Fréttablaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 30
mér sé betra. Ég hef opið inn á skrif-
stofuna mína og birti reglulega for-
stjórapistla eins og ég gerði sem for-
stjóri Landspítalans.“
Oft einmanalegt
Björn býr einn í Stokkhólmi virka
daga vikunnar og f lýgur heim til
Íslands til fjölskyldunnar eins oft
og hann getur. Hann er giftur Hörpu
Árnadóttur myndlistarkonu og
saman eiga þau fimm börn.
Er ekkert erfitt að vera svona lengi
fjarri fjölskyldunni?
„Ég leigi íbúð hér í borginni og
vissulega er það oft svolítið ein-
manalegt. En nýt þess þá vel að vera
með fjölskyldunni og tveggja ára
gömlu barnabarni mínu þegar ég
er á Íslandi um helgar. Og stundum
kemur fjölskyldan auðvitað til mín.
Elsti sonur minn er í skóla í
Gautaborg og yngri börnin eru á
Íslandi í skóla. Þau voru hér í borg-
inni síðasta vetur og gengu í sænsk-
an skóla en þó að heimurinn sé lítill
þá getur verið f lókið fyrir börn að
skipta um umhverfi. Og það varð úr
að næstyngsta barnið okkar vildi
fara í menntaskóla heima á Íslandi
og fylgja félögum sínum. Ég skil það
ósköp vel,“ segir Björn frá.
Þegar Björn er fjarri fjölskyldunni
teygist stundum úr vinnudeginum.
„Þegar ég er hér einn úti og eng-
inn af fjölskyldunni með mér þá eru
vinnudagarnir oft lengri. Þá er ég
burtu frá heimilinu í allt að þrettán
tíma á dag og stundum hætti ég ekki
þegar heim er komið og held áfram
að vinna,“ segir Björn og tengir það
bæði við fjölda verkefna og ein-
manaleikann sem fylgir því að vera
fjarri fjölskyldunni.
Ertu undir of miklu álagi?
„Álag er eitthvað sem maður
leggur á sjálfan sig. Ég á skilti sem
minnir mig á hugarfarið: Keep calm
and just do it. Svo fékk ég skilti að
gjöf frá syni mínum sem inniheldur
öllu einfaldari en ágæt skilaboð;
Deal with it!
Verkefnin eru mörg og fyrstu
vikurnar í starf i voru líklega
þær erfiðustu. Þegar maður er að
breyta miklu og leiða stóran hóp
fólks í gegnum erfitt tímabil þá er
mikilvægt að vera sýnilegur, vera
til staðar. Þannig sýnir maður að
maður stendur raunverulega fyrir
og trúir á breytingarnar. Eftir að við
komum til baka eftir sumarleyfi þá
hef ég til dæmis haldið þrjá starfs-
mannafundi sem samtals sóttu yfir
þúsund manns.“
Hvernig stjórnandi ertu?
„Ég vil dreifa sem mestri ábyrgð
en á sama tíma vil ég hafa góða yfir-
sýn. Ég vil að fólk leiti til mín og þess
vegna hef ég alltaf opnar dyrnar inn
á skrifstofuna. Það er aðallega ef ég
þarf að taka áríðandi símtöl sem ég
loka dyrunum á meðan.“
Lærði af kreppunni
Ég lærði margt af kreppunni á
Íslandi, það er hægt að taka erf-
iðar ákvarðanir ef allir eru sam-
mála um að það sé ekkert val um að
gera annað. Það skiptir miklu máli
að upplýsa fólk þannig að það viti
nákvæmlega hver staðan er. Að það
sé enginn feluleikur.“
Plastbarkaígræðslumálið svo-
kallaða vofir enn yfir sjúkrahúsinu.
Afleiðingar þess að skurðlæknirinn
Paolo Macchiarini blekkti sérfræð-
inga til þátttöku við ígræðslu plast-
barka í sjúklinga hafa verið miklar
fyrir orðspor spítalans. Málið teygði
anga sína til Íslands með aðkomu
íslenskra lækna.
