Skessuhorn - 03.05.2006, Side 24
24
MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 2006
sggœsniiíMBM
f^ctitiititi-^^.
Atvinnutækifæri á
Akranesi að lokinni
háskólamenntun
Á því kjörtímabili sem nú er að
ljúka hefur átt sér stað mikil upp-
bygging á Akranesi m.a. að tilstuðl-
an Framsóknarflokks og samstarfs-
flokks í meirihluta bæjarstjórnar.
Störfum hefur fjölgað og er atvinnu-
leysi eitt hið lægsta á landinu. Þrátt
fyrir þetta má gera enn betur, ekki
síst þarf að fjölga störfum í opinberri
þjónustu og störfum þar sem krafist
er háskólamenntunar. Landmæling-
ar Islands voru fluttar til Akraness
árið 1999, þá fjölgað störfum fyrir
háskólamenntað fólk verulega eða
u.þ.b. um 25 störf. Vegna þess að sú
aðgerð var umdeild, en tókst þó vel,
þá er eins og einhvert hik hafi kom-
ið á stjómvöld. Við sem búum á
Akranesi höfum kjark og þor til að
halda áffam að flytja opinber störf út
fyrir höfuðborgina og draga í leið-
inni með þjónustu- og tæknistörf, að
ekki sé nú talað um störf tengd ný-
sköpun og rannsóknum.
Frá árinu 1995 til ársins 2004 hef-
ur einstaklingum sem árlega ljúka
háskólanámi fjölgað úr 1.704 ('95-
'96) í 3.170 ('03-'04). Fleiri hafa
tækifæri til að sækja sér aukna
menntun og atvinnuumhverfið er að
breytast. Samhliða aukinni upp-
byggingu á Akranesi verðum við að
halda áffam að efla atvinnulífið á
staðnum, ekki síst fyrir háskóla-
menntað fólk. Ef við viljum halda í
þá þekkingu og nýta hæfileika þeirra
sem hafa aflað sér þessarar mennt-
unar þurfúm við að auka atvinnu-
tældfærin. Aukin tækifæri og fjöl-
breytileiki atvinnulífsins styrkja
samfélagið í heild.
Efdr nám í FVA lagði ég stund á
háskólanám í Reykjavík og lauk
námi í viðskiptafræði. Að loknu
námi fór ég að starfa í Reykjavík til
að nýta menntun mína. Á Akranesi
finnst mér hinsvegar best að vera og
hér myndi ég líka vilja starfa.
Sóknarfærin liggja í því að mark-
aðssetja Akranes sem góðan kost
fyrir fyrirtæki og stofnanir, þar sem
fjölbreytt þekking er til staðar og að-
stæður til fyrirmyndar. Það er einnig
mikilvægt að styðja við bakið á þeim
aðilum sem vinna að nýsköptmar-
verkefnum og atvinnuþróun. Vð
þurfum að laða að ný fyrirtæki í bæ-
inn sem auka á íjölbreytilcikann og
styrkja stöðu okkar. Þetta er mikil-
vægt til að halda áff am að gera góð-
an bæ betri, til að halda áffam sókn-
arleik eins og Skaginn er þekktur
fyrir.
Dagný Jónsdóttir
viðskiptafræðingur, skipar 4. sæti
fi'amboðslista Framsóknarflokksins til
b<ejarstjómarkosninga á Akranesi
f^ctvtútitt-*,.
Fyrirspurn um kjördeild
mitt í allri umræðunni um að
hækka þjónustustig við aldraða?"
Undirritaður vill spyrja forsvars- spurningar: „Sýnir ekki stjórn-
menn núverandi meirihlutaflokka í málaafl sitt rétta andlit með því að Haraldur Helgason.
Bæjarstjórn Akraness eftirfarandi leggja niður kjördeild þá sem verið
T^ctiti/titt^
Stórkostlegir
tónleikar
Það liggur við að maður hugsi
með sér um tónlistarbæinn Akra-
nes, ekki bara fótbolta- og sem-
entsbæinn. I gamla daga var talað
um að Akranes væri frægastur fyr-
ir fótbolta, fagrar stúlkur og góðar
kartöflur. Hvers vegna segi ég
tónlistarbær? Ástæðan er að á síð-
ustu dögum gafst mér tækifæri til
að fara á tvenna stórkostlega tón-
leika.
Þann 21. apríl hélt Kirkjukór
Akranes stórtónleika í Vnaminni
þar sem fram komu auk kórsins
söngvararnir Sigrún Hjámtýsdótt-
ir, Oskar Pétursson og Auður
Guðjohnsen. Þetta vor stórkost-
legir tónleikar sem lauk eftir að
mörg aukalög höfðu veið sungin.
Tónleikunum lauk með því að
Diddú og Sigursteinn Hákonarson
sungu Angelía við mikla hrifingu.
Eg efast um að Kirkjukór Akranes
hafi verið betri í annan tíma og
það var hrein unun að hlusta á
hann ásamt einsöngvurum og sjá
og fylgjast með hvað stjórnandinn,
Sveinn Arnar Sæmundsson, hefur
góð tök á kórnum og gaman að því
sem hann er að gera í sínu stafi.
Við Skagamenn eru heppnir að
hafa svona áhugasaman og góðan
kórstjóra og organista. Til ham-
ingju.
Þjóðlagasveit Tónlistaskólans á
Akranesi hélt svo magnaða tón-
leika í Bíóhöllinni 26. apríl. Sveit-
in er skipuð nemendum tónlista-
skólans en með á þessum tónleik-
um voru 3 aðstoðarmenn sem léku
á píanó, slagverk og bassa. Annars
var eingöngu leikið á fiðlur, sam-
tals 17 fiðluleikarar auk stjórnand-
ans, Ragnars Skúlasonar, sem
einnig lék á fiðlu af og til. Fiðlu-
leikararnir sungu líka nokkur lög
og fóru með ljóð. Það var fullt hús
og tónleikarnir voru stórkostlegir
á margan hátt. Skemmtilegt laga-
val, góð tækni hjá fiðluleikurun-
um, hljómblöndun góð og lifandi
stjórnun. Ragnar Skúlason og
Tónlistaskólinn á Akranesi geta
verið stoltir af þessu unga fólki og
þessum skemmtilegu tónleikum.
Kæra þökk fyrir skemmtilegt
kvöld. Þessir krakkar eiga fram-
tíðina fyrir sér sem tónleikamenn
og það er í þeirra höndum að nýta
það tækifæri. Takk, takk.
Gunnar Sigurðsson
-Pctitiitin^
Vaxandi samfélag
Borgarlistinn - breiðfylking fé-
lagshyggjufólks hefur í málefna-
vinnu sinni lagt áherslu á að íbúar
hins nýja sameinaða sveitarfélags
njóti jafnrar þjónustu og tækifæra
til vaxtar og þróunar. Þetta eru
einmitt þættir sem hafa einkennt
stóran hluta þess svæðis sem fellur
undir stjórn hins nýja sveitarfélags.
Til þess að koma í veg fyrir
verulega vaxtarverki er miklvægt
að staldra við og horfa til framtíð-
ar. Borgarlistinn mun því einnig
leggja áherslu á að sveitarfélagið
móti sér skýra stefnu í þeim mála-
flokkum sem stærstir eru. I þeirri
stefnumörkun verði jafnframt tek-
ið tilliti til ólíkra aðstæðna og ein-
kenna einstakra byggðakjarna á
svæðinu og sameiginlega hags-
muna allra íbúa, ungra sem ald-
inna. Þessir sameiginlegu hags-
munir snúa einkum að því sem við-
kemur fræðslu- tómstunda- og fé-
lagsmálum, enda vega þessir þjón-
ustuþættir þyngst þegar kemur að
útgjöldum sveitarfélagsins og mun
svo verða áfram.
Frumkvæði og
stefnumörkun á sviði
menningarmála
Eitt af markmiðum Borgarlist-
ans er að söguhéraðið Borgarfjörð-
ur verði þekkt fyrir framsýni og
stórhug á sviði menningarmála og
að þar verði litið á menningarstarf-
semi sem mikilvægan þátt í bæði
félagslegu og hagrænu tilliti. Þá er
mikilvægt að sveitarfélagið hafi
frumkvæði að því að efla og styrkja
verkefni á sviði menningarmála og
hafi skýra stefnu sem gera mun því
kleift að styðja sérstaklega við til-
raunaverkefni og efla með því ný-
sköpun á þessu sviði. Til þess að
auka þau áhrif þarf að setja fram
stefnu til 4 ára þar sem afmörkuð
svið menningar eru styrkt á hverju
ári.
Sköpunarkraftur og
söguleg vitund
Sá sköpunarkraftur sem fylgir
öflugri menningarstarfsemi er afar
mikilvægur og hefur margfeldisá-
hrif á samfélagið í heild sinni þeg-
ar til framtíðar er litið. Borgarlist-
inn telur mikilvægt að hlúa vel að
þeim menningararfi sem hér er til
staðar en einnig að horfa á fortíð
og framtíð sem eina órofa heild.
I dreifbýlinu skal sérstaklega
stefnt að því að merkja þekkta
sögustaði og gönguleiðir og við-
halda um leið örnefnum í héraðinu
og gera þau sýnilegri. I þéttbýlinu
þarf hins vegar að vinna að vernd-
un og varðveislu gamalla húsa og
annarra mannvirkja í umhverfinu
sem segja sögu héraðsins.
Aukin fjölbreytni
og öflugt
tómstundastarf
Öflugt menningar- og tóm-
stundastarf er lykill að lifandi sam-
félagi og eitt af þeim atriðum sem
vega þungt þegar kemur að
ákvörðum um búsetu. Borgarlist-
inn mun vinna að því að að setja
fram markvissa stefnu í menning-
ar- og tómstundamálum sem miði
sérstaklega að þvi að veita sem
jöfnust tækifæri til bæði iðkunar
íþrótta og tómstunda. Með til-
komu menntaskóla í héraðið mun
þörfin fyrir afþreyingu ungmenna
aukast enn frekar og er mikilvægt
að vinna að eflingu unglingastarfs í
samvinnu við skólastofnanir og
ýmis félagasamtök.
Hið nýja sveitarfélag verður víð-
femt og fjölbreytt. I því felast
mörg spennandi tækifæri og er góð
samvinna stofnana og félagasam-
taka við sveitarstjórn einn af lykil-
þáttum í þeirri viðleitni að skapa
gott samfélag.
Á næstu vikum munu frambjóð-
endur Borgarlistans kynna stefnu-
mál framboðsins og vonast fram-
bjóðendur til að heyra í sem flest-
um íbúum hins nýja sveitarfélags
því í þágu þeirra er framtíðin
skipulögð.
Sigríður Björk Jónsdóttir.
Höfundur skipar 2. sœti
á Borgarlistanum
- breiðjylkingu félagshyggjufólks.
www.skessuhorn.is
Forsíða Fréttir Tenglar Myndir Fyrirtækið Smáauglýsingar Á döfinni Áskrift Gestabók Aðsendar greinar Auglýsingar
Á Skessuhomsvefnum finnurðu daglegar fréttir af Vesturlandi, innsendar greinar,
smáauglýsingar, viðburðardagskrá og margt fleira.
Kíktu núna!