemi 5. Heiðar Mar Bjömsson, verk- stjóri 6. Hjördís Amadóttir, félagsráð- gjafi 7. Bjöm Gunnarsson, læknir 8. Guðrún Margrét Jónsdóttir, eðlisfræðingur Frambjóðendurflokksins sem skipa 3 efstu sætin. F.v. Halla Ingiijörg, Rún og Sigurður Mikael. 9. Helga María Heiðarsdóttir, framhaldsskóianemi 10. Magnús Vagn Benediktsson, kennari 11. Anna Björgvinsdóttir, búfræð- ingur 12. Ami Bragason, verkamaður 13. Olöf Húnfiörð Samúelsdóttir, félagsráðgjafi 14. Jón Jónsson, verkamaður 15. Guðmundur Þorgrtmsson, kennari 16. Jón Hjartarson, hárskeri 17. Asdt's E. Ríkarðsdóttir, píanó- kennari 18. Benedikt Sigurðsson, kennari MM Karitas Osk Ólafsdóttir badminton- spilari ársins Á lokahófi Badmintonfélags Akra- ness sem að haldið var í íþróttahúsinu við Vesurgötu þann 23. apríl sl. var Karitas Osk Olafsdóttir valin badmint- onspilari ársins. Viðurkenningu hlutu einnig Halldór Axelsson og Ingibjörg Jónsdóttir fyrir besta ástundun, Egill Guðlaugsson og Valdís Jónsdóttir fengu viðurkenningu fyrir mestar framfarir yngri spilara og viðurkenn- ingu fyrir mestar framfarir eldri spilara komu í hlut Róberts Þórs Henn og Unu Harðardóttur. SO Rekstur Grundar- fjarðarbæjar í samræmi við áætlanir Rekstur Grundarfjarðarbæjar og stofnana hans var jákvæður um rúmar 15,6 milljónir króna á síð- asta ári. Er það svipuð niðurstaða og gert var ráð fyrir í fjárhagsáætl- un. Arsreikningur sveitarfélagsins var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í síðustu viku. Skatttekjur sveitarfélagsins voru á síðasta ári rúmar 347 milljónir króna en voru tæpar 327 milljónir í áætlun. Ymsar tekur voru rúmar 172 milljónir króna en í áætlun var reiknað með rúmum 137 milljón- um króna. Samtals voru tekjur því rúmar 519 milljónir króna en í íjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að þær yrðu rúmar 464 milljónir króna. Tekjur voru því tæplega 12 % hærri á áætlað var. Laun og launatengd gjöld voru tæpar 231 milljón króna í stað 215 milljóna króna í áætlun. Annar rekstrarkostnaður var tæpar 194 milljónir króna í stað tæpra 165 milljóna króna í áætlun. Þá voru afskriftir rúmar 31 milljón króna en í áæltun var reiknað með að þær yrðu rúmlega 26 milljónir króna. Fjármagnskostnaður var tæpar 48 milljónir króna en var rúmar 43 milljónir króna í áæltun. I árslok 2005 námu hreinar skuldir Grundarfjarðarbæjar og stofnana hans rúmum 756 milljón- um króna og höfðu þær hækkað úr rúmum 671 milljón króna. HJ Jón Trausti og Guðni með nokkrum nemmdum 1. bekkjar Brekkubœjarskóla. Reiðhjólahjálmar til 7 ára bama Kiwanismenn og Eimskip, með aðstoð Flytjanda, gera víðreist þessa dagana og eru að gefa öllum 7 ára börnum landsins reiðhjóla- hjálma. Reiðhjólahjálmar eru nauðsynlegt öryggistæki og fengu nemendur l.LS., l.KS. og l.ER. í Brekkubæjarskóla afhenta hjálma í síðustu viku en þá afhentu þeir Jón Trausti Hervarsson, forseti Klwanisklúbbsins Þyrils og Guðni Tryggvason. Jón Trausti minnti börnin á mikilvægi hjálmanotkunar og hvatti börnin til þess að fara aldrei út að hjóla nema með hjálm á höfðum sínum. Börnin þökkuðu Kiwanisfélögunum vel fyrir gjöf- ina. SO Húrra Kristján! Húrra Skagaleikflokkur! Hlutskipti. Höfundur: Kristján Kristjáns- son. Leikstjóri: Inga Bjamason. Aðstoðarleikstjóri: Jóhanna