Voru handjárnaðar við rúmin
„Það er enn til skoðunar hjá sak-
sóknaranum í Svíþjóð hvort það
eigi að höfða mál og þá gagnvart
hverjum. Þetta hefur legið eins og
mara yfir spítalanum, en mest þó
yfir háskólanum og hafði mikil
áhrif á stjórn skólans, rektor og
helstu yfirmenn. Hér innanhúss er
málið víti til varnaðar,“ segir Björn.
Sjálfur hefur Björn þurft að svara
fyrir siðferðileg álitaefni. Hann sat
í stjórn sænska heilbrigðisfyrir-
tækisins Global Health Partner sem
rekur ríkissjúkrahús í Ajman í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.
Samkvæmt lögum landsins þurftu
heilbrigðisstarfsmenn að afhenda
yfirvöldum konur sem eignuðust
börn utan hjónabands og áður en
GHP kom að rekstri sjúkrahúsanna
voru þær handjárnaðar við rúmin í
fæðingunni.
„Mér f innst eðlilegt að taka
hreinskilnislega umræðu um þessi
siðferðilegu álitaefni sem koma
upp. Spurningin er, áttum við að
reyna að bæta og bjarga manns-
lífum með því að stíga inn í rekst-
urinn og koma að breytingum á
sjúkrahúsinu eða halda okkur
fjarri og vita þá að ástandið og með-
ferðin á konunum yrði óbreytt? Við
hefðum getað sagt: Nei, þetta er
siðfræði sem við þekkjum ekki og
viljum ekki samþykkja, og sleppt
þátttöku, en ákváðum að reyna að
breyta ástandinu til hins betra. Á
meðan fyrirtækið kom að rekstri
sjúkrahúsanna náðum við að gera
mikið fyrir heilbrigðiskerfið þar
ytra og þessar konur sem áttu mjög
undir högg að sækja. Við gerðum
allt sem við gátum innan laga
landsins,“ segir hann.
Björn er ekki fyrsti Íslendingur-
inn til að sitja á forstjórastóli. Birg-
ir Jakobsson, sem nú starfar sem
aðstoðarmaður Svandísar Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra var for-
stjóri sjúkrahússins um árabil.
Björn segist ekki hugsa mikið um
það hversu lengi hann muni sitja á
forstjórastól. „Ég horfi á verkefnin
fram undan. Þetta er glæsilegt
sjúkrahús í glænýrri byggingu,
við búum yfir mikilli sérfræði-
þekkingu og erum til dæmis með
bestu geislameðferðar vélar á
Norðurlöndum. En við verðum að
fá vinnufrið og til þess verður fjár-
hagurinn að komast í jafnvægi. Ég
einblíni á þessi markmið.“
ÉG ÞURFTI AÐ TAKA HAND-
BREMSUBEYGJU, ÞVÍ ÞAÐ
VAR ORÐIÐ MJÖG BRÝNT
AÐ STÖÐVA TAPREKSTUR-
INN.
Björn Zoëga, forstjóri Karolínska háskóla-sjúkrahússins í Stokk-hólmi, er staddur á skrifstofu sinni í Solna. Hann hefur átt anna-
saman dag og á meðan hann ræðir
við blaðamann bíða aðrir eftir því
að ná tali af honum. Vinnudagarnir
geta orðið langir.
Björn tók við starfi forstjóra
sjúkrahússins í apríl og vissi strax
að hans beið erfitt og krefjandi
verkefni. Í upphafi árs var álitið að
taprekstur yrði um 10,6 milljarðar
króna. Fjárhagur sjúkrahússins var
kominn algjörlega úr böndunum,
líklega má rekja ástæðuna til þess
að verið er að f lytja starfsemi þess
yfir í glænýtt og tæknilega fullkom-
ið sjúkrahús. Kostnaður við bygg-
ingu þessa nýja sjúkrahúss hefur
ratað reglulega í fréttir sænskra
dagblaða.
