Fréttablaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 80
ÉG VARÐ MJÖG REIÐUR
VIÐ SJÁLFAN MIG, GRÉT
MIG Í SVEFN.
Brandur Þorgrímsson er doktor í eðlisfræði og hefur lagt áherslu á skammtafræði, grein sem fæstir hafa mikla ef nokkra þekkingu á.
Blaðamaður hitti Brand til að ræða
vísindin og baráttuna við ofvirkni,
sem hann var greindur með sem
barn.
„Ég fór til náms í háskólanum í
Wisconsin því að hann bauð upp
á rannsóknir sem gætu umbreytt
heiminum á mínum líftíma,“ segir
Brandur. Vegna eigin reynslu hafði
hann áhuga á að rannsaka virkni
heilans en skammtafræðin togaði
meira í hann. „Það er að verða bylt-
ing í þekkingu á sviði skammta-
fræði sem mun umbreyta heim-
inum á næstu áratugum. Ég vil taka
þátt í því,“ segir hann.
Brandur er aðeins 29 ára gamall,
fæddur þann 30. ágúst 1990. Faðir
hans Þorgrímur Daníelsson er
sóknarprestur og móðir hans Mjöll
Matthíasdóttir er grunnskólakenn-
ari. Vegna prestsstarfa föður hans
f lutti fjölskyldan milli landshluta.
Fyrst bjuggu þau í Hrútafirði, síðan
sex ár í Neskaupstað og á Grenjaðar-
stað í Aðaldal frá árinu 1999.
Árið 2010 útskrifaðist Brandur
frá Menntaskólanum á Akureyri
og þremur árum síðar frá Háskóla
Íslands. Í sumar lauk hann doktors-
prófi frá háskólanum í Wisconsin-
Madison í Bandaríkjunum. Á næstu
dögum flytur hann til Sydney í Ástr-
alíu. Þar hefur hann verið ráðinn til
rannsóknarstarfa hjá fyrirtæki sem
stefnir að því að hafa þróað frum-
gerð af skammtatölvu árið 2022.
Saga Brands er ekki síst áhuga-
verð vegna þess að sem barn var
hann greindur ofvirkur. Fáa hefði
þá grunað að grunnskólastrákur
með gríðarleg hegðunarvanda-
mál myndi enda í hávísindalegum
rannsóknum við alþjóðlega virtar
stofnanir.
Það getur tekið tíma að átta sig
á ofvirkni. Brandur var greindur
ofvirkur, með ADHD, sjö ára gam-
all. „Ég man eftir því að hafa farið
í greindarpróf hjá sálfræðingi sjö
ára gamall,“ segir Brandur. „Það
þótti mér áhugavert og skemmti-
legt verkefni.
Ég lenti í uppþotum, bræði-
köstum og gat verið algjörlega
stjórnlaus. Stundum lamdi ég fólk
og öskraði,“ segir Brandur. „Ég réð
alls ekki við mig og eitt sinn reif ég
niður verk sem bekkurinn minn
hafði unnið að í heila viku. Mér leið
oft mjög illa eftir þessi uppþot mín.“
Þegar bræðin rann af honum átt-
aði hann sig á því hvað hann hafði
gert. „Ég hafði kannski ráðist á
fólk og eyðilagt fyrir því. Krakkar
hættu að vilja umgangast mig,“ segir
Brandur og gerir hlé. Það er augljóst
að þetta hvílir þungt á honum. „Ég
varð mjög reiður við sjálfan mig,
grét mig í svefn og það kom fyrir að
ég íhugaði sjálfsmorð.“
Í Neskaupstað forðuðust margir
krakkar að umgangast Brand en
ástandið batnaði þegar hann flutti
í Aðaldalinn. Hann fór að ná betri
tökum á sjálfum sér.
Ofvirkni hefur oft mikil áhrif á
daglegt líf, nám og félagslega aðlög-
un einstaklingsins. Það mæðir á
fjölskyldu, foreldrum, systkinum
og skólakerfinu. Með réttri grein-
ingu og ekki síst þrotlausri vinnu
og þolinmæði er hægt að vinna með
ofvirkni.
„Ég er í dag afar þakklátur öllum
þeim er hafa aðstoðað mig. Þetta
reyndi mjög á foreldra mína. Þolin-
mæði þeirra og umhyggja var og er
takmarkalaus,“ segir hann. „For-
eldrar mínir unnu með mér. Þau
lögðu áherslu á að þegar mér rann
bræðin bæði ég fólk afsökunar á því
sem ég hafi gert á þess hlut.“
Þegar Brandur fékk greininguna
var hann settur á ofvirknilyfið
ritalín. Hann tekur lyf enn í dag og
segir það hafa mikil áhrif til góðs.
