Fréttablaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 98
5
Bíóvarpið
mælir með
(mis)
nýjum
þáttaröðum
Dark Crystal – Netflix
Vönduð brúðufantasía fyrir alla fjölskyld-
una. Byggð á samnefndri kvikmynd Jims
Henson, föður Prúðuleikaranna.
Mindhunter 2 – Netflix
Dramaþættir um rannsóknir bandarísku
alríkislögreglunnar á hugarheimi raðmorð-
ingja á sjöunda og áttunda áratugnum.
The Boys – Amazon Prime
Hárbeittir og frumlegir þættir um ofurhetjur
sem eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Skylduáhorf.
Russian Doll – Netflix
Drepfyndnir og spennandi þættir í anda
Ground hog Day um konu sem endurupplifir
36 ára afmæliskvöldið aftur og aftur.
The Terror – Hulu
Rafmagnaðir períóduþættir sem vefja yfir-
náttúrulegan hrylling saman við illsku
mannsins.
Þáttastjórnendur
Bíóvarpsins,
vikulegs hlað-
varps Frétta-
blaðsins um
bíómyndir og
sjónvarp, tóku
saman laufléttan
lista yfir nokkrar
mis-nýjar þátta-
raðir sem les-
endur mega alls
ekki láta fram
hjá sér fara.
Fjöldi nýrra
sjónvarps-
þátta er í boði
fyrir þá sem
vilja vera inni
í rigningar-
veðrinu og
horfa á
eitthvað
áhugavert.
Hv ítur, hv ítur dag ur er stemningsmynd sem nagar sig hægt og bítandi en af
sívaxandi þunga djúpt í vitund
áhorfenda. Að því gefnu að þeir
hafi ekki stein í hjartastað og þurfi
ekki að láta mata sig með kjaftavaðli
þar sem Hlynur herjar grimmt á til-
finningarnar með ágengu, útpældu
og látlausu myndmáli sem snertir
ýmsa strengi sálarinnar á víxl með
kulda og hlýju.
Ingimundur er lögreglustjóri í
smábæ úti á landi og sem slíkur
mátulega ferkantaður og nokkuð
dæmigerður, tilfinningakrepptur
miðaldra karl sem reynir af veikum
mætti slíkra að takast á við sorgina
þegar hann missir eiginkonu sína í
bílslysi.
Í honum bergmálar hinn ómögu-
legi, alíslenski frumkarlmaður
Bjartur í Sumarhúsum sem sagði
eins og frægt er orðið að „þegar
maður á lífsblóm þá byggir maður
hús“, og því miður f jarar hratt
undan þeim báðum í steinsteypu-
bröltinu.
Lífsblóm Ingimundar er dóttur-
dóttirin Salka og til þess að koma
sér undan því að horfast í augu við
sinn mikla missi leggur hann ofur-
kapp á að gera upp tæplega fokhelt
hús fyrir dóttur sína og barna-
barnið sem er helsti félagsskapur
hans í því stússi. Því miður kemur
það fólki oftast í koll að byrgja til-
finningar sínar inni og leyfa þeim
að krauma þar til upp úr sýður en
það gerist hjá Ingimundi þegar að
honum læðist grunur um að eigin-
konan hafi verið honum ótrú.
Grunurinn verður að þráhyggju
sem hverfist um meintan friðil
hinnar látnu þannig að heltekinn
missir Ingimundur smám saman
tökin á sjálfum sér og því haldreipi
sem Salka er honum.
Þetta samband og sambandsleysi
afa og barnabarnsins er undur-
fagurt og átakanlegt og um leið
undursamlegur kjarninn sem þessi
ljúfsára kvikmynd hverfist um. Að
sjálfsögðu telst það ekki til tíðinda
að Ingvar Sigurðsson sýni stórleik
en hann toppar sig algerlega og fer
með himinskautum í yfirvegaðri
og látlausri túlkun á tilfinninga-
legu gjörningaveðrinu sem geisar
undir köldu yfirborði Ingimundar.
Samleikur Ingvars og Ídu Mekk-
ínar Hlynsdóttur, tíu ára gamallar
dóttur leikstjórans, er svo einfald-
lega galdur þar sem Ída hefur í fullu
tré við stórleikarann þannig að
mann sundlar á köf lum andspænis
tilfinningadýptinni sem þau töfra
fram á tjaldinu.
Ingvar og Ída bera myndina í
raun uppi en eru dyggilega studd
traustum leikurum þannig að
Hlyni tekst að reka smiðshögg á
þétta heildarmynd sem stendur á
föstum grunni seigf ljótandi sögu
sem er allt í senn hugvekjandi,
harmræn og fyndin á milli þess
sem hún verður beinlínis ógn-
vekjandi í takt við spennuna sem
stigmagnast jafnt og þétt á meðan
myndmálið, allt umhverfi, tónlist
og sviðsmynd sá alls konar fræjum
í huga áhorfandans.
Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Hvítur, hvítur
dagur er dálítið bara eins og lífið
sjálft. Ljót, falleg, átakanleg og á
köflum fyndin. Hún kemur róti á
hugann, vekur alls konar hug-
hrif og tilfinningar en þyngstur
er slagkrafturinn í dásamlegum
samleik þungavigtarleikarans
Ingvars Sigurðssonar og hinnar
ungu Ídu Mekkínar Hlynsdóttur.
Ágeng innansveitartragedía
KVIKMYNDIR
Hvítur, hvítur dagur
Leikstjórn: Hlynur Pálmason
Leikarar: Ingvar Sigurðsson, Ída
Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær
Guðnason, Björn Ingi Hilmarsson
Hvítur, hvítur dagur er ljót, falleg, átakanleg og á köflum fyndin mynd.
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R54 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
9
-B
C
3
0
2
3
B
9
-B
A
F
4
2
3
B
9
-B
9
B
8
2
3
B
9
-B
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K