Eftir rúman mánuð í nýju starfi sá
Björn sig tilneyddan til að segja upp
550 starfsmönnum. Hann tók þá
ákvörðun að segja ekki upp starfs-
mönnum sem starfa með sjúkl-
ingum heldur voru uppsagnirnar
í hópi stjórnenda sjúkrahússins.
Á sjúkrahúsinu starfa um 16.000
starfsmenn. Og hann telur líklegt
að hann þurfi að segja f leiri starfs-
mönnum upp störfum áður en árið
er á enda.
Tók handbremsubeygju
„Ég þurfti að taka handbremsu-
beygju, því það var orðið mjög
brýnt að stöðva tapreksturinn. En
þetta er þungt og mikið skip og
það tekur tíma að snúa því,“ segir
Björn. „Fyrstu þrír mánuðir ársins
voru hræðilegir, ég kom til starfa í
apríl og við erum smám saman að
vinda ofan af hallanum og ég hef
þurft að taka mjög erfiðar ákvarð-
anir. Hallinn var í upphafi árs 10%
af veltu, nú er hann á bilinu 7-8%
og við stefnum að því að hann fari
niður fyrir 0%.
Björn stýrði Landspítalanum
eftir efnahagshrunið og sagði upp
í mótmælaskyni árið 2013 eftir að
hafa þurft að standa lengi í niður-
skurðaraðgerðum. Hann hafði áður
en hann sagði upp lengi og ítrekað
bent stjórnvöldum á að lengra yrði
ekki gengið.
Það hlýtur að vera erfitt að standa
enn og aftur í þessum sporum?
Hvernig er andinn á meðal starfs-
manna?
„Hópuppsögn er flókin, það tekur
við sex mánaða þögn á meðan
starfsfólk vinnur uppsagnarfrest-
inn. Bráðum er sá tími á enda og það
er óróleiki á meðal viss hluta starfs-
fólks. Ég hafði aldrei stigið fæti inn
á Karólínska sjúkrahúsið áður en
ég varð forstjóri. Svo að ég er enn að
reyna að fá raunsanna mynd af því
hvernig starfsfólki líður og hvernig
vinnuandinn er. Ég rýni í starfs-
mannakannanir og í þeim kemur
fram að starfsmenn upplifa að lítið
hafi verið hlustað á þeirra sjónar-
mið, það hafa verið gerðar margar
breytingar, innleitt nýtt skipurit,
verkefnum breytt og það standa
yfir f lutningar í nýtt húsnæði. Það
er komin þreyta í mannskapinn og
það er skiljanlegt. Það er þreytandi
að standa í löngu breytingaferli sem
er umdeilt í þokkabót. Ég hef reynt
alveg frá því ég kom hingað að opna
allt ferlið og segja fólki hiklaust
hver staðan er. Fólk á ekki að þurfa
að spyrja, það er í hlutverki mínu
að vera fyrstur til að segja því hver
staðan er. Ég hef líka reynt að breyta
skipulaginu þannig að aðgengi að
Langir dagar í Stokkhólmi
„Ég hafði aldrei stigið fæti inn á Karólínska sjúkrahúsið áður en ég varð forstjóri,“ segir Björn Zoëga. Gríðarlegur
rekstrarhalli og möguleg málaferli vofa yfir einu fullkomnasta og glæstasta sjúkrahúsi á Norðurlöndunum.
„Álag er eitthvað sem maður leggur á sjálfan sig. Ég á skilti sem minnir mig á hugarfarið: Keep calm and just do it.“ MYND/KAROLINSKA
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
9
-9
E
9
0
2
3
B
9
-9
D
5
4
2
3
B
9
-9
C
1
8
2
3
B
9
-9
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K