„Ég finn fyrir því þegar ég er ekki
að taka ritalín. Að sumu leyti get ég
verið hættulegur sem gangandi veg-
farandi í umferðinni,“ segir Brandur
kíminn. „Ég minnist þess þegar ég
hafði gleymt að taka lyfin mín og
var að ganga yfir í Háskóla Íslands
og var nærri búinn að ganga í veg
fyrir bíla. Ég var ekkert að pæla í
því að leiðin lá yfir hættulega
umferðargötu. Bílar á ferð urðu mér
aukaatriði.“
Brandur segir að ofvirknin taki
ekki einbeitinguna í burtu. Hann
geti verið mjög einbeittur við
ákveðna hluti og hafi á yngri árum
brugðist illa við ef hann var trufl-
aður. Að sama skapi skynji hann þá
ekki hvað sé í gangi í kringum hann.
Mikilvægi sálfræðiþjónustu í
skólakerfinu er Brandi mjög hug-
leikin. Í skólum þurfi að vera bæði
þjónusta og skilningur á ofvirkni.
„Ef þú ert með tannverk þá ferðu
til tannlæknis og ef þú fótbrotnar
ferðu til læknis. Við ættum að hafa
greiðan aðgang að læknisþjónustu
sama að hvaða hluta líkamans hún
beinist,“ segir hann og segir með
þunga „geðheilbrigði á að skipta
okkur öll máli“.
Brandur varð heillaður af eðlis-
fræði á menntaskólaárunum. „Ég
er mjög forvitinn og stærðfræði lá
vel fyrir mér. Ég vildi vita hvernig
heimurinn virkaði,“ segir Brandur.
Hann komst á Ólympíuleikana
í eðlisfræði í Mexíkó árið 2009 og
aftur ári síðar í Króatíu. Brandur
segir að hvatning eðlisfræði- og
stærðfræðikennara í mennta-
skólanum hafi kveikt áhuga hans.
Einnig sú hvatning sem hann fékk
frá leiðbeinanda sínum í Háskóla
Íslands. Brandur segir fræðasam-
félagið í háskólanum sterkt en
smæð raunvísindadeildarinnar
takmarki það sem hægt sé að gera.
„Ég fann mig í rannsóknum og
vildi fara í framhaldsnám þar sem
stundaðar eru rannsóknir sem gætu
umbreytt heiminum á mínum líf-
tíma. Ég leitaði að skólum þar sem
rannsóknir á því hvernig heilinn
virkar væru stundaðar og svo var
skammtafræðin líka heillandi. Hið
síðarnefnda varð fyrir valinu og
ég hóf nám við Wisconsin-háskóla
í Madison haustið 2013,“ segir
Brandur.
Í haust fer ofvirki drengurinn
úr Aðaldalnum alla leið til Ástr-
alíu til að vinna við rannsóknir sem
gætu umbreytt heiminum á næstu
áratugum. Prestssonurinn segir
skammtatölvur vera framtíðina.
Hann virðist hafa fundið sína syllu
og ætti að vera okkur mikilvæg
dæmisaga um rétta meðhöndlun á
ofvirkni.
Ofvirkni og skammtafræðin
Fáa hefði grunað að grunnskólastrákur með gríðarleg hegðunarvandamál myndi enda í hávísindalegum rann-
sóknum við alþjóðlega virtar stofnanir. En þannig er saga Brands Þorgrímssonar, doktors í eðlisfræði.
Hvað er skammtafræði og skammtatölvur?
Á meðan afstæðiskenning Ein
steins tekur á hinu stærsta í
alheiminum þá tekur skammta
fræðin á því smæsta.
Þetta hefur stundum verið
útskýrt með því að sambærilegur
munur sé á einum metra og fjar
lægðinni til tunglsins og á þeim
stærðarskala sem skammta
fræðin tekur til og á einum metra.
Að sama skapi er sambærilegur
munur á einni sekúndu og heilli
mannsævi og á tímaskalanum
sem skammtatölvur vinna á og
einni sekúndu.
Venjulegar tölvur í dag byggja
á svokölluðum bitum (e. bits)
sem geta annaðhvort haft gildið
0 eða 1. Skammtatölva byggir
hins vegar á skammtabitum (e.
quantum bits) sem auk þess að
hafa gildið 0 eða 1, getur líka haft
bæði gildin 0 og 1 samtímis.
Bitarnir í venjulegri tölvu geta
einungis haft eitt gildi í einu,
þannig hefur venjuleg tölva með
tveimur bitum aðeins fjórar
mögulegar raðir: 00, 01, 10 og 11.
Skammtabiti gæti haft alla
fjóra möguleikana (quantum sta
tes/skammtaástand) samtímis.
Þannig gæti skammtatölva með
þremur skammtabitum samtímis
verið í 8 mismunandi skammta
ástöndum, skammtatölva með
10 skammtabita 1000 og ef hún
hefði 20 skammtabita gæti hún
verið í um milljón skammta
ástöndum samtímis. Venjuleg
tölva með 20 bita gæti aðeins
verið í einu af þessum milljón
skammtaástöndum hverju sinni.
„Ég man eftir því að hafa farið í greindarpróf hjá sálfræðingi sjö ára gamall,“ segir Brandur. „Það þótti mér áhugavert og skemmtilegt verkefni.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
9
-C
B
0
0
2
3
B
9
-C
9
C
4
2
3
B
9
-C
8
8
8
2
3
B
9
-C
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K