Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTOBER 2006 SSESSUHQÍSKI Þjóðlagasveitin fær styrk AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að veita Þjóð- lagasveit Tónlistarskólans á Akranesi 150 þúsund króna styrk vegna tónleika sem sveitin mun halda á stóra sviði Borgarleik- hússins í Reykjavík. I bréfi sem Lárus Sighvatsson skólastjóri Tónhstarskólans ritaði bæjarráði kemur fram að það sé mikill heiður fyrir sveitina og skólann að fá þetta tækifæri en það sé hins vegar mjög kostnaðarsamt. -hj Bærinn styrkir Kára AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að veita Knatt- spymufélaginu Kára 75 þústmd króna styrk. I bréfi sem félagið sendi bæjarráði kemur íram að ár- angur félagsins í sumar hafi verið sá besti í sögu félagsins en sem kunnugt er komst félagið í undan- úrslit 3. deildar í knattspyrnu. Vegna úrslitakeppninnar þurfti félagið að takast á hendur dýrari ferðalög en reiknað haiði verið með í upphafi. Þá kemur fram að félagið hafi til þessa ekki notið styrkja frá bæjarfélaginu. -hj Gigtarganga á fímmtudag LANDIÐ: í tilefni 30 ára affnæl- is Gigtarfélags Islands og alþjóð- lega gigtardagsins stendur Gigt- arfélagið fyrir gigtargöngu næsta fimmtudag, 12. október kl. 17:30. Verður gengið frá Lækjar- torgi í Reykjavík og upp Banka- stræti, Skólavörðuðstíg og endað í Hallgrímskirkju þar sem hlýtt verður á stutt orgelverk. Einnig verður félagið með opið hús laugardaginn 14. október þar sem boðið verður upp á fræðslu og skemmtun. M.a. verður Arnór Víkingsson gigtarlæknir með er- indi sem hann nefnir: „Meðferð gigtarsjúkdóma;“, -spennandi tímar, stórstígar framfarir. Helgi Jónsson gigtarlæknir flytur einnig erindi um slitgigt og liðaktín. Þá mun Kristján Steins- son gigtarlæknir segja frá starfi rannsóknarstofu í gigtsjúkdóm- um. -fi-éttat.k. Mildlvægt að virða ftiðun blesgæsarinnar Fuglavemd vill minna veiðimenn, bændur, landeigendur og löggæslu- menn á friðun blesgæsarinnar og mikilvægi þess að hún sé virt. Þessa dagana em blesgæsirnar óðum að koma til landsins og em nú nokkur hundmð fuglar mættir á blesgæsa- friðlandið við Hvanneyri. „Blesgæs- in er mtm fáliðaðri en áður sem er ástæða þess að Fuglavemd leitaði til Umhverfisráðherra á síðasta ári með tillögur um ffiðtm þessarar fallegu gæsar. Umhverfisráðuneytið brást vel við með friðlýsingu blesgæsar- innar nú í sumar,“ segir Jóhann Oh Hilmarsson hjá Fuglavernd í samtali við Skessuhom. Samkvæmt nýjum talningartölum vom á síðastliðnum vetri alls 24.804 blesgæsir í Skotlandi og á írlandi en þetta mun vera lægsta tala síðan 1988. Fyrir þann tíma var stofhinn talinn í útrýmingarhættu líkt og nú er. Á árunum upp úr 1980 var grip- ið til margvíslegra ffiðunaraðgerða á Bretlandseyjum og Irlandi og síðar á Grænlandi sem leiddu til þess að nokkuð fjölgaði í stofninum sem varð stærstur 35 600 fuglar veturinn 1999/2000. Ástæða þessarar hröðu fækkunar er ekki vel kunn en léleg varpafkoma á Grænlandi veldur því að stofiúnn þolir ekki hina miklu veiði á Islandi, sem hefur verið á bil- inu 3000-4000 fuglar undanfarin ár, sem er langt umfram getu stofnsins og því var ffiðtm nauðsynleg. Eftir að blesgæsinni tók að fjölga í kjölfar ffiðunar á Bretlandseyjum fjölgaði gæsunum en fækkunin nú gerist samtímis því að fuglaveiðar era í að aukast mjög á íslandi. Fugla- vemd hefúr jafhffamt lagt til að blesgæsafriðlandið í Borgarfirði verði stækkað og að sumir af mikil- vægustu viðkomu- og náttstöðum gæsa sunnanlands verði friðaðir. „Einnig era hugmyndir um að skyn- samlegt gæti verið að banna alla gæsaveiði í Borgarfirði eftir 15. sept- ember en þá hafa grágæsir yfirgefið svæðið svo að þar era aðeins bles- gæsir,“ sagðijóhann Óli. MM Hagnýtt ferðairæðinám I