Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER2006
Vegur í
Hálsasveit
BORGARFJÖRÐUR: Byggða-
ráð Borgarbyggðar hefur falið
dreifbýlisfulltrúa sveitarfélagsins
að semja við verktaka um vinnu
að vegi frá Augastöðum að Húsa-
felb. Þetta var ákveðið í kjölfar
þess að Vegagerðin ákvað að
veita 500 þúsund krónum úr
styrkvegasjóði í gerð vegarins.
-hj
Kaupir
hvalíjordur.is
HVALFJARÐARSVEIT:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefur samþykkt að kaupa heima-
síðuna www.hvalfjordur.is af
Daníel Ottesen, Búnaðarfélagi
Hvalfjarðar og Stéttarfélagi Vest-
urlands. Kaupverðið er 320 þús-
und krónur sem er í raun endur-
greiðsla á útlögðum kostnaði
umræddra aðila vegna síðunnar.
Jafnffamt var samþykkt að félög-
in hafi áffarn aðgang að síðunni
og geti birt þar efrii og kynnt
starfsemi sína. -hj
Viðræður um
strætó að hefjast
S.HEIÐAR: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt ósk sveitarstjóm-
ar Hvalfjarðarsveitar um að heija
viðræður um hugsanlega þátt-
töku Hvalfjarðarsveitar í samn-
ingi Akraneskaupstaðar og
Strætó bs. um ferðir milli
Reykjavíkur og Akraness. Eins
og ffarn kom í fréttum Skessu-
horns á dögunum samþykkti
sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
ályktun þess efist að þess yrði
ffeistað að sett yrði upp stoppi-
stöð fyrir Akranessvagninn við
Hvalfjarðargöng norðanverð og
einnig að hafnar yrðu viðræður
við Borgarbyggð um frekara
skipulag og samstarf um strætó-
ferðir við þjóðveg nr. 1. Fyrir
nokkru síðan hafhaði bæjarráðið
ósk einstaklinga í Hvalfjarðar-
sveit um að komið yrði upp bið-
stöð við göngin. Nú hefur ráðið
hins vegar fahð bæjarstjóra að
boða fulltrúa Hvalfjarðarsveitar
til fundar um máhð. -hj
Tillaga um
strandsiglingar
ALÞINGI: Þingmenn Vinstri-
grænna og Frjálslynda flokksins
hafa endurflutt á Alþingi þings-
ályktunartillögu um strandsigl-
ingar. Þar kemur ffam að Alþingi
ályktd að fela samgönguráðherra
gð undirbúa að strandsiglingar
verði hluti af vöruflutninga- og
samgöngukerfi landsins. Ráð-
herra móti stefnu og aðgerðará-
ætlun og leggi ffam lagaffum-
vörp í þessu skyni, ef með þarf,
þannig að ríkið geti tryggt reglu-
legar strandsiglingar til allra
landshluta með því að bjóða út
sighngaleiðir. Þá verði kostnaður
við slíkar siglingar metinn og
hvaða leiðir skuli bjóða út. Nið-
urstöður verði lagðar fyrir Al-
þingi eigi síðar en 1. febrúar
2007. -hj
Innheimta heilsugæslukostnaðar
verður að byggjast á samningi
Svo virðist sem að reikningur sá
sem framkvæmdastjórn Heilsu-
gæslustöðvarinnar í Olafsvík sendi
skipulagsnefnd Færeyskra daga í
Ólafsvík standist ekki lög. Sem
kunnugt er fékk skipulagsnefiidin
fyrir skömmu sendan reikning að
fjárhæð 300 þúsund krónur sem
sagður er hluti kostnaðar við vinnu
starfsfólks Heilsugæslustöðvarinnar
á meðan á hátíðinni stóð. í samtali
við Skessuhorn á dögunum sagði
Björg Bára Halldórsdóttir fram-
kvæmdastjóri stöðvarinnar það al-
kunna að þeir sem héldu útihátíðir
greiddu fyrir heilsugæslukostnað
sem þar færi fram. Hún sagði
einnig að það yrði að koma í ljós
hvort innheimta sem þessi stæðist
lög.
Svanhvít Halldórsdóttir deildar-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu segir
í samtali við Skessuhorn að inn-
heimta sem þessi þurfi að byggjast á
samkomulagi milli aðila. Það sé
grundvöllur þess að heilsugæslu-
stöðvar geti innheimt slíkan kosm-
að. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá
sig um innheimtu Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Olafsvík. HJ
Fasteignafélag stofiiað um byggingu
Menntaskóla Borgaríjarðar
Borgaríjarðar ehf.
nú í fyrsta sinn út-
hlutað ríkisfbam-
lagi samkvæmt
fjárlögum ársins
2007. Um er að
ræða 52 milljónir
króna sem fara
annars vegar til
undirbúnings og
hins vegar til
skólahalds næsta
vetrar. Að sögn
Tbrfa er ffamlag- Torfi Jóhannesson og Haraldur L Haraldsson, ráðgjafi hjá Nýsi
ið í samræmi við handsala hér samninginn um undirbúning aí stofnun fasteigna-
áætlanir stjómar- fílags Menntaskóla Borgarfiarðar.
