Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 78

Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 78
HEIMILDAÞÁTTUR Í KVÖLD 21:15 Tryggðu þér áskrift Stöð 2 Sport frumsýnir sérstakan heimildaþátt um sigursælasta handboltaþjálfara þjóðarinnar, Alfreð Gíslason sem fagnar 60 ára afmæli sínu í dag. Henry Birgir spjallar við Alfreð um feril hans og hvað tekur við eftir 11 ára starf hjá Kiel í Þýskalandi. Elsa Pétursdóttir móðuramma „Ég hef ekki áhyggjur af því hvernig Áslaug mun standa sig. Hún hefur svo margt að gefa. Ég hef aðeins áhyggjur af álaginu, þetta verður vinna, en hún er dugleg og úrræðagóð og ég treysti henni til að takast á við þetta. Svo hefur hún svo góða og þægilega framkomu,“ segir Elsa. Hún segir Áslaugu alla tíð hafa verið á kafi í félagsmálum. „Það hvarflaði ekki endilega að mér að stjórnmál kæmu inn í myndina, en þegar ég sá hana á landsfundi og hún tók við ritaraembættinu þá sá ég að sennilega yrði ekki aftur snúið.“ Elsa segist hafa lært af barna­ barninu að leiða hjá sér gagnrýni sem fylgir lífi stjórnmálamanns. „Þetta getur verið hart og leiðin­ legt. Ég er ekki á samfélagsmiðl­ unum svo ég sé ekkert þar, en sumt kemst maður ekki hjá því að sjá. Mér finnst leiðinlegt og sorglegt hversu margar neikvæðar raddir heyrast í okkar samfélagi, en ég hef lært það af Áslaugu að taka þetta ekki inn á mig. Hún hefur raunar kennt mér margt, og ég vona að ég hafi kennt henni eitthvað líka.“ Að strauja? Þú ert stundum í aðalhlutverki á samfélagsmiðlum Áslaugar með straujárn í hendi? Elsa hlær. „Ég þarf ekki að hjálpa henni, en hún er svo elskuleg og veit að ég hef gaman af því, en jú, ég aðstoða stundum við heimilis­ störfin. Ég get ekki aðstoðað við stjórnmálin, en í heimilisstörf­ unum hef ég heilmikið fram að færa. Mér finnst svo gaman að vera með Áslaugu Örnu því hún er svo þægileg, elskuleg og tillitssöm. Hún bjargar sér sjálf, en ég hef stundum troðið mér inn. Maður reynir samt að vera ekki afskipta­ samur en miðla samt af reynslunni og hún miðlar mér af sinni reynslu.“ Elsa segir Áslaugu hafa verið stjórnsamt barn. „Hún stýrði mál­ unum og það gerði mamma hennar heitin líka. Það hvarflaði nú ekki að mér að það myndi leiða til þess að hún færi að stjórna heilu ráðuneyti. Hún tekur bæði eftir mömmu sinni og pabba, en þetta hefur hún frá mömmu sinni; að stýra hlutunum, koma í fram­ kvæmd og vera ekkert að mikla neitt fyrir sér. Alltaf jákvæð. Ég er svo glöð og stolt af henni.“ Hildur Björnsdóttir vinkona „Þegar ég tók sæti á framboðs­ listanum í borginni var enginn sem veitti mér betri móttökur en Áslaug. Hún er frábært dæmi um konu sem stendur með öðrum konum. Hún er með skýran pólitískan áttavita og er óhrædd við að fylgja sinni sannfæringu – en hugrekkið er að mínu viti einn stærsti kostur stjórnmálamanns,” segir Hildur. „Það fer ekki fram hjá nokkrum manni þegar Áslaug gengur inn í herbergi, hún er auðvitað með kraftmikla rödd sem hæfir vel stjórnmálakonu. Við vinkonur hennar köllum það „hina óað­ finnanlega raddbeitingu“ enda dettur okkur ekki í hug að liggja á hvísli með Áslaugu, slíkur er radd­ styrkurinn.