Guðjónsdóttir. Leikarar: Guðbjörg Ámadóttir, Sigríður Birgisdóttir, Vala Bergland, Gísli Baldvin Gunn- steinsson, Þórdís Ingibjarts- dóttir, Erla Gunnarsdóttir, Fjal- ar Rúnarsson, Aðalheiður Bj. Sigurdórsdóttir. Ljósahönnun: Hlynur Eggerts- son. Ljósamaður og yfirsmiður: Pálmi Jónasson. Búningar: Steinunn Bjömsdótt- ir og Ieikhópurinn. Það er ekki á hverjum degi sem áhugaleikfélög ráðast í uppstetn- ingu splunkunýrra verka sem eru sérstaklega skrifuð fyrir leikarana í hópnum. Það gerðist þó um liðna helgi þegar Skagaleikflokkurinn frumsýndi leikritið Hlutskipti eftir Kristján Kristjánsson. Þetta er í þriðja sinn sem Kristján semur verk sérstaklega fyrir Skagaleik- flokkinn, en fyrri verkin tvö, Alltaf má fá annað skip og Lifðu - yfir dauðans haf, hlutu einróma lof gagnrýnenda og góðar viðtökur Skagamanna. Ég efa ekki að Hlut- skipti á eftir að hljóta lof gagn- rýnenda og vona sannarlega að það hljóti góðar viðtökur hjá Skaga- mönnum. Ég leyfi mér að fullyrða að þessi sýning sé stórviðburður og mikil lyftistöng fyrir menningarlíf á Akranesi. Það er greinilegt að bæði Skagaleikflokkurinn og höf- undur verksins hafa lagt á sig gríð- arlega vinnu til þess að geta boðið bæjarbúum upp á metnaðarfulla og vandaða sýningu og eiga það skilið að við látum hana ekki fram hjá okkur fara. Hlutskipti er fjölskyldusaga en gerist á einum degi, afmælisdegi fjölskylduföðurins sem fallinn er frá fyrir fjórum árum. Fjögur systkin eru saman komin til þess að skipta búi móður sinnar sem þjáist af heilabilun og dvelur á hjúkrun- arheimili. Eftir því sem sögunni vindur fram fær áhorfandinn inn- sýn í líf fjölskyldunnar og smám saman raðast brotin í harmleik sem á endanum snýst upp í óumflýjan- legt uppgjör systkinanna við for- tíðina, foreldra sína, sjálf sig og hvert annað. Að sýningu lokinni er hún áleitin spurningin um það hvernig við tökumst á við áföll og höldum áfram að lifa þegar veröld okkar hrynur. Þessar tilvistarlegu spurningar sem Kristján tekst á við í verkinu er eitthvað sem allir hafa glímt við í einhverjum mæli í eigin lífi og þess vegna er það svolítið einsog að horfa í spegil að fylgjast með sýningunni. Eins og áhrifarík verk gjarnan gera kemur hún við kaun- inn á manni og knýr mann til þess að horfa í eigin barm, ekki síst vegna þess að leikurunum tekst ákaflega vel upp í hlutverkum sín- um. Ég hef sjaldan eða aldrei séð áhugaleiksýningu þar sem frammi- staða leikaranna er jafn jöfn og glæsileg. Leikstjórinn hefur greinilega unnið vel með sínu fólki því bæði skiluðu leikararnir textan- um sínum á mjög sannfærandi hátt og hreyfingar þeirra og látbragð allt gerði það að verkum að sýn- ingin í heild var mjög lifandi og trúverðug. Hlutverk systkinanna og móðurinnar eru stór og erfið en leikararnir valda þeim vel og ég get ómögulega hampað einum um- fram aðra. Eigum við ekki bara að segja að þetta sé leiksigur heildar- innar. Þrátt fyrir að umfjöllunarefnið sé alvarlegt er sýningin stór- skemmtileg og mörg tilefni gefast til þess að hlæja hjartanlega. Ég hvet bæjarbúa enn og aftur til þess að drífa sig í leihúsið á Suðurgöt- unni og sjá þessa frábæru leiksýn- ingu. Húrra Kristján! Húrra Skagaleikflokkur! Anna Lára Steindal.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.