Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 33
Inntaka á glúk
ósamíni eykur
framboð þess í líkam
anum sem þýðir að
viðgerðarhæfni hans
eykst umfram það sem
annars væri mögulegt.
Hrönn Hjálmarsdóttir
Eitt af algengustu vandamálum stoðkerfisins eru verkir í liðum. Mismunandi er í hvaða
liðum verkirnir eru en oft eru það
hnén eða fingurnir sem láta mest
finna fyrir sér. Margir hafa líka
verki í mjöðmum, ökklum eða
öðrum liðum en sama hvar er þá
skal ávallt hafa í huga að kyrrseta
er aldrei til bóta og það er ýmis-
legt hægt að gera til að láta sér líða
betur.
Leiðir til úrbóta
Það er ýmislegt í lífsstílnum sem
hefur áhrif á liðheilsu og því er um
að gera að huga vel að ákveðnum
þáttum sem geta haft jákvæð áhrif
og jafnvel dregið úr verkjum. Þar
ber helst að nefna mataræði og
hreyfingu.
„Mikilvægt er að borða sem
mest af hreinni fæðu og taka inn
bæði D-vítamín og ómega-3,“ segir
Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsu-
markþjálfi hjá Artasan. „Sykur er
alltaf slæmur og getur oft verið
orsök liðverkja. Gott ráð er að taka
hann alveg út sem og að draga
sem mest úr brauðmeti og því sem
inniheldur einföld (og oftast nær-
ingarsnauð) kolvetni. Mín reynsla
er sú að þegar við einblínum á að
borða eingöngu hreina fæðu, getur
það haft gríðarlega jákvæð heilsu-
farsleg áhrif. Borða sem mest af
ávöxtum, grænmeti, fræjum,
hnetum, berjum og baunum ásamt
því að borða egg, kjöt og fisk eins
og hentar. Hver og einn verður þó
að hlusta á eigin líkama og velja
matvæli sem henta. Þegar
við tökum mataræðið
í gegn getur það leitt
til þess að við létt-
umst, sem er í f lestum
tilfellum jákvætt
því ofþyngd reynir
meira á liðina.
Ofþyngd leiðir oft
af sér hreyfingar-
leysi eða minni
hreyfingu en
annars og þannig
myndast víta-
hringur þar sem
þyngd, verkir og
hreyfingarleysi ýta
undir hvert annað,“
segir Hrönn.
„Stundaðu
hreyfingu við
hæfi og styrktu
vöðvana kringum
liðina. Köld böð
geta hjálpað en númer
1, 2 og 3 er að hafa
mataræðið í lagi því
það sem við látum ofan
í okkur hefur lang-
mestu áhrifin á líðan
okkar.“
Glúkósamín í
lausasölu
Glúkósamín er nú
loksins leyft í lausa-
sölu hér á landi en
fjölmargir læknar
hafa um langa hríð
mælt með því fyrir
bætta liðheilsu.
„Glúkósamín er
amínósykra sem
þýðir að það er gert
úr prótínsameind
sem blönduð er við
sykursameind. Líkam-
inn framleiðir sjálfur glúkósamín
en sú framleiðsla minnkar þó með
aldrinum. Inntaka á glúkósamíni
eykur framboð þess í líkamanum
sem þýðir að viðgerðarhæfni hans
eykst umfram það sem annars
væri mögulegt,“ útskýrir Hrönn.
Glukósamín og kondrotín
bætiefnablanda
Glucosamin & chondroitin comp-
lex frá Natures Aid er magnað
liðbætiefni þar sem tekið er á
fjölmörgum þáttum sem tengjast
liðverkjum. Auk glúkósamíns inni-
heldur þetta bætiefni kond rótín
súlfat sem er byggingarefni brjósks
og eru þessi tvö efni því afar
góð blanda fyrir liðina en dags-
skammtur inniheldur 1000 mg af
glúkósamíni og 200 mg af kond-
rótíni ásamt engifer, túrmerik,
C-vítamíni og rósaldini (rosehips).
Engifer og túrmerik eru þekkt fyrir
bólgueyðandi eiginleika og C-víta-
mín stuðlar að eðlilegri myndun
kollagens fyrir eðlilega starfsemi
brjósks. Í hverjum dagskammti
er einnig 25 mg af rósaberjum
(rosehips). Þegar rósaberin eru
unnin eru ákveðin efni í þeim enn
til staðar og hafa flestar rann-
sóknir sýnt fram á að þau dragi úr
verkjum og stífleika og auki virkni
fólks með slitgigt.
Vinnur saman
„Misjafnt er hvað hentar til að
vinna bót á liðvandamálum og
verkjum en fjölmargir notast við
liðbætiefni ýmiss konar. Ég tel að
samhliða heilbrigðu mataræði og
réttri hreyfingu, komi Glucosamin
& Chondroitin complex sterkt þar
inn og ég held að það geti gert stór-
kostlega hluti,“ segir Hrönn.
Nýtt fyrir liðina loksins á Íslandi!
Glúkósamín, sem hefur verið eitt vinsælasta liðbætiefnið erlendis um langa hríð, fæst nú í bæti-
efnaformi hér á landi. Það eykur viðgerðarhæfni líkamans og getur dregið úr liðverkjum.
Glúkósamín er nú loksins leyft í lausasölu hér á landi en fjölmargir læknar hafa um langa hríð mælt með því fyrir bætta liðheilsu.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
2mánaða skammtur
PRÓGASTRÓ GULL innheldur gall- og sýruþolna mjólkursýrugerla
með asídófílus sem margfaldar sig í þörmunum.
Öflugir gerlar bæta þarmaflóruna og eru góðir gegn:
• Meltingarvandamálum
• Magaónotum
• Uppþembu
• Erfiðum hægðum
• Sveppasýkingum
• Húðvandamálum
• Andlegri vanlíðan
1 hylki á dag – 2 mánaða skammtur
Án: mjólkurafurða, glúteins, gers, soya og rotvarnarefna
Öflugur asídófílus
Progastro Gull 5x10 NEW copy.pdf 1 18/12/2017 12:48
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
9
-C
F
F
0
2
3
B
9
-C
E
B
4
2
3
B
9
-C
D
7
8
2
3
B
9
-C
C
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K