“ Hildur segir Áslaugu jákvæða og drífandi. „Hún hefur leitað leiða til að nútímavæða flokksstarfið. Hún hefur sýnt að hún getur fengist við flókin viðfangsefni og ekkert virðist henni ofviða. Það er ekki annað hægt en að vera stoltur af þessari kraftmiklu vinkonu. Ég hlakka til að fylgjast með henni í starfi dómsmálaráðherra.“ Svanhildur Hólm Valsdóttir vinkona og vinnufélagi „Áslaug er mjög merkilegt eintak af manneskju. Eldri en árin sem hún hefur lifað, og með alveg risa­ stórt og afar rúmgott hjarta,“ segir Svanhildur. „Hrafnhildur, yngsta dóttir mín, hefur tekið sérstöku ástfóstri við hana og telur Áslaugu alltaf með systrum sínum. Besta sem hún veit er að fá að gista hjá Áslaugu sinni, sem flutti tannburstann hennar Hrafnhildar með í nýju íbúðina úr Stakkholtinu í sumar.“ Svanhildur segir Áslaugu mikla fjölskyldumanneskju. „Hún á mjög sterkt og gott samband við systkini sín. Ég held líka að það að alast upp með systur með fötlun hafi mótað Áslaugu mjög mikið og gefið henni innsýn í þann heim sem hún hefur skilað í gegnum vinnuna. Áslaug er fær stjórnmála­ maður. Klár, dugleg, vandvirk og huguð. Hún kann sig og kemur vel fyrir en í eðli sínu er hún algjör skellibjalla sem á ekki innirödd, ofsalega skemmtileg og mikill vinur vina sinna.“ Nanna Kristín Tryggvadóttir vinkona „Mér finnst eins og ég hafi alltaf þekkt Áslaugu. Hún er eins og þriðja systir og ég finn fyrir ógur­ legu stolti þegar hún tekur við þessu verkefni, sem ég veit að hún mun sinna af festu og röggsemi,“ segir Nanna. „Áslaug er traust, fyndin og dugleg. Ég þekki engan sem á jafn auðvelt með að laða að sér fólk. Þrátt fyrir þétta dag­ skrá gefur hún sér alltaf tíma fyrir mann. Hún hefur sérstakt lag á því að sameina. Fyrir nokkru ákváðum við að skella okkur í einkaþjálfun, til að taka okkur á eftir prófkjörs­ baráttu með tilheyrandi pitsuáti og sukki. Áslaug, þessi félagslynda týpa, var áður en ég vissi af búin að hóa í átta manna holl af stelpum sem komu allar hver úr sinni átt­ inni. Þarna hugsaði mín kona út fyrir rammann í annars þéttri dag­ skrá, að eiga tíma með vinkonum tvisvar í viku kl. 6.30. Ómannlegt markmið. Ef Áslaug væri ekki svona skemmtileg er ég ekki viss um að þetta hefði enst lengi, en þarna varð úr nýr vinahópur sem hittist tvisvar í viku, á ókristilegum tíma, í þrjú ár. Og mikið er alltaf gaman!“ MAÐUR REYNIR SAMT AÐ VERA EKKI AFSKIPTA- SAMUR. EF ÁSLAUG VÆRI EKKI SVONA SKEMMTILEG ER ÉG EKKI VISS UM AÐ ÞETTA HEFÐI ENST LENGI. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir vinkona og vinnufélagi „Áslaug Arna er óhrædd og ábyrg. Hún er töffari sem tekur sig ekki of alvarlega en tekur verk­ efnin alvarlega. Hún er fáránlega skemmtileg, full af lífi og ein dug­ legasta manneskja sem ég þekki. Ég er mjög stolt af henni." 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B 9 -B 7 4 0 2 3 B 9 -B 6 0 4 2 3 B 9 -B 4 C 8 2 3 B 9 -B 3 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.