Ymiss undirbúningur vegna
Menntaskóla Borgarfjarðar er nú í
fullum gangi. Síðastliðinn miðviku-
dag var skrifað undir samning milh
stjórnar skólans og Nýsis um að
vinna að undirbúningi stofnunar
fasteignafélags sem áætlað er að taki
til starfa 15. nóvember nk.. „Nýja
fasteignafélagið verður í helming-
seigu Menntaskóla Borgarfjarðar
ehf. annarsvegar og Nýsis hinsvegar
og er stofnað um byggingu og rekst-
ur fasteignar skólans. Eg lýsi yfir
mikilli ánægju með að hafa fengið
Nýsi í samstarf um þetta stóra verk-
efni enda hefúr það fyrirtæki mikla
reynslu á þessu sviði og nægir að
nefna dæmi um Iðnskólann í Hafiti-
arfirði, aðkomu fyrirtækisins að
nokkrum grunnskólum og fleiri
skólastofnunum á öllum skólastig-
um,“ sagði Torfi Jóhannesson, for-
maður stjórnar skólans í samtali við
Skessuhorn.
Eins og greint var ffá í Skessu-
horni í liðinni viku fær Menntaskóh
innar. „Við höfum verið í góðu sam-
bandi við fúlltrúa menntamálaráðu-
neytisins og óhætt er að segja að
menntamálaráðherra sýni skólanum
mikinn áhuga. Ríkisffamlög til skól-
ans eru reiknuð út ffá áætluðum
nemendafjölda og munu fara stig-
hækkandi næstu árin.“ Torfi segir
undirbúning ganga vel. „Fyrir utan
stjórnina er skólanefnd að móta
innra starf skólans og bygginga- og
ffamkvæmdanefnd stýrir hönnun og
gerð útboðsgagna. Ef áætlanir okkar
standast munu verklegar fram-
kvæmdir hefjast í lok þessa mánaðar
eða byrjun þess næsta. Forsenda
allrar okkar vinnu gengur út á að
halda áætlun um að skólinn taki til
starfa haustið 2007 og mér sýnist
það ætla að ganga effir.“ MM
Góður firndur starfsmanna og
stjómar á Bifröst
Formaður háskólastjórnar á Bif-
röst segir stjórn og starfsmenn Há-
skólans á Bifföst sammála um að
gera góðan skóla ennþá betri og
horff verði ffam á veginn. Formaður
starfsmannafélagsins segir stjórn
skólans hafa tekið athugasemdum
félagsins vel og næstu skref séu í
höndum stjórnar skólans.
I síðustu viku kom stjórn Háskól-
ans á Biff öst ásamt rektor og aðstoð-
arrektor saman til fundar með stjórn
nýstofnaðs Starfsmannafélags Há-
skólans á Bifföst. Eins og ff am hefur
komið í fféttum Skessuhoms var
helsta rótin að stofnun félagsins óá-
nægja með starfshætti rektors og
stjórnar skólans að undanförnu. I
ályktun sem samþykkt var á félags-
fundi vom gerðar ýmsar athuga-
semdir við ýmsa þætti í rekstri skól-
ans og bent á að hæfir starfsmenn
skólans hafi að undanförnu sagt upp
störfum og töldu félagsmenn ástæðu
til að óttast að til fleirri uppsagna
gæti komið. Jafnffamt var óskað eff-
ir fúndi með stjórn skólans.
Hólmffíður Sveinsdóttir, formað-
ur Starfsmannafélagsins segir fund-
inn hafa verið góðan. Þar hafi starfs-
menn lagt ffam tillögur um hvernig
betur mætti standa að stjóm skólans
og þeim hefði verið vel tekið af
stjórn skólans. Framhald málsins
væri því í höndum stjómarinnar.
Guðjón Auðunsson, formaður há-
skólastjórnar segir fundinn í gær
hafa verið afar góðan. Starfsmanna-
félagið hafi lagt ffam ýmsar hug-
myndir og vinna við framkvæmd
sumra þeirra sé þegar hafin og aðrar
séu í skoðun. „Stjórn skólans og
starfsmenn eru sammála um að
horfa að mestu ffam á veginn en
ekki í baksýnisspeglinum. Allir aðil-
ar málsins em sammála um að gera
góðan skóla ennþá betri í ffamtíð-
inni.“ HJ
Stækkun Hótel Stykkishólms fyrirhuguð
Leyfi hefur fengist fyrir stækkun
Hótels Stykkishólms, að sögn Pét-
urs Geirssonar eiganda hótelsins.
Fyrirhugað er að byggja við hótelið
rými fyrir um 28-30 herbergi. Pét-
ur segir málið
komið í gegnum
kynningarferli
og lögformlegt
ferli hjá bæjar-
stjórn og öll
leyfi séu fengin.
Ekki sé hins
vegar á hreinu
hvenær af ffamkvæmdum verði.
„Það gæti orðið í ár, á næsta ári,
eða þarnæsta. Eg er nú þannig
gerður að ég er lengi að taka
ákvarðanir og undirbý hlutina vel
en ffamkvæmi þá skjótt þegar ég fer
af stað,“ segir Pétur. Hann er með
fleiri járn í eldinum því hann hefur
unnið að því undanfarið að reisa
tvö sumarhús sem hann er með til
sölu. Hann sótti um að fá að geyma
þau tímabundið á lóð hótelsins og
varð það til þess að margir héldu að
húsin væru hugsuð sem viðbót við
hótelið. Svo er þó ekki, þau eru til
sölu og verða geymd við Hamra-
enda 4 þar sem áhugasamir geta
skoðað þau.
KÓP
Styrkja
tækjakaup
FAXAFLÓAHAFNIR: Stjórn
Faxaflóahafna hefur samþykkt að
styrkja kaup á sneiðmyndatæki
fyrir Sjúkrahúsið og heilsugæslu-
stöðina á Akranesi um eina millj-
ón króna. Eins og ffam hefur
komið í Skessuhorni hrundu
nokkrir einstaklingar af stað
söffum til kaupa á slíku tæki og á
dögunum samþykkti Akranes-
kaupstaður að veit tveimur millj-
ónum króna í söfiiunina. -hj
Viðræður um
landssölu
HVALFJARÐARSVEIT:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
samþykkti í síðusm viku að hefja
viðræður við Trésmiðjtma Akur
ehf. á Akranesi um hugsanlega
sölu landsspildu í eigu sveitarfé-
lagsins í landi Fögrubrekku.
Spildan er um þrír hektarar að
stærð og liggur á milli Fögru-
brekku og Akraness ofan við bæ-
inn Asfell. Aðtu höfðu tveir aðrir
aðilar lýst áhuga sínum á kaupum
á umræddu landi. -hj
Landsþing
hestamanna
BORGARNES: Landsþing
Landssambands hestamannafé-
laga (LH) verður haldið á Hótel
Borgarnesi dagana 27. og 28.
október. Jón Albert Sigurbjöms-
son formaður LH, setur þingið
föstudaginn 27. október klukkan
13:00. Effir hefðbundin aðal-
fúndartörf hefst nefndarstarf og
munu nefndir skila af sér á laug-
ardagsmorgni. Á laugardeginum
fer einnig ffam kosning í stjóm
LH, en ljóst er að nýr formaður
verður kjörinn þar sem Jón Al-
bert ætlar ekki að gefa kost á sér
til áframhaldandi formennsku.
Aætlað er að þinginu verði slitið
klukkan 16:00 og khikkan 19:00
hefst þingfagnaður. Makar þing-
fulltrúa þurfa ekki að láta sér
leiðast þar sem farið verður í
makaferð á laugardeginum. Um
20 tillögur fyrir þinginu sem
hægt er að nálgast á slóðinni
www.lhhestar.is -kóp
Lokuð í
klukkustund
HVALFJ.GÖNG: Ilvalfjarðar-
göngin vom lokuð í tæpa klukku-
stund síðdegis á föstudag eftir að
bíll valt í göngunum. Slysið var
ekki eins alvarlegt og talið var í
fyrsm og reyndist ökumaður bif-
reiðarinnar heill effir veltuna.
Mikil biðröð bíla myndaðist við
báða enda ganganna og var um-
ferð hæg í báðar áttir eftir að um-
ferð var aftur hleypt á göngin og
stöðug bílalest í báðar áttir, enda
einn mesti álagstími vikunnar.
Undanfarnar vikur hafa óhöpp í
göngunum verið tíð og hefúr það
meðal annars bitnað á dúknum
sem klæddur er inn á göngin að
hluta. Rétt er að ítreka við öku-
menn að virða hraðatakmarkanir
í göngunum og vera vel vakandi
við aksturinn! -mm
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is