Fréttablaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 2
595 1000
Sardinía
Nýtt
10. október í 7 nætur Verð frá kr.
159.995
Hótel Club Hotel Baja
SAMFÉLAG „Við erum að koma á
laggirnar áfangaheimili þar sem
gömlu bæjarskrifstofurnar voru í
Kópavogi. Við erum með 24 her-
bergi fullbúin húsgögnum, sam-
eiginlega sturtuaðstöðu og eldhús,“
segir Arnar Gunnar Hjálmtýsson,
forstöðumaður Áfangaheimilisins
Betra lífs.
Hann vinnur nú að uppbyggingu
áfangaheimilis sem mun standa til
boða fyrir fólk sem hefur í engin
hús að venda og vill eignast betra
líf. „Þessi hugmynd kviknaði þegar
sonur minn fór á svipað áfanga-
heimili hér í borginni. Honum
var svo vísað þaðan vegna þess að
hann vildi ekki fara á trúarlegar
samkomur hjá þeim en það var for-
senda fyrir því að fá að búa þar,“
segir Arnar.
Þegar sonur hans hafði verið rek-
inn af áfangaheimilinu fór Arnar að
leita á önnur mið til þess að finna
honum heimili. „Ég fór að hringja út
um allt, á öll áfangaheimili og það
var bara allt upptekið. Jafnvel sex
mánaða bið eftir því að komast að.
Þetta sýndi mér bara hversu mikil
þörfin er og á sama tíma datt ég
niður á þetta húsnæði og ákvað að
láta þetta verða að veruleika,“ segir
Arnar.
Á áfangaheimilinu Betra líf verð-
ur ekki lögð áhersla á trúarstarf.
„Helsta skilyrðið fyrir því að fá að
búa hér er að fólk sé edrú. Svo þarf
fólk að borga leiguna og fara eftir
ákveðnum húsreglum, til dæmis því
að koma vel fram við náungann,“
segir Arnar. „Við verðum svo með
AA-fundi fyrir þá sem vilja,“ bætir
hann við.
Hugmyndina að nafni heimilisins
fékk Arnar frá bróður sínum Páli
Óskari. „Hann gaf einu sinni út frá-
Áfangaheimilið nefnt
eftir lagi Páls Óskars
Arnar Gunnar Hjálmtýsson opnar áfangaheimili í Kópavogi á næstu dögum.
Hann upplifði þörfina fyrir slík úrræði þegar sonur hans hafði í engin hús að
venda. Arnar er bróðir Páls Óskars og nefndi heimilið eftir laginu Betra líf.
Á áfangaheimilinu Betra lífi eru 24 herbergi vel útbúin húsgögnum frá IKEA, en versl-
unin sýndi mikla velvild við uppbyggingu heimilisins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
bært lag sem heitir Betra líf og þegar
ég spurði hann hvort ekki væri til-
valið að nefna heimilið eftir laginu
sagði hann að honum fyndist það
frábær hugmynd en benti mér á að
búð í Kringlunni bæri sama nafn,“
segir hann.
Arnar gerði sér þá ferð í Kringl-
una og fékk leyfi til þess að nota
nafnið á áfangaheimilið.
Nú þegar er einn skjólstæðingur
fluttur inn á heimilið en Arnar býst
við því að f leiri geti f lutt inn eftir
næstu viku. „Við erum að klára efri
hæðina núna og þegar það er búið
getum við farið að taka á móti fólki,“
segir hann.
Enginn starfsmaður, fyrir utan
Arnar sjálfan, mun starfa á heimil-
inu en öll hans vinna verður unnin
í sjálf boðastarfi. „Svona rekstur
býður ekki upp á neina launaða
starfsemi og takmarkið er að reka
þetta á núlli til að byrja með. Svo sér
maður bara hvernig málin þróast en
draumurinn er að geta boðið upp
á mat hérna fyrir heimilisfólkið,“
segir hann.
