Fréttablaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 6
FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ
Fæst án lyfseðils. Afsláttur gildir til 16.9.2019 í Lyf og Heilsu og Apótekaranum
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum við gigtar- og liðverkjum.
Bætir hreyfigetu og dregur úr stirðleika.
20%
afsláttur
Verð frá 69.900 kr. og
15.000 Vildarpunktar
á mann miðað við tvo í íbúð
Flug og hótel í september
Njóttu þess að hlakka til
Kanarí
með VITA
Sjá nánar á vita.is
Verð án Vildarpunkta: 79.900 kr.
Haustráðstefna
Advania
í Hörpu 13. september 2019
Björn Zoëga forstjóri Karolinska háskólasjúkrahússins
verður meðal lykilf yrirlesara.
HVER VANN?
Sportið á frettabladid.is færir þér
allar nýjustu fréttirnar úr heimi
íþróttanna.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Fjárlög hinna fáu og ríku
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, segir frumvarpið staðfesta að það búi tvær þjóðir
í landinu. „Þjóðin sem á eignirnar og þjóðin sem
borgar. Enn erum við með lægsta fjármagnstekju-
skatt allra Norðurlanda en fjármagnstekjur lækka
meira að segja milli ára, enn erum við með veiðileyfa-
gjald svipað hátt og tóbaksgjaldið, enn stendur til að
lækka bankaskattinn og enn finnst þessari ríkisstjórn
að 5% ríkustu Íslendingarnir sem eiga næstum jafn-
mikið og hin 95%-in, eiga skilið að vera í skjóli á tímum
niðursveiflu. Háskólarnir með LÍN, framhaldsskólar
og þróunarsamvinna fá meira að segja lækkun milli
ára að raunvirði. Þá er bara gert ráð fyrir 3% launa-
hækkun fyrir opinbera starfsmenn í verðbólgu sem er
mun hærri. Þetta eru fjárlög hinna fáu og ríku.“
Kosningalykt af þessu
Björn Leví Gunnarsson finnur kosningalykt af frum-
varpinu. „Skattalækkanir koma að mestu fram á
næsta (kosninga)ári, á sama tíma og ýjað er að því að
efnahagsspár næsta árs verði mögulega verri en gert
er ráð fyrir núna. Ég kvarta þó ekki undan skattalækk-
unum nema að því leyti að þær koma ekki vel út fyrir
allra tekjulægstu hópana og ég hefði viljað sjá aukinn
persónuafslátt,“ segir Björn. Hann gagnrýnir einnig
framsetningu frumvarpsins.
„Aftur hafa gagnsæismálin mistekist. Það er
ómögulegt að sjá í fjárlagafrumvarpinu af hverju til-
lögur að fjárveitingum eru þær upphæðir sem lagðar
eru til en ekki einhverjar aðrar upphæðir. Við vitum
til dæmis ekkert hvort upphæðin fyrir Landspítalann
dugar til þess að hægt sé að sinna lögbundinni
þjónustu eða ekki. Fjárlagafrumvarpið er svona
eins og spaghettíhrúga þar sem ómögulegt er að sjá
hvaða verkefni kostar hvað og af hverju af því að það
týnist í flækjunni.“
Óskhyggja um hitt og þetta
Formanni Flokks fólksins þykir frumvarpið einkenn-
ast af mikilli bjartsýni um horfurnar. „Þetta er auð-
vitað óskhyggja um hitt og þetta sem maður veit svo
ekkert hvort verður barn í brók,“ segir Inga Sæland.
Þótt hún fagni skattalækkunum hefur hún efasemdir
um að þær komi þeim sem allra verst standa að raun-
verulegu gagni. Helmingur launafólks er með laun
um eða undir 440 þúsund krónum á mánuði og 5.800
krónur á mánuði í skattalækkun fyrir þennan hóp
dugar skammt.“ Inga er þó ánægð með það sem þó
er gert. „Það er sjálfsagt að nefna það sem jákvætt
er og vel er gert. Þessar aðgerðir sem ríkisstjórnin er
að fara í í húsnæðismálum eru mjög jákvæðar,“ segir
Inga og bindur einnig vonir við áframhaldandi vaxta-
lækkanir sem skili sér best fyrir fólkið.
Fullkomlega óraunhæfar forsendur
Þorsteinn Víglundsson fagnar því að grípa eigi til
skattalækkana á einstaklinga enda heppilegur tími til
þess að styðja við kaupmátt. „Á móti koma hins vegar
ýmsar skattahækkanir upp á rúmlega 5 milljarða svo
þegar upp er staðið eru lækkanirnar óverulegar.“
Það sem helst er gagnrýnivert er að efnahagsfor-
sendur frumvarpsins eru fullkomlega óraunhæfar.
Ríkisstjórnin hefur ítrekað þurft að endurskoða
áform sín á liðnum árum vegna of mikillar bjartsýni
en virðist samt ekkert læra. Gert er ráð fyrir nærri
þriggja prósenta hagvexti á næsta ári sem er mun
meira en Seðlabankinn og flestir greiningaraðilar
gera ráð fyrir. Að auki eru ýmis hættumerki á lofti í al-
þjóðaviðskiptum sem haft gætu neikvæð áhrif á hag-
vöxt hér. Einsýnt er að endurskoða þurfi frumvarpið
frá grunni þegar endurskoðuð hagspá liggur fyrir.
Þá má gagnrýna hversu litlu er bætt við fjárfesting-
ar hins opinbera sem hafa verið langt undir meðaltali
undanfarinn áratug.
Aðilar vinnumarkaðarins segja kost og löst á fjárlagafrumvarpinu
Efast um að forsendur fjárlaga standist og finna kosningalykt
Jákvætt
n Miklar skatta-
lækkanir boðaðar
sem styrkir hag
heimilanna, sér í
lagi á tekjulægri
endanum. Styður
með beinum
hætti við lífs-
kjarasamninginn.
n Skuldastaða
ríkissjóðs er virki-
lega góð – krafta-
verk hefur verið
unnið á síðustu
árum. Ríkissjóður
hefur þanþol til
að taka á sig áföll
framtíðar.
Jákvætt
n Gott að ríkis-
stjórnin ætli að
standa við lífs-
kjarasamninga.
n Persónuaf-
slátturinn heldur
verðgildi sínu.
Neikvætt
n Of lítið aðhald
eða áhersla á að
bæta rekstur.
n Nauðsynlegt að
lækka tryggingar-
gjald frekar til að
koma súrefni inn í
atvinnulífið þegar
hægir á því.
n Hefði viljað sjá
ríkissjóð skila smá
halla og keyra
á fjárfestingar
fyrr á tímabilinu.
Sporna þarf gegn
gegn frekari
vaxtalækkunum
vegna verðbólgu-
horfa.
Halldór Benjamín Samtökum atvinnulífsins
Drífa Snædal Alþýðusambandi Íslands
Neikvætt
n Vantar viðleitni
til að afla tekna á
móti skattalækk-
unum til að þær
komi ekki niður á
velferðarkerfinu.
Ef tekna verður
ekki aflað á móti
er hætta á að
aðgerðirnar rýri
innviðina.
n Hefði viljað
sjá hækkun
fjármagnstekju-
skatts, aukið fé í
skattrannsóknir
til að endur-
heimta skattfé,
auk annarra
tekjuöflunarleiða
eins og hátekju-
skatt og auð-
lindagjald.
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
9
-A
D
6
0
2
3
B
9
-A
C
2
4
2
3
B
9
-A
A
E
8
2
3
B
9
-A
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K