Fréttablaðið - 07.09.2019, Side 35

Fréttablaðið - 07.09.2019, Side 35
Varð eins og nýr Ég var þrettán ára þegar sóríasis fór fyrst að láta á sér kræla. Þessi hvimleiði sjúkdómur kom svo og fór næstu árin en þegar ég nálgaðist þrítugt fór ástandið að versna til muna,“ segir Einar Örn Grettisson sem gekk lækna á milli til að fá bót meina sinna og prófaði alls kyns smyrsl og stera sem ekkert bitu á sárin. „Svo gerðist það að ég fór utan til Svíþjóðar í nám og lifði á dósamat og óhollustu sem fátækur námsmaður. Það gerði allt verra enda hefur lélegt mataræði bein áhrif á sóríasis og þegar verst lét var ég undirlagður af stórum sárum og hrúðri á handleggjum og fótleggjum og hættur að geta sofið á nóttunni fyrir viðstöðulausum kláða. Þá upplifði ég í fyrsta skipti örvæntingu og að sjúkdómurinn olli mér verulegu hugarangri,“ segir Einar sem hóf aftur göngu á milli húðlækna og meltingarlækna í von um lækningu, en hjálpin kom frá móður Einars sem starfar í heilbrigðisgeir- anum. „Mamma hafði heyrt um árangur Psoria kremsins frá Kerecis og þá var ekki eftir neinu að bíða. Ég dreif mig í að kaupa kremið, bar það á sárin í þrjá daga og fann fljótlega mun. Kremið sló strax á kláðann og í dag finn ég ekki fyrir neinu og sef vært allar nætur,“ segir Einar. „Sóríasis lýsir sér með slæmum sárum sem líta út fyrir að vera að gróa en gera það ekki. Mann klæjar mikið í þau og hjá mér var þetta komið upp að öxlum og í hársvörðinn líka. Í dag sést ekki á mér að ég sé með sóríasis og það háir mér ekkert. Ef ég finn fyrir einkennum ber ég strax á mig MariCell™ Psoria og finn að allt lagast fljótt og vel. Fyrir mig var MariCell™ Psoria lausnin en það er eina kremið sem hefur virkað á mig alla leið.“ Kerecis kynnir MariCell™, íslensk húðkrem sem innihalda mOmega-3™ fjöl ómettaðar fitusýrur, ávaxta- sýrur og karbamíð. Kremin eru CE-merkt og flokkast því ekki sem snyrtivörur heldur lækninga- vörur. Þau innihalda hvorki stera né parabena og með ávísun læknis greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta kostnaðarins. MariCell™kremin eru þróuð af dr. Baldri Tuma Baldurssyni húð- sjúkdómalækni og eru framleidd á Ísafirði. Kremin eru notuð til að meðhöndla ýmis húðvandamál, en á markaði eru fjórar tegundir af MariCell™ kremum sem gefið hafa góða raun. MariCell™ PSORIA er einstak- lega virkt krem sem er sérþróað til meðhöndlunar á þykkri og hreistr- aðri húð og einkennum sóríasis. Það meðhöndlar hreistraða húð og einkenni sóríasis, dregur úr kláða, losar húðflögur, er rakagefandi og eykur vatnsbindigetu húðarinnar. Kremið inniheldur mOmega-3™ fjölómettaðar fitusýrur og byggir á íslenskri einkaleyfavarinni tækni. Hvernig virka MariCell™ kremin: Hægt er að líkja ysta lagi húðarinnar við múrsteina með steypu á milli. Múrsteinarnir eru frumur húðarinnar sem eru límdar saman með blöndu af fitu og próteinum. Þetta lím, sem kalla má millifrumuefni, er ríkt af fjölómettuðum fitusýrum og öðrum efnum. Fitusýrurnar halda hyrnislaginu mjúku og vatns- heldu. Undir ákveðnum kringum- stæðum virkar millifrumuefnið alls ekki, það heldur ekki vatni en límir frumurnar saman þannig að þær hrönglast upp á yfirborði húðarinnar. Þetta gerist einkum á stöðum eins og höndum og oln- bogum. Ástæður þessa geta verið vegna ytra áreitis eða sjúkdóma, eins og sóríasis. Hreistur myndast þegar mikið magn dauðra fruma safnast á yfirborði húðar og hún byrjar að flagna, sem veldur kláða og óþægindum. MariCell ™ PSORIA inniheldur þrjú efni sem vinna saman að því að auka heilbrigði millifrumu- efnisins í hyrnislaginu: l mOmega3™ , l 5% ávaxtasýru l 5% karbamíð Sölustaðir: Apótek MariCell™ PSORIA meðhöndlar einkenni sóríasis Kerecis kynnir Wound – náttúrulegt sárasprey sem inniheldur olíu úr Jóhannesarjurtinni og Neem- olíu. Sáraspreyið er til dæmis hentugt til að meðhöndla: núningssár, væg bruna- sár, sár eftir blöðrur, sár eftir inngróna nögl, litla skurði og skrámur. Wound spreyið er 100 prósent nátt- úrulegt og án rotvarnarefna. Það hefur örverueyðandi eiginleika og samverk- andi áhrif náttúrulegu olíanna hjálpa til við sáragróanda. Sáraspreyið er CE merkt lækninga- tæki og nú þegar fáanlegt í apótekum. Wound sáraspreyið er einfalt og þægilegt í notkun: Hreinsið sárið vel með hreinu vatni eða saltlausn. Hristið brúsann vel. Spreyið úr fimm til tíu senti- metra fjarlægð á húð og umhverfis sárið. Hyljið með umbúðum sem henta hverju sinni. Wound – nýtt sárasprey frá Kerecis Wound er náttúrulegt sárasprey sem flýtir fyrir góðum sáragróanda. Meðhöndlar og kemur í veg fyrir sigg, þykka húð og sprungna hæla Meðhöndlar erta húð og einkenni exems Meðhöndlar bólur á upphandlegg, lærum eða lendum. Minnkar líkur á inngrónum hárum. Meðhöndlar hreistraða húð og einkenni sóríasis FOOTGUARD™XMA SMOOTHPSORIA m eð m O m eg a3 TM m eð m O m eg a3 TM m eð m O m eg a3 TM m eð m O m eg a3 TM Fyrir sprungna hæla og fótasigg Fyrir auma, rauða og bólgna húð með kláða Fyrir bólur á upp hand legg, raksturs bólur og inngróin hár Fyrir þykka og hreistraða húð með kláða FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 0 7 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 0 4 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B 9 -E 3 B 0 2 3 B 9 -E 2 7 4 2 3 B 9 -E 1 3 8 2 3 B 9 -D F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 0 4 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.