Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 18

Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 18
FÓTBOLTI Erik Hamrén og Freyr Alexandersson, þjálfarar íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, mættu líklega til komandi leikja með nokkuð fastmótaðar hug- myndir um það hvernig þeir ætluðu að stilla byrjunarliðinu upp. Brott- hvarf Jóhanns Berg Guðmunds- sonar setti svo strik í reikninginn og meiðsli Arnórs Sigurðssonar fækka kostunum í kantstöðunum enn frekar. Lífseigar eru þær vangaveltur hvort komið sé að því að gefa Rúnari Alex Rúnarssyni tækifæri í byrjunarliði liðsins og frammi- staða Hannesar Þórs Halldórssonar í leik Vals gegn ÍBV í síðustu umferð Pepsi Max-deildarinnar gaf þeim umræðum byr undir báða vængi. Það er hins vegar gömul saga og ný að Hannes Þór er vanur því að standa sig í stykkinu með lands- liðinu þrátt fyrir misjafna frammi- stöðu með félagsliðum sínum. Hannes Þór stóð sig óaðfinnan- lega með íslenska liðinu þegar liðið hafði betur gegn Albaníu og Tyrk- landi og heldur að öllum líkindum stöðu sinni á milli stanganna hjá liðinu í leiknum í dag. Eina spurn- ingarmerkið í varnarlínunnni er svo hvort Ari Freyr, sem spilaði bæði á móti Albönum og Tyrkjum, eða Hörður Björgvin Magnússon, sem hafði átt fast sæti í liðinu fram að þeim leikjum, hefji leik í vinstri bakverðinum. Fjar vera Jóhanns Berg sem gerði gæfumuninn í sigrinum Fá spurningarmerki hjá íslenska liðinu Gylfi Þór Sigurðsson, Kári Árnason og Birkir Bjarnason verða í eldlínunni með íslenska liðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Mér sýnist flestir leikmenn koma í góðu standi í þessa leiki. Það er auðvitað spurning hvern- ig formið er á Birki Bjarnasyni og Emil Hallfreðssyni sem eru án liðs eins og stendur en þeir eru miklir fagmenn og ég hef engar áhyggjur af þeim. Ég hugsa að Hamrén og Freyr muni halda sig við Hannes í markinu og sömu fimm öftustu varnarmenn og djúpan miðjumann sem spiluðu á móti Albaníu og Tyrklandi. Það verður erfitt að fylla skarð Jóhanns Berg sem var frábær í síðustu leikjum liðsins og er auðvitað einn af lykilleik- mönnum liðsins,“ segir Brynjar Björn Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsmaður og þjálfari kar- laliðs HK í knattspyrnu. „Arnór Ingvi mun að öllum lík- indum byrja á öðrum kantinum og svo þykir mér líklegt að Birkir eða Rúnar Már verði á hinum kantinum. Það fer svo eftir því hvaða leikplan verður sett upp hvernig framlínan verður skipuð. Þar kemur til greina að nýta hraða Jóns Daða og hæfi- leika hans til þess að herja á bak við varnir andstæðinganna, líkamlegan styrk Kolbeins Sig- þórssonar og hæfileika hans við að halda boltanum innan okkar raða eða markanef Viðars Arnar Kjartanssonar,“ segir Brynjar Björn um líklega uppstillingu íslenska liðsins framarlega á vellinum. „Leikirnir gegn Albaníu og Tyrklandi og spilamennska liðsins í þeim leikjum gerir það að verkum að ég fer jákvæður inn í þennan leik við Moldóvu. Þetta eru leikir sem við verðum að vinna og gerum það ef við leikum á eðlilegri getu. Margir leikmenn í okkar liði hafa verið að spila vel bæði í Skandinavíu og á meginlandinu og koma með sjálfstraust inn í þennan leik. Þá kemur Aron Einar Gunnarsson ferskur til leiks frá Katar,” segir þessi fyrr- verandi miðjujaxl. gegn Albaníu og lagði upp fyrra mark íslenska liðsins þegar liðið lagði Tyrkland að velli opnar pláss á öðrum vængnum. Arnór Ingvi Traustason hefur verið að spila vel með Malmö í Svíþjóð á keppnis- tímabilinu og kemur sterklega til greina í þessum leik. Þá hafa Birkir Bjarnason og Rúnar Már Sigurjónsson, sem eru í grunn- inn miðjumenn, verið að leysa kantstöðuna hjá íslenska liðinu í þessari undankeppni. Albert Guðmundsson getur einnig leikið á kantinum vilji þjálfararnir auka sóknarkraftinn. Jón Daði Böðvarsson spilaði svo frábærlega í leiknum við Tyrkland og sú spilamennska gæti f leytt honum í framherjastöðuna. Kol- beinn Sigþórsson hefur verið að spila meira og meira með hverri vikunni sem líður fyrir sænska liðið AIK. Þá hefur Viðar Örn Kjartans- son verið í góðu formi fyrir Rubin Kazan í Rússlandi og gæti hlotið náð fyrir augum þjálfaranna. hjorvaro@frettabladid.is Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Moldóvu í undan- keppni EM 2020 í knatt- spyrnu karla á Laugar- dalsvellinum síðdegis í dag. Þetta er fimmti leikur íslenska liðsins í undankeppninni en liðið hefur níu stig eftir fyrstu fjóra leiki sína. Baráttan verður hörð um sæti í lokakeppn- inni og þrjú stig nauð- synleg í þessum leik. Leikirnir gegn Albaníu og Tyrk- landi og spilamennska liðsins í þeim leikjum gerir það að verkum að ég fer jákvæður í þennan leik við Moldóvu. Brynjar Björn Gunnarsson Mörg jákvæð merki BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 / www.bl.is EIGUM BÍLA Á SÉRKJÖRUM TIL AFHENDINGAR STAX Renault gengur í öll verk með rétta bílinn. Hvort sem þig vantar langan 6 manna, 7 manna pallbíl fyrir vinnuflokkinn eða snarpan og rúmgóðan rafbíl í útköllin. Komdu og veldu þér vinnufélaga. E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 5 9 3 R e n a u lt 3 x a tv in n u b il a a 5 x x 1 e e t RENAULT TRAFIC CREW-VAN 6 SÆTA/FARANGURSRÝMI, DÍSIL, BEINSKIPTUR TILBOÐ: 3.830.645 kr. án vsk. TILBOÐ: 4.750.000 kr. m. vsk. RENAULT MASTER DOUBLE CAB 7 SÆTA/PALLBÍLL, DÍSIL, BEINSKIPTUR TILBOÐ: 3.782.258 kr. án vsk. TILBOÐ: 4.690.000 kr. m. vsk. RENAULT KANGOO EV 100% RAFBÍLL, SJÁLFSKIPTUR TILBOÐ: 3.560.000 kr. OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 7 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 9 -8 F C 0 2 3 B 9 -8 E 8 4 2 3 B 9 -8 D 4 8 2 3 B 9 -8 C 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.