Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 SfflÉSSMMOBKI •# 5 Martnlýsing Mér er sagt að á karlaklósettinu sé sérstakt samfélag sem okkur kon- um er ómögulegt að komast inn í eða skilja. Á dögunum rakst ég á mannlýsingu sem einhver góður hafði tekið saman, eftir reynslu sína á karlaklósettinu. SKAPBRÁÐUR: Hefur farið í nærbuxumar öfugar, finnur ekki klaufma - rífur buxumar. FÉLAGSLYNDUR: Pissar með vintun sínum hvort sem honum er mál eða ekki. RANGEYGÐUR: Horfir til hinnar skálarinnar til að sjá hvem- ig hinn náunginn er útbúinn, piss- ar út fyrir. HLÉDRÆGUR: Getur ekki ef annar horfir á - skolar niður og kemur aftur seinna. KÆRULAUS: Allar skálar upp- teknar - pissar í vaskinn. SNIÐUGUR: Heldur ekkert, lagar bindið, horfir í kringum sig pissar venjulega á gólfið ÁHYGGJUFULLUR: Er ekki viss um hvar hann hefur verið undanfarið gerir skyndikönnun. MON'l'ÍNN: Beinir bununni á móti straumnum, þvers og krass um skáhna, reynir að hitta flugu. UTAN VIÐ SIG: hneppir ffá vestinu, tekur út bindið - pissar í buxumar. BARNALEGUR: Btmar beint í botn á skálinni, finnst gaman að sjá freyða. LAUMULEGUR: Prampar hljóðlega á meðan hann pissar, lít- ur sakleysislega út, veit að náung- anum við næstu skál verður kennt um. ÞOLINMÓÐUR: Stendur lengi kyrr og bíður - les með lausu hendinni. BRÁÐLÁTUR: Biður í langri röð, gnístir tönnum - pissar í bux- umar. KALDUR KARL: Slær tólinu í skálarbarmana til að hrista af því. HAGSÝNN: Býður þar til hann þarf að gera meira - sameinar hvoratveggja. FEITUR: Bakkar frá skáhnni - bunar í blindni - hittir á skóinn. LÍ'l'JLLL: Stendur upp á kassa - dettur í skálina og drukknar. FULLUR: Tekur vinstri þumal- fingur í hægri hendi - pissar í bux- umar. ÓÞOLINMÓÐUR: Stendur augnabhk - gefst upp - gengur burt. HÉGÓMLEGUR: Heldur öllum fimm sentímetrunum eins og sleggjuskafd - reigir sig Annars flokks gúrkur Á árunum þegar ég var í vinnu á Borgfirðingi sáluga, tók ég m.a. viðtal við garðyrkjubónda í Borg- arfirði. Þar var rætt um allt er við- kom ræktun, plöntum og mark- aðssetningu afurða. Þar kom í við- talinu að bóndinn sagði að ein- ungis fyrsta flokks afurðir væra teknar til sölu hjá sölusamtökun- um. Er hann var ynntur eftir því hvað gert væri við annars flokks af- urðir, t.d. annars flokks gúrkur, sagðist hann gefa þær nunnunum í Hafiiarfirði. Þetta fór auðvitað í blaðið, eins og það var sagt, trndir gæsalöppum. Einn lesandi sá ástæðu til að hringja í ritstjóra og hella sér yfir hann fyrir að svívirða þessar ágætu konur. Það eina sem ritstjórinn gat sagt var: „Hverslags hugsungarhátt ert þú með maður minn?“ Fátt er við því að gera þótt saurugar hugsanir mengi þanka- gang manna. Ekki fleiri sögur úr sveitinni að sinni. Meira síðar. Umýón: Bima Konráðsdóttir l^mninn^. Nýsköpun atvinnu og borgfirsk upplifun... Borgarfjörð- ur breytist hratt þessi misserin. Kýr eru að verða sjaldséðar, slát- urhúsið farið, bílaverkstæði nær engin eftir en um hverja helgi streyma flotar bíla í hérað og úr um tjargaðar stofnbrautir er liggja allt fram í Húsafellsskóg. Á dögunum sá ég hæla í vegkanti neðst í Lundar- reykjadal sem benda til þess að nú eigi að fara að eiga við veginn þar líka - ég hélt þó að hann væri kom- inn á minjaskrá Byggðasafnsins. Betri samgöngum fylgir hins vegar fleira fólk og fleira fólk kallar á við- fangsefni bæði til uppihalds, starfa og leiks. Mig langar til þess að nefha þrennt því tengt sem ég hafði kynni af um síðustu helgi í september: I gömlu hústmum í Englendinga- vík í Borgamesi hefur verið sett upp sýning um hin döpra örlög rann- sóknaskipsins Pourqui Pas? og áhafnar þess. Sýningin sjálf, húsið, sem hýsir hana, og nánasta umhverfi falla saman í eina og merkilega heild svo það er upplifun að njóta hennar. Ása Harðardóttir safristjóri hefur með sínu fólki unnið ffábært verk með sýningunni sem ég hvet alla les- endur blaðsins til þess að skoða og njóta líka. Ekki langt undan, sunnar við sömu fjöra er Landnámssetrið. Fyrr í sumar höfðum við notið kvöldsögu Benedikts Erlingssonar, Mr. Skalla- grimsson, sem er upplifun en nú skoðuðum við Landnámssýninguna. Þótt ekki sé hún stór er hún sam- þjöppuð og þannig gerð að hún rifj- ar upp, ffæðir og tengir saman sögu og umhverfi, ekki síst borgfirskt um- hverfi; hentar öllum, yngri og eldri. Með Landnámssetrinu er að spretta fram dálítið umhverfi til upplifunar og fræðslu þarna við Brákarsund þar sem skammt er til Englendingavíkur, Safhahússins og fleiri sögustaða. Ogn vandræðalegt skipulag framandi mannvirkja sem þama era að spretta upp þrengir að vísu illa að svæðinu. Gert er gert og þá er bara að hugsa til fjörunnar og sundsins og þá ekki síst Brákareyjar- innar sem með hæfilegri tiltekt og hugvitsamlegu skipulagi nýtingar getur orðið magnað svæði til margs- konar upplifunar og viðfangs á grundvelli þess sem þarna er þegar hafið. Síðan bar mig upp í Reykholt þar sem mér hafði verið ædað að standa fyrir norrænum vinnufundi. Við fengum inni á hótelinu þar og hlut- um góðan viðurgeming. Öll aðstaða þess er orðin hin ágætasta, rúmgóð herbergi og vel búin, fínar setustof- ur og þá ekki síður heilsu- og hress- ingaraðstaða þar sem gestír geta á síðkvöldum gengið til laugar að hætti Snorra: skrafað, skeggrætt og hugsað djúpt og langt. Þama er aug- ljóslega orðið til eitt af betri hótel- um landsins og ekki spillir nábýlið við Snorrastofu og Reykholtskirkju. Þetta era aðeins fáein dæmi tun nýsköpun atvinnu hér í Borgarfirði sem engin ástæða er til þess að þegja jdir. Gtillni hringurinn er góður en mér sýnist óðum fjölga spennandi á- fangastöðunum sem ferðamenn eiga kost á hér á þessum hluta Vestur- lands - þetta em ekki bara áfanga- staðir aðkominna ferðamanna held- ur staðir sem héraðsmenn ættu líka að heimsækja og hafa orð á við vini sína og kunningja. Bjami Guðmundsson Hvanneyri 7^enainn~t± Byggðamálaráðhrerra og kóngur í borgríkinu? Nýkjörinn formaður Framsóknar- flokksins ætlar nú að sækja um vinnu sem alþingismaður í Reykjavík. Þjóð- hyggjumaðurinn Jón Sigurðsson getur þá setið þar og hlúð áffam að borgríkinu sem flokkur hans og Sjálfstæðisflokkurinn hafa verið að byggja upp á valdatíma sínum. Formaður Framsóknar slær þessa dagana gjarnan um sig með frösum um að flokkurinn og ríkisstjórnin ædi að byggja upp gróandi þjóðlíf í öllum byggðtun landsins. Alvarlegar spurningar um ein- lægni í þeim orðum hljóta að vakna rýnt er í greinina „Byggðarmemað- ur og þjóðarmetnaður,“ sem birtist í Borgfirðingabók 2004 - Ársrití sögufélags Borgarfjarðar. Höfund- ur hennar er Jón Sigurðsson. Þá var hann seðlabankastjóri, og hafði um langt skeið verið einn af helsm hug- myndafræðingum Framsóknar. I þessari grein lýsir Jón ffamtíðarsýn sirmi á þróun byggðamála á Islandi. I dag er hann byggðamálaráðherra. Borgríkið og landsbyggðin Strax í upphafi greinar sinnar kveður Jón upp afdráttarlausan dóm yfir byggðum landsins: „Islenska sveita- og þorpasamfé- lagið er úr sögunni. I stað þess er hér risið nokkurs konar borgríki, samfélag sem ber mjög ólík ein- kenni og lýmr allt öðram lögmál- um. Islendingar standa nú í rót- tækri samfélagsbreytingu sem sést á breytínum í byggðamálum, í bú- ferlaþróun frá landsbyggðinni til Suðvesmrlands. Samfélagið hefur breyst - ffá því að vera keðja sjálf- stæðra héraða, það er félags-, at- vinnu- og þjónusmsvæða umhverfis landið, - og yfir í að verða borgríki með miðju á Suðvesturlandi og út- stöðvar annars staðar“. Skömmu síðar í greininni má lesa þetta: „Effir um það bil áramg (Innsk. mitt: það er um miðjan næsta áratug) bendir margt til að ástandið verði sem nú skal greina: Islenska borgríkið verður samfellt atvinnu- og þjónustusvæði frá Hvolsvelli um Suðvesturland og höfuðborgarsvæðið að Borgarnesi. Nú þegar búa um 74% þjóðarinnar á þessu svæði og það er ekki fráleitt að um 85% þjóðarinnar muni búa á þessu sama svæði eftír áratug eða svo“. Frumgreinamar og atvi n n u réttu rin n Hér fær landbúnaðurinn og sjáv- Ný stjóm Vinstri grænna á Akranesi og nágrenni Aðalfundur Vinstri hreyfingar- innar græns framboðs á Akranesi og nágrenni var haldinn mánudag- inn 2. október sl. Á fundinum var samþykkt lokauppgjör kosninga- barátmnar vegna sveitarstjórnar- kosninganna sl. vor. Félagið hefur greitt útistandandi skuldir og kem- ur fram í tilkynningu frá því að kosningabaráttan hafi kostað 273 þúsund krónur umffam tekjur. Á fundinum var ný stjórn kosin. Sig- urður Mikael Jónsson, varabæjar- fulltrúi var kjörinn formaður, Hjördís Garðarsdóttir tekur sætí í stjórn eftír árs fjarveru og Katrín Lilja Jónsdóttir tekur sæti í stjórn sem fulltrúi nágrannasveitanna. Garðar Norðdahl og Rún Hall- dórsdóttír voru kjörin tíl vara í stjóm. Vekur það athygli að aðal- menn í stjórn eru allir á aldrinum 20 til 30 ára og er því um mikil kynslóðaskipti að ræða hjá félaginu. Þá samþykkti fundurinn eftirfar- andi álykmn: „Aðalfundur VG á Akranesi og nágrenni haldinn í Garðakaffi 2. október 2006 fagnar því að Bandaríkjaher sé nú farinn af landi brott og að Islendingar skuli effir áramga hersem vera herlaus þjóð. Fundurinn skorar á stjóm- völd að ganga úr NATO svo Island geti loks verið ffjálst og óháð eins og heitið var árið 1918. Þessi tíma- mót opna möguleika á því að loks- ins verði mótðu sjálfstæð utanríkis- stefna sem byggir á afvopnun og friðarviðleimi. Fundurinn mótmælir því harð- lega að Bandaríkjaher skuli hafa verið leysmr undan skyldum sínum við að hreinsa effir sig og skila landinu í því ástandi sem við því var tekið.“ MM arútvegurinn sinn spádóm: „Bændabýlum mun enn mjög fæklca frá því sem nú er og víða kemur slit 1 byggðirnar. Allmörg fyrri býli verða orðin að tómstundabústöð- um og á öðrum verða heimili en at- vinna sótt í aðrar greinar en land- búnað. Afurðastöðvar landbúnaðar- ins verða taldar á fingram. Mjög mun enn fækka störfum í fisk- vinnslu og við fiskveiðar“. Hér fáum við skilgreiningu á hugtakinu byggðaeining: „Tæplega verður litið á byggð sem einingu ef þar búa færri en 8 - 12 þúsund manns, nema sérstakir landshættir valdi. Slíkt gæti átt við t.d. á Vest- fjörðum. Allt bendir tíl þess að sveitarfélögum haldi enn áfram að fækka“. Hér sýnist mér blessað yfir það að hægt sér að braska takmarkalaust með atvinnurétt fólksins á lands- byggðinni: „A undanförnum árum hefur borið mjög á því víða í land- inu að fólk á erfitt með að skilja þá ffamvindu að fjármagnið er „losað frá“ atvinnutækjunum. Síðan er verið að kaupa og selja verðbréf at- vinnuveganna og verðbréfin öðlast „eigin“ tilveru að því er virðist“. Framleiðslugreinar landbúnaðar- ins fá líka sinn skammt af spádóm- um. Hvað skyldi fólk í héruðum sem nú eiga í vök að verjast og byggja afkomu sína að stórum hluta á áframvinnslu landbúnaðarafurða segja? Við getum nefnt Dalina, Norðvesturland, Skagafjörð, Norð- austurland og Suðurland: „Hingað til hafa Borgnesingar, Borgfirðing- ar og Mýramenn einkum starfað að hefðbundinni matvælaframleiðslu. Sú atvinnugrein mun áfram undir- gangast harkalega hagræðingu og fækkun rekstrareininga og starfs- manna á næstu áram. Það era eng- in sóknarfæri í atvinnu á þessu sviði.“ Nýsköpun og jarðnæði Enn spáir byggðamálaráðherr- ann að það sígi á ógæfuhliðina í frumframleiðslugreinum lands- byggðarinnar nema á Eyjafjarðar- svæðinu: „Fyrir utan Akureyrar- svæðið má gera ráð fýrir að utan borgríkisins verði fámennur land- búnaður, og útgerð og fiskvinnsla með fækkandi mannskap líka. Hins vegar má reikna með fjölgun starfa við ferðaþjónustu, útivistarþjónustu og þjónustu við margvíslegan veiði- skap. Ýmsir telja að ísland hafi möguleika í loðdýrarækt og fiskeldi og er þá hugað að þeim greinum á heimsvísu. En þá er þess að gæta að veralegur árangur í þessum grein- um getur fýrst orðið eftír að lokið er tilraunum sem gætu tekið áratugi enn sé miðað við erlenda reynslu“. Hér er því gefið undir fótinn að auðmenn kaupi upp jarðnæði á landsbyggðinni, og vafalaust að þeir geti hneppt bændur og búalið í leiguliðahlekki: „Það er nú þegar brýnt hagsmunamál byggðanna á jaðri borgríldsins, þar með talið á Miðvesturlandi, að beita sér fyrir þeim breytingum á samfélagsregl- um sem stuðla að tvöfaldri búsetu. Þetta lýtur bæði að því að laða nýtt tekjuhátt eignafólk til búsetu á svæðinu og að hinu að koma í veg fyrir að heimafólk neyðist til að flytjast brott þótt það leiti sér starfa annars staðar eða einhverjir í fjöl- skyldunni þurfi að leita á önnur mið“. Niðurlag Þegar litíð er yfir þessa grein þar sem einn af nánustu ráðgjöfum Halldórs Ásgrímssonar þáverandi formanns Framsóknar, tjáir sig um sýn sína um möguleika landsbyggð- arinnar til ffamtíðar, er ekki laust við að manni verði hverft við. í þessari grein kastar framsóknar- úlfurinn af sér sauðagærunni. Flokkurinn hefur í raun ekki haft neinn áhuga á því að viðhalda og byggja upp samfélögin á lands- byggðinni, nema þá kannski á Eyja- fjarðarsvæðinu og á Miðaustur- landi. Heldur skal reisa borgríki á Suðvesturhorninu. Enda er það svo fjölmargar byggðir allt umhverfis land hafa hægt og bítandi verið skornar niður og lífsmátturinn dreginn úr þeim. Þetta hefur verið hin raunverulega stefha ríkisstjórn- ar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks. Er það virkilega svo að við hin viljum stofna hér borgríki, og leggja landsbyggðina í auðn? Frjálslyndi flokkurinn mun aldrei gangast undir slíka stefnu. Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður og varaformaður Frjálslynda flokksins. (Heimild: Jón Sigurðsson, 2004. „Byggðametnaður og þjóðarmetnað- ur“. Grein í Borgftrðingabók 2004. Sögufélag Borgaifjarðar 2004)

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.