Fréttablaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 90
Lygasögur
Lygasögur er heitið á dagbók
Pikes Ward fiskkaupmanns,
sem í upphafi 20. aldar var
nefndur frægasti maður Íslands
en féll í gleymsku skömmu
síðar. Fyrri hluta árs 2019 ferð-
aðist Chris Paul Daniels, lista-
og kvikmyndagerðarmaður, um
Ísland til að feta í fótspor Pikes
Ward og festi ferðina á filmu.
Verkið þekur þrjá skjái og er
sýnt á Vegg Þjóðminjasafnsins.
Pike Ward var enskur maður sem kom hingað til Íslands um 26 ára skeið, fyrir fyrri heims-styrjöld, til að sinna fiskkaupum. Hann var
virkur áhugaljósmyndari snemma,
miðað við það sem gerðist á Íslandi.
Þess vegna eru myndir hans svo
áhugaverðar. Þær eru líka teknar
víða um land og á löngu tímabili,“
segir Inga Lára Baldvinsdóttir, for-
stöðumaður ljósmyndadeildar
Þjóðminjasafnsins, þar sem hún
keppist við uppsetningu sýningar
í myndasal safnsins sem opnuð
verður í dag klukkan 14.
Inga Lára segir fiskkaupmann-
inum hafa verið fálega tekið þegar
hann kom til landsins fyrst. „Menn
höfðu ekki áhuga á viðskiptunum
en hann var svo heppinn að komast
strax í kynni við Sigfús Eymunds-
son og Daníel Daníelsson á ljós-
myndastofu Sigfúsar Eymunds-
sonar og þeir höfðu milligöngu
um að koma honum í samband við
útgerðarmenn á Akranesi. Þangað
fór hann strax í fyrstu ferðinni og
keypti fisk. Eftir að Ward fór að
koma hingað reglubundið breyttust
viðhorf Íslendinga til hans. Á stærri
stöðum, eins og Ísafirði og Nes-
kaupstað, var hann með umboðs-
menn og hann kom sér víða upp
geymsluhúsum fyrir saltfisk. Hans
aðall var sá að hann skapaði markað
fyrir smáfisk sem fram að því hafði
ekki verið eftirspurn eftir og smærri
útvegsmenn fengu markað fyrir
sína framleiðslu. Pike Ward borgaði
bara í peningum, þannig að hann
braut þá hefð að menn væru á klafa
hjá einni verslun í sambandi sölu og
úttekt. Hann kom líka með saltskip
og fólk vann fiskinn eftir hans for-
skrift.“
Grunnstefið í myndum Pikes
Ward er fiskverkun sem setti svip
sinn mikið á þorp og bæi á Íslandi
í upphafi 20. aldar, því hún fór
fram utandyra. Hann filmaði þá
sem voru nánastir honum í starfi
en líka krakka á sleða á Vopnafirði
og ein mynd er tekin neðan þilja í
Myndaði fisk og fólk og safnaði fínum munum
„Okkur finnst sýn hans skemmtileg,“ segir Inga Lára um Pike Ward þar sem
hún raðar upp myndum hans í Þjóðminjasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hér klippir
maður mann
utan dyra á
Seyðisfirði.
Börnin fylgjast
spennt með.
MYND/PIKE WARD
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Með Ísland í farteskinu nefnist sýning
sem opnuð verður í dag í Þjóðminjasafn
inu á ljósmyndum og úrklippum, úr fór
um Pikes Ward fiskkaupmanns, frá tíma
bilinu 18931915, ásamt fornum munum.
bát á Norðfirði, það segir Inga Lára
merkilegt því þetta var fyrir daga
flassins.
Inga Lára tekur fram að Þjóð-
minjasafnið eigi ekki myndirnar og
hafi ekki rétt yfir þeim nema núna.
„Við eigum það Katherine Findlay
að þakka að við fáum að sjá þær,
hún var starfsmaður skjalasafnsins
Devon Heritage Archive í Englandi
og hennar Íslandsáhugi varð til þess
að Þjóðminjasafnið hafði spurnir
af myndunum. Safnið veitti okkur
góðfúslegt leyfi til eftirtöku og
sýningar á þeim og ég er sannfærð
um að margir munu sækja í safnið
eftir þetta. Það er frá tímabili sem
við erum ekkert voða sterk í. Á fyrri
hluta þess erum við svolítið bundin
af ljósmyndum frá fáum einstakl-
ingum, því munar um nýtt blóð.“
Fleira er á sýningunni en myndir
því Pike Ward var ekki bara áhuga-
ljósmyndari, heldur líka virkur
safnari verðmætra muna. Hann
hafði peninga milli handa og
keypti alls konar gripi á Íslandi,
allt frá silfurermahnöppum upp í
altaristöflur, fór með þá á skipum,
um leið og fiskinn, og skreytti hús
sitt í Teignmouth með þeim, að sögn
Ingu Láru. „Ward arf leiddi safn í
Bretlandi að mununum að sér látn-
um og það varð að samkomulagi að
Þjóðminjasafnið fengi þá til eignar
árið 1950. Þannig að sýningin núna
er sambland af misstórum stækk-
unum úr úrklippubókum hans
og ljósmyndum og úrval úr gripa-
eigninni. Hlutirnir voru til sýnis í
safninu einhvern tíma eftir að þeir
bárust, en síðari árin bara í litlum
mæli. Ég held þó að það séu tíu grip-
ir úr því í grunnsýningu Þjóðminja-
safnsins og það segir sína sögu um
gæði þeirra. Þetta eru fínir gripir.“
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
9
-8
5
E
0
2
3
B
9
-8
4
A
4
2
3
B
9
-8
3
6
8
2
3
B
9
-8
2
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K