„Vonandi tekst okkur það að
lokum, því að ég held að það sé stór
þáttur í bata þessara einstaklinga
að borða hollan og góðan mat,“ segir
Arnar. birnadrofn@frettabladid.is
Fékk lykla og pottaplöntu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók við lyklunum að dómsmálaráðuneytinu af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í gær. Áslaug Arna er næst-
yngsti ráðherra Íslandssögunnar, en hún hefur setið á Alþingi frá árinu 2016. Þórdís Kolbrún tók við dómsmálaráðuneytinu í mars síðastliðnum,
en verður nú áfram ráðherra ferðamála og iðnaðar. Lyklaskiptin voru afar vinaleg og af henti Þórdís Kolbrún henni pottaplöntu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þegar ég spurði
hann hvort ekki
væri tilvalið að nefna
heimilið eftir laginu sagði
hann að honum fyndist þar
frábær hugmynd.
Arnar Gunnar Hjálmtýsson, for-
stöðumaður áfangaheimilisins
Betra lífs
Veður
SV eða breytileg átt 3-8 m/s og
væta um mest allt land, einkum
síðdegis. Hiti 7 til 13 stig yfir dag-
inn. Dregur úr vindi og úrkomu
vestast annað kvöld. Hiti 10 til 18
stig, hlýjast NA-lands. SJÁ SÍÐU 44
Bubbi rýnir í plötuna Dögun frá
1987. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HLAÐVARPIÐ Í nýjasta þætti hlað-
varpsins Sögur af plötum rýnir
Bubbi í plötuna Dögun sem tekin
var upp árið 1987. Platan var að
hluta til tekin upp á Englandi og
segir Bubbi upptökuferlið hafa
verið brösugt, meðal annars vegna
aukinnar neyslu Tómasar Tómas-
sonar, bassaleikara og upptöku-
stjóra. „Tommi heitinn var ekkert
á góðum stað.“ segir Bubbi og lýsir
því að ástand Tomma hafi bitnað
rosalega á upptökunum. „Við
áttum að byrja að vinna á morgn-
ana en það var ekki byrjað fyrr en
klukkan tvö.“
Síðar í þættinum segir Bubbi frá
óhappi sem átti sér stað við tökur
á tónlistarmyndbandi við lagið
Aldrei fór ég suður. „Ég hafði farið
í rjúpu daginn áður ásamt ónefnd-
um vini mínum og ég festist í harð-
fenni. Hann náði ekki til mín svo
ég var pikkfastur með bratta hlíð
niður,“ segir Bubbi sem endaði á
því að þurfa að láta sig detta. „Ég
fer á f leygiferð niður hlíðina og
lendi á einhverjum steini en næ að
stoppa mig í grjótinu. Þá sprungu
rjúpurnar í bakpokanum.“
Hægt er að hlusta á þáttinn í
heild á Hlaðvarpi Fréttablaðsins,
Spotify og iTunes. – atv
Rjúpurnar
sprungu
VEÐUR Leifar fellibylsins Dorian
koma til Íslands á þriðjudag. Þegar
fellibyljir úr Karíbahafi berast
norður Atlantshafið dregur veru-
lega úr styrk þeirra. Á þriðjudag
verður úrkoma á nær öllu landinu
en lægðarmiðjan sjálf fer rétt sunn-
an við landið.
Björn Sævar Einarsson, veður-
fræðingur hjá Veðurstofu Íslands,
segir minni úrkomu í Dorian en í
lægðinni sem gengur yfir um helg-
ina en þegar er búið að gefa út gula
viðvörun fyrir laugardag.
„Á þriðjudag verður ekki mikil
úrkoma, þessar leifar eru eins og
venjuleg lægð,“ segir Björn. „Felli-
byljir þurfa að hitta á lægð í mynd-
un ef þeir ætla að ganga í endur-
nýjun lífdaga og magnast upp með
hlýju innskoti. Yfirleitt gera þeir
það ekki og koðna smám saman
niður.“ – khg
Leifar Dorian
til Íslands á
þriðjudaginn
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
9
-8
5
E
0
2
3
B
9
-8
4
A
4
2
3
B
9
-8
3
6
8
2
3
B
9
-8
2
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K