Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 24
m » Láttu ekki vandræðin verða til vandræða Ibúðalánasjóður www.ils.is www.skessuhorn.is Daglegar ferðir Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17. Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880 landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is Landfíutningar SAMSKIP Sameining björgunar- sveita í SnæfeDsbæ Stjóm Björgunarsveitanna Bjarg- ar á Hellissandi og Sæbjargar í Olafsvík munu á komandi aðalfimd- um sveitanna óska eftir heimild til sameiningar sveitanna. Aðalfundur Bjargar verður haldinn 22. október, en ekki liggur fyrir hvenær aðal- fundur Sæbjargar verður haldinn, þó er stefht að halda hann í þessum mánuði. Gangi allt eftir munu björgunarsveitirnar þegar í stað sameinast óformlega, en síðan er stefnt að því að formleg sameining verði næsta sjómannadag. Sveitirnar hafa nú þegar nokkurt samstarf með sér. Þær samnýta í dag tæki og tól og em með sameiginlegan útkallslista. Saman hafa þær einnig séð um starf- semi í Breiðuvík og starfssvæði Bjargar nær einnig tdl Rifs. Má í því sambandi nefha að bátur Bjargar liggur í höfninni í Rifi. Davíð Oli Axelsson, formaður Björgunarsveitarinnar Bjargar, sagði í samtali við Skessuhorn að hann byggist við því að tillagan yrði sam- þykkt. A síðustu aðalfundum hefðu sveitdmar fengið heimildir til könn- unarviðræðna um málið og hefðu þær staðið yfir síðastliðið ár. Þær viðræður hafi verið jákvæðar og því sé sameining eðlilegt framhald. Hann segir meirihlutann jákvæðan gagnvart tillögunni, þó auðvitað séu ekki allir á sama máli. „Það er kom- inn tími á þetta, málið hefur lengi verið í umræðunni og þetta er eði- legt næsta skref,“ segir Davíð Oli. Frá afingu Ijirrgunarsveita ogþyrlu Landhelgisgcesltmnar í Rjfshöfn á Snæfellsnesi. Birgir Tryggvason, formaður Björgunarsveitarinnar Sæbjargar, bjóst einnig við að tillagan yrði sam- þykkt á aðalfúndi félagsins. Hann taldi að með sameiningu yrði tdl mtm sterkari eining sem mundi nýt- ast betur í öllum þáttum starfsins. „Þetta er sama sveitarfélagið. Búið að sameina slökkviliðið og því ekk- ert annað að gera en að sameina þetta líka. \úð höfum heyrt í mönn- um annarsstaðar á landinu þar sem sveitir í litlum stöðum sem stutt er á milli hafa sameinast og af því er góð reynsla,“ segir Birgir. Stefnt er að því að eftir samein- ingu muni stjómimar báðar starfa um sinn, líklega fram að næsta aðal- fundi eftir ár. Það verði því tveir for- menn og tvöföld stjórn á meðan verið er að koma hlutunum í fast form. Ekki hefur verið rætt um nafri á nýju sveitina. -KOP Stöðu forvamarfulltrúa komið á fót á Akranesi Bæjarráð Akraneskaupstaðar sam- þykktd á fundi sínum sl. fimmtudag, að stofna stöðu forvamarfulltrúa í bænum. Ráðið verður í stöðuna frá næstkomandi áramótum. Aður hafði tómstunda- og forvamarnelhd mælt með því að stöðunni yrði komið á fót og samið um hana starfslýsingu. I hertni kemur ffarn að forvamar- fulltrúa er ætlað að hafa umsjón með og skipuleggja forvarnarstarf sem unnið er á vegum Akraneskaupstað- ar á hverjum tíma. Starf hans snúi að börnum og ungmennum á grunn- og framhaldsskólaaldri. Starf for- vamarfulltrúa á að ná til flestra þátta sem geta haft áhrif á heilbrigt líferni ungs fólks, t.a.m. betri sjálfsmynd, geðheilsu o.fl. Hann mun hafa sam- vinnu við alla þá aðila sem hafa með málefni barna og ungmenna að gera og er sérstök áhersla lögð á sam- vinnu við foreldra, foreldrafélög, bæjarstarfsmenn, starfsfólk Fjöl- brautaskóla Vesturlands, lögreglu og fulltrúa frjálsra félagasamtaka. Starfsvið forvarnarfulltrúans verður mjög fjölbreytilegt en nefna má að hann mun sinna forvamar- starfi í Fjölbrautaskólanum og hafa fasta viðtalstíma þar. Þá mun hann vinna að forvörnum í samráði við skólastjórnendur grunnskóla. Hann mun mæta á fundi tómstunda- og forvarnanefhdar þegar fjallað er um forvarnamál og stýra starfi ffarn- kvæmdanefndar í forvörnum. Þá mun hann vinna með þeim aðilum sem sinna vinnu gegn neyslu áfeng- is, ólöglegra vímuefna og reykinga. Gerð er krafa um að sá sem gegn- ir starfinu hafi háskólamenntun á sviði uppeldis-, heilbrigðis-, tóm- stunda- eða félagsffæði. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af ffæðslustörfum og vinnu með ungu Ný sldlgreining gæti fært lands- byggðinni hundruði starfa Sex þingmenn Samfylkingarinn- ar hafa lagt ffam á Alþingi tillögu til þingsályktunar um störf án stað- setningar á vegum ríkisins. Þar seg- ir meðal annars að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að skilgreina öll störf á vegum ríkisins sem unnt er að vinna að mestu eða öllu leyti óháð staðsetningu. Það verði með- al annars gert til þess að jafha að- stöðu fólks til að sækja um og sinna margvíslegum störfum á vegum hins opinbera, auka möguleika fólks af landsbyggðinni til að gegna störfum á vegum ríkisins með því að gera hæfu fólki mögulegt að búa víðar en í sveitarfélagi viðkomandi stofnunar, stækka hóp hæffa um- sækjanda um störf á vegum ríkisins og auka skilvirkni og draga úr kostnaði í opinberum rekstri. Þegar slík störf verði auglýst laus til umsóknar verði það sérstaklega tekið fram að hún sé án staðsetn- ingar. I greinargerð með tillögunni segir að áætlað sé að störf hjá stofh- unum og fyrirtækjum í eigu ríkisins séu um 25-30 þúsund talsins. Stærstur hluti þeirra sé á höfuð- borgarsvæðinu. Stór hluti þeirra sé alfarið unninn í háþróuðum fjar- skiptakerfum og því í eðli sínu óháður staðsetningu. Segir að flutningsmenn leggi sértaka áherslu á þann jöfnuð sem ffamkvæmd til- lögunnar mundi skapa á milli landsbyggðar og þéttbýlis. Flutn- ingsmenn segja að engin athugun liggi fyrir um hversu mörg störf gæti þarna verið um að ræða en telja ekki ólíklegt að hlutfall þeirra gæti verið um 20% og með 6-7% starfsmannaveltu á ári gætu losnað um 300-400 slík störf á ári. HJ & MNNINGUR GULLVILOAR ' HN0TSK.URN: ,00 war óeMtkortatersW • 20U . riitnis-Ókeypis . GreiösfuÞiórtUsta Glitms . Netbaair' Glitnis - ÖkeyP'S GuMebet«t: .GU»e<J'tk°rt mvW •6%,e:d:r,Sekki»i6umver« ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERA I GULLVILD GULLVILD Glitnis skarar fram úr annarri vildarþjónustu. Vaxtakjör GULLVILDAR eru í öllum tilfellum hagstæðari en vaxtakjör hinna bankanna og munar allt að 2 prósentu- stigum samkvæmt samanburði á vaxtatöflu bankanna.* SAMANBURÐUR A VILDARÞJONUSTU BANKANNA Þjónusta Yfirdráttar- Innláns vextir vextir Glitnir - GULLVILD 20,25% KB Banki - Gullkjör 22,25% Landsbankinn - Varðan 22,20% SPM-Gull 21,70% Vaxtakjör miðast vtð einstakling með 200.000 kr. innstæðu eða yftrdrátt þann 3. oktöber 2006 FJARHAGSLEG VELGENGNI ÞIN ER 0KKAR VERKEFNI ■

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.