lok október hefst í Ferðamála- skólanum í Kópavogi nýtt nám í ferðafræðum. Um er að ræða hag- nýtt nám sem sérsniðið er fýrir þá sem starfa í eða reka ferðaþjónustu- fyrirtæki á landsbyggðinni. Mark- miðið með hagnýta ferðafræðinám- inu er að gefa ferðaþjónustuaðilum tækifæri til að sækja sér menntun sem sniðin er að þörfum þeirra. Sí- fellt meiri kröfur eru gerðar til þeirra sem að ferðaþjónustu starfa og því er alltaf verið að leggja meiri áherslu á að styrkja stöðu þeirra og færni þessara aðila. Besta leiðin til að koma til móts við þessar kröfur er að efla menntunina. „Ferðaþjónustuaðilar á lands- byggðinni hafa ólíkan bakgrunn hvað varðar þekkingu, færni og getu. Það sem þeir eiga sameigin- legt er að þeir starfa úti á landi og koma frá litlum fyrirtækjum. Þeir eiga þar af leiðandi erfitt með að sækja sér menntun og em þar fjár- magn, tími og fjarlægð helstu vandamálin. Ferðamálaskólinn kemur með þessari nýju námsleið til móts við þessar þarfir,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Námið tekur tvær annir og er í formi fjarnáms. Tvær staðbundnar lotur eru á hvorri önn, sú fýrri í byrjun annar og sú seinni í lok ann- ar. Námið hefst í október og því lýkur í apríl. MM Gistináttum fjölgar mest á Norðurlandi Fjölgun gistinátta heldur áfram miðað við sama tíma í fyrra, en í ágúst er hún mest á Norðurlandi, 23%. I júní og júlí var hún mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, en hún var nú 17% á því svæði. Saman- lögð fjölgun á landsvísu nemur 5,7%, fer úr 154.100 í ágúst árið 2005, í 162.900 í sama mánuði í ár. Minnst er fjölgunin á höfuðborg- arsvæðinu, en hún er tæplega 1%. Athygli vekur að á höfuðborgar- svæðinu fjölgaði gistináttum úr 94.200 í 95.000 á milli ára, eða um 800. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði úr 14.400 í 17.800, eða um 3.400 og á Suðurnesjum, Vestur- landi og Vestfjörðum fjölgaði á milli ára úrr 16.000 í 18.600, eða um 2.400 gistinætur. Gistinóttum á Austurlandi fjölgaði um 4%, eða um 300 og á Suðurlandi um 7,5%, eða um 1.600 gistinætur. Það má því velta því fyrir sér hvort gisti- rými á höfuðborgarsvæðinu sé mettað og aukin sóknarfæri blasi við á landsbyggðinni. KÓP Fyrirspum um mislæg gatnamót ALÞINGI: Valdimar L. Friðriksson alþingismaður Samfýlkingarinnar hefur lagt fram á Alþingi fyrirspum til Sturlu Böðvarssonar samgögnu- ráðherra um hvort til standi að gera mislæg gatnamót eða hringtorg á mótum Þingvallavegar og Vestur- landsvegar. Ef svo er vill þingmað- urinn vita hvenær áædað er að þeim framkvæmdum ljúki. -hj Menning spenn- ing - fyrir hvem? BIFRÖST: Menningarráð Vestur- lands og Háskólinn á Bifröst boða til ráðstefhu um menningu á Vest- urlandi næstkomandi laugardag þann 14. október frá kl. 10-16. Ráð- stefnan var auglýst á baksíðu Skessuhorns í síðustu viku, en í aug- lýsingunni misritaðist dagsetning, en hið rétta er að laugardagur er 14. dagur mánaðarins en ekki sá 15. Þá misritaðist í auglýsingunni nafn söngkonu sem þar kemur fram, hún heitir Elísa Vilbergsdóttir, en ekki Elísabet. -mm Óli hættir RVK Á fundi Umferðarráðs í lok september, tilkynnti Borgfirðingur- inn Óli H Þórðarson fulltrúum í ráðinu að hann hefði óskað eftir því við samgönguráðherra að verða leystur ffá formennsku í Umferðar- ráði. Nýr form. verður því skipaður ffá síðustu mánaðamómm. -mm Vinnuumhverfi hættulegt LANDIÐ: Landssamband lög- reglumanna telur vinnuumhverfi lögreglumanna sífellt hættulegra. Á síðustu vikum hafa komið upp tvö tilvik þar sem lögregla hefur þurft að hafa afskipti af hættulegum brotamönnum með hlaðin skotvopn en við ffamkvæmd þeirra starfa geta lögreglumenn verið í augljósri hættu. I tilkynningu kemur ffam að Landssamband lögreglumanna hef- tur í mörg ár barist fyrir því að starfs- umhverfi lögreglumanna verði bætt og þannig dregið úr þeirri hættu sem felst í ffamkvæmd lögreglu- starfa. -mm PISTILL GISLA Margoff hef ég, síðustu árin, hér á þessum stað, þusað og tuðað, masað og fussað og tuldrað og muldrað yfir því að fá ekki nema á stöku stað stöku matarbita sem sannarlega getur talist mannamat- ur. Þar á ég að sjálfsögðu við á veit- ingastöðum því skýrt skal tekið ffarn að þar sem ég hef þegið vott eða þurrt í heimahúsum hefur það tmdantekningalítið verið hið besta fóður. Sem betur fer hafa veitingamenn landsins greinilega þann þroska til að bera að lesa Skessuhom því á undanfömum árum hefur fóður- ffamboð á veitingastöðum vítt og breitt um landið batnað til muna. Liggur í augum uppi að það er vegna áhrifa ffá pisdaskrifum mín- um í Skessuhorni. Það er hinsvegar engan veginn nægjanlegt að maturinn sé þokka- lega ætur þótt það sé mjög í rétta Einnota samfélag átt. Hvemig hann er framborinn, þ.e.a.s. framburðurinn, hefur einnig afar mikið að segja. Sömu- leiðis umhverfi sem etíð er í og geðslag þjónusmfólks og borðfé- laga svo fátt eitt sé nefnt. Eitt atriði skal hér fjallað um sérstaklega, sem engirm skyldi vamneta, það er hrá- efnið í amboðtmum. Það skiptir nefnilega mun meira máh en flest- ir gera sér grein fyrir varðandi gæði máltíðar úr hverju hnífapörin em smíðuð. Að undanfömu hef ég ítrekað orðið fyrir því að ágæmm máltíð- um hefur verið spillt með ónýtum amboðum. Nýjasta dæmið er síðan á fimmmdag en þá átti ég leið um Flugstöð Leifs heitins Eiríkssonar og líkt og offast áður þá snæddi ég í þar til gerðri kaffiteríu. Þar er hægt að fá ágætan mat, að vísu fjöldaffamleiddan og karakterlaus- an, en sæmilega bragðgóðan. Nú brá hinsvegar þannig við að áhöld- in sem ég fékk til að koma þessu ofan í mig vom gerð úr plasti. Þau vora ofaníkaupið í minna lagi og veigalítil. Eg lagði að sjálfsögðu inn fyrirspum en fékk þau svör að annað væri ekki í boði. Með öðram orðum þá eiga ferðalangar ekki annars kost en að yfirgefa landið með plastbragð í munni. Fyrir fáum dögum varð ég fyrir enn verri lífsreynslu. Þá fjárfesti ég í dýrindis plokkfiski á ónefndum matsölustað í Reykjavíkurhreppi. Þar var heldur ekki annað í boðinu en plasthmfapör, nema að í þetta skiptið hafði verið reynt að breiða yfir skömmina með því að mála hnífapörin í silfurgráum lit þannig að úr fjarlægð hm þau út fyrir að vera ósvikin. Vissulega var hægt að hugsa sér verri andstæðing en plokkfisk að kljást við með plastvopnum. Eg hef hinsvegar offar en einu sinni þurft að vinna á seigustu steikum þannig útbúinn og það er eiginlega offaun fyrir þá lagni og það langlundargeð sem ég hef yfir að ráða. Mér hefur ekki tekist að fá við- hlýtandi skýringu á stóraukinni plasthnífaparanotkun á íslenskum veitingastöðum. Varla gemr það verið spamaður því tæplega gemr það verið ódýrara að kaupa ný og ný amboð í hvert sinn sem etið er, jafhvel þótt þau séu úr plasti. Ekki sé ég að umhverfissjónarmið ráði ferðinni þar sem það getur varla talist umhverfinu til heilla að auka noktun einnota verkfæra. Vissulega er plastið endurvinnanlegt en það eru málmáhöldin einnig. Eg sá meðal annars í hinum ágæta norska sjónvarpsþætti, Norges Rundt, viðtal við ágætan mann í norður Noregi sem ffamleiðir í massavís ýmis konar skúlptúra úr gömlum hnífapömm. Á dögunum sá ég líka annað dæmi um endurvinnslu hnífapara utan á þjóni einum á Hótel Hamri í Borgamesi en hann bar með stolti bindisnælu gerða úr kökugaffii. I öllu falli þykir mér það affurför ef maður þarf að bera með sér sín eigin hnífapör hvert sem maður fer, til öryggis ef mann skyldi svengja. Gísli Einarsson